Þjóðviljinn - 10.09.1963, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 10. september 1963 ~ 28. árgangur — 192. tölublað.
• Hásetar felldu samninga stjornar og samningsnefndar
• með 187 atkvæðum gegn 26—Algert vantraust á
• stjórn Sjómannafélagsins-Átta skip hafa stöðvast
<•>-
VERKFALL A FARSKIPUNUM
HÓFST AFTUR UM HELGINA
Um helgina voru kunngerð úrslit í aAkvæða-
greiðslu innan Sjómannafélags Reykjavíkur um
hina nýju samninga, sem samninganefnd félags-
ins hafði undirritað þann 2. september sl. At-
kvæði féllu þannig, að nei sögðu 187, en já sögðu
einungis 26 og voru samningamir því kolfelldir.
Verkfallið, sem frestað hafði verið við undirrit-
un samninganna, hófst því að nýju um helgina.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■
■
I 6:0 og
1187:26
Marma á meðal er úr-
slitum í atkvæðagreiðslunni
í Sjómannafélaginu líkt við
landsleik Islendinga og
Breta, sem fram fór hér í
Reykjavík um helgina. Eins
og kunnugt er biðu Islend-
ingar mikið afhroð í þeim
leik, töpuðu með 6:0. v
Sú útreið sem stjóm s]ó-
mannafélags Reykjavíkur,
fékk í atkvæðagreiðslunni
um samninganna er þó
sýnu verri og jafngildir al-
geru vantrausti. Þjóðvilj-
inn reyndi margsinnis í
gaer, að ná tali af Jóni
Sigurðssyni, formanni Sjó-
mannafélagsins ti'l þess að
spyrja hann um álit hans á
úrslitum atkvæðagreiðsl-
unnar, en það reyndist ó-
kleift með öllu. þar sem
hann var hvergi finnanleg-
ur! — Hefur hann trúlega
verið í svipuðu skapi og
framámenn okkar í knatt-
spymunni eftir landsleik-
inn við Breta, en Alþýðu-
blaðið segir svo frá þeim
á fo:rsíðu s. 1. sunnudag:
„Það voru fúlir Islendingar,
sem við hittum eftir leik-
inn.” — og vildu þeir ekk-
ert láta eftir sér hafa, seg-
Ir Alþýðublaðið.
LandsllðiÖ
valið í gær
Landsliðsnefnd hefur valið eft-
irtalda menn í landsliðið í knatt-
spyrnu er keppa skal við Breta
Heimir Guðjónsson, markvörð-
ur, Jón Stefánsson, h. bakvörður.
Bjarni Felixson, v. bakv., Garð-
ar Ámason h. framv., Hörður
Fdlixson m. framv., Sveinn Jóns-
son, v. framv., Axel Axelsson,
h. úth.. Ríkharður Jónsson h.
innh. fyrirliði, Gunnar Felixson,
miðh., Ellert Sohram, v. útherji.
Sigurþór Jakobsson v. útherji.
Varamenn: Helgi Daníelsson,
Björn Helgason og Ámi Njálsson. ; aður í gærkvöld.
Þessi úrslit eru hið herfileg-
asta vantraust á stjóm og
samninganefnd Sjómannafélags
Reykjavíkur, sem gert hafði
þessa samninga og undirritað
án þess að einn einasti félags-
fundur væri haldinn í félaginu
um samningamálin. Úrslit at-
kvæðagreiðslunnar eru jþví fyrst
og fremst áfellisdómur og al-
gert vantraust á stjórnina. Sýna
þau svo ekki verður um villzt,
að núverandi forystumenn fé-
lagsins hafa ekki hin minnstu
tengsl við starfandi sjómenn í
félaginu. og þar af leiðandi ekki
hugmynd um vilja þeirra og
óskir. Nema þá að samninga-<j>.
gerðin hafi verið alger skrípa-
leikur af hálfu forystumanna
Sjómannafélagsins og þeir hafi
aldrei gert ráð fyrir, að samn-
ingarnir yrðu samþykktir. Mun
það algert einsdæmi, að samn-
ingum, sem undirritaðir hafa
verið af samninganefnd viðkom-
andi félags, hafi verið hafnað
svo algerlega.
Það vakti einnig athygli í
sambandi við talningu atkvæða
um samningana, hve seint taln-
ingin -hófst hjá Sjómannafélag-
inu. Báru forsvarsmenn þess því
við, að beðið væri eftir skeyt-
um frá farskipum með atkvæð-
um áhafnanna. Hjá félögum yf-
irmanna var talningu hins veg-
ar lokið fyrir hádegl á laugar-
dag, og virðast skeytin með at-
kvæðum yfirmanna samkvæmt
því hafa borizt nokkru fyrr en
atkvæði hásetanna! Telja kunn-
ugir að drátturinn á talningu
atkvæða í Sjómannafélasinu,
kunni að stafa af því, að Gull-
foss átti að lóta úr höfh skömmu
eftir hádegi á laugardag. Hefði
talningu verið lokið fyrir þann
tíma, er liklegt að skipið hefði
stöðvazt. '
V
Samkvæmt upplýsingum, sem
Þjóðviljinn fékk í gær hjá Sjó-
mannafélagi Reykjavikur hafa 8
skip stöðvazt í Reykiavík vegna
verkfallsins. Aðspurðir um álit
stjómar Sjómannafélagsins á úr-
slitum atkvæðaareiðslunnar, var
því til svarað af hálfu Sjó-
mannafélagsins, að úrslitin væru
eindregin viljayfirlýsing far-
manna!
Sáttasemjari ríkisins boðaði
til fundar með samningsaðilum
í deilunni strax á sunnudags-
kvöld og annar fundur var boð-
Atta skip höfðu stöðvazt í gær I Reykjavíkurhöf n vegna verltfallsins. Myndin er af tveim skipum
Eimskipafélagsins, Brúarfossi og Reykjarfossi, Hggjandi bundnum við festar.—(fcjósm. Þjóðv. A.K.)
„EINKAVINUR" I
HVERRI ÞRAUT
í fréttatilkynningn sem dómsmálaráöuneytið hefur
sent frá sér nýverið segir að um miðjan þenan mán-
uð sé væntanleg hingað brezk flotadeild sem í eru 5
tunduduflaslæöarar. Kemur flotadeildin hingað fyrk
milligöngu stjómarvalda og á að aðstoða Landhelgis-
gæzluna við að fjarlægja leifar tundurduflagirðinga sem
enn kunna að leynast á botni Eyjafjarðar og Seyðis-
fjarðar.
Svona á
húsii að
líta út
EINS OG SKÍRT var frá hér f
blaðinu á sunnudaginn, er nú
hafin ný lota til eflingar
styrktarmannakerfi Þjóðvilj-
ans — og er heitið á alla vel-
unnara blaðsins að vinna að
því, hver eftir sinni getu, að
skjótur og mikill árangur ná-
ist í sóknarlotu þessari, — og
þegar í þessum mánuði.
JAFNFRAMT ERU nu að hefj-
ast — eins og cinnig var
skýrt frá í sunnudagsblað-
inu — nýjar framkvæmdir
við hús Þjóðviljans, Skóla-
vörðustíg 19: Reist verður
efsta hæð hússins samkvæmt
teikningu Þorvaldar Krást-
mundssonar. þetta er brýnt
skref og nauðsynlegt. Bæði
þarf Þjóðviljinn á rýmra hús-
næði að halda og auk þess er
núverandi þak hússins svo úr
sér gengið að annaðhvort þarf
að endurnýja þáð með ærnnm
kostnaði eða láta það víkja
fyrir þeirri hæð sem teikning-
in gerir ráð fyrSr — og síð-
ari kosturinn hefur verið val-
inn.
ÞESS ER AÐ VÆNTA að á-
kvörðun þessi falli velunnur-
um Þjóðviljans vel f geð, enda
verður blaðhúsið, Skólavörðu-
stígur 19, aUt önnur og veg-
legri og vcrðmætari bygging
eftir breytingarnar, eins og
sjá má af teikningu þessari,
sem sýnir húsið eins og ráð-
gert er að það Iíti út að
breytingum Ioknum. '
Sjá síðu Q
Aðfaranótt sl. sunnudags varð
það slys í Bjamarborg við
Hverfisgötu, að ölvaður maður
féll niður stiga og lenti með höf-
uðið á miðstöðvarofni. Maðurinn
rotaðist við fallið og skarst tals-
vert á höfði. var hann fluttur
í slysavarðstofuna.
Barry J. Anderson í vígahug
meðan landhclgisdeilan stóð yfir.
Skyldi hartn blíðarii nú?
Það sem mesta athygU vek-®*
ur í sambandi við þessa frétt
er sú staðreynd, að yfirmaður
flotadeildarinnar verður Barry
J. Anderson kapteinn sá er
frægastur varð í landhclgis-
stríðinu við Breta en þá
stjórnaði hann ofbeldisaðgerð-
um brezka flotans gegn ís-
Ienzku landhelgisgæzlunni og
sparaði hvorki stór orð né
aflsmun hvenær sem færi
gafst. Er það táknrænf fyrir
undirlægjuhátt íslenskra
stjórnarvalda við Breta að
þau skuli leita á náðir brezka
flotans í þessu máli og þola
það möglunarlaust að brezk
flotayfirvöld scndi Barry J..
Anderson hingað í storkunar-
skynii við okkur fslendinga
sem sérlegan „hjálparmann”
okkar og „einkavin” í hverri
þraut.
Fréttatilkynning dómsmála-
rdðuneytisins birtist í fréttum
Framhald á 2 síðu.
Samningar um verð-
lagningu á búvörum
Fundir eru nú aö hefj-
ast að nýju um verðlagn-
ingu landbúnaöarafurða í 6-
mannanefndinni svoköll-
uðu, en fundir lágu niðri,
meðan stóö á aðalfundi
Stéttarsamb. bænda. Full-
trúar framleiðenda höfðu
áður lagt fram tillögur sín-
ar um nýjan verðlagsgrund-
völl, sem hafa mundi í för
meö sér um það bil 36%
hækkun á framleiðsluvör-
um landbúnaðarins. Aðal-
fundur Stéttarsambandsins
taldi þann grundvöll hins
vegar of lágt áætlaðan, og
hækkaði kröfurnar til muna.
Viðræður munu nú hefj-
ast að nýju' í nefndinni um
þann grundvöll, sem húið
var að leggja fram, og var
boðaö til fundar kl,- 10 ár-
degis í dag.