Þjóðviljinn - 19.09.1963, Page 12

Þjóðviljinn - 19.09.1963, Page 12
Geysismenn a3 störf um Kvikmyndaleiðangur Geysis kom ofan úr Öræfum á dögun- um eftir viku ferð norður Sprengisand og víðar. Um helg- ina fóru kvikmyndatökumenn- imir austur í Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu og eru nú staddir þar. Þessi skemmtilega mynd er tekin á Vatnaöldu og sýnir þá félaga undirbúa mynda- töku. Lcikstjórinn Reynir Odds- son er að kíkja á mótívið og Gísli Gestsson og William Lub- tschansky standa til hliðar. Óvissan í flugvallarmálinu orðin hættuleg þróun íslenzkra flugmála I*að er samróma álit allra sérfræðinga, inn- lendra sem erlendra, að Reykjavíkursvæðið þarfn- ist síns flugvallar. Hitt er annað mál, hvernig þessum málum verður skipað í framtíðinni, hvort núverandi Reykjavíkurflugvöllur verður notað- ur áfram eða nýr völlur reistur annarsstaðar, en óhjákvæmilega verður að taka ákvörðun um þetta mál í allra nánustu framtíð. Ég vænti þess fastlega að ákvörðun í þessum efnum verði tekin í vetur, því að við núverandi óvissu verður ekki unað lengur. Hún tefur fyrir óhjákvæmilegri þróun íslenzkra flugmála og við stefnum hraðbyri í átt til aukinna vandræða, vegna þess að við vitum ekki hvað við eigum að gera. lendur sérfræðingur, Hellman I allt sumar, gert margvíslegar að nafni, hefði starfað hér á athuganir er að gagni mættu vegum flugmálastjórnarinnar í | Framhald á 2. síðu. Fimmtudagur 19. september 1963 — 28. árgangur — 200. tölubdað. Leigubílstjóri kærir lögreglu varðstjóra Leigubílstjóri sem ekur hjá Steindóri, Kjartan Pálsson að nafni, hefur kært Sigurð Ágústsson varðstjóra 1 um- ferðarlögreglunni fyrir líkamsárás. Segir hann Sígurð hafa slegið sig í andlitið og fleygt sér út úr bifreiðinni er hann tregðaðist við að hlýða fyrirmælum hans um að færa bifreiðina. Var bílstjórinn að bíða eftir farþega er þetta gerðist. Málið er komið til Sakadóms Reykja- víkur. til rannsóknar. Atburður þessi gerðist sl. laugardagsmorgun á Hverfis- götu. Segir Kjartan svo í kæru sinni að' hann hafi ver- ið kaUaður að hárgreiðslu- stofu til þess að sækja far- þega. Ók hann þangað og tók Herskipaflotinn í höfn Þreíað um sí/d Æsifrétt birtist í Al- þýðublaðinu í gær um sölu saltsíldar til Rússa og mátti skilja að sölusamn- ingar væru farnir út um þúfur. „Neita Rússar að kaupa söltunarsíldina á Seyðisfirði og yfir höfuð alla saltsíld fyrir norðan og austan/ í sumar?“ spyr Alþýðublaðið hneykslað. Þjóðviljinn hafði sam- band við fréttaritara sinn á Seyðisflrði í gær og kynnti sér gang mála. Rússneskur • matsmaður dvaldi á Seyðisfirði á dög- unum og er nú á yfirreið um síldarstaðina fyrir norðan og austan. Hann hafði meðal annars kíkt á nokkrar síldar hjá Hafö'ld- unni, síldarplani Sveins Benediktssonar og hafði lent í þrefi milli síldar- kaupmannanna um gæði vörunnar. Uppistaðan er nú ekki veigameiri. Það þykir engln ný- lunda, samkvæmt reynslu undanfarinna sumra í síld- arstöðum fyrir norðan og austan, að rússncskir mats- menn þykja dómstrangir um gæði síldarinnar og þykja heldur óvinsælir hjá síldarsaltendum, sem þykja Rússarnir svifaseinir til þess að dansa á línu vest- rænna braskara. Er þar átt við mútubægni og hverskonar óheiðarleika i milliliðastarfsemi. Hér má segja: „Fjallið tók jóðsótt og fæddist lítil mús.“ Eitthvað á þessa leið fórust flug- málastjóra, Agnari Kofoed- Hansen orð í gær, er hann ræddi við fréttamenn ásamt nokkrum öðrum starfsmönnum flugmálastjórnarinnar. Til um- ræðu voru einkum öryggismál Reykjavíkurflugvallar, eins og frá er skýrt á öðrum stað í blaðinu, en flugvallarmálið sjálft, staðsetning hans eða nýr flugvöllur á borgarsvæðinu bar einnig lítillega á góma. Flugmálastjóri sagði, að er- 10000 neytendur hafa mót- mælt lokun söluturnanna í dag kemur til afgreiðslu í borgarstjórn kvöld- sölumálið svonefnda og í tilefni af því kallaði stjórn Félags söluturnaeigenda fréttamenn á sinn fund í gær. Þar voru lagðar fram í skíru og á- kveðnu formi þær athugasemdir, sem félagið tel- ur sig þurfa að gera í sambandi við frumvarp þeirra Sigurðar Magnússonar og Páls Líndal. Þessar athugasemdir eru birtar orðrétt á 2. síðu blaðsins. Hafliði Jónsson formaður fé- lagsins lagði sérstaka áherzlu á að hér væri um þrennskonar kvöldsölufyrirkomulag að ræða. 1 fyrsta lagi matvörubúðir með söluopi. einstæðir turnar og bið- skýli, sem selja vöru sína útum söluop og svo litlar búðir. bar sem seldur er takm. fjöldi vörutegunda, sem afgreiddar eru yfir venjulegt búðarborð. Fjöidi þessara staða í allt er um 100. en að frádregnum matvöruverzl' ununum eru þeir um 50-60, hins- vegar eru síðastnefndu staðimir ekki nema 30-40 og myndi uýja reglugerðin einkum koma hart niður á þeim. Ætlunin er sem sagt að þiðskýlin selji sína vöru eftir sem áður til klukkan 23.30 með sama fyrirkomulagi og verið hefur. einstæðir turnar sem til þessa hafa selt beint út á göt- una gegnum söluop munu halda því fyrirkomulagi, en verða að loka klukkan 22.00, en litlu búð- imar verða að setja hjá sér söluop, selja gegnum bað allan daginn og til kl. 22.00 á kvöldin. Almennar matvöruverzlanir. sem til þessa hafa haft söluop á verzluninni sjálfri, verða þá að færa það á sérstakt húsnæði og selja um það eingöngu svo- kallaða munaðarvöru. sem nánar er kveðið á um í reglunum, en hafa að öðru leyti opna búð til klukkan 22.00 öðru hverju og eftir reglum sem settar yrðu. Stjórn Félags söluturnaeigenda telur að þarna sé um greinilegan mismun að ræða. Þessar regiur stefni allar að því að kippa grundvellinum undan sölutumun- um og færa þau viðskipti, sem til þessa hafa farið fram í turn- unum í verzlanimar. Vegna alls þessa spyrja sölu- turnaeigendur nú sem svo: „Hvar er nú hin frjálsa samkeppni og forsvarsmenn hennar?" Aðspurðir kváðu þeir undir- skriftasöfnunina halda áfram af fullum krafti. 1 fyrradag skiluðu þeir um 7000 nöfnum til borgar- ráðs og kváðu þeír ekki ólík'eg* að söfnunin væri nú komin í 10.000 nöfn. — Sjá greinargerð á 2. síðu. ÞEGAR LJOSMYNDARA blaðs- ins varð gengið um höfnina í gær, þótti honum þessi sjón einna merkilegust af því, sem fyrir augun bar. Fimm sjöundu hlutar her- skipaflota íslendinga í höfn! ÞARNA LIGGJA hlið við hlið: Ægir, Albert, Sæbjörg, Gaut- ur og María Júlía, aðeins Óðinn og Þór eru úti að gæta landhelgislínunnar og vera til taks ef eithvað verður að hjá flotanum. ÞAÐ HEFÐI svosem litlu mun að fyrir gæzluna þó að þeir hefðu legið þarna líka, en myndin hefði hinsvegar orðið miklu skemmtilegri. (G.O.) konu þá er pantað hafði bíl- inn og ók með hana að húsi á Laugavegi en þangað var hún að sækja hárgreiðslu- tæki. Ók Kjartan síðan aftur að hárgreiðslustofunni og lagði bifreiðinni þar fyrir framan við gangstéttina eg bar tækin inn í húsið fyrir konuna. Segist hann' síðan hafa ætlað út i bilinn aftur til þess að bíða eftir konunni er ætlaði að fara aftur með bflnum. 1 þessum svifum bar Sigurð Ágústsson umferðarlö greglum ann að og skipaði hann Kjartani að fara af götunni með bílinn og leggja honum annars staðar. Tregðaðist Kjartan við og sagð- ist vera að bíða eftfir farþega sem kæmi á hverri stundu og væri sér þvi heimilt að láta bílinn standa þarna á götunni á meðan. Segir Kjartan að Sig- urður hafi sezt inn í bílinn til sín og sagt að hann myndi þá færa hann sjálfur. Drap Kjart- an þá á bílnum en Sigurður kveikti á honum aftur. Ber Kjartan síðan að Sigurður hafi greitt sér þungt högg á gagn- augað, varpað sér út úr bíln- um og ekið honum burt, lagði honum á götuna allmiklu innar og tók úr honum lyklana. Fékk bílstjórinn þá ekki aftur fyrr en um hádegi. Kjartan segist hafa beðið Sig- Framhald á 2. síðu. Nýr bátur til Siglufjarðar Siglufirði í gær. — Hingað til Siglufjarðar er væntanlegur ein- hvem næstu daga nýr bátur4 Æskan, SI 140. Báturinn er smíð- aður í Odense á Fjóni, gerður úr eik og er rúmlega 180 brúttó- lestir að stærð. 1 honum er 330 hestafla Bolindervél. Eigandi skipsins er Æskan h.f. en aðalhluthafi í því fyrirtæki er Þráinn Sigurðsson útgerðarmað- ur. Skipstjóri á heimsiglingunni var Bjöm Friðbjamarson. — K. F. Styrkir úr Menningar- og minningorsjóði kvenna Nýlega er lokið styrkveiting- um úr Menningar- og minningar- sjóði kvenna. Til úthlutunar voru að þessu sinni 51 þúsund krón- ur, er skiptast þannig: 5000 — krónur hlutu: Sigurveig Hjaltested til söng- náms, Þórunn Elfa Magnúsdótt- ir til handritakönnunár. 4000,—krónur hlutu: Albína Thordarson til náms i húsagerðarlist. Eyborg • Guð- mundsdóttir til náms f málara- list, Líney Skúladóttir til náms í húsagerðarlist, Signý Thorodd- sen til náms í sálarfræði. 3000,—krónur hlutu: Agnes Löve til náms í píanó- leik. Edda Scheving til sníða- náms. Sigríður Haraldsdóttir til náms í heimilishagfræði, Sigurl. Svanfríður Benjamínsdóttir til sérnáms í framleiðslu, Þórunn S. Ólafsdóttir til söngnáms. 2500,—krónur hlutu: Guðrún Hansdóttir til náms í íslenzkum fræðum. Kristín Ragn- arsdóttir til tannlæknanáms. Olöf Jónsdóttir til kennaranáms, Ragn heiður Hansdóttir til tannlækna- »

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.