Þjóðviljinn - 08.09.1963, Blaðsíða 8
g SlÐA
MðÐVILIINN
Sunnudagur 8. september 1963
| ótcAf c+•&&**/> ' ^nr. /SIP, *>trv. *■+
j/tt^>, Cf Y- crr/r c/Z,
tí:
ttr*. óf*/ ^recJyO
Jó' ^ ^
Kviittun Ágústs Sigurðssonar.
,Sök er fyrnd, ef
nokkur hefði verið'
*— segir fulltrúi Jóhannesar Lárussonar
Elns og kunnugt er hefur
Ágúst Sigurðsson verkamaður
sent yfirsakadómara kæru gegn
Jóhannesi Lárussyni hæstarétt-
arlögmanni fyrir okurstarfsemi
og gegn Búnaðarbanka' ísiands
fyrir aðild að því máli. Kvaðst
Ágúst hafa kvittað fyrir 150.000
kr. láni en ekki fengið nema
76.000 kr„ og var sú frásögn
rakin hér í blaðinu sl. miðviku-
dag.
I gær barst Þjóðviljanum at-
hugasemd frá Sigurþóri Breið-
fjörð Gunnarssyni, fulltrúa Jó-
hannesar Lárussonar sem nú
dvelst erlendis, ásamt mynda-
móti af hinni upphaflegu
kvittun Ágústs. Fór fulltrúinn
fram á að Þjóðviljinn birti at-
hugasemdina, og fer hún hér á
eftir:
„í blaði yðar 4. sept. sl. var
frásögn um „okurkæru", sem
Ágúst nokkur Sigurðsson sendi
sakadómara á hendur Jóhannesi
Lárussyni, hrl.
Jóhannes var þá fjarverandi
í útlöndum og verður enn um
skeið, svo hann getur ekki borið
hönd fyrir höfuð sér.
Mér er málið ókunnugt, en
þykir þó rétt sem fulltrúi Jó-
hannesar og í fjarveru hans, að
biðja yður að birta meðfylgjandi
kvittun Ágústar, dags. 23. febrú-
ar 1961.
Virðist kvittun þessi í all-
miklu ósamræmi við kæruna svo
1 ekki sé meira sagt og má það
furðulegt heita að kvitta „að
fullu“ fyrir andvirði víxils af
manni, sem telur sig eiga eftir
að fá tugi þúsunda króna af
víxilandvirðinu og að hefjast ekki
handa með „k.æru“ til sakadóms
fyrr en löngu eftir að sök er
fymd, ef nokkur hefði verið.
6. september 1963.
Sigurþór Breiðfjörð
Gunnarsson.“
Ekið á konu
Um tíu leytið í gærmorgun var
volkswagenrbíl ekið niður Tún-
götu. Þegar kom á gatnamótin
við Aðalstræti missti ökumaður-
inn vald á bifreiðinni, og rann
hún upp á gangstétt. Lenti bíll-
inn þar á konu og féll hún við
en mun ekki hafa meiðst. Bíllinn
hafnaði svo á húsvegg vestan-
megin Aðalstrætis.
Ekið^á bifreið
1 gærmorgun var ekið á bíl á
bifreiðastæðinu við Hverfisgötu
32. Skemmdist bíllinn á hægra
frambretti. Lögreglan biður þá.
er kunna að hafa séð árekstur-
inn, að gera aðvart.
IÐNSÝNING
SAMVINNUVERKSMIÐJANNA
f ÁRMÚLA 3 ER OPIN í DAG KL. 14 — 22 OG LÝKUR ÞAR MEÐ SÝNINGUNNI
Efiirlaldar verlcsmiSjur sýna fjölþætta framleiðslu og nýjungar úr slarfsemi sinni.
Ulfarverksmiðjan Gefjun, Akureyri,
Saumastofa Gefjunar, Akureyri.
SkinnaverksmiSjan Iðunn, Akureyri.
Skóverksmiðjan Iðunn, Akureyri
Fataverksmiðjan Hekla, Akureyri
Fataverksmiðjan Fífa, Húsavík
Fátaverksmiðjan Gefjun, Reykjavík
Rafvélaverksmiðjan Jötunn, Reykjavík
Verksmiðjan Vör, Borgarnesi
Tilraunastöð S.Í.S., Hafnarfirði
* Kjöt & Grænmeti, Reykjavík
Efnayerksmiðjan Sjöfn, Akureyri.
Kaffibrennsla Akureyrar, Akureyri.
Smjörlíkisgerð K.E.A., Akureyri.
Efnagerðin Flóra, Akureyri.
Efnagerðin Record, Reykjavík.
Efnaþerð Selfoss, Selfossi. '
Trésmiðja Kaupfélags Árnesinga, Selfossi. T|
Allir eiga erlndt i aýntnguaa,
AtK: Gengið e» •«n «3 tunnaðverðu ,{■
HHH
I
I
*
!
I
v ' ■ -
ELDAVELASAMSTÆÐUR
[> Tvöföld hurð - Glerhurð fyrir innan
[> Grill
[> Grillteinn, rafknúinn
[> Ryðfrítt ,stál, sem gulnar ekki fyrir ofan hurð
[> Klukka sem kveikir og slekkur á ofninum
í) Ljós í ofni
[> Ryðfrítt stál í helluborði
[> Hitastillt hraðsuðuhella
[> Klukka sem ákveður suðutíma
\
\
\
\
\
' KomiB og skoðið þessi úrvaistæki
i
ÞÝZK TÆKNI - ÞÝZKT HUGVIT - ÞÝZKT HANDBRAGÐ
HÚSPRÝÐI hf.
LAUGAVEGI 176 SÍMI 2 0440-1 ^