Þjóðviljinn - 19.09.1963, Page 2
2 SlÐÁ
HÓÐVILIINN
Greinargerð Félags
söluturnaeigenda
1 sambandi vid nýju reglu-
geröina um lokunartíma sölu-
búða, viU Félag sölutumaeig-
enda taka fram eftirfarandi:
Félagið vill harðlega mótmæla
öUu, sem í reglugerðinni er
beinlinis stefnt að því að lama
eða jafnvél eyðileggja starfsemi
sölutuma, svo sem styttum af-
greiðslutíma, fækkun vöruteg-
unda og nú síðast þeirri kvöð,
að selt sé út um söluop.
Félagið lítur á kvöð um sölu-
op sem dulbúið neyzlubann, enda
tiltoúna til þess að sala minnki
hjá söluturnum og færist til
annarra aðila, enda þótt það sé
iátið í veðri vaka, að kvöð þessi
eigi að vera til að bæta sið-
Reykjavíkur-
flugvöllur
Framhald af 12. síðu.
koma við ákvörðun um fram-
tíð eða flutijling Reykjavíkur-
flugvallar og samið ýtarlega
skýrslu, byggða á rannsóknum
þessum og atbugunum. Væri
skýrslan nú til athugunar hjá
íslenzku flugmálastjórninni.
Hellmann beindi athugunum
sínum fyrst og fremst að fjór-
um stöðum sem til greina þykja
koma við ákvörðun um framtíð-
arstað Reykjavíkurflugvallar. en
það er Álftanesið. Garðahraunið.
Reykjavík og Kapelluhraunið I
skýrslu sinni bendir hinn er-
lendi sérfræðingur á kosti fram-
angreindra svæða hversumsigog
galla þeirra með tilliti til stari-
rækslu flugvallar, en gerir ekki
neinar. ákveðnar tillögur f beim
éfnum. Það verður ráðherra, sem
lokaorðið segir í þessu máli. og
þá væntanlega í samræði við
yfirvöld Reykjavikurborgar. og að
sjálfsögðu flugmálastjómina.
menninguna í bænum.
Félagið mótmælir því harð-
lega. að svonefnt „sjoppuhangs“,
sem í reglugerðinni er notuð til
árása á eigendur sölutuma, eigí
sér almennt stað. Ef um slíkt
væri hinsvegar að ræða, telj-
um við að reglugerðin ætti frem-
ur að gera ráð fyrir, að þeir
eigendur sölutuma, sem leyfa
slíkt, verði sviptir leyfi að und-
angenginni aðvörun, Hversvegna
þarf að stytta afgreiðslutímann,
ef hvergi er hægt að hanga
inni?
Félagið vill einnig benda á,
að afgreiðsla um söluop er ó-
samboðin neytendum, og mun
færa neyzlu út á götur og hafa
mikinn óþrifnað í för með sér,
auk þess sem það verður að
teljast mikill aðstöðumunur á
milli okkar og annarra verzlana,
sem hafa búðir sínar opnar.
Félagið vill og benda á, að
flestir sölutumar hafa almenn-
ingssíma til útlána. og mundi
sú þjónusta við neytendur hverfa
ef selt væri um söluop, en þjón-
usta þessi er mjög vinsæl af
öllum almenningi, sem ekki hef-
ur sfma, eða þarf að komast f
síma fjarri heimilum sfnum.
Munu umfram símtöl vegna
þessarar þjónustu í öílum sölu-
turnum. sem síma hafa, nema
tugum þúsunda mánaðarlega.
Félagið lítur á heimild hverfa-
opnunar matvörubúða sem spor
í rétta átt, en vill þó benda á,
að ýmsir annmarkar virðast á
framkvæmd hennar, m.a, vegna
samninga við V.R.. og einnig
bendir skoðanakönnun, sem
fram fór meðal matvörukaup-
manna nýlega til þess, að þeir
muni ekki nota sér heimildina.
Náist hinsvegar samkomulag við
V.R. og matvörukaupmenn vilji
notfæra ,sér heimildina, munú
þeir vilja mæta auknum kostn-
aði með hærra verðlagi. En er
það vilji neytenda? Hví ekki að
lofa söluturnum að hafa fleiri
vörutegundir með óbreyttri á-
lagningu?
VarBstjóri
kærður
Framhald af 12. síðu.
urð um að afhenda sér aftur
lyklana en Sigurður hafi sagt
að hann gæti sótt þá niður á
stöð og bílinn inn í vökuport.
I>á hringdi Kjartan í lögregluna
og komu tveir lögregluþjónar
á vettvang og kvöddu til vitni.
Kom til nokkurra orðahnipp-
inga milli þeirra Kjartans og
Sigurðar áður en lögregluþjón-
arnir komu.
Kjartan fór síðan á slysavarð-
stofuna cg fékk vottorð um á-
verka sína. Var hann bólgánn
á gagnaugana vinstramegin og
hafði verk í eyranu.
Sigurður Ágústsson ber að
hann hafi komið að mannlausri
bifreiðinni á Hverf isgötu og
verið að skrífa sektarmiða er
bifreiðastjórinn kom út úr hús-
inu. Segir hann að koníið hafi
til orðaskipta milli þeirra Kjart-
ans og hafi Kjartan farið háðu-
legum orðum um sig og neitað
að færa bflinn. Segist Sigurður
þá hafá sezt inn í bílinn til
Kjartans og reynt að ýta hon-
um út úr bílnum og undan stýr-
inu. Segist hann hafa haldið á
sektarbókinni í þeirri hendi
sem hann ýtti við Kjartani með
og hafi hann tekáð í peysu er
Kjartan var í en runnið til með
hendina og bókin slegizt framan
i hann. Neitar Sigurður alger-
lega að hafa slegið Kjartan.
Vitni sem til voru kvödd munu
þó hafa borið það að Sigurður
hafi slegið Kjartan að því er
Þjóðviljinn hefur fregnað og til
þess bendir það einnig að Sig-
urður sat hægra megin við
Kjartan en þó fær Kjartan á-
verkan á vinstri kinn. Getur bað
vart komið heim og saman við
þann framburð Sigurðar sem að
framan var greindur.
Neytendasamtökin
og iokunartíminn
Fimmtudagur 19. september 1963
SOIDH
Þjóðviljanum hefur borist eft-
irfarandi til birtingar:
í tilefni þess. að borgarráð
ræðir á fundi sínum í dag frum-
varp um afgreiðslutíma verzlana
í Reykjavík, vilja Neytendasam-
tökin taka fram eftirfarandi:
Frumvarpið var sent samtök-
unum til umsagnar, og sendu
þau borgarráði ýtarlegt álit um
það. Væru þau tillögunum sam-
þykk í öllum þeim atriðum, þar
sem þær miða að rýmkun og
auknu frjáisræði, en andvig
þeim að því leyti. sem þær tak-
mörkuðu þjónustu við neytend-
ur um fram það, sem almenn-
ingsheill krefur sannanlega.
1 frumvarpinu eru mörg ný-
mæli, sem neytendur hljóta að
fagna, svo sem föstudags-kvöld-
sölu allra verzlana og vakta-
skiptaverzlun í hinum ýmsu
borgarhlutum. Verði tillögumar
samþykktar óbreyttar, verða
neytendur þó að sjá á bak ýmis
konar þjónustu. og er það mið-
ur. Allmargar verzlanir hafa
haft söluop og selt til kl. 23.30,
en nú yrði lokað fyrir þau að
mestu. Um leið er öðrum skipað
að hafa söluop, þ.e. kvöldsölu-
stöðum, sem nú eru, og neytend-
um gert að verzla utan dyra í
voru kalda landi, þótt nóg pláss
sé inni. Draga verður í efa, að
allt talið um „hangs“ unglinga
sé alvarlega meint hjá sumum
aðilum í þessu máli, en það
er gömul reynsla, að áhugi
manna á frjálsri samkeppni
dvínar oft sérlega, þegar að
þeirra eigin hagsmunum snýr.
Mikið veltur á þvi, hvemig
framkvæmd verður vaktaverzlun
sú, sem fillögumar gera ráð fyr-
ir, en langt gæti orðið fyrir
suma áð fara í verzlun í slæmu
veðri. sem áður áttu stutt, eftir
að hin nýja reglugerð gengi í
gildi, ef fjöldi verzlana yrði
mjög takmarkaður. Slíkt á að
fara eftir tillögum Kaupmanna-
samtakanna og KRON, en Neyt-
endasamtökin eru fús til þess
að vera þrlðji aðilinn f.h. neyt-
enda og vilja hérrneð beina því
til borgarfulltrúa. Einnig því,
að 5. gr. verði rýmkuð svo að
núverandi söluop séu ekki úti-
lokuð að þarflausu. Ennfremur
að kvöldsölustöðum verði ekki
lokað fyrir fullorðnu fólki né
heldur fyrr en nú er.
Að öðru leyti fagna Neytenda-
samtökin þvi, að ýmis ákvæði
frúmvarpsins, svo sem almenn
kvöldsala einu sinni í viku og
vaktaverzlun í hverfum, eru i
anda margyfirlýstrar stefnu
þeirra í þessum málum og
reyndar tillagna, er þau settu
fram skömmu eftir stofnun
þeirra.
Hvers
vegna ?
Morgunblaðsmenn eru enn
hvítglóandi af heift vegna
þess b£> Samtök hemámsand-
stæðinga/ létu varaforse‘a
Bandaríkjanna vita það hrein-
skilnislega að íslendingar
myndu aldrei una bandarísku
hemámi heldur berjast gegn
því með öllum tiltækum ráð-
um. Reiðin birtist í andlirs-
dráttum Sigurðar Bjarnasonar
þegar hann stóð við Hótel
Sögu á mánudag fyrir aftan
æstustu óspektarmenn Varð-
bergs og hvatti þá til þess að
reyna að koma í veg fyrir að
hægt væri að afhenda orð-
sendingu hemámsandstæð-
inga. Sú tilraun mistókst
háðulega, og því reynir rit-
stjórinn að fróa sér með
fúkyrðaflaumi í blaði sínu.
Enn í gær talar hann um
„samblástur gegn varafor-
setá Bandaríkjanna". og fer
hörðum orðum um það at-
ferli „að ráðast framan að
gestum þjóðarinnar með nóli-
tískum mótmælaaðgerðum og
uppsteiti"; ber væntanlega j*ð
skilja það svo að ritstjóran-
um hefði fallið betur ef ráð-
izt hefði verið aftan að beim.
Einnig segir hann í forustu-
grein sinni: „En það ér of
langt gengið, þegar æsinga-
iýð er stefnt saman til ðgr-
ana við erlenda þjóðhöfðingja,
sem koma í heimsókn til
landsins og eru gestir þjóðar-
innar sem heildar“.
En inn í þessa máttlausu
heift er bætt annarskonar
lýsingum. Ritstjórinn segir að
meðal þeirra „þúsunda Reyk-
víkinga" sem komu saman
fyrir utan Háskólabíó hafi
aðeins verið „200 kommún-
istar"! Kemur þar fram hin
gamalkunna talningarsniHd
Morgunblaösins, og í áfram-
haldi er sagt að atburðimir
við Háskólabíó hafi „veitt
kommúnistum stórfellda hirt-
ingu og látið þá verða sér til
opinberari háðungar en nokkru
sinni fyrr hér á landi“.
En hvemig fer ritstjórinn
ið því að koma þessu tvennu
saman og heim? Hvers vegna
er hann svona óskaplega reið-
ur út af hrakförum komm-
únista?
Þeir
sletta skyrinu
„Vemdum krómma" heitir
forustu grein Alþýðublaðsins
í gær. Sagt er að endurminn-
ingár Kristínar Keeler hinnar
brezku komi senn út í bókar-
formi undir heitinu „Vemdum
siðgeeðið“. — Austri.
Framhald af 1. síðu.
yfirnefnd á sæti einn
fulltrúi fyrir hvorn
nefndarhluta sexmanna-
nefndar, en hagstofu-
stjóri er oddamaður.
Gunnar Guðbjarísson
tók sæti í yfirnefnd sem
fulltrúi framleiðenda-
hluta Sexmannanefndar,
en Sæmundur Ólafsson
sem fulltrúi neytenda-
hluta hennar.
Á fundi yfirnefndar í
dag, miðvikudag 18.
september, var ákveð-
inn verðlagsgrundvöllur
landbúnaðarvara fyrir
yerðlagsárið 1963 til
’64. Samkvæmt honum
hækkar afurðaverð til
bænda um 20,8% frá
því, sem var haustið
1962.
Sexmannanefnd á nú
eftir að fjalla um nýtt
verð til bænda á ein-
stökum afurðum og um
þann vinnslu- og dreif-
ingarkostnað, sem leggsf
á afurðirnar á þessu
hausti. Er því ekki enn
hægt að segja neitt um
væntanlegt útsöluverð á
einstökum landbúnaðar-
vörum.
Ráðherrar
fíýja jand
Viðreisn Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokksins er nú farin að
bera þungbæran ávöxt í óða-
verðbólgu og öngþveiti að efna-
hagslíf landsins virðist í þann
veginn að kollsteypast. Hafa ráð-
herramir þvi gripið til nýs
„bjargráðs": að þeir hlaupist úr
landi einn af öðrum! Vísir skyr-
ir frá því í gær að Ólafur Thórs
sé hlaupinn til Norðurlanda en
Gylfi til Ameríku, og Gunnar
Thór er ókominn frá Titó.
Hvað ætli vísitalan þurfi að
hækka um mörg stig á mánuði
til þess að afgangurinn af ráð-
herrunum hypji sig á eftir þess-
um þremur?
Farfuglaferð
um helgina
Um næstu helgi efna Farfuglar
til haustferðar í Þórsmörk. Eins
og undanfarin ár er reynt að
fara þessa ferð, þegar haustlitir
eru famir að njóta sín, en að
margra dómi er Þórsmörk aldrei
fegurri en einmitt þá.
Farið verður bæði á föstudags-
kvöld og á laugardag klukkan 2.
Skrifstofan er opin að Lindar-
götu 50 í kvöld og annað kvöld
klukkan 8.30 til 10. — Sími 15937
Bifreiðaleigan HJÓL
Hverfisgötu 82
Sími 16-370
Æskulýðsráð að-
stoðar ungt fólk
við Ijósmyndagerð
1 tilefni af ljósmyndasam-
keppni Almenna bókafélagsins
mun, ÆSkulýðsráð Reykjavíkur
veita ungu fólki, 20 ára og
yngra, tilsögn og aðstöðu til að
vinna myndir sem senda á í
samkeppnina.
'■ ■'Par sem skilá þaíí mýndúm
í samkeppnina fyrir 15. okt. n.k.
verður ekki hægt að taka við
algemm byrjendum í ljó&mynda-
gerð, en reynt að hjálpa þeim
sem verið hafa í Ijósmyndaiðn á
vegum Æskulýðsráðs eða unnið
að myndum heima.
Auk þess að vinna myndir til
nota í samkeppni Almenna
bókafélagsins. hefur hver þátt-
takandi tækifæri til að taka þátt
í innbyrðis keppni um beztu
myndimar og vinna til peninga
og bókaverðlauna.
Þátttakendur þurfa sjálfir að
'leggja til ljósmyndapappír, en
Æskulýðsráð leggur til önnur
efni og áhöld. Þátttökugjald er
kr. 50.00. Þejr sem hafa áhuga á
þátttöku eru beðnir að koma til
viðtails í Tómstundaheimilið að
Lindargötu 50, fimmtudaginn 19.
sept. kl. 8 e.h.
LAUGAVEGI 18 S!MI 19113
: TIL SÖLU:
i 2 herb. risíbúð við Mos-
gerði. Utb. 125 þúsúnd.
| 2 hérb íbúð við Ásbraut
i 3 herb. jarðhæð við Máva-
, hlíð, sérinngangur, 1.
: veðr. laus.
3 herb. góð íbúð við Miklu-
braut, með ‘ 2 herb. í
kjallara.
4 herb. hæð við Nýlendu-
götu. laus strax.
4 herb. hæð við Ásvalla-
götu, 1. veðr. laus.
4 herb. hæð við Flókagötu,
sér inngamgur, bflskúr.
4 herb. hæð 117 ferm. við
Suðurlandsbraut, með 40
ferm. útíhúsi.
Timburhús, múrhúðað, ■ við
Langholtsveg, góð 4 herb.
, íbúð, stór lóð, steyptur
bílskúr.
Timburhús við Langhoits-
veg, 3 herb. íbúð útb.
225 þúsund.
Timburhús við Suðurlands-
braut, útb. 135 þúsund.
Timburhús við Bragagötu,
3 herb. á hæð og 2 í rísi.
Timburhús, múrhúðað, selst
til flutnings. Góð lóð við
Vatnsenda fylgir. Húsið
er 3 herb. íbúð. Verð
samkomulag.
KÓPAVOGUR VIÐ:
Nýbýlaveg, 3 herb. hæðir
í timburhúsi.
Lindarveg, 3 herb. hæð, á-
samt góðri byggingarlóð.
Digranesveg, parhús, 3.
hæðir. 1
Kópavogsbraut, einbýlishús
með 3.300 ferm eignarlóð.
1 SMlDUM:
Lúxushæð við Safamýri,
150 ferm.. fullbúin undir
tréverk og málningu.
Glæsileg innrétting get-
ur fylgt.
4 herb. íbúðir við Háaleit-
isbraut og Holtsgötu.
6 herb. glsesilegar endai-
búðir við Háaleitisbraut.
Fokheld neðri hæð við
Stóragerði, allt sér.
Raðhús í Kópavogi, fok-
held eða tilbúin undir
tréverk og málnipgu.
6 herb. hæðir við Hlíðar-
veg.
6 herb. glæsileg efri hæ»
við Nýbýlaveg.
Einbýlishús í Garðahreppi,
120—160 ferm. Góð kjör.
Höfum kaupcndur með
miklar útborganir, að öll-
um tegundum fasteigna.
,Aidan' 70 ára
í sambandi við 70 ára afmæli skipstjóra-
og stýrimannafélagsins „Aldan“ 7. okt. n.
k. hefir verið ákveðið að efna til hópferð-
ar á sjávarútvegssýninguna í Gautaborg
31. október n.k. Ferðaskrifstofan SUNNA
hefur lagt kostnaðaráætlun um þessa ferð,
sem er 8.900 krónur, þar með innifalið
flugferð og hótelkostnaður með morgun-
verði.
Ófélagsbundnir skipstjórnarmenn geía
einnie sótt um þátttöku. Óskað hefur verið
eftir því að dr. Jakob Jakobsson fiskifr.
verði fararstjóri.
Þátttökubeiðnum er veitt móttaka á skrif-
stofu Öldunnar Bárugötu 11, sími 23476
og á sjónum hjá Gunnari Magnússyni,
skipstjóra á m.b. Arnfirðingi.
Fh. skipsfjóra- og stýrimannaf. „Aldan'1
Guðm. H. Oddsson, form.
1
4
/