Þjóðviljinn - 13.09.1963, Síða 1

Þjóðviljinn - 13.09.1963, Síða 1
J Föstudagur 13. september 1963 — ;1963—28. árgangur—195 tölubl. Víðreisnin magnasf enn: Okurvextir Seðlabankans hækka í 18 af huntfraði 4>~ Tilgangurinn með aðgerðum Samtaka hernámsandstæðinga á mánudag VA RA FORSITINN ÞARFAB KYNNAST STABRIYNDUM HernámsandstæSingar! hafið samband við skrifstofuna Skrifstofa Samtaka hernámsandstæöinga í Mjóstræti 3 er opin dag- lega kl. 10—19, einnig n. k. laugardag og sunn- udag. Sími skrifstofunn- ar er 2-47-01, en for- stöðumaSur skrifstofunn- ar er Ragnar Arnalds al- þingismaSur. Samtökin skora á sem flesta hemámsandstæð- inga að hafa samband við skrifstofuna og taka þátt í störfum hennar til þess að undirbúa útifundinn á mánudag og aðrar að- gerðir sem ákveðnar hafa verið í baráttunni gegn hernáminu og fyrirætl- unum um nýjar herstöðv- ar í Hvalfirði. Samtökin þurfa mjög á fjárhags- aðstoð að halda, og verð- ur hafizt handa um fjár- söfnun næstu daga til þess að greiða skuldir og standast kostnað af verk- efnum þeim sem fram- undan eru. Strandferðir nær stöðvaðar í dag stöðvast allar strandferðir hér við land, vegna farmannaverkfalls- ins, þegar Herðubreið kemur til Reykjavíkur, en hin strandíerðaskip- Drengur slasast í umferðarslysi Rétt eftir kl. 12 á hádegi í gær varð mnferðarslys á mótum Skothúsvegar, Sól- eyjargötu og Fríkirkjuveg- ar. Varð drengur á skelli- nöðru þar fyrir bifreið og meiddist allmiklð á höfði. Var hann fluttur í sjúkra- hús. Drengurinn sem heitir Einar Sigurgeirsson, til heimilis að Grettisgötu 31, og er fjórtán ára að aldri kom á hjólinu eft'r Skothúsveginum og mun ekki hafa gætt þess að þarna á gatna mótunum er biðskylda vegna að- algötu og ók «hann beint i veg fyrir bifreið er kom suður Frí- kirkjuveginn. Bifreiðarstjórinn snarhemlaði og beygði til vinstri til þess að reyna að forða á- rekstri en það tókst ekki og lenti framlukt bifreiðarinnar á benzín- dunk skellinöðrunnar. Kastaðist drengurinn af hjólinu og upp á vélarhús bifreiðarinnar og möx- braut framrúðuna en féll síðan í götuna. Drengurinn var þegar fluttur á slysavarðstofuna til rannsóknar, en þaðan var hann aftur fluttur í sjúkrahús síðar í gær. Mun hann hafa meiðzt allmikið á höfði. in voru þegar komin hingað. Hafa þá alls stöðvazt 15 skip í Reykja- vík og eru það þessi auk Herðubreiðar: Brúarfoss, Drangajökull, Herjólfur, Esja, Hekla, Hvassafell, Goðafoss, Kyndill, Litla- fell, Reykjafoss, Skjald- breið, Stapafell og Þyrill. Fundur sáttasemjara með deiluaðilum 1 fyrra- kvöld stóð til kl. langt gengin í tvö um nóttina, en samkomulag náðist ekki. Annar fundur hófst í gærkvöldi kl. hálf níu. — Það ér alrangt sem Morgunblaðið segir að Samtök hernámsandsíæðinga hafi boðað „útifund gegn Lyndon B. Johnson". Samtökin fagna því einmitt að ’fá tækifæri til að hitta hann og gera honum persónulega grein fyrir því, sem stjórn- arherrarnir láta eflaust liggja í láginni, að veru- legur hluti þjóðarinnar er andvígnr hemámsstefn- unni og mun aldrei sætta sig við hana. Kynni varaforsetans af íslandi væru fölsun, ef honum væri ekki gerð þessi staðreynd fullkomlega ljós. Þannig komst Ragnar Arnalds alþingismaður að orði í viðtali við Þjóðviljann í gær, en Ragnar á sæti í framkvæmdanefnd Samtaka hernáms- andstæðinga og annast skrifstofu samtakanna í Mjóstræti 3. — Eins og Þjóðviljinn hefur greint frá, hélt Ragnar áfram, munu fulltrúar samtakanna afhenda varaforsetanum orðsendingu sína kl. 18.00 á mánudag, þegar hann kemur af fundi „Varðbergs“ og fleiri aðila. Leggja samtökin áhcrzlu á að sem allra flestir hernámsand- stæðingar unflirstriki métmæli sín gegn hernámsstefnunni með nær- veru sinni. Verður safnazt saman fyrir utan Háskólabíó og þar munu hemámsandstæðingar standa með kröfuborða sína og spjöld þegar orðsendingin verður afhent. Af hálfu samtakanna mun allt fara fram af stillingu og festu, eins og allar aðgerðir samtakanna til þessa; þeir einu scm hafa „magnað æsingar“ eins og Vísir kemst að orði í gær, eru Varðbergspiltar, sem nú verða væntanlega inni í Háskólabíói. Samtök hernámsandstæðinga hafa að sjálfsögðu Ieitað til lögregl- unnar um góða samvinnu svo sem jafnan fyrr, og treystum við því að þar muni ekkert á skorta. — Ég vil leggja áherzlu á það, sagði Ragnar enn, að það er Is- lendingum mikil nauðsyn að hafa hernámsmálin í fyrirrúmi einmitt um þessar mundir. Nú er mikið los á herstöðvum víða um heim og á ýmsum stöðum er verið að rýma til vegna breyttrar hernaðartækni. Svo er að sjá sem'Bandarikin ætli að sleppa ýmsum þeim stöðvum sem ótrygggastar eru taldar en halda stöðvum þar sem þjóðirnar sætta sig við hernám. Við viljum allt til vinna að vera ÓTRYGGIR BANDAMENN í augum bandaríska hermálaráðuneytisins, og nú er einstætt tækifæri fyrir hemámsandstæðinga að gera bandarískum áhrifamanni þær staðreyndir ljósar. Með þessari aðgerð og fleiri væntanlegum ætla samtök hemámsandstæðinga að gera íslenzkum og bandarískum stjómmálamönnum það Ijóst, að íslenzka þjóðin mun aldrel sætta sig við hemámið, hvað þá stórauknar hernáms- framkvæmdir í Hvalfirðl á sama tíma og friðvænlegar horfir í neimlnum en gert hefur síðan stríði lauk. ^>ÞJÓÐVILJANUM barst í gær fréttatilkynning frá Seðla- bankanum. Er þar greint frá því að bankinn hafi liækkað refsivexti sína úr 14% í 18% en þeir vextir eru teknir af yfirdráttarskuldum banka og sparisjóða við Seðlabahkann. Er þetta eitthvert mesta vaxtaokur sem sögur fara af. Jafnframt hækka vextir af innstæðufé í Seðlabankanum. TILGAN GURINN með þessari vaxtahækkun er að draga úr útlánum banka og sparisjóðr og knýja þá til þess að geyma Reldur fé sitt í Seðlabankan- um en lána það til atvinnu- vega og einstaKIinga. Með því hyggjast stjórnarvöldin draga úr atvinnuframkvæmdum í landinu — og m.a. mun ein röksemdin hafa verið sú að koma þyrfti í veg fyrir að menn gætu fengið lánsfé til þess að kaupa þá bíla sem þegar hafa verið fluttir til landsins og standa í stórum samfelldum breiðum hjá inn- flytjendum! Hér er semsé um að ræða nýja haftastefmi sem auðvitað verður fram- kvæmd undir kjörorði ,,frels- isins“. arbréf sín 5 «ær Hinn nýji sendiherra Argen- tínu, herra José Rodolfo Antonio Saravia afhenti , gær forseta Is- lands trúnaðarbréf sitt við há- tíðlega athöfn á Bessas.töðum. að viðstöddum utanríkisráðherra. KEPPA í PARÍS Árdegis í dag legcur ungiinga- landslið íslands í körfuknattlelk af stað áleiðis til Parísar, þar sem fram fer í næstu vlku Evr- ópumeistaramót unglinga í þess- arl íþróttagrein með þátttöku liða frá fimm þjóðum. Á mynd- inni sjást leikmennirnir, 1.3 tals- ins, en þeir eru frá vinstri; Jón .Tónasson, Kolbeinn Pálsson. Tómas Zoega Jóhannesson (fyr- irliði), Donald Ráder, Anton Bjarnason, Hjörtur Hansson, Sig- urður Ingólfsson, Kristinn Stef- ánsson, Agnar Friðriksson, Þor- steinn Ólafsson, Viðar Ólafsson, Gunnar Gunnarsson og Kristján Sveinsson. — Nánar er sagt frá utanförinni á öðrum stað í blað- inu í dag. ÞJÓÐVILJANUM er kunnugt um að valdhafamir ræddu mikið um það að hækka al- menna útlánsvexti á sama tíma og refsivextir Seðla- bankans voru hækkaðir. Var þó fallið frá þeim áformum — í bili. Ottazt var um tríllu frá Akranesi í suðaustan hvassviðrinu sem skall á í fyrrinótt var farið að óttast um triUubát frá Akra- nesi er farið hafði í róður síð- degis í fyrradag. Var hafin leit að bátnum bæði af bátum og flugvélum og fannst hann í gær- morgunn heill á húfi. Á bátnum sem heitir Bensi og er 4 lestir að stærð var að- eins einn maður, Sigurður Jóns- son að mafni, og hafði hann far- ið í róðurinn um kl. 18 í fyrra- dag. Þegar leið á kvöldið skall á versta veður og var mjög farið að óttast um bátinn er hann kom ekki að landi á áætluðum tíma. Bátur frá Akranesi hóf leit að trillunni í fyrrinótt og í gærmorgun bættist Vorið. flug- vél Bjöms Pálssonar, í hópinn. Flugvélin var hins vegar aðeins rétt komin af stað er tilkynning kom um það að báturinn væri fundinn og allt í lagi bæði með mann og bát. Hafði hann ekki treyst sér inn vegna veðurs en bátar frá Akranesi komu ' hon- um til aðstoðar í gærmorgun og fylgdu honum til hafnar. Kom báturinn til Akraness nokkru eftir hádegi í gær. Aukaaðild að EBE ANKARA 12/9 — Undirritaður hefur verið í Ankara samning- ur um aukaaðild Tyrklands að Efnahagsbandalagi Evrópu. Er ætlunin, að Tyrkland öðlist fulla aðild að bandalaginu á 12 ár- um. Það var utanríkisráðherra Tyrklands og utanríkisráðherrar fimm Efnahagsbamdalagsríkja,,. sem undirrituðu samning þenn- an.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.