Þjóðviljinn - 21.08.1963, Síða 1
Miðvikudagur 21. ágúst 1963 — 28. árgangur — 176. tölublað.
Undirbúningur nýrra
hernámsframkvæmdu
Síðustu 4 ár hafa íbúðabyggingar á íslandi dregizt saman um 17%
Á sama tíma hefur orðið allt að 25% aukning á hinum Norðurl.
Þörf stórfellds átaks
í húsnæðismálunum
Ilerstöð Nato S Hvalfirði, sem ber nafnið Hvalfjörður Security Camp. Þar hefur mörg ár hafst
við nokkur hópur hernámsliða, sem mjög hafa leikið Iausum hala um nágrennið og í engu farið
eftir reglum. Það esr þeirra „Security“, eða öryggi. (Ljósm. Þjóðv. G. O.).
■ Þjóðviljinn hefur að undanförnu rifjað upp
nokkra þætti húsnæðismála og íbúðabygginga hér
á landi og á hinum Norðurlöndunum í saihbandi
við ráðstefnu um húsnæðismál, sem haldin var
í Reykjavík fyrir nokkru. Hefur glögglega kom-
ið f Ijós í þeim samanburði hve langt við erum
á eftir nágrannalöndum okkar, hvað varðar lána-
kjör og ýmsa aðra fyrirgreiðslu við íbúðabyggj-
endur.
Það hefur oftar en einu sinni
verið bent á þá staðreynd, að
vegna hins gífurlega dýrtíðar-
‘lóðs, og hækkunar á bygging-
nrkostnaði, sem viðreisnin hef-
ur haft í för með sér, hafa
búðabýggingar stöðugt dregizt
saman hér frá því 1959, en á
Hinum Norðurlöndunum hefur
verið stefnt jafnt og þétt að
nukningu íbúðarhúsnæðis mið-
ið við íbúatölu. Þegar þess er
‘afníramt gætt að fólksfjölgun
Mótmæia
bróðabirgða-
lögunum
Þjóðviljanurr\ bárust í gær eft-
irfarandi mótmæli frá stjórn Fé-
lags ráðgjafaverkfræðinga vegna
bráðabirgðalaga ríkisstj ómarinn-
ar um lausn kjaradeilu verkfræð-
inga:
„Stjórn Félags ráðgjafa-
verkfræðinga mótmælir bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar
um lausn kjaradeilu verk-
fræðinga. er sett voru í dag
17. ágúst, 1963.
Auk þess að fella niður,
með valdboði, samningsrétt
verkfræðinga í launþegastétt,
banna Iögin ráðgjafa-vcrk-
fræðingum að verðleggja
þjónustu sína. Þá verðlagn-
Ingu eiga aðrir aðilar að meta
Og má öllum Ijóst vera, hve
fráleitt slíkt er, enda cru ekki
fordæmi fyrir slíku.
Stjórn félagsins lítur svo á.
að lögin verði til þess að
draga úr verklegum framför-
um, en við því má íslenzka
þjóðin sízt“.
er langmest. hlutfallslega hér á
landi, sézt enn betur hve mjög
við höfum verið að dragazt aft-
ur úr á þessu sviði frá því að
viðreisnarstjómin tók hér við
völdum, enda hefur húsnæðis-
skortur vaxið mjög á þessu
tímabili. Afleiðingin af því er
svo að sjálfsögðu hækkað verð
á leiguhúsnæði, enda þótt húsa-
leiguvísitalan haggist ekki frem-
ur en krati í ráðherrastól, hvað
sem allri dýrtíð og versnandi
afkomu almennings líður.
Gylfi Þ. Gislason viðskipta-
málaráðherra skrifar grein í
Alþýðublaðið sJ. laugardag
um „íbúðabyggingar og þjóð-
arframieiðslu" og vitnar þar
til skýrslu norska bankastjór-
ans Jóhanns Hoffmans um
ástand íbúðabygginga hér.
Er helzt að skilja á ráðherr-
anum, að hér sé byggt meira
af íbúðum en á hinum Norð-
urlöndunum, þar sem hærri
hlutfallstala af þjóðartekjum
okkar hafi farið til íbúða-
bygginga en í hinum lönd-
unum. Segir ráðherrann þar
m.a.: „Hér á iandi hefur und-
anfarið verið byggt svo mik-
ið, að húsnæðisvandamálið
er nú smám saman að ieys-
ast (!), þótt enn sé að vísu
mlkils átaks þörf...“ (svo!).
Og ennfremur; „En það sýnir
villandi mynd af ástandi hús-
næðismálanna og opinberum
afskiptum af þeim, að undir-
strika lánsmöguleika og iáns-
kjör, en þegja um það, hversu
mikið er byggt í raun og
veru.“
Þetta er vissulega hárrétt hjá
Framhald á 2. síðu.
Fleiri myndir og
frásögn úr Hval-
■ firði eru á 10. síðu
<$>-
íbúðabyggingar á árunum 1959-1962
Hiutfalls-
tala 1962
IST-----
Tala fullg. íbúða
Fólksfjöldi í þús.
Aukning íbúða á \
NOREGUR
Tala fullg. íbúða
Fólksfjöldi í þús.
Aukning íbúða á \
SVÍÞJÓÐ
Tala fullg. íbúða
Fólksfjöldi í þús.
Aukning íbúða á \
FINNLAND
Tala fullg. íbúða
Fólksfjöldi í þús.
Aukning íbúða á \
1959 1960 1961 1962 miðað við 100 1959 Mism. í %
1.526 1.484 1.209 1.266 83,0 -17
\174 177 180 184 105,7 5,7
s. 8,8 8,4 6,7 6,9 78,4 -21,6
26.566 26.773 28.260 27.767 104,5 4,8
3.572 3.593 3.614 3.635 101.8 1,8
s. 7,4 7,5 7,8 7,6 102,7 2,7
69.300 68.300 73.800 75.124 108,4 8,4
7.466 7.496 7.520 7.544 101,0 1,0
ls. 9.3 9,1 9,8 10,0 107,5 7,5
29.940 31.525 • 37.299 37.469 125,1 25,1
4.434 4.473 4.497 4.521 102,0 2,0
is. 6,8 7,0 8,3 *,3 122,1 22,1
Þfiir eru mjög njósnahræddir í HvaJfjörður Security Camp þessa
dagana. Hímandi innan við rammlega gaddavírsgirðingu taka þeir
myndir af „njósnurum", sem eiga leið framhjá.
‘f’ Sunnudagsmorguninn 11.
ágúst sáust nokkrir her-
námsliðar við landnfteling-
ar f Hvítanesi í Kjús, en
þar var sem kunnugt er
bæði herskipahöfn og kaf-
bátalægi í síðustu styrjöld.
Fyrir hverju voru þeir að
mæla í Hvítanesi, ef það er
satt, sem Guðmundur f.
Guðmundsson segir, að ein-
ungis standi fyrir dyrum
stækkun olíustöðvarinnar á
Hvalfjarðarströnd?
Það er vitað að Banda-
ríkjamenn hafa lengi
haft ágirnd á Hvalfirði.
sem bækistöð fyrir Pol-
aris-kafbáta sína og
hafi íslenzkir ráðamenn
tregðazt við jafn lengi
er nú - augljóst að þeir
hafa látið undan öllum
kröfum herraþjóðarinn-
ar.
Bifreið eyði-
leggst — tveir
menn meiðast
Um hádegi í gær varð mjög
harður bifreiðaárekstur á mót-
um Suðurlandsbrautar og Háa-
leitisvegar. Lcntu fjórar bifreið-
ir þar I árekstri og eyðilagðist
ein þeirra og önnur stórskemmd-
ist en tveir menn sem voru í
einni bifreiðinni meiddust nokk-
uð og voru fluttir I slysavarð-
stofuna,
Árekstur þennan bar að með
þeim hætti að lögreglubifreiðin
R-2010, er var á leið austur
Suðurlandsbraut og ætlaði að
beygja inn á Háaleitisveg, nam
staðar við gatnamótin til þess
að bíða eftir umferð á móti.
Um leið og lögreglubifreiðin nam
staðar var steypubifreiðinni
R-4571 ekið aftan á hana og
kastaðist lögreglubifreiðin við
höggið út á götuna og lenti þar
á nýlegum Skodabíl, í-755 en
um leið var vörubifreiðinni
R-3497 ekið aftan á steypubif-
reiðina.
Skodabifreiðin varð verst úti
í árekstrinum og er hún talin
gerónýt. I henni voru tveir
menn og meiddust þeir báðir en
þó efcki alvarlega að talið er.
Sá sem ók Skodabifreiðinni heit-
ir Anton Haukur Gunnarsson til
heimilis að Þingeyri óg er hann
eigandi bifreiðarinnar. Með hon-
um í bílnum var Kristján Óla-
son til heimilis á ísafirði. Menn
þessir eru báðir fatlaðir. Voru
þeir fluttir í slysavarðstofuna.
Lögreglubifreiðin skemmdist
einnig talsvert mikið við á-
reksturinn en hinir tveir bílarn-
ir minna.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar hefur það
farið mjög vaxandi sl. þrjú ár
að ekið væri þannig aftan á
bíla vegna ógætni í umferðinni.
Vantraust á
Gerhardsen
Sjá síðu ©
V