Þjóðviljinn - 17.08.1963, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 17.08.1963, Qupperneq 1
Laugardagur 17. ágúst 1963 — 28. árganður — 173. tölublað. Tólf Eyjabátar teknir fyrir ólöglegar veðar Síðastliðnar þrjár vikur hcfur landhelgisgæzlan tekið 12 Vestmannaeyjabáta fyrir ó- löglegar vciðar í landhelgi. 25. júlí sl. v'oru teknir 4 humarveiðibátar og einn tog- veiðibátur. 8. ágúst tók land- helgisgaezlan aftur 2 humar- veiðibáta og 1 togveiðibát og enn tveim dögum síðar 2 humarveiðibáta og 1 togbát. Loks tók hún 1 í fyrrakvöid. Stjórnarbföðm margsaga í lygum sinum um Hvalfjörð * Það er til marks um hina sérstæðu sambúð Guðmund- ar í. Guðmundssonar utanríkisráðherra við sannleikann, að málgögn hans eru nú önnum kafin við að reyna að fela staðreyndir þær sem hann játaði fyrir fulltrúum Alþýðubandalagsins, Hannibal Valdimarssyni og Eðvarð Sigurðssyni, fyrir nokkrum dögum. , * * I viðtalinu sagði Guðmundur I. Guðmunds- son að það yrði einn liður samninganna um Hval- fjörð að komið yrði fyrir mjög rammgerðum múmingum á fjórum til fimm stöðum í firðin- um. Jafnframt yrðu geymd í firðinum legufæri, og yrði þessum viðbúnaði þannig háttað að hægt yrði að nota hann fyrir herskip og kafbáta, þar á meðal kjarnorkukafbáta. Hins vegar yrðu legu- færin ekki tengd múrningunum nema með sér- stöku leyfi utanríkisráðherra, og myndi hann ekki veita slíkt leyfi nema á sérstökum hættu- tímum eðá ef styrjöld væri skollin á. * Þessi ummæli ráðherrans eru algerlega ótví- ræð, og þrátt fyrir skrif st.iórnarblaðanna í gær og fyrradag ber ráðherrann ekki við að halda því fram að Þjóðviljinn hafi farið rangt með framburð hans í frásögn sinni í fyrradag. BoSa farmenn til vinnustöðvunnar? * rAð undanförnu hafa farið fram samninga- viðræður um kaup og kjör farmanna en ekkert samkomulag hefur enn náðst. Hafa fimm félög sem að samningum þessum standa nú samþykkt heimild til vinnustöðv unar. Félög þau sem samþykkt hafa heimild til vinnustöðvunar eru Sjómannafélag Reykjavíkur, Fé- lag matreiðslumanna. Fél. fram- reiðslum., Vélstjórafélagið og Stýrimannafélagið en hins vegar hefur Skipstjórafélagið enn ekici gert ráðstafanir til \nnnustöðv- unar. Langt er nú liðið síðan far- mannasarnningunum var sagt upp og fara farmennirnir fram á allmiklar breytingar á þeim einkum varðandi ákvæði um vinnutíma og yfirvinnugreiösl- ur auk fleiri atriða. Félögin hafa átt viðræður sin á milli um samstöðu í kjaradeil- unni en samkvæmt upplýsingum sem Lióöviljinn fékk í gær lijá Sjómannafélaginu hafa bau enn ekki tekið neina ákvörðun jm boðun vinnustöðvunar. Síldarlöndun í Reykjavík í gær MYNDIN var tekln við Reykja- víkurhöfn síðdcgis í gær og sýnir síldarbáta sem verið er að landa úr. Bátarnir voru með smásíld en af henni hef- ur veiðzt allmikið hér að undanförnu fyrir sunnan land eins og kunnngt er af fréttum. — (Ljósm. Þjóðv. G.O.) Engu að síður hefur Vísir þau ummæli eftir ráðherranum i fyrradag að það sé „tilhæfulaust með öllu að í ráði sé að gera herskipa- og kafbátastöð í Hval- firði“. Minnist blaðið ekki einu orði á múmingamar í fjarðar- botninum og talar aðeins um legufæri í sambandi við oh'u- hryggju. Hvort sem þetta er rétt eftir haft í Vísi eða ekki, forð- ast ráðherrann að láta Aiþýöu- blaðið og Morgunblaðið hafa nokkuð eftir sér í gær! I staðinn birtir Alþýðublaðið forystugrein minnist ekki heldur einu orði á múmingamar en reynir að gera sem minnst úr öllu og segir: örfirisey við Reykjavík eru miklir olíugeymar. Þar eru flota- leiðslur í stað bryggju og legu- færi fyrir stærstu skip úti. Er þetta herskipa og kafbátastöð?" Morgunblaðið ætlar að hafa h.liö- stæðan hátt á í forsíðugrein. en kemur óvart upp um falsanim- ar; það segir: „Jafnframt er um það ræts, að leyfa smíði á bryggju og gerð legufæra í samræmi við þarfir stöðvarinnar. Legufæri yrðu þó geymd í landi og ekki notuð nema samkvæmt sér- stökum heimildum íslenzkra stjórnarvaida, ef nauðsyn væri talin krefja.“ Legufæri sein geymd verða í landi og ekki má nota nema samkvæmt sérstökum heimildum eru engar venjulegar bindingar fyrir olíuskip eins og í örfiris- ey!! Þetta er ný aðstaða fyrir flota Atlanzhafsbandalagsins. herskip og kafbáta, eins og ráðh. hefur sjálfur játað fyrir vitnum. Framhald á 2. síðu. ÓVENIUMIKIÐ UM SLYSFARIR HÉR A LANDI í AR: lðnaðar-og íbúðarhverfí skipulögð A BORGARRAÐSFUNDI sl. þriðjudag var lagt fram bréf samvinnunefndar um skipu- Iagsmál. dags. 13. þ.m. þar sem skýrt er frá að nefndin hafi samþykkt tillöguuppdrátt að skipulagi íbúðarhverfis í Arbæjarblettum og skipulagi iðnaðarhverfa í Artúnshöfða og svæði milli Vesturlands- vegar og Suðurlandsvegar. Féilst börgarráð á uppdrátt- inn í meginatriðum. IÐNAÐARHVERFIÐ verður í fjórum hlutum alls um 1 millj. fermetra en í íbúðar- hverfinu ýerða lóöir fyrir 72 einbýlishús. Er það upphaf að íbúðarhverfi fyrir 6—8 þús. manns sem þarna á að rísa í framtíðinni. Samkvæmt upplýsing- inn sem Þjóðviljinn fékk hjá Slysavamarfélagi ís- lands í gær hafa alls 82 menn farizt af slysförum hér á landi þaS sem af er þessu ári eSa frá 1. janúar til 15. ágúst. Á öllu árinu 1962 fórust hins vegar alls 55 menn af slysförum hér á landi. Frá áramótum hafá alls 35 drukknað, þar af hafa 20 farizt með skipum, 7 hefur 82 menn hafa farlzt af slysförum frá áramótum tekið út af skipum og 8 hafa drufcknað við land eða í ám og vötnum. A sama tíma hafa 13 manns farizt í umferðaslysum. Þá hafa alls 34 ‘ menn farizt af ýmsum orsökum: 6 hafa far- izt af bruna, 2 látizt af eitr- un, 8 af byltu, 14 farizt í flug- slysum, 2 orðið úti, 1 beðið bana af voðaskoti og 1 af raf- losti. I fyrra fórust alls 55 menn af slysförum á öllu árinu, þar af drukfcnuðu 35, 11 fórust í umferðarslysum og 9 af öðr- um orsökum. Af þessum tölum sést að mun fleiri dauðaslys hafa orð- ið hér á landi á beim sjö og hálfum mánuði sem af er ár- inu en á öllu árinu í fyrra og samanburður við næstu ár á, undan leiðir til svipaðrar niðurstöðu. Þannig fórust alls af slysförum á árinu 1961 60 manns, 44 árið 1960. 103 árið 1959 og 57 árið 1958. Aðeins árið 1959 er heildartala árs ins hærri en nú, en bað ár var óvenjumikið uvn sjóslys. m. a. fórust þá togarinn .Túlí og vitaskipið Hermóður bæði með allri áhöfn C r

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.