Þjóðviljinn - 24.09.1963, Page 1

Þjóðviljinn - 24.09.1963, Page 1
FYRRÍ HOLSKEFLAN STEYPIST NÚ YFIR MJOLK HÆKKAR UM FJORÐUNG! ■ í dag kemur til 'framkvæmda stórfelld hækk- un á mjólk og mjólkurafurðum, en ennþá stór- felldari hækkun á kjöti kemur til framkvæmda á morgun. ■ Mjólkin hækkar um 25%, nákvæmlega fjórð- ung, og smjörið hækkar um hvorki meira né minna en 28,2%! Er þetta langmesta hækkun sem orðið hefur á hversdagslegustu og brýnustu neyzluvörum almennings NOKKRU SINNI hér á landi, og þótt víðar væri leitað. í nágranna- löndunum telja ríkisstjómir það skyldu sína að segja af sér ef verðlag á algengustu neyzluvör- um hækkar um nokkrar prósentur, nú síðast til að mynda finnska stjórnin, en hér stuðlar rík- isstjórnin að því að magna verðbólguna og telur þá væntanlega stökkbreytinguna á búvöruverði sigur fyrir sig. Hér fer á eftir yfirlit yfir helztu verðbreytingamar sem koma til <®>" framkvæmda í dag: Mjólk Mjólk í lausu máli hækkar úr kr. 4.60 eins og það var í fyrra- haust í kr. 5.75 lítirinn. Nemur hækkunin kr. 1.15 eða nákvæmleea 25%. Mjólk í umbúðum hækkar um sömu upphæð í krónutölu. Mjólk í heilflöskum hækkar þannig í kr. 5.95 og mjólk í hymum í kr. 6.40. RlKIÐ HLEÐUR UNDIR ÍSLENIKA AÐAL VERKTAKA Blaðið heíur haít spurnir af einstæðu hneyksli í sambandi við vegagerð á íslandi. Hneyksli þetta mun hafa orðið í sambandi við vélakaup til Kefla- víkurvegarins. Eins og kunnugt er Ihefur hermangsfyrirtækið „fslenzkir aðalverktakar“ lagningu vegar- ins á hendi og keyptu verktak- arnir vélamar til landsins. Hinsvegar hefur Þjóðviljinn það eftir góðum heimildum, að Vegagerð ríkisins hafi haft á hendi allan undirbúning að véla- kaupunum, m.a. sent út menn til að velja vélarnar og gera samninga um kaup á þeim. Þegar þessari undirbúnings- vinnu Vegagerðarinnar var lok- ið tóku Aðalverktakar við og keyptu vélamar, þannig að nú eru þeir eina fyrirtækið á ís- landi, sem hefur yfir að ráða fullnægjandi vélakosti til að steypa með íslenzka þjóðvegi. Þannig er ríkið látið velja tækin í hendurnar á einkafram- ta-kinu, á sinn kostnað. og síð- an getur þetta fyrirtæki sett ríkin-u alla kosti í sambandi við varanlega vegagerð. Sigurpáll með metafía í GÆRMORGUN kom Sigurpáll til Seyðisfjarðar með 800 mál af síld. Þar með var Eggert skiipstjóri Gíslason búinn að slá sitt eigið aflamet síðan i fyrra, þegar hann veiddi 308- 03 mál og tunnur á Víði II. NC ER HANN búinn að fá 31439 mál og tunnur. Myndin er tek- in á Scyðisfirði í sumar, þeg- ar Sigurpáll er að koma inn með um 1500 mál. (Ljósm. C* • .. 5m|or Sjör hækkar mest af mjólkurafurðunum. Kílóið fer upp i »r. 103.55 úr kr. 80.75. Nemur hækkunin á kílóinu kr. 22.80 eða 28.2%. Rjómi Rjómi í lausu máli hækkar úr kr. 50.00 lítirinn í kr. 57 80. Hækkunin nemur 15.6%. Rjómi í umbúðum hækkar á hliðstæðan hátt Skyr Kílóið af skyri hækkar úr kr. 12.75 í kr. 14.65. Hækkunin nem- ur kr. 1.90 eða um tæp 15%. Mjólkurpotturinn í hyrnunum er nú kominn upp í kr. 6.40 en var kr. 5.25 í fyrra á sama tíma. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.). Síldveiðiskýrsla Fiskifélagsins: SÍLDVEIÐINNI ER AÐ LJÚKA f skýrslu Fiskifélags íslands^ um sfldveiðarnar á miðnætti sl. laugardag segir að heiidarafl- inn hafi þá verið 1.620.421 mál og tunnur, en heildaraflinn sl. sumar var 2.370.066 mál og tunnur. Síldarskipin eru nú flest hætt veiðum og munu að- eins um 30 skip halda ennþá út. í fyrra um sama leyti voru öll skip hætt veiðum. Vikuaflinn sl. viku var 50.918 mál og tunnur en var í sömu viku í fyrra enginn. Svo til öll sildin fór í bræðslu en lítið eitt var þó fryst. Söltun var én-gin. Eftir hagnýtingu skiptist heildaraflinn í sumar þannig: f söltun 4-63.235 upps tn. f frystingu 33.124 uppm. tn. f bræðslu 1.124.062 mál. f fyrra skiptist heildaraflinn þanpig: f söltun 375.429 upps. tn. f frystin-gu 39.122 uppm. tn. f bræðslu 1.955.515 mál. Á 2. síðu er birt skrá yfir afk 79 skipa og er það síðasta síld- veiðiskýrsla Eiskifélags fslands á þessu sumri. Ostur 45% mjólkurostur hækkar úr kr. 71.35 kílóið í kr. 84.15. Hækk- unin á kflóinu nemur kr. 12.50 eða 17.9%. Aðrar tegundir af mjólk- urosti hækka samsvarandi. Kílóið af mysuosti hækkar úr kr. 20.00 í kr. 35.35, eða um 17.8%. Kjöt og kartöflur í dag Sveinn Tryggvason, framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbún- aðarins, skýrði Þjóðviljanum svo frá í gær, að enn hefði ekki verið gengið til fullnustu frá verði á kjöti, slátri og kartöflum, en það kæmi til framkvæmda á morgun. Eins og Þjóðviljinn hefur áður greint frá verður hækkunin á kjöti enn meiri en mjólkurhækkunin. Sveitarstjórnir kosnar í Noregi í gær fóru fram bæjar- og sveitastjómarkosningar í Noregi. Skömmu fyrir miðnætti í nótt höfðu verið talin rúml 110 þúsund atkvæði i 100 af 525 sveitafélögum landsins. Atkvæði og fulltrúar skiptust sem hér segir (tölur síðustu kosninga í svigum): Verkamannaflokkurinn: 41.322 (39.803) — 695 fulltr. Hægri flokk- urinn: 8.194 (7.078) — 99 fulltr. Kommúnistaflokkurinn: 1.521 (2.037) — 12 fulltrúar. Kristilegi flokkurinn: 8.030 (7.105) — 124 fuiltr. MiðfIokkurinn: 19.937 (17.254) — 343 fulltr. Vinstri flokkurinn:7.818 (8,591) — 128 fulltr. Sósialistiski alþýðuflokkurinn 538 (0) — 7 fuU- trúa. Óháðir og aðrir: 23.585 (25.187) — 531 fulltr. Hlutfaflstala floíkkanna var sem hér segir: Verkamannaflokkurinn: 37,25 (34,73), Hægri fl.: 7.39 (6.87) Komm- únistaflokkurinn: 1.37 (1.98) Kristil.fi.: 7.24 (6.89) Miðfl.: 17,97 -16,- 74) Vinstri ffl.: 7,05 (8.33) Sós.alþýðufl. 0.48 (0,0) Öháðir og aðrir 21,26 (24,45). X \ *

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.