Þjóðviljinn - 04.10.1963, Síða 1
Föstudagur 4. október 1963 — 28. árgangur — 213. tölublað.
Herforíngjar gera uppreisn i Honduras
Alsírþing veitir Ben Bella alræðisvald
Sjá síðu Q
Smygl á
KefSuvíkur-
flugvelli
ALLMIKIB SMYGLMÁL er nú
á döfinni á Keflavíkurflug-
velli og komst tollgæzlan yf-
ir þó nokkurt góss eftir
skipulega leit í húsakynnum
Loftleiða á flugvellinum. Er
þetta heldur kostulegt vöru-
úrval og er sem hér segir: 300
brjóstahaldarar, 144 drengja-
húfur, eitt þúsund lyklakipp-
ur með hreyfanlegum mynd-
um af alsberu kvenfólki og
34 barnablússur.
ÞRJÁR LOFTLEIÐA-flugvélar
komu hver eftir aðra frá
New York í gærmorgun á
austurleið og höfðu skamma
viðdvöl á Vellinum.
TOLLGÆZLAN fékk grun um
smygl úr þessum flugvélum
og eftir margra klukkutíma
leit frá hádegi til kvölds
hafðist upp á góssinu.
RANNSÓKN er ennþá á frum-
stigi og getur það orðið held-
ur tvíbent fyrir viðkomandi
aðila að halda því fram, að
allt þetta góss sé til einka-
afnota fyrir sig og sína.
Talar ekki við
bhðamenn!
Umdarifarna daga hefur Þjóð-
viljimn gert ítrekaðar tilraunir
til þess . að ná sambandi við
Halldór Þorbjömsson sakadóm-
ara til þess að inna hann frétta
af ranmsókn ávísanasvikamáls
Sigurbjarmar Eirikssonar veit-
ingamanms í Glaumbæ, sem
hann hefur til meðferðar.
Tilraunir þessar hafa þó eng-
an árangur borið. Yfirheyrslur
í máli þessu fara fram fyrir
luktum dyrum og ramnsóknar-
dómarimn svarar ekki í síma.
Fékk fréttamaður blaðsins er
spurði eftir honum í gser loks
þá orðsendingu að hann talaði
etoki við blaðamenm og gæfi
þeim engar upplýsimgar varð-
andi málið!
Ljóminn farinn af vorsamþykkt borgarstjórnar um ibúðabyggingamálin:
ENGAR FRAMKVÆMDÍR 'ó
ÁRI EFTIR SAMÞYKKTINA
-<»>
OG TERTUNA VANTAÐI
EKKI HELDUR
Reglubundnar áætlunarferðir með farþegaþotum milli Amer-
íku og Englands, um Island, eru hafnar, eins og skýrt hefur ver-
ið frá í fréttum. Bandaríska flugfélagið Pan American hóf þessar
ferðir með pomp og prakt á miðvikudaginn, bauð ekki einungis
um eða yfir 20 íslenzkum og erlendum boðsgestum í fyrstu áætl-
unarferðina til Lundúna, heldur efndi Iíka til mikils fagnaðar
í foringjaklúbbnum í herstöðinni á Keflavíkurflugvelli I fyrra-
kvöld, þar sem munu hafa verið um 400 manns. Innan um veizlu-
föng á borðum hafði verið komið fyrir fyrirferðarmikilli tertu
með tilheyrandi áritun og yfir henni sveif stórt líkan af DC—8
farþegaþotu. Alda Guðmuridsdóttir, eina íslenzka flugfreyjan sem
starfandi er hjá Pan American, sést hér afhenda Harry Girdler,
forstjóra PANAM á Islandi, fyrsta stykkið sem hún skar af tert-
unni góðu. — Sjá frásögn og myndir á áttundu síðu blaðsins í dag.
— (Ljósmynd I. M.).
Lóðir undir niðursuðu-
verksmiðju í Örfírisey
| víkur samþykkti á fundi sín-
^ um í gær, að fresta að taka
!
I
★ Borgarstjórn Reykja-
afstöðu til samþykktar hafn-
arstjórnar frá 19. sept. sl. þar
sem úthlutað var tveimur
lóðum í Örfirisey undir nið-
ursuðuverksmiðju, sem ís-
lenzkir aðilar ætla að reisa
þar í samvinnu við norska
aðila.
★ í furadargerð hafnar-
stjórnar um þetta mál frá 19.
sept. segir: „Einar Benedikts-
son f.h. þeirra, sem hafa i
hyggju að stofna niðursuðu-
verksmiðju í samvinnu við
Chr. Bjelland og Co., sækja
um lóð fyrir væntanlega
verksmiðju. — Hafnarstjórn
samþykkir að gefa kost á lóð-
unum Hólmabraut 12 og Ör-
firisbraut 11. Einar Ágústs-
son greiðir ekki atkvæði".
■jtr f sambandi við þetta
mál bar Guðmundur Vigfús-
son, borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, fram nokkrar
fyrirspurnir: 1) Hvort stofn-
að hefði verið formlegt félag
um þetta og hverjir þeir
væru, er Einar Benediktsson
væri fulltrúi fyrir. 2) Hver
væru eignablutföll milli inn-
lends fjármagns og erlends i
þessu félagi, ef stofnað hefði
verið. 3) Hve mörgum lóðum
í Örfirisey er enn óráðstafað.
★ Borgarstjóri svaraði þvj
til að umræddir aðilar væru,
auk Einars Benediktssonar,
Árni Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri, O. Johnson og
Kaaber og Lýsi h.f. Félagið
væri enn ekki formlega stofn-
að, en gert væri ráð fyrir að
um alíslenzkt hlutafélag yrði
að ræða. Á umræðustigi
málsins hefði verið rætt um
að hinn norski aðili ætti tí-
unda hluta hlutafjár, en frá
því hefði verið horfið m.a.
vegna vafa í löglýsingu. Ekiki
kvaðst borgarstjóri treysta
sér til að gefa upp ákveðna
tölu óráðstafaðra lóða í ör-
firisey, en þær væru þó
nokkrar. Borgarstjóri taldi
eðlilegt að fresta ákvörðun
borgarstjórnar um þetta mál
þar til gengið hefði verið frá
formlegri stofnun umrædds
félags og flutti um þetta til-
lögu, sem var samþykkt ein-
róma.
Aðeins um sýndarmennsku
hjá íhaldinu að rœða
■ Þó að húsnæðisvandræðin í Reykjavík
hafi sjaldan verið tilfinnanlegri en nú á
þessu hausti, bólar enn ekkert á framkvæmd-
um á samþykkt þeirri um ráðstafanir í bygg-
ingarmálum, sem borgarstjórnin gerði ein-
róma fyrir hálfu ári!....
Hörð gagnrýni á fundi í gær
■ Gagnrýndi Guðmundur Vigfússon, borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins, þetta sleifarlag harðlega á fundi borg-
arst'jórnarinnar í gæra en íhaldsfulltrúarnir töldu, allir með
tölu, þessa frammistöðu til sóma, vísuðu frá tillögu um
tafarlausar ráðstafanir til að hrinda þessum ályktunum
í framkvæmd og sönnuðu þar með ótvírætt það sem marg-
ir óttuðust í vor, þegar samþykktirnar voru jíerðar, að þar
væri aðeins um að ræða sýndarmennsku rétt fyrir almenn-
ar kosningar en ekki heiðarlega tilraun til átaka í brýnu
hagsmunamáli borgarbúa.
Guðmundur Vigfússon bar1
fram þessa tillögu í málinu:
„Borgarstjórn átelur, að ekki
skuli enn bóla á framkvæmd
þeirra samþykktar um ráðstaf-
anir í byggingarmálum, er
borgarráð gerði 15. marz sl. og
borgarstjómin staðfesti einróma
á fundi sínum 21. s.m.
Borgarstjómin telur þetta
sleifarlag því óafsakanlegra. sem
skortur á íbúðarhúsnæði er nú
jafnvel enn tilfinnanlegri hér i
borginni en verið hefur um
árabil og að milcils átaks er þörf
til útrýmingar heilsuspillandi
húsnæðis og endurnýjunar á
leiguhúsnæði borgarinnar.
Borgarstjórain ályktar því að
fela borgarráði og borgarstjóm
að gera tafarlausar ráðstafanir
til þess að hrlnda umræddri
samþykkt í framkvæmd. Leggur
borgarstjómin áherzlu á að ein-
skis verði látið ófreistað til að
hraða þessum byggingarfram-
kvæmdum svo sem framast má
verða“.
Samþykktin gerð
einróma
I framsöguræðu sinni fyrir til-
lögunni rifjaði Guðmundur upp
fyrri umræður í borgarstjóm um
húsnæðismálin og samþykktina
sem um getur í tillögu hans, en
meginefni hennar var: 1) að
leita forkaupsréttar hjá Islenzk-
um aðalverktökum á 48 fbúðum
við Kaplaskjólsveg, eða gera
aðrar ráðstafanir sem sambæri-
legar teldust. 2) Að byggja 12
hæða hús með 66 íbúðum við
Austurbrún. 3) Að byggja 54 1-
búðir í þriggja hæða húsum við
Kleppsveg.
Guðmundur minnti á að full-
trúar Alþýðubandalagsins í
borgarstjórn hefðu lagt fram til-
legur sem gert hefðu ráð fyr-
ir enn myndarlegra átaki í hús-
Framhald á 2. síðu.
465
búa enn í
herskálum
★ Geir Hallgrímsson
borgarstjóri uppl. á fundi
borgarstjómar Reykjavík-
ur í gær að nú um mán-
aðamótin hafi enn verið
búið i 114 herskálum í
Reykjavík og íbúarnir þar
alls 465. Hefur íbúðar-
brögguntun, að sögn borg-
arstjóra, fækkað á þessu
ári um 33. Ekki tók borg-
arstjóri hinsvegar neitt
fram um það, að með
sömu þróun málanna tæki
enn 3—4 ár að útrýma
braggaábúðum höfuöborg-
arinnar með öllu, þannig
að líklegt má telja að enn
verði búið í þessum skál-
um, sem reistir voru til
bráðabirgða af erlendu her-
námsliði, þegar aldarfjórð-
ungurinn er liðinn síðan
hermennirnir fengu þá til
afnota.
Ráðuneytii hefur
ekki f jallað
um mál Lárusar
Þjóöviljinn spuröi Baldur Möller, ráöuneytisstjóra í
dómsmálaráðuneytinu, um þaS í gær, hvort ráðunejrtiS
hefði gert ráðstafanir til þess að Lárus Jóhannesson,
núverandi forseti Hæstaréttar, yrði leystur frá störfum
í réttinum um stundarsakir, meðan rannsökuð væri að-
ild hans að víxlamálinu sem beinist gegn Jóhannesi
syni hans. Baldur kvað ráðuneytið ekki hafa fjallað um
það mál, enda hefði því ekki borizt nein formleg til-
kynning um það frá saksóknara ríkisins eða sakadóm-
ara að rannsóknin beindist m.a. gegn hæstaréttardóm-
aranum. Baldur kvað engin ákvæði að finna í hæsta-
réttarlögunum um það hvað gera skyldi þegar þannig
stæði á að opinber rannsókn beindist m.a. gegn hæsta-
réttardómurum, þannig að um það yrði að fjalla sam-
kvæmt almennum reglum um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna. Hinsvegar hlyti það að vera mats-
atriði hvenær ráðuneytið tæki frumkvæðí af slíku tíl-
efni, og um slíkt frumkvæði af þess hálfu væri semsé
ekki enn að ræða.
Eins og Þjóðviljinn greindí frá í gær hefur Lárus Jó-
hannesson boðað veikindaforföll í hæstarétti, og gegnir
Þórður Eyjólfsson störfum hæstaréttarforseta á meðan.