Þjóðviljinn - 31.08.1963, Blaðsíða 1
Jл
Laugardagur 31. ágúst — 28. árgangur — 185. tölublað.
Skipin streymdu til
Raufarhafnar í nótt
Seint í gærkvöld hafði Þjóðviljinn samband við
Síldarleitina á Raufarhöfn og var þá komin norð-
ausian bræla á miðunum út af Langanesi og hafði
farið vaxandi í gærdag. Meðan birtu naut í gær-
dag höfðu bátarnir þó kastað oft um daginn og
sum fengið dágóðan afla.
Vitað var um þessi skip á leið ingur 1400, Kópur 700, Áskell
til Raufarhafnar í gærkvöld með 400, Ölafur Magnússon 500, Sæ-
eftirtalinn afla í málum. Skaga- ( fari 400 og Hávarður 500. Fleiri
röst 900, Héðinn 1300, Amfirð- 1 skip höfðu fengið afla og talið
sennilegt að þau legðu leið sína
til Raufarhafnar í nótt, en ekki
vestur til Siglufjarðar vegna
óhagstæðrar vindáttar.
Ekki er talin ástæða til þess
að örvænta út af norðvestan-
brælunni og er hún aldrei lang-
vinn á miðunum út af Mel-
rakkasléttu og við Langanes.
Skip eru ennþá að bætast í
hópinn á veiðisvæðinu út af
Langanesi og er það í nákvæmri
staðsetningu um 65 sjómilur
norðaustur frá Raufarhöfn.
Brælunni linnir kannski í dag.
FREYR SELDUR ÚR LAND
Nú hefur verið gengið frá sölu togarans Freys
út úr landinu og fékk Þjóðviljinn söluna stað-
festa í gær hjá fyrirtækinu ísbjöminn, en frekari
upplýsingar lágu ekki fyrir hendi hjá þessum aðila.
Eigandi togarans, Ingvar
Vilhjálmsson var ekki við-
látinn í gær. Þjóðviljinn
hefur frétt eftir öðrum
leiðum að kaupandi togar-
ans sé Rosshringurinn í
Englandi. Upplýsingar um
verð liggur ekki ennþá á
lausu og er einkennileg
þögn á hærri og lægri
stöðum um þessa sölu.
Næstu daga sjáum við
eftir nýjasta og stærsta
togara okkar út úr land-
inu og stórvirku fram-
leiðslutæki og einu full-
komnasta fiskiskipi okkar
íslendinga. Þetta er við-
reisnin í verki.
Nokkrir togarar liggjahér
inn á sundum og sala á
þessum togurum er líka
orðin umtöluð hér í bæn-
um. Það er talið, að enskir
milliliðir vilji kaupa þá og
hugsi sér að láta lengja þá
og selja síðan til Grikk-
iands.
Togarútgerð virðist ekki
2iga upp á pallborðið hjá
íúverandi valdhöfum og er
'iotið sofandi að feigðarósi.
Er meiningin að selja
stórvirkustu framleiðslu-
taékin út úr landinu og
hætta að afla gjaldeyris í
'jóðarbúið.
Rýrnandi gjaldeyrisöflun
táknar rýrnandi velmegun
fyrir almenning í landinu
og er togarasalan hörmuleg
tíðindi.
fstanginn
mikli út af
Vestfjörðum
f FYRRADAG fór landhelgisflng-
vélin Sif í ískönnunarflug yfir
hafið milli fslands og Græn-
lands en slík rannsókn á ís-
röndinni er gerð öðru hvoru
bæði í vísindaicgum tilgangi
og vegna öryggis á siglinga-
leiðum. Með £ förinni var Jón
Eyþórsson veðurfræðingur en
skipherra var Garðar Pálsson.
A MEÐFYLGJANDI KORTI sést
hvemig hafísbreiða mUIi fs-
lands og Grænlands leit út
séð úr flugvélinm. Út úr meg-
inisnum teygist geysilangtu:
tangi sem er skemmst 46 sjó-
mílur frá Kögri á Vestfjörð-
um.
Enn fjallað um
flugfargföld
yfir Aflanzhaf
MONTREAL 30/8 — Tilkynnt
var í dag í aðalstöðvum hins al-
þjóðlega flugmálasambands,
IATA, að skipuð hefði verið sér-
stök nefnd sem á að kynna sér
öll atriði varðandi flugfargjöld
á leiðum yfir Atlanzhaf. Nefndin
kemur saman í Salzburg í Aus.t-
urríki 9. september. stæðan til
nefndarskipunarinnar er sú að
áður en langt um líður lýkur
gildistíma samninga alðildarfé-
laga IATA um þessi fargjöld.
Nýtt samningsuppkast hefur ver-
ið samþykkt af XATA, en ríkis-
stjómir þeirra landa sem hlut
eiga að máli hafa ekki allar vilj-
að fallast á öll atriði þess.
VÍSIR FER MEÐ ÓSATT MÁL:
Kröf ur um Hvalf jörð haf a
verið gerðar s.l. áratug
Vísir ber í gær á móti því í
forustugrein að nokkum tíma
hafi verið sótzt eftir Hvalfirði
sem flotastöð og segir berum
orðum: „Sannleikurinn er sá að
aldrei hefur komið til greina af
hálfu Nato að breyta Hvalfirði
í kafbáta- eða herskipalagi!“
Hvort sem þessi ummæli stafa
af fáfræði eða ósvífni eru þau
alger misþyrming á sögulegum
staðreyndum.
Krafan um fullkomna her-
skipahöfn í Hvalfirði var lögð
fyrir ríkisstjórn Islands fyrir
tæpum áratug. Fylgdí henni
allnákvæm áætlun um fram-
kvæmdir, m.a. var þar gert
ráð fyrir að kafbátahöfn yrði
sprengd inn í Þyril og var
ætlazt til þcss að hún gæti
staðizt hinar aflmestu spreng-
ingar. Þegar þessi krafa var
borin fram var Kristinn
Guðmundsson utanríkisráð-
herra, og hefur málgagn hans,
Tíminn, margsinnis staðfest
aö hér er rétt hermt.
Krafan um Hvalfjörð var end-
umýjuð 1957. Þá fylgdi áætlun-
in um Þýril ekki með. héldur var
gert ráð fyrir nýrri oh'ustöð,
sökklum á hafsbotni og legufær-
um sem hægt væri að nota fyrir
herskip og kafbáta. Jafnframt
var þá farið fram á lóranstöð á
Snæfellsnesi og aðstöðu á Akra-
nesi til fjarskiptaþjónustu. Guð-
munduK I. Guðmundsson var þá
utanríkisráðherra. Hann lagði
málið aldrei fyrir ríkisstjómina;
hinsvegar viðurkenndi hann 1
viðtali við fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins fyrir skemmstu að þessi
krafa hefði komið fram á nýjan
leik 1957, eins og áður hefur ver-
ið rakið hér í blaðinu.
Eftlr að vinstristjórnin fór frá
hefur verið unnið að þvf að
framkvæma kröfur Atlanzhafs-
bandalagsins. Guðmundur 1 Guð-
mundsson heimilaði lóranstöðina
á Snæfellsnesí snemma árs 1959,
síðan hefur hann Ieyft að mæld-
ur værl upp allur botn Faxa-
flóa tn þess að'gera ný kafbáta-
kort, og nú er verið að semja
um nýja olíubirgðastöð í Hval-
firði, sökkla og legufæri fyrir
hcrskip og kafbáta. Aðeins fylg-
ir það með að legufærin megi
ekki nota fýrr en ríkisstjórn ís-
lands heimili það!
Ríkisstjóm Islands er þannig
að láta undan kröfum sem for-
ráðamenn Bandarikjanna og Atl-
anzhafsbandalagsins hafa beitt
sér fyrir í nærri áratug. Til þess
er valinn sá tími þegar friðvæn-
legar horiir í samskiptum stór-
veldanna en nokkru sinni fyrr
síðan stríði lauk; Islandi er ætl-
að það hlutverk að vera varan-
leg og stækkandi herstöð á sama
tíma og herstöðvakerfið kann að
dragast saman umþverfis okkur.
Nýtt veiðisvæði
fyrir austan
Nýtt veiðsvæði heíur opnast á síldarmiðunum
fyrir austan og er það staðsett 32 til 60 sjómílur
út af Gerpi. Fengu 14 skip dágóðan afla þarna
í fyrrinótt og lönduðu honum í síldarhæjunum
á Austfjörðum í gærdag.
Flotinn fyrir austan tók stefn-
una á þetta veiðisvæði í gær-
dag og seint 1 gærkvöld hafði
Þjóðviljinn samband, við Síld-
arleitina á Seyðisfirði og spurði
tíðinda af svæðinu. Frá klukkan
átta í gærkvöldi hafa skip feng-
ið dágóð köst og var vitað um
þessa báta, sem þegar höfðu
fengið veiði. Gullfaxi, Guðrún
Þorkelsdóttir, Jón á Stapa, Hof-
fell, Ölafur Tryggvason og Vatta-
nes. Höfðu þessir bátar þegar
pantað söltun á Seyðisfirði og
Norðfirði, en voru ennþá að
kasta. Þrjátíu skip voru á be.ss-
um slóðum og höfðu öll fengið
einhvern afla og voru að veiðum,
þegar blaðið fór í prentun.
BÍLSLYS
★ Þriggja ára drengur lenti
utan í bifreið á Laugamesveg-
inum í gærdag. Hann heitir Sig-
urður Rafn. Drengnum var ekið
á Slysavarðstofuna og gert að
meiðslum litli snáðans. Þau
reyndust ekki mikil.
t
1