Þjóðviljinn - 29.09.1963, Side 1
Sunnudagur 29. september 1963 — 28. árgangur — 209. tölublað.
Ávísanasvikamálið:
Stórfelld mistök starfs-
manna Landsbankans?
Þjóðviljinn sneri sér í gær til Halldórs Þor-
björnssonar sakadómara og innti hann frétta af
rannsókn ávísanasvikamáls Sigurbjarn.ar veitinga-
manns í Glaumbæ. Varðist dómarinn allra frétt'a
og kvað ekkert nýtt hafa gerzt í rannsókn máls-
ins. Maðurinn sæti í gæzluvarðhaldi og enn væri
rannsóknin á byrjunarstigi.
-<$>
Fyrirlestur og
kvikmyndasýning
Kl. 2 síðdegis í dag heldur
Vladimír Morozof, 1. sendiraðs-
ritari við sendráð Sovétríkjanna
í Reykjavik,. erindi ,um. Moskvu-
sáttmálann í Stjörnubíói á veg-
um Reykjavíkurdeildar MIR. Að
erindinu lQknu verður sýnd
kvikmyndin „Friður fæddum",
sem hlaut gullverðlaun á 22.
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.
Til viðbótar því sem sagt var
hér í blaðinu í gær um mál
þetta er það helzt að segja að
tveim gjaldkerum við Lands-
bankann hefur verið vikið frá
störfum vegna misferla í starfi
í sambandi við greiðslu á ávís-
ununum til Sigurbjamar. Menn
þessir, sem báðir voru ungir
í starfi, munu hafa vanrækt að
gæta ■ þess að innstæða væri til
fyrir ávísununum í bönkum
þeim sem þær voru stílaðár á.
Segir Morgunblaðið í gær í
þessu •sambandi að það hafi
heimildir. fyrir því að yfirmenn
í Landsbankanum hafi verið
farnir að gruna Sigurbjörn um
græzku varðandi ávísanavið-
skipti og hafi aðalgjaldkerinn
fyrir nokkru gefið skrifleg fyr-
irmæli um að innleysa ekki
ávísanir f rá honum á aðra
banka. ■ ■
Ekki allt með felldu?
•Þess’um fyrirmælum hafa
gjaldkerarnir 'tveir' ekki hlýtt
og er það í þessu sambandi' at-
hyglisvert að ekki kemst upp
um ávisanasvindlið fyrr en á
mánudág, þótt Sigurbjörn hefði
gefið út falskar ávísanir þrjá
daga í röð, fimmtudag, föstudag
og laugardag, vikuna áður.
Skiptast bankarnir þó á ávís-
unum tvisvar á dag alla daga
nema einu sinni á laugardög-
um. Hefðu því svikin átt að
komast upp strax á fyrsta eða
öðrum^degi, ef allt hefði verið
með felldu.
Stesndórí
Laust eftir hádegið í gær varð
starfsfólk á bifreiðastöð Stein-
dórs í Hafnarstræti 2 þess vart
að eldur var laus í skrifstofu-
herbergi í suðausturhorni húss-
ins. Var eldurinn orðinn nokkuð
magnaður þegar að var komið.
Slökkviliðið kom strax á vett-
vang og réðist gegn eldinum og
fékk ráðið niðurlögum hans á
skömmum tíma.
Eldurinn komst í þiljur og
undir loft, en ekki reyndist þörf
á að rjúfa þekjuna. Þrjú her-
bergi stórskemmdust af eldi og
vatni, en aðrar skemmdir á hús-
inu urðu litlar, t.d. urðu óveru-
legar skemmdir á neðri hæð af
vatni.
Ókunnugt er um eldsupptök.
Ekki við
Ljóð til L. B. John-
sons varaforseta frá
Jakobínu Sigurðar-
dóttur.
— Sjá 6. síðu.
Ágæt laxveiði í sumar en
siiungsveiii mun lakari
í fréttatilkynningu
sem Þjóðviljanum hef-
ur borizt um lax- sil-
ungs- og álaveiði í sum-
ar, . segir að laxveiðin
Aldarfjórðungur liðinn frá Mmchensáttmá/a
Þessi átakanlega mynd var tekin þegar þýzku hersveitirnar héidu inn í Prag í marz 1939. Þungbúnir, grátandi, en þó
með reidda hnefa horfa borgarbúar á hina þýzku hermenn. Svikin í Munchen voru fullkomnuð og sex ár liðu þar til
sovézki licrinn leysti Tékka aftur undan oki nazismans.
í dag er liðinn aldarfjórð-
ungur síðan forystumenn
Bretlands og Frakklands, þeir
Chamberlain og Daladier,
undirrituðu sáttmálann í
Múnchen ásamt einvöldum
Þýzkalands og ítalíu, Hitler
og Mussolini. Sá sáttmáli
varð afdrifaríkur. Valdastétt-
ir Bretlands og Erakklands
létu undan Hitler, afhentu
honum hin svonefndu Súd-
etahéruð á landamærum
Þýzkaland og Tékkóslóvakíu.
Til þess höfðu þessi ríki að
sjálfsögðu enga heimild; bau
gengu þvert á móti á gefm
loforð og gerða samninga,
skildu Tékkóslóvakíu vamar-
lausa og höfnuðu öllum til-
mælum Sovétríkjanna um
samninga til að tryggja full-
veldi Tékka. Tilgangurinn
var þá þegar auðsær; Með
því að afhenda hinum gráð-
uga þýzka úlfi Tékkóslóvakíu
átti að beina honum í austur-
átt, Múnchensáttmálinn átti
að vera til vamar gegn
„kommúnismanum“ úr austri.
Þessum smánarlegu svikum
við vamarlitla þjóð var á-
kaft fagnað í „morgunblöð-
um“ heimsins. „Friður tryggð
ur á okkar öld“, var við-
kvæðið. Sú öld stóð í tæpt
ár. I marz 1939 tóku Þjóð-
verjar Tékkóslóvakíu alla og
hálfu ári síðar hófst heims-
styrjöldin. Ráðamenn Bret-
lands og Frakklands féllu á
eigin bragði og svikin við
Tékkóslóvakíu í Múnchen
hefndu sin. Það er ekki að á-
stæðulausu að Múnchensátt-
niólans er minnzt. Aldar-
fjórðungi eftir undirritun
hans er Vestur-Þýzkaland
orðið öflugasta herveldið á
meginlandi Vestur-Evrópu og
ráðamenn þar leggja ofur-
kapp á að komast yfir kjama-
vopn. Og enn í dag gera
Þjóðverjar kröfur til sinna
„fornu átthaga" í austri.
hafi verið svipuð og
undanfarin tvö ár en
silungsveiðin innan við
meðallag. Álaveiði er
hins vegar enn á byrj-
unarstigi og mun vænf-
anlega fara vaxandi á
næstu árum.
í tilkynningu Veiði-
málastofnunarinnar seg-
ir m.a. svo:
Lax- og göngusilunigsveiði
lauk hinn 20. september og sil-
ungsveiði í stöðuvötnum hinn
26. september. Laxveiðin í sum-
ar var ágæt og laxgöngur mikl-
ar í árnar. Veðurfar var þó
óhagstætt fyrir laxgöngur og
laxveiði, enda var löngum kalt
í veðri og úrkomulítið og árn-
ar því vatnslitlar.
Laxafjöldi, sem veiddist í
sumar á stöng var svipaður að
tölu til og tvö undanfarin ár,
en netaveiði á vatnasvæði Ölf-
usár og Hvítár var ágæt svo
og netaveiði í Þjórsá. Varð það
til þess, að veiðin í sumar varð
meiri en í fyrra. Mest veiddist
í Miðfjarðará rúmlega 1500 lax-
ar og í Laxá í Þingeyjarsýslu
fengust rúmlega 1400 laxar. Yf-
ir 1000 laxar veiddust í Laxá
í Kjós, Norðurá, Víðidalsá, Lax-
á á Ásum og í vatnakerfi
Blöndu.
Silungsveiði var innan við
meðallag. SjóJjirtingsveiði á
Framhald á 2. síðu.
Kvenfélag
sósíalista
Fyrsti fundur vetrarins
verður að Tjarnargötu 20
þriðjudaginn 1. október kl.
20.30.
Fundarefni:
I. — Friðarmálin.
a) Frásögn af kvenna-
ráðstefnu Eystrasaltsvik-
unnar í Rostock á sl.
sumri; Ragnheiður Jóns-
dóttir.
b) Heimsþing kvenna í
Moskvu í júnímánuði sl:
Helga Rafnsdóttir. Frjáls-
ar umræður um friðar-
málin.
n. — Félagsmál.
Félagar eru hvattir til
að taka með sér gesti. —
Mætið stundvíslega.
STJÓRNIN.
Kennedy hefur áhyggjur
Ottast kommúnisma
í rómönsku Ameríku
WASHINGTON 28/9 — Kenue-
dy forseti sagði í ræðu í dag að
því aðeins yrði stöðvuð fram-
sókn kommúnismans í löndum
rómönsku Ameríku að jafnað
yrði það mikla misrétti sem þar
ríkti, félagslegt sem efnahags-
Icgt.
Kennedy, sem nú er á ferða-
lagi um ellefu fylki Bandaríkj-
anna. segir í boðskap sem hann
hefur sent Samtökum kaþólskra
til vemdar heimsfriðnum ?.ö
hið svonefnda „Framfarabanda-
lag“ sé bezta vömin gegn þeim
hættum sem steðji að í róm-
önsku Ameríku. Bandaríkin eigi
að leggja sitt af mörkum til að
reyna að örva vöxtinn í efna-
hagslífi ríkja rómönsku Amer-
íku, draga úr atvinnuleysinu og
bæta hag almennings.
Síðasti dagur v-þýzku
bókasýningarinnar
Margt manna hefur sótt vest-
ur-þýzku bókasýninguna í Góð-
templarahúsinu þá rúmu viku
sem sýningin hefur verið opin.
1 dag er síðasti sýningardagur-
inn. Bókasýningin er opin ár-
degis kl. 10—12 og síðdegis kl.
2—10. Aðgangur er ókeypi-s og
öllum heimilL