Þjóðviljinn - 05.10.1963, Síða 12

Þjóðviljinn - 05.10.1963, Síða 12
HAFIÐ SAMBAND VIÐ AFGREIÐSLUNA. SÍMI 17500 Nú, þegar skólarnir eru almennt teknir til starfa, verða óhjákvæmilega miklar breytingar á því starfsliði Þjóðviljans sem annast útburð á blaðinu til áskrifenda. Það getur tekið tíma að kippa þessu í lag, en við væntum að hann verði sem stytztur. — Það eru 'jafnframt vinsamleg tilmæli til allra barna eða fullorðinna sem annazt geta blaðútburð að hafa samband við afgreiðsluna — sími 17500. liaugardagur 5. október 1963 — 28. árgangur — 214. tölublað. ÞRETTAN MANNS I ÞREM HERBERGJUM tVið erum á réttri leið, sagði Geir Hallgrímsson^ á borgarstjórnarfundi í fyrradag, þar sem viðreisn- aröngþveitið í húsnæðismálum var til umræðu. .Við, af vörum borgarstjóra, nær nú til æ fámenn- ari klíku sérréttindamanna og verðbólgubrask- ara og efar enginn, að slíkir þykist vera á réttari leið en nokkru sinni fyrr. Aftur á móti hefur leið hundruð Reykvíkinga legið út á götuna á undan- fömum mánuðum og fleiri eru á leiðinni. Er þetta rétta leiðin, herra borgarstjóri? m Og ástandið í húsnæðismálum er ekki aðeins óviðunandi hér í Reykjavík, heldur einnig í mörgum nærliggjandi byggðum við Faxaflóa. í gær lásum við svohljóðandi aug- lýsingu í Morgunblaðinu: Ibúð óskast. Hjón með fjögur börn á götunni, óska eftir EINS til þriggja herbergja íbúð í Hafnarfirði, Kópa- vogi eða nágrenni. Upplýsingar í síma 57273. Þetta símanúmer reyndist vera á Hringbraut 70 í Hafnarfirði, og þangað fór blaðamaður Þjóð- viljans í gær, til að kynna sér nánar aðstæður þessarar fjol- skyldu. Á efri hæð hússins býr Sófus Bertelsen bréfberi með konu sinni og fimm ungum bömum, og frá því 1 júní í sum- ar hafa þau orðið að skjóta 6kjólhúsi yfir dóttur sína og tengdason, en þau eiga fjögur böm á aldrinum tveggja til ell- efu ára. Tvenn hjón með sam- tals níu böm í þriggja her- bergja íbúð, eða fjórir í hverju herbergi ef einn sefur í eldhúsi eða á stigapalli. Þeir virðast sannarlega einnig vera á réttri leið í Hafnarfirði. Konumar voru einar heirna með eitthvað af bamaskaranum þegar blaðamaður kom. Sú yngri. Elísa Bertelsen, sagði svo frá, að þau hjónin hefðu orðið húsnæðislaus i júní í sumar þegar eigendaskipti urðu á íbúð er þau þá leigðu. Þetta er vist í áttunda eða níunda sinn sem við reynum að auglýsa, en án árangurs, bætti hún við. Á með- an við tókum ekki fram að við ættum böm, hringdu nokkrir, en létu allir útrætt um málið þegar þeir heyrðu bömin nefnd. Eftir að bömin hafa fylgt með í auglýsingunum. Wur enginn hringt, sagði Elísa. 1 gærkvöld hringdi Sófus Bertelsen til blaðsins, og kvað leitt að hann var ekki heima til að ræða við blaðamanninn. Það er svo margt, sem mætti koma fram í þessu máli, sagði hann. Við leituðum til bæjar- ráðs Hafnarfjarðar og fengum þá loks til að ábyrgjast lán að upphæð eitt hundrað þúsund og ætluðum að reyna að hjálpa dóttur minni og manni hennar að eignast þak yfir höfuðið. Með þessa ábyrgð fórum við til Sparisjóðsins hér í Hafnarfirði fyrir nær tveimur mánuðum, en þeir hafa ekki virt okkur svars. Við erum líka á réttri leið hér í firðinum. gæti herra Mat- híesen tekið undir með flokks- bróður sínum herra Geir. Brunavarnarvika hefst á morgun 'Á morgun, sunnudag, hefst í Reykjavík svokölluð eld- varnavika. Er það Samband brunatryggjenda á íslandi, sem að vikunni stendur, að sjálfsögðu með aðstoð Slökkvi- liðsins í Reykjavík. Gunnar Sigurðsson, varaslökkviliðs- stjóri, hefur séð um allan undirbúning vikunnar, sem er hin þriðja í röðinni. Brunavamavikan hefst klukk- an tvö sunnudag syðst í Lækjar- götunni. Sýnir þar slökkviliðið m. a. stökk á fallmottu og björg- un með kaðalklukku. Þá verða einnig sýnd handslökkvitæki og notkun þeirra. Þá verða sýning- argluggar hjá verzluninni Ála- foss í Bankastræti og hjá Ell- ingsen i Hafnarstræti. 1 Álafoss- glugganum verða sýndar ýmsar aðvörunarmyndir og svo ýmsar brunamyndir frá Reykjavík. Ennfremur verða slökkvitæki sýnd. í glugganum hjá Ellingsen verð- ur áherzla lögð á innanhúss- brunaboða, sem reynzt hefur híð mesta þing, en fr þó einkar ódýr. Er þess skemmil; að minn- ast, að brunaboði af þeirri gerð bjargaði MánakafB á IsafiröL Einnig hefur tveim bátum verið forðað frá bruna i Reykjavíkur- böfn nýlega, og er það innan- hússbrunaboðanum að þakka. Er nú skylda að hafa slika brunaboða í öllum skinpum. Þá hefur verið gert bókmerki í sambandi við vikuna, og verð- ur því útbýtt í framhaldsskólum Reykjavíkur. Er á bókmerki þessu leiðbeiningar um notkun vartappa. Einnig er á bókmerk- inu mynd sem varar unglingana við gáleysislegri meðferð ^ á vindlingaösku. Samkvæmt nýj- ustu rannsóknum reykir mikill hluti unglinga, og ekki vanþörf að kenna þeim að fara var'.ega með þann eld. Annað bókmerki verður gefið út að ári, og geta unglingar því haldið bókmerk- inu til haga. ef þeir kynnu að vilja byrja á slíkri söfnun. ■ýmisfconar Ieiðbeiningar og aðvaranir til almennings verða birtar í blöðum bæjarins meðan á eldvamavikunni stendur. Það þarf æði oft að þvo stiga og gólf eftir níu börn, enda stóð Elísa í stigaþvotti þegar blaða- mann bar að garði. Hér hefnr hún þó tyllt sér niður með þrjú af börnunum fjórum: Herdísi fimm ára, Ingigerði þriggja ára og Skúla eins árs. Eriingur, sem er sjö ára, var í skólanum. Maður EIísu er Arnar Skúlason, starfsmaður hjá Vegagerð ríkisins. (Ljósm. Þjóðviljinn, Ú.Hjv.). 25 ÁR ERU NÚ LIDIN FRÁ STOFNUN SfBS - Míkil verkefni eru framundan Um þessar mundir er Samband íslenzkra berklasjúk- linga, SÍBS, aldarfjórðungs gamalt. Ekki þarf að kynna fyrir landsmönnum það heillastarf, sem sambandið hefur unnið á þessum árum, það er öllum fullkunnugt. Miklar framkvæmdir standa nú fyrir dyrum hjá sambandinu, bæði að Reykjalundi og Múlalundi. Er því sambandið mjög fjárþurfi, og vonast forystumenn þess til að almenningur taki vel sölubömum á morgun, en þá er Berklavama- dagurinn. Svo er fyrir að þakka, að berklum hefur nú að mestu leyti verið útrýmt á fslandi. Sambandið hefur því í æ ríkara mæli snúið sér að því að bæta kjör öryrkja á landinu, en þar er mikið starf að vinna. Hafa verið gerðar til þess ráðstafanir, að Reykjalundur geti tekið við sem flestum öryrkjum. Að Múlalundi í Reykjavík vinna nú um fimmtíu öryrkjar, og kom- ast þó færri að en vildu. Sýnir það eitt með öðru, hvert verk- efni er hér fyrir höndum. Ætti slíkt að vera almenningi hvöt til þess að styðja starfsemi sambandsins með ráðum og dáð. Á Berkladaginn verða merki sambandsins svo og blaðið Reykjalundur seld um land allt. Verð merkjanna hefur að þessu sinni verið hækkað úr 15 kr. í 25. Móti þessari verðhækkun kemur svo það. að hvert merki verður tölusett og gildir sem happdrættismiði. Er vinningur- inn bifreið eftir frjálsu vali, að verðmæti allt að 130 þús. kr. Verð blaðsins Reykjalundur hækkar nú einnig úr kr. 15 í 20, og verður það að teljast lítið, miðað við þá dýrtíð, sem nú þrúgar landsbygðina. Reykja- lundur er hið glæsilegasta blað, nú sem endranær. Er það 86 síður, prentað á vandaðan pappír og fjölbreytt að efni. Af efni blaðsins má nefna Haust- þanka Guðmundar Sigurðssonar. Tekur Þjóðviljinn sér það bessa- leyfi að birta eitt erindi kvæö- isins, er svo hljóðar: Þó skammdegið bráðum skelli á og skórinn að ýmsum kreppi, fröken Alheimur er þó frá Ytri-N j arðví kurhreppi, og heimurinn mun oss liðsemd ljá svo lánið ei frá oss sleppi er haustið sígur á sundin blá frá Selsvör og inn að Kleppi. Sambands- stjórn ÆF ræðir æsku- /ýðsmá/ Fundur Sambandsstjómar Æskulýðsfylkingarinnar var haldinn í skíðaskála ÆFR um síðustu helgi. Forseti ÆF, Gunnar Guttormsson, flutti skýrslu framkvæmdanefndar fyrir síðasta starfsár, og lagð- ir voru fram reikningar sam- bandsins. Höfuðverkefni fundarins var að ræða viðhorfin í seskulýðs- málunum í dag, Qg stefnu og störf Æskulýðsfylkingarinnar að hagsmuna- og menningarmálum ungs fólks. Framsögu um þessi mál höfðu Gísli B. Bjömsson og Hjalti Kristgeirsson. TJrðu mikl- ar umræður um málin og var að lokum samþyikkt ályktun um æskulýðsmál. 1 framkvædanefnd ÆF eiga nú sæti: Forseti, Gunnar Gutt- ormsson; varaforseti, Stefán Sig- fússon; ritari, Ámi Þormóðsson; gjaldkeri, Gísli Pétursson. Aðrir í framkvæmdanefnd eru: Gísli B. Bjömsson, Þórarinn Jónsson, Kristmundur Halldórsson, Þor- steinn Óskarsson og Eyvindur Eiríksson. Ályktun fundarins mun birt hér í blaðinu síðar. jr Arekstur Á tíunda tímanum í gærkvöld varð árekstur milli tveggja bif- reiða á mótum Laugavegs og Nóatúns. EMri maður í annarri bifreiðanna, Sigurður Einarsson til heimilis að Njálsgötu 69,/ slasaðist lítillega og var fluttur á Slysavarðstofuna en síðan heim til sín. Enn flugslys íSvíþjóð STOKKHÓLMI 4/10 — Enn eiít flugslys varð í Svíþjóð í dag, það tíunda á skömmum tima. Tveir ungir menn biðu bana þegar ein af þyrlum flughersins rakst á háspennutaug á heræf- ingu. Aðrir sem í þyrlunni voru komust báglega undan. Cegn herstöðvum á Ísíundi, fyrír ævurundi hlutleysi Á fundi í Kvenfélagi sós- alista, Reykjavík, 1. október s.l., voru friðarmálin til um- ræðu. Þar flutti Helga Rafns- dóttir langt og mjög ítarlegt srindi um Heimsþing kvenna, sem haldið, var í Moskvu í sumar, og Ragnheiður Jóns- dóttir flutti prýðilegt erindi um kvennaráðstefnu Eystra- saltsvikunnar 1963. Síðan fóru fram almennar umræður um friðarmálin, en að þeim lokn- um var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma: „Fundur í Kvenfélagi sós- lalista, haldinn 1. október 1963, fagnar þeim árangri af friðarbaráttu þjóðanna, að samkomulag náðist um tak- markað bann við kjarnorku- vopnatilraunum. Við viljum vekja athygli á þeirri staðreynd, að kvenna- samtök um allan heim leggja mikilvægan skerf til friðar- baráttunnar, eins og greini- lega kom í ljós á hinu fjöl- menna og glæsilega Heims- þingi kvenna, sem haldið var í Moskvu í júní í sumar. Við viljum sérstaklega taka und- ir þær tillögur, sem fram hafa komið um kjarnavopna- laust svæði. er nái yfir Norð- urlönd öll, og álítum það verðugt framlag þessara þjóða til algjörrar afvopnun- ar. Fundurinn vill brýna fyrir I öllum íslenzkum konum, hve ' gífurleg ábyrgð fylgir því að hafa erlendar herstöðvar í landi sínu, herstöðvar sem hvenær sem er má breyta í k kjarnorkuárásarstöðvar, án ^ þess að við séum um það L spurð. Með því að leyfa slíkt, J erum við að taka afstöðu með g vígbúnaðarkapphlaupinu og J auka stríðshættuna í heimin- I um. J ! Fundurinn veit, að ekkert er fjær islenzkum konum en slík afstaða, og skorar því á bær að sameinast í baráttu fyrir friði, gegn erlendum herstöðvum á íslandi og fyr- ir ævarandi hlutleysi fs- 'amls" I 1

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.