Þjóðviljinn - 04.09.1963, Síða 1

Þjóðviljinn - 04.09.1963, Síða 1
TVCIR PILTAR JÁTA Á SIC ÁRÁSIRNAR Miðvikudagur 4. september 1963 — 28. árgangur — 188. tölublað. Laust eftir hádegi í gær handtók rannsókn- arlögreglan í Reykjavík tvo pilta sem hún hafði grunaða um að vera valda að líkamsárásum þeim og ránum sem framin voru aðfaranótt sl. sunnudags og frá var skýrt hér í blaðinu í gær. Játuðu piltarnir við yfirheyrslu í gær á sig verknáðinn. » Annar þessara pilta er 19 ára gamall en hinn 21 árs og á annar þeirra heima hér í Reykjavík en hinn í Kópa- vogi. Hefur annar þeirra áður komið við sögu hjá lögreglunni vegna þjófnað- ar og árásar en hinn er nýr í greininni. Eins og frá var sagt hér í blaðinu í gær réðust piltar þessir fyrst á mann sem beið eftir strætisvagni á móts við Elliheimilið Grund og slógu þeir hann í göt- una og rændu hann 12—14 hundruð krónum í pening- um. Um hálfum öðrum tíma síðar réðust þeir svo á 63 ára gamlan mann við hús- dyr hans á Vitastíg, slógu hann einnig í rot og rændu hann 2000 krónum í pening- um. Rannsókn í máli piltanna var rétt að hefjast í gær og er enn ekki vitað hvort þeir hafa verið eitthvað viðriðnir árásina sem gerð var á gull- smiðinn á Hverfisgötu að- faranótt sl. laugardags en þar voru fjórir og þó öllu heldur fimm menn að verki. Piltarnir sitja í gæzluvarð- haldi. Saltað áSefðhfítði HUGSJÚNSR -OG BASL OG KRAFS í HNUSLI! », »,» , við eigum ekki hugsjónir. Við áttum þær, en sviftibyljir hafa feykt þeim út í liafsauga. Við kröfsum og kröfsum, för- um gandreið um Ioftið, eða við rótum í krafsinu, bösi- um í hnaslinu — og eig- um ekki ncina trú“. ★ Þessa spaklegu klausu má lesa í pistli Hannesar á Horninu í Alþýðublað- inu í gær, — og hefur hanh ekki í annan tíma verið orðheppnari, gamli maðurinn, þótt oft hafi ýmisiegt snjallt sézt eftir hann á prenti. Einkum hefur það komið fyrir við og við þessi síðustu „við- reisnarár“, að Hannes hef- ur ekki getað orða bundizt, og sagt sannleikann um- búðalaust um það hvernig viðreisnin hefur Ieikið al- menning. ★ Og nú hefur bersögli hans cnn einu sinni hitt í mark: Sannorðari lýs- ingu á Alþýðuflokknum i , dag mun ekki að finna í nokkurs manns munni heldur en í þessum línum Hannesar á Horninu í gær. Guðrún væntanleg heim I dag frá NY íálagft tekur upp reglubundnar strandferðir í fréttatilkynningu sem ÞjóSviljanum hefur borizt frá Eimskipafélagi íslands segir aö 19. október n.k. muni Mánafoss hefja reglulegar strandferðir til Vest- fjarða og Norðurlands og e.t.v Austfjarðahafna. Verð- ur ferðum þessum haldið uppi til áramóta til reynslu 1 fréttatilkynningu Eimskipa- I ráði er hjá Eimskipafélaginu félagsins um þetta efni segir að taka upp reglubundnar evo; strandferðir. Upphaflega var m.s. „MÁNAFOSS" ætlaður til þess að bæta þjónustuna við strönd- ina, þegar hann var keyptur á öndverðu þessu ári, en vegna mikilla anna hefur skipið ver- ið í millilandasiglingum fram að þessu og þá aðallega annast flutninga frá útlöndum beint til hafna úti á landi. Nú hefur á- Framhald á 2. síðu. ■ Togaraútgerðin hefur sem kunnugt er geng- ið óvenjulega vel í sumar. Hvert skipið í kjölfar annars hefur komið með góðan afla að landi, ýmist frá Grænlandi eða af heimamiðum. Oft hafa þau verið með fullfermi eða því sem næst. Mikil atvinna hefur skapazt í frystihúsunum hér í Reykjavík vegna þessarar velgengni togaranna. Nýju stóru togaramir hafa einkum þótt liðtækir á þessu tímabili, hafa komið inn með allt uppí 4—500 tonn eftir túrinn. Viðbrögð ríkisstjórnarinnar við þessum ógaetu aflabrögðum, eru að selja togarana úr landi einn eftir annan. Ólafur Jó- hannesson, ágætt og nýlegt skip, var seldur i vor til Noregs og nú er röðin komin að Freý. Hann siglir til Bretlands á morg- un undir brezkum fána. Þegar Freyr lætur úr höfn á morgun eru liðin þvi sem næst rétt 3 ár síðan hann kom til Reykjavík- ur í fyrsta sinn, en það var í september 1960. Bjarni Ólafsson liggur ný- málaður vestur við Granda- garð og vitum við ekki hvað á fyrir honum að liggja, en þrálátur orðrómur gengur um að samningar standi yfir við Grikki um sölu á honum, Sólborgu, Brimnesi Qg Akur- ey þangað suður. Forráðamenn Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar kváðu hafa full- an hug á að losa sig við Maí, sem er af sömu gerð og Freyr. Framkvæmdastjóri útgerðarinn- ar sagðist ekki vilja láta hafa neitt eftir sér opinberlega um málið, en kvaðst þó myndi mót- mæla harðlega öllum fullyrðing- um í bessa átt. Við áttum tal vlð fulltrúa Einars Sigurðssonar, en hann var sjálfur staddur í Vest- mannaeyjum í gær. Spurn- ingu um hvort útgerðin hefði hug á að losa sig við Sig- urð, svaraði fulltrúinn á þá leið, að ckkert slíkt hefði komið til tals sér vitandi. Út- gerðin hefði gengið ágætlega Guðrún Bjarnadóttir, fegurð- ardrottning íslands 1962, cr fyr- ir skemmstu bar sigur úr být- um í fegurðarsamkeppninni að Langasandi ' í Bandaríkjunum er væntanleg hingað helm með Loftleiðaflugvél frá New York um hádegi í dag. Sigur Guðrúnar í þessari miklu alþjóðlegu fegurðarsam- keppni hefur vakið mikla at- hygli erlendis og hún orðið landi sínu til sóma með frammistöðu undanfarið og kæmi skipið inn á morgun með góðan afla. Það kemur fram í viðtali sem birtist hér í blaðinu í gær við einn skipverjann á Frey, að há- setahlutur úr síðasta veiðitúr skfpsins hefði verið 15.000 krón- ur. Túrinn tók 22 daga. Ekki man ég hvort skipið seldi er- lendis í þeim túr, eða landaði hér heima. Raunar er sama hvort er, varla hefur útgerðin tapað á þeim túr. Þorsteinn þorskabítur hefur loksins verið heimtur heim, eft- ir nokkurra ára dvöl í Eng- landi og hefur nú verið búinn út í síldarleit fyrir Norðurlandi. Hann mun hafa lagt af stað í gær, eða um það leyti, sem síldarsöltun var bönnuð endan- lega. Er ekki að efa að Sigl- firðingar munu þakka þessa síðbúnu hugulsemi! — G.O. Myndin er tekin um síðustu helgi á síldarplaninu Ströndin á I Seyðisfirði en það er annað hæsta plan á landinu í sumar og var saltað þar í 2000. tunnuna sl. Iaugardag. Eins og frá var skýrt hér (í blaðinu í gær hefur söltun nú verið bönnuð þar eð búið er að salta upp í aila gerða samninga. Mestá söltunarstaður á iandinu varð að þessu sinni Séyðisfjörður og er orðið langt síðan þcssi fornfrægi síldarbær hefur hlotið það heiðurssæti. sinni. Vill Þjóðviljinn nota tæki- færið til þess að bjóða Guð- rúnu hjartanlega yelkomna heim til íslands eftir þessa frækilegu för. Stéttarsam'jands « . fundurinn hafinn í morgun kl. 10 f. hádegi átti, aðalfundur Stéttarsam- bands bænda að hefjast í Bændahöllinni í Reykjavík. Aðalmál þingsirxs verður Verðlagsmál landbúnaðarins og er búizt við miklum um- ræðum um það efni. Þingið sækja 47 kjornir full- trúar úr öllum sýslum landsins auk stjórnar Stéttasambandsins, framkvæmdastjóra þess og full- trúa í framleiðsluráði land- búnaðarins. Eru margir nýir menn í hóþi þingfulltrúanna að þessu sinni. Þá verða auk þess ýmsir gestir við þingsetninguna, þar á meðal landbúnaðarráð- herra, Ingólfur Jónsson. Fulltrú- arnir utan af landi munu búa á Hótel Sögu á meðan þingið stendur yfir, en það eru venju- lega tveir dagar. Á þinginu mun fara fram kosning stjórnar Stéttarsam- hamdsins, en Ihún er kjilrin annaðhvort ár. Núverandi for- maður stjórnarinnar er Cverrir Gíslason bóndi í Hvammi í Norðurárdal. Sagt verður nánar frá störf- um þingsins hér í blaðinu »í5- ar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.