Þjóðviljinn - 19.09.1963, Page 4
4 biða
Otgefandi: Sameiningarfloklcur alþýöu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.j,
ISiguröur Suömundsson.
Fréttaritstjórar: Jón Bjamason. Siguröur V. Friðþjófsson.
Ritstjóm. afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 80,00 á mánuði.
Farmenn
Qkammsýn og skilningslaus er sú aístaða skipa-
^ félaganna að ganga ekki verulega til móts- við
hinar hóflegu kröfur farmanna um mánaðarkaup-
ið, sem fluttar voru eftir að yfirgnæfandi meiri-
hluti skipverja hafði fellt samkomulag sem samn-
inganefnd og stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur
hafði fallizt á, og virðist hafa falið í sér lítið ann-
að en 7,5% hækkun á mánaðarkaupi. Hásetastör'f
á kaupskipaflotanum íslenzka þykja ekki orðið
svo eftirsóknarverð, að auðvelt sé að manna flot-
ann hæfum sjómönnum; sá vandi hefði áreiðan-
lega orðið auðleystari ef skipafélögin hefðu sam-
þykkt að fara með mánaðarkaupið upp undir þær.
kröfur er sjómenn gerðu. Og farmennimir hafa
orðið fyrir miklum vonbrigðum með þessa samn-
ingsgerð, enda þótt farmannafundurinn á mánu-
daginn samþykkti þá sem bráðabirgðaframleng-
ingu til nokkurra mánaða. Aðvörunin sem fólst í
hinni fyrri atkvæðagreiðslu sjómanna ættu bæði
stjórnendur skipafélaganna og stjórn Sjómanna-
'félags Reykjavíkur þó að leggja sér á minni. Eng-
in líkindi eru fil þess að farmenn láti bjóða sért
til frambúðar þau kjör sem þeir nú hafa.
HÖÐYILJINN
Fimmtudagur 19. september 1963
Afvopnun og nýlendumál á
dagskrá Allsherjarþings S.Þ.
Afvopnunarmálin og afnám
nýlenduskipulagsins eru mikil-
væc atriði á dagrskrá Allsherj-
arþingsins. sem hófst í New
York í fyrradag, 17. septem-
ber. Á dagskránni eru merki-
lega fá umræðuefni. aðeins 78
talsins, en venjulega hafa þau
verið kringum 100. Þetta cr í
fyrsta sinn í sögu samtakanna,
sem ckkert aðildarríkjanna
hefur fært sér í nyt réttinn
til að koma með uppástungur
Fiskiráðstefna
Breta kefst
3. desember
LONDON 17/9 — Reuters-
fréttastofan hafði í dag
eftir áreiðanlegum heimild-
um að fiskiráðstefna sú
sem brezka stjórnin hefur
boðað til eigi að hefjast
í London 3. september n.k.
Það var í apríl sl. sem
brezka stjórnin stakk upp á
því að slík ráðstefna yrði
haldin og yrði þar fjaUað
um fíiskveiðar á Norður-
Atlanzhafi.
um ný umræðuefni í síðasta
lagi mánuði fyrir þingið.
Þetta Allsherjarþing hefst í
anda bjartsýninnar. Ú Þant
framkvæmdastjóri segir í árs-
skýrslu sinni, að undirritun
sáttmálans um takpiarkað
bann við tilraunum með
kjarnavopn hefði gefið ver-
öldinni nýja von. Hann bend-
is samt einnig á ýmis neikvæð
atriði. Efnahagsástand sam-
takanna er með þeim hætti,
að þau munu. í náinni fram-
tíð neyðast til að starfa með
miklum reksturshalla, og skap-<j>
ast af því sífelldar áhyggjur.
Um fjárfi'amlög til þróunar-
áratugsins svonefnda segir Ú
Þant, að einungis eitt eða tvö
iðnaðarlandanna hafi hingað
til lagt fram helmiiiginn af
þei-m eina hundraðshluta stöð-
ugt vaxandi þjóðartekna. sem
þau hafi verið hvött til að
leggja fram til að hjálpa þrð-
unarlöndunum.
Meðal þeirra atriða á dag-
skrá þingsins, sem snerta af-
vopnun, vekur eitt mesta at-
hygli „Spumingin um algera og
almenna afvopnun“ Það vekur
ekki sízt athygli ve.gna þess að
nú hefur loks náðst samkomu-
Iag um stöðvun á tilraunum'
með kjamavopn í andrúms-
loftinu, gei-mnum og neðan-
sjávar, og auk þess er nú kom-
ið beint sa-m-band milli Wash-
ington og Moskvu. Með þessu
hafa verið stigin mikilvæg
skref, segir Ú Þant, til að
skapa aðstæður. sem orðið
gætu skilyrði nýs árangurs á
sviði afvopnunar. í sambandi
við ofangreint dagskráratriði
mun Allsherjarþingið fjalla
um skýrslu varðandi störf af-
vopnunamefndarinnar í Genf
Annað atriði á dagskránni,
sem snertir sama mál, er
spurnin-gin um að kveðja sam-
an ráðstefnu, sem hafi ,að
markmiði að fá undirritaðan
sáttmála um bann við notk-
un kjarnavopna. 62 ríki hafa
svarað fyrirspurnum fram-
kvæmdastjórans um möguleik-
ann á slíkri ráðstefnu. 31 ríki
var meðmælt henni, 26 voru
andvíg henni, og þrjú ríki
vildu bíða eftir niðurs.töðum
umræðnanna í Genf.
Þá má nefna atriði um belti
án kjamavopna í Suður-Ame-
ríku, sem Brasilía hefúr beð-
ið um að tekið verði til um-
ræðu. Þetta ríki hefur ásamt
Framhald á 8. síðu
Klofningstílraun
Kínamanna / Belgíu
Hvergi í Vestur-Evrópu hef-
ur ágreiningurinn milli Sovét-
ríkjanna og Kína gert veru-
legan usla í röðum kommún-
ista — nema í Belgíu. Er nú
svo komið að hópur manna úr
kommúnistaflokknum þar hef-
ur tekið sig saman og telja
sig vera hinn eina sanna
kommúnistaflokk. Varð
fyrsta verk þcssara samtaka
að senda sendinefndir til Pek-
ing og Tirana í Albaníu.
-<5>
Nýi sæsímastrengurinn auð-
veldar flug yfir Atlanzhaf
Andspyrnuforingi
leiðtoginn
Foringi uppreisnarmannanna
heitir Jacques Grippa og hefur
til skamms tíma verið meðlím-
ur miðstjómar Komrqúnista-
flokksins. Hann var einn af
aðalleiðtogum andspymuhreyf-
ingarinnar gegn nazistum og
sat um skeið í fangabúðunum
í Buchenwald. Þegar £ árs-
byrjun 1962 tók hann að gagn-
rýna leiðtoga Sovétríkjanna
fyrir endurskoðunarstefnu og
fékk að verja þau sjónarfnið
sín í blaði flokksins, Draþeau
Rouge. Skömmu síðar vorú þó
skoðanir hans fordæmdar af
miðstjórnimni og e|tix., að
Kúbudeilan var afstaðin var
honum vikið úr flokksforyst-
unni.
¥jað skal rifjað upp að kröfurnar sem samninga-
* nefnd Sjómannafélags Reykjavíkur gerði um
hækkun á mánaðarkaupinu eftir að fyrra sam-
komulagið var fellt, voru þær að mánaðarkaup
'fullgilds háseta á þrískiptri vakt með 8V2 klst.
vinnu á sólarhring að meðaltali, yrði 8512,00 kr.,
og að mánaðarkaup fullgilds háseta á tvískiptri
vakt, 12 klst. á sólarhring í sjó, yrði 11.312,00 kr.,
þar af vaktatillegg 2500,00. Yarla mun sá maður
til að hann telji sjómennina á kaupskipaflotanum
ofhaldna af þessu mánaðarkaupi, og mætti þá
hafa í huga auk annarrar sérstöðu sjómennsk-
xmnar, að ætlazt er til að menn hafi siglt sem við-
vaningar á miklu lægra kaupi í 12 mánuði til þess
að' geta fengið kaup fullgilds háseta.
Sjálf samninganefndin hafði lagt á það þunga á-
herzlu að aðalatriði samninganna væri einmitt
þeíta, að fá verulega hækkun á sjálfu mánaðar-
kaupinu, og það miðað við skikkanlegan vinnu-
dag. Sjálf samninganefndin hafnaði algerlega á-
róðri skipafélaganna um að hægt væri og rétt að
miða sjómannakjörin við yfirvinnu, sem væri ó-
hæfilega mikil á sumum skipum en á öðrum lítil
sem engin. Frá aðalkröfum sjómanna um hækkun
mánaðarkaupsins var hins vegar hörfað, svo í nýju
samningunum er starf fullgilds háseta enn met-
ið til jafns við störf aðalátappara Áfengisverzlun-
ar ríkisins, dyraverði Þjóðleikhússins, innheimtu-
menn ríkisins og næturverði í landi, svo nokkuð
sé nefnt. Það er ekki sæmilegt og ekki skynsam-
legt sé að skammta sjómönnum „hækkanir“ upp í
slíkt mánaðarkaup mitt í þeirri verðbólguskriðu
sem ríkisstjórnin, flokksbræður Sjómannafélags-
stjórnarinnar, eru að magna gegn alþýðu á þessu
hausti. Slíkt hlýtur að hefna sín. — s.
MONTREAL. Rúmlega 2400
sjómílna langur, brynjaður
sæsímastrengur var nýlega
tekinn í notkun til að auðvelda
flugiú yfir Norður-Atlanzhafið.
Hann var lagður að tilhlutan
17 rikja. meðal þeirra Dan-
merkur, islands, Noregs og
Svíþjóðar, og eru öll ríkin að-
ilar að Alb.ióðaflugmálastofn-
uninni, ICAO. Danskt fyrir-
tæki tók þátt í að búa til sæ-
símastrenginn og leggja hann.
Strengurinn er í rauninni í
tveim hlutum. Annar liggur
frá Bretlandi til fslands, og
hinn milli íslands og Kanada.
Kona forstjóri
upplýsingaskrif-
stofu S.Þ.
f fyrsta sinn í sögu Sám-
einuðu þjóðanna hefur kona
verið skipuð í embætti for-
stjóra upplýsingaskrifstofu
samtakanna. ‘Það er frú Ma
Than E. Fend frá Burma sem
gerð hefur verið að forstjóra
upplýsingaskrifstofunnar í
Alsír sem nýlega var sett á
stofn. Þá hafa Sameinuðu
bióðirnar alls 45 nonlýsinga-
skrifstofur um allan heim.
Fimm þeirra hafa norræna
forstjóra. Svíamir Sixten
Heppling, Jan-Gunnar Lind-
ström og Sture Linnér eru
forstjórar upplýsingaskrifstof-
anna í Kabul, Lundúnum og
Aþenu. fslendingurinn fvar
Guðmundsson stjórnar upplýs-
ingaskrifstofunni í Karachi og
Norðmaðurinn Dik Lehnkuhl
skrifstofunni í Bagdad. Upn-
lýsingaskrifstofa Sameinuðu
þjóðanna fyrir Norðurlönd er
í Kaupmannahöfn, forstjóri
hennar er Hugh Williams frá
Nýja Sjálandl.
Hann liggur frá Skotlandi um
fsland og Grænland tiL Ný-
fundnalands. Hann var lagður
samkvæmt ályktun, sem gerð
var á ráðstefnu IOAO í París
1959. Þar komust menn að
þeirri niðurstöðu, að augljós-
asta og brýnasta þörfin á end-
urbótum í flugsamgöngum
væri á Norður-Atlanzhafs-
svæðinu.
/ ::
*
Sambandið milli flugeftir-
litsstöðvanna á þessu svæði
hefur truflazt af ótölulegum
útvarpsbilunum, vegna þess að
•útvarpssendingar og loftskeyti
verða fyrir áhrifum frá norð-
urljósunum. Þetta hefur ekki
aðeins haft í för með sér
mikla erfiðleika fyrir flugeft-
irlitið, heldur hefur það einn-
ig leitt af sér óþarfa tafir fyr-
ir farþega og aukaútgjöld fyr-
ir flugfélögin.
*
Hinn nýi sæsímastrengur
gerir flugeftirlitinu í Gander,
Reykjavík og Prestwick —
sem hefur sameiginlega um-
'sjón með öllu flugi yfir Norð-
ur-Atlanzhafi — kleift að vera
í stöðugu sambandi innbyrðis,
eins og starfsmennimir sætu
hlið við hlið við sama borð.
í sæsímastrengnum er ein
lína. fyrir talsamband og fjór-
ar fyrir fjarrita. Verkið var
unnið af Store Nordiske Tele-
graf-Selskab í samvinnu við
eitt kanadískt fyrirtæki.
„Aukaþing“
Grippa og nokkrir félagar
hans boðuðu þá til ,.auka-
þings“ í Brussel. Á því þingi
var kosin flokksstjóm fyrir
minnihlutaflokkinn og var
Grippa að sjálfsögðu í braddi
fylkingar. Fyrsta verk „upp-
reisnarflokksins“ var að senda.
nefndir til Peking og Tirana
og var Grippa sjálfur fyrir
þeirri nefnd sem fór til Alb-
aníu. Sendinefndunum var
tekið með pomp og pragt á
báðum stöðunum, en í opnu
bréfi til ráðamanna í Pekihg
gagnrýna Sovétríkin kínversku
commúnistana fyrir að styðja
klofningsstarfsemi Grippa og
félaga hans.
Skrífstofustúlka
óskas’t á Rannsóknastofu Fiskifélags íslands. Góð vélritunar- og ,
enskukunnátta nauðsynleg og einnig æskileg nokkur þekking á
bókhaldi/ Laun skv. launakerfi opinberra starfsmann^.
Upplýsingar gefnar á Rannsóknastofu Fiskifélags íslands, Skúla-
götu 4, í dag og næstu daga, sími 20 240.
Framtíðarstarf
Starf aðstoðarmanns eða aðstoðarstúlku er laust hjá Rannsókna-
stófu Fiskifélags íslands. Nokkur efnafræðiþekking æskileg.1 Laun
skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Upplýsingar gefnar á Rannsóknastofu Fiskifélags íslands, Skúla-
götu 4, í dag og næstu daga, sími 20 240.