Þjóðviljinn - 12.09.1963, Page 1
Fimmtudagur 12. september 1963 — 28. árgangur — 194. tölublað
VARAFORSETANUM AFHENT
Níu skip hafa stöðvazt
Sáttasemjari boðaði í gær-
kvöld til fundar í í'armanna-
deilunni og hó/st hann klukk-
an hálf níu. Fundurinn stóð
enn þegar blaðið fór í prent-
un og háfði lítt þokað í sam-
komulagsátt.
I gær höfðu níu skip stöðv-
azt í Reykjavíkurhöfn, og
fleiri eru væntanleg næstu
daga. í samninganefnd Sjó-
mannafélagsins eru stjórnar-
meðlimir félagsins og auk
þess þrír memi af farskip-
unum og var einum bætt við
í samninganefnd af hálfu far-
manna eftir að verkfallið
hófst að nýju.
Samtök hernámsandstæðinga
boða útifund síðd. á mánudag
■ Lyndon B. Johnson, varaforseti Banda-
ríkjanna, kemur hingað til lands í opinhera
heimsókn á mánudag, og hefur ferðaáætlun
hans verið birt í blöðum. Nú bætist við nýtt
atriði í áætlunina, því Samtök hernámsand-
stæðinga hafa ákveðið að afhenda varafor-
setanum mótmælaorðsendingu gegn hernáms-
stefnunni og fyrirætlunum um nýjar her-
stöðvar í Hvalfirði.
■ Samtök hernámsandstæðinga munu efna
til stutts útifundar við Háskólabíó síðdegis á
mánudag, samtímis og ,,Varðberg“ og fleiri
aðilar halda fund með varaforsetanum inni
í bíóinu. Verður varaforsetanum afhent orð-
sendingin í fundarlok kl. 1 8.00. Er þess vænzt
að allir hernámsandstæðingar sem þess eiga
nokkurn kost taki þátt í útifundinum og leggi
áherzlu á mótmælaorðsendinguna með nær-
veru sinni.
Þjóðviljanum barst í gær svo-
hljóðandi fréttatilkynning um
þetta efni frá Samtökum her-
námsandstæðinga:
Utifundur og
orðsending
,,Vegna komu varaforseta
Bandaríkjanna, Lyndon B. John.
son, hingað til Reykjavíkur
mánudaginn 16. september n.k.
Enn takverð
síldveiði
Fyrra sólarhring var enn
. mikil síldveiði nm 140 sjó-
mílur austsuðaustur af
Dalatanga og höfðu 58 skip
með samtals 53,400 mál til-
kynnt um afla sinn í gær-
morgun. Veður hefur ver-
ið gott á miðunum und-
anfarna dag en í gærmorg-
un fór að hvessa og var Iít-
il veiði í gær enda fá skip
að veiðum þar eð þau höfðu
flest fyllt sig í fyrninótt
Löndunarbið er nú á öll-
um Austfjarðahöfnunum og
verður fram yfir helgi að
talið er. 1 gær höfðu einn-
ig fyllzt allar þrær á Rauf-
arhöfn og var komin þar
löndunarbið líka, hafaskip-
in streymt þangað aö síð-
ustu tvo sólarhringa síðan
veður batnaði fyrir norðan
svo að fært var fyrir minni
skipin að sigla norður fyr-
ir Langanes.
hefur miðnefnd Samtaka her-
námsandstæðinga ákveðið eftir-
farandi:
1) Sendinefnd frá Samtök-
um hernámsandstæðinga mun
afhenda varaforsetanum orð-
scndingu frá samtökunum.
2) Samtökin munu efna til
stutts fundar við Háskólabíó^
á þeim tíma, sem Varðberg
og fleiri aðilar hafa fund með
varaforsetanum í Háskóla-
bíói, en afhenda orðsending-
una í fundarlok. Liðsmenn
Samtaka hernámsandstæð-
inga munu safnast saman
undir kröfuborðum og spjöld-
um og dvelja á staðnum
meðan fundur stendur.
Miðnefnd samtakanna treystir
því fyllilega, að þessi atburður
fari fram með fyllstu kurteisi
og algerlega friðsamleguj móti,
en telur rétt að undirstrika með
þessum hætti við varafo.rseta
Bandaríkjanna þann ákveðna
vilja mjög verulegs hluta ís-
lenzku þjóðarinnar, að allur her
og herbúnaður verði fjarlægður
frá landi okkar nú þegar“.
Bezta tryggingin
„Með tilliti til yfirvof-
andi samninga um Hval-
fjörð telja Samtök her-
námsandstæðinga þeim
mun brýnna, að banda-
rískum ráðamönnum sé
ljóst, að skoðanir ís-
lenzkra valdhafa á þess-
um málum séu ekki
Framhald á 2. síðu.
,Gegndarfaus yf irvinna" og
,vinnuþrælkun' á f arskipum
—ef miða á við útreíkninga skipafélaganna,
segir ritari Sjómannafélags Reykjavíkur
Vísir hefur undanfarna daga ekki átt nógu sterk orð
til þess að lýsa hneykslan sinni á því athæfi farmanna
að hafna „nýju samningunum”, sem forystinnenn Sjó-
mannafélagsins höfðu áöur undirritað fyrir þeirra hönd.
Og hvorki þetta málgagn „flokks allra stétta” né held-
ur Morgunblaðið hefuc átt eitt orð til stuðnings sann-
gjörnum kröfum farmanna um kjarabætur. En máls-
vörn þeirra fyrir afstöðu skipafélaganna að neita sjó-
mönnum um réttmætai kjarabætur hefur hins vegar
ekki látið á sér standa og verið þeim mun ákafari.
I gær birtir Vísir t.d. mikla
„útreikninga” frá skipafélögun-
um um það að hásetar krefjist
allt að 57%, hækkunar, og hefðu
mánaðarlaun þeirra að viðbætt-
um „meðalyfirvinnutíma“ orðið
12—13 þús. krónur samkvæmt
samningnum, sem felldurvar! Al-
þýðublaðið skýrir hins vegar svo
frá í íyrradag að mánaðarlamp
háseta samkvæmt samningnum,
sem felldur var hefði orðið kr.
5.600 og geta menn þá reiknað
út hve mikinn hluta af mánað-
arhýrunni hásetum er ætlað að
afla sér með yfirvinnu.
Vísir leitaði síðan ólits rit-
ara Sjómannafélagsins, Péturs
Sigurðssonar, á þessum útreikn-
ingum. En ritarinn fer allur
undan í flæmingi og forðast að
taka skýra afstöðu gegn þessum
útreikningum skipaeigenda, þar
sem hann hafi ekki „haft að-
stöðu til þess að kynna (sér)
þessar tölur“. Þó segir Pétur, að
ef sjómenn komist í þessar tekj-
ur, þá geri hann sér ljóst, að það
hljót að vera vegna „gegndar-
lausrar yfirvinnu” og vinnu-
þrælkunar”! En ekki notar rit-
ari Sjómannafélagsins þétta tæki-
færi til þess að skýra frá hin-
um rauriverulegu kröfum far-
manna og rökstyðja þær.
Alþýðublaðið, málgagn Jóns
Sigurðssonar formanns Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, á
ekki heldur aukatekið orð. til
stuðnings farmönnum í deilu
þeirra. I örlitlum ramma á for-
síðu blaðsins er einungis sagt
frá því, gð sáttafundurinn s.l.
mánud. hafi ekki borið árangur.
Waraforsetinn
meðal Svia
Lyndon B. Jobnson, varafor-
seti Bandaríkjanna, hefur að
undanförnu ferðast um Norður-
Iönd, fyrst Flinnland, þá Sví-
þjóð og nú er hann staddur í
Noregl, en þaðan heldur hann
til Danmerkur og síðan til ís-
lands. Myndin var tekin á dög-
unum í Stokkhólmi skömmu
eftir að varaforsetinn hafði stig-
ið út úr þyrlunni, sem flutti
til höfuðborgarinnar.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
í fyrrinótt var ekið á bifreið-
ina R-3557, sem er sex manna
Chevroletbifreið, blá að framan
en hvít að ofan og pftan. Stóð
hún á Bergþórugötu fyrir utan
húsið nr. 27. Skemmdist bifreið-
in talsvert við ákeyrsluna.
Rannsóknarlögreglan biður alla
sem kynnu að geta gefið ein-
hverjar upplýsingar í sambandi
við mál þetta að snúa sér til
hennar jafnframt því sem hún
skorar á bann sem ók á bifreið-
ina að gefa sig fram.
1