Þjóðviljinn - 12.10.1963, Blaðsíða 2
2 SlÐA
ÞIÚÐVILIINN
Laugardagur 12. október 1963
Vertíð handknattleiksmanna hefst um helgúna með afmælis-
leikjum Fram. Hápunkturinn verður leikur Fram og FH á
sunnudagskvöldið. — A myndinni að ofan sézt Karl Benedikts-
Bon, fyrirliði Fram skora í leik gengn IR. Væntanlega fáum við
að sjá svipuð atvik i leik Fram og FH.
Sinfóníutónleikar
Sinfóníuhljómsveitin hélt
fyrstu tónleika sína á þessum
vetri í samkomusal Háskólans
fimmtudaginn 10. þ.m. Henni
stjómaði hinn ungi hljóm-
sveitarstjóri Proinnslas O'Du-
inn frá Dyflini, sem hingað
hefur verið ráðinn til þessa
starfa á komandi vetri. Þó að
íiann muni ekki hafa nema
einn um tvítugt, var ekki ann-
að að sjá og heyra en að hann
kynni sitt verk til hlítar. Þriðji
Leonóru-forleikur Beethovens
og áttunda sinfónía Dvoraks
(G-dúr, op. 88) nutu sín vel i
meðferð hljómsveitarinnar
undir röggsamlegri og greina-
góðri stjóm hans.
Þá bar það til tíðinda á
hljómleikum þessum. að ungur
pfanóleikari, Ketill Ingólfssm,
kom fram í fyrsta sinni á op-
inberum tónleikum, ef frá eru
taldir nemendatónleikar Tón-
listarskólans og píanóleikur í
útvarplð. Hann lék með hljóm-
sveitinni ,,Konzertstiick” eftir
Weber, verk, sem sjaldan heyr-
ist nú á dögum. Það má víst
telja að píanóleikur sé hjáverk
Ketils, því að hann mun vera
að búa sig undlr annað aðal-
starf. Því athyglisverðari hlýt-
ur frammistaða hans að bessu
sinni að teljast. snjall og
glaesilegur flutningur hans á
tónverkinu. fallegur. hreinn og
skýrt mótaður. svo að vel hefði
sæmt fullgildum atvinnupi-
anóleikara á hans aldri og þó
að eldri hefði verið.
Annað atriðið á efnisskrá
tónleiga þessara var lagasyrpa
eftir Pál IsólfssOn, fimm söng-
lög, er Hans Grisch prófessor
frá Leipzig hafði búið til
hljómsveitarflutnings. Lögin
göng Guðmundur Guðjónsson
og tókst ágætlega.
Með flutningi þessara söng-
laga var hljómsveitin að heiðra
tónskáldið Pál ísólfsson í til-
efni sjötugsafmælis hans. En
afmælið er einmitt í dag, hinn
12. október. Þetta er því merk-
isdagur, eigi aðeins í lífi Páls,
heldur og í sögu íslenzkra tón-
listarmála, eins og öllujn er
kunnugt, sem eitthvað þekkja
til þeirra.
Pyrir tíu árum skrifaði und-
irritaður grein hér í btaðið i
tilefni sextuigsafmælis Páls ls-
ólfssonar og gerði þar nokkra
grein fyrir hinni margháttuðu
starfsemi hans í þágu íslenzkr-
ar tónmenningar. Er á betta
minnt til afsökunar því, að ft-
arleg afmælisskrif eru að
bessu sinni látin hjá líða. En
betta tækifæri skal notað til
þess að þakka Páli öll hans á-
gætu tónlistarstðrf. alla hljóm-
leikana hans. öll sönglögin og
önnur tónverk, áma honum
allra heilla á sjötugsafmælinu
og óska honum langra i?
starfssamra lffdaga. B.F.
Trygqví J. Oleson próf-
essor í Winnipeg lótinn
Látinn er í Winnipeg Tryggvi
J. Olesons, kaupmanns og frið-
sögu við Manitobaháskóla. rúm-
lega flmmtugur að aldri. Hann
var fæddur í Argylebyggð í
Manitoba, sonur hjónanna Guðna
J. Olesons. kaupmanns og frið-
dómara f Glenboro. og Guðrúnar
Kristínar Tómasdóttur frá Hól-
um í Hjaltadal.
Tryggvi lauk meistaraprófi
frá Manitobaháskóla og síðar
doktorsprófi viö Torontoháskóla
1950. Fjallaði fítgerð hans um
þátt í stjómmálasögu Englend-
inga á 11. öld, hið svokallflða
Witenagemot.
Tryggvi kunná glögg skil á ís-
lenzkum fræðum og ritaði margt
um þau efni. Hann var rit-
stjóri 4. og 5. bindis Sögu Is-
lendinga í Vesturhe'mi og rit-
aði sjálfur sögu Winnipegs-fs-
lendinga.
Tryggvi kom tvisvar til fsiands,
í síðara skiptíð í fyrra og flutti
þá erindi við háskólann um
fyrstu ferðir Evrópumanna til
Ameríku. Vann hann um þær
mundir að samningu 1. bindis
Sögu Kanada.
Með Tryggva er genginn merk-
ur sagnfræðingur og einn bezti
liðsmaður islenzka þjóðarbrots-
ins vestra. Hann var kvæntur
Elvu Huldu Eyford. og áttu þau
þrjú böm.
Vítakeppni—old boys og
leikur íslandsm. Fram og FH
I kvöld og annað kvöld efn-
ir Fram til afmælislelkja i
handknattlcik að Hálogalandi.
Á árinu átti Fram 55 ára af-
mæli og hefur þess verið
minnzt á margvíslegan hátt, m.
a. með Ieikjum í knattspyrnu.
Afmælisdagskrá Fram i
kvöid og annað kvöld í hand-
knattleik er f jölbreytileg.
Fram Ieikur við öll Reykjavík-
urfélögiin í hinum ýmsu ald-
ursflokkum, en hápunkturinn
verður leikur Fram og FH i
meistaraflokki karla á sunnu-
dagskvöldið. Þá er á dag-
skránni vítakeppni og old boys
Ieikur milli Fram og FH-mód-
el 1950 og þar um.
Þessir afmælisleikir Fram
Alþýðan fordæmir
Frarrihald af 1. síðu.
og fleira álíka varðandi boðun
ráðstefnunnar?
— Ráðstefna Alþýðusam-
bands fslands sem hefst í dag
er boðuð með nákvæmlega sama
hætti og oft hefur verið gert
áður með góðu samkomulagi
allra aðila innan Alþýðusam-
bandsins. Hana áttu að sitja
fulltrúar fjórðungssambandanna
á Vestfjörðum Norðurlandi og
Austurlandi, ' þrír fulltrúar frá
hverju, félögin á Snæfellsnesi og
Akranesi skyldu tilnefna einn
fulltrúa, fulltrúaráð verkalýðs-
félaganna í Amessýslu og
vérkalýðsfélögin í Vestmanna-
eyjum einn fulltrúa hvort,
stærstu verkalýðsfélögin i Hafn-
arfirði sitt hvom fulltrúa félög
verkamanna og verkakvenna í
Keflavík sitt hvom. Fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna f Reykjavík
var boðið að senda þrjá fulltrúa
eins og fjórðungssamböndunum,
en auk þess skyldu stærstu
verkalýðsfélög ófaglærðs verka-
fólks f Reykjavík, Verkamanna-
félagið Dagsbrún, Iðja félag
verksmiðjufólks og Verka-
kvennafélagið Framsókn til-
nefna hvert sinn fulltrúa.
r Meginverkefnið launa-
kjör ófaglærðs verkafólks
— Var Verzlunarmannafélag-
iu ekki boðið til ráðstefnunn-
r?
— Nei, það er rétt að Verzl-
narmannafélagi Reykjavíkur
ar ekki boðið að senda sér-
takan fulltrúa. en hvort tveggja
ar, að ekki hefði verið óeðii-
;gt að fulltrúaráð verkalýðs-
llaganna í Reykjavík ætlaði því
;lagi einn af sínum þremur
jlltrúum, og svo hitt að megin-
erkefni ráðstefnunnar skyldi
era undirbúningur undir samn-
íga hinna almennu verkalýös-
;laga um launakjör ófaglærðs
erkafólks.
Þess má geta að Jóni Sigurðs-
mi, formanni Sjómannafélags
eykjavíkur. var einnig boðið
5 sækja ráðstefnuna sem
;yndum foiystumanni í verka-
iðshreyfingunni, enda þó ekki
æri ætlunin að ræða á ráð-
:efnunni sérstaklega kjör sjó-
íanna.
Þegar þetta allt er haft f huga
ril ég ekki í að neinn geti
vartað með rökum yfir því að
erræði hafi verið beitt við
oðun ráöstefnunnar eða sam-
stningu eða að þar hafi verið
írið eftir pólitiskum lit. Enda
r hér eins og áður er eagt far-
) eftir nákvæmlega sömu regl-
m og oft áður, þegar Alþýðu-
ambandið hefur boðað til slíkr-
r úrtaksráðstefnu.
•JfJ Vesælar afsakanir klofn-
ingsmanna
— f sameiginlegri grein
stjómarblaðanna i gær segir að
fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í
Reykjavík muni ekki taka bátt
í ráðstefnu Alþýðusambandsins
og sama gildi um „þau félög
sem ekki vilja lúta forystu hinn-
ar ólöglegu stjómar Alþýðu-
sambandsins". Hvað viltu segja
um þá afsökun?
— Slfkt er tilefnislaust með
öllu, því á síðasta Alþýðusam-
bandsþingi var miðstjóm og
sambandsstjóm kjörin einróma.
sem er fremur fátítt á Alþýðu-
sambandsþingum. Þá hafa allir
aðilar innan Alþýðusambandsins
og utan fram að þessu haft eðli-
legt samstarf um hvers konar
verkalýðsmál við núverandi
miðstjóm Alþýðusambands fs-
lands, sjálf ríkisstjóm fslands og
Alþingi þar ekki undan skilin.
★ Brýn nauðsyn samstöðu
Ekki er vitað að fulltrúaráð
verkalýðsfélaganna í Reykja-
vík hafi komið saman til lög-
legs fundar tii að móta þessa
afstöðu, en svo mikið er vist,
hverjir sem hafa tekið þessa af-
stöðu, að hér er um klofningstil-
raun að ræða innan verkalýðs-
samtakanna á viðkvæmum tíma,
þegar íslenzkri verkalýðuhreyf-
Ingu ríður mest á að forystulið
og félagsmenn samtakanna
standi einhuga saman um rétt-
mætar aðgerðir í Iaunamálum
miðað við aðrar stéttir og getu
þjóðfélagsins.
Ég efast ekki um að margir
innan verkalýðssamtakanna.
hvar í flokki sem þeir standa,
muni fordæma þessa klofnings-
iðju, og gera skyldu sína með
þvi að mæta til ráðstefnu Al-
þýðusambandsins og bera bar
saman ráð sín í heild. en láta
ekki ginnast til slíkrar ólýð-
ræðislegrar klíkustarfsemi sem
Morgunblaðið, Alþýðublaðið og
Vísir hafa í sameiningu gerzt
málgögn fyrir.
Bandarískur
læknir sýnir
Sýning Hauks Sturlusonar á
Mokkakaffi er nýlokið og Hauk-
ur horfinn að námi í Edinborg.
Hann seldi átta myndir af tutt-
ugu.
f gærkveldi var verið að
hengja upp í Mokkakaffi mynd-
ir eftir yfirskurðlœkninn við
sjúkrahúsið á Keflavikurflugvelli
Diok Jones frá Ohio í Banda-
ríkjunum. Þetta eru andlits-
myndir (pastel), nær eingöngu af
bömum úr Njarðvíkum og allar
í einkaeign.
Mr. Jones, sagði fréttamanni
Þjóðviljans, að hann hefði haft
þetta að tómstundagamni síðast
liðin fimmtán ár og ekki farið
að taka list sýna alvarlega fyrr
en þetp sem hann gaf mynd-
imar tóku að láta ramma þær
inn og hengja uppá veggi hjá
sér. Mr. Jones hefur starfað
hér í tvö ár en fer af landi
brott um næstu mánaðarmót.
3. nóvember n. k. sýnir
sænskur málari, Bent Silfver-
strand á Mokka. Hann kemur
hér í boði Loftleiða og mun hafa
dvalizt hér á þeirra vegum óður.
eru það fyrsta sem gerist á
handknattleikssviðinu hjá okk-
ur eftir langt hlé — og má
segja, að vel sé af stað farið.
Á laugardaginn litur dag-
sikráin þannig út:
K1 20. 2. fl. kvenna Fram
—Ármann. Mfl. kvenna Fram
— Víkingur. 4. fl. kvenna
Fram og Valur.
VÍTAKEPPNI, þátttakendur
frá öllum Reykjavíkurfélögun-
um og frá FH og Haukum,
Hafnarfirði og Breiðablik
Kópavogi.
OLD BOYS, Fram og Ar-
mann liðin frá 1950 og þar um.
Þama verða m.a. Sveinn Ragn-
arsson, Kristján Oddsson og
Orri Gunnarsson frá Fram og
frá Armanni Sigurður Nordal,
Kjartan Magnússon, PéturPáls-
son og fl.
2. fl. karla Fram — IR.
A sunnudaginn lítur dag-
skráin þannig út:
Kl. 20.15. 1. fl. karla Fram
— Þróttur. 3. fl. karla Fram
— KR.
Og loks leikurinn Fram og
FH í meistaraflokki karla.
Þess má geta að leikimir i
yngri flokkunum og kvenna-
flokkum verða í styttra lagi,
eða 2 sinnum 10 mínútur.
Leikur Fram og FH verður 2
sinnum 30 mínútur.
SOIU
PllHSTSl
LAUGAVEGI 18 SIMI 19113
2 herb. kjallaraíbúð við [
Holtsgötu, sér hitaveita, sér í
inngangur. I. veðr. laus.
Lítið steinhús við Fálka-
götu. 2 herb. íbúð. Útb.
75 þús.
4 herb. góð kjallaraíbúð
við Langholtsveg, sér inn-
gangur sér lóð.
4 herb. kjallarahæð í Garð-
ahreppi, sér hiti, sér inn-
gangur. Útb. 175 þús.
5 herb. glæsileg íbúð við
Kleppsveg.
Raðhús við Asgarð, glæsi-
leg 6 herb. íbúð á tveim
hæðum, ásamt stofu og
eldhúsi á jarðhæð. 1.
veðr. laus.
3 herb. íbúð á jarðhæð, 100
ferm. við Digranesveg.
selst fokheld með allt frá-
gengið utanhúss. Verð 250
þús.
Timburhús við Langholts-
veg, 4 herb. fbúð ásamt
steyptum bílskúr, stór lóð.
Timburhús við Þrastargötu.
6 herb. íbúð. Útb. 200 þús.
ÖSKA EFTIR;
3—4 herb. hæð eða ein-
býlishúsi sem n>æst mið-
borginni. Góð útborgun.
2, 3 og 4 herb. íbúðum. Góð-
ar útborganir.
Cjaldkerí úrskurðað-
ur / gæzluvarðhald
Halldór Þorbjörnsson saka-
dómari, sem fcr með rannsókn
í ávísanasvikamáli Sigurbjamar
Ósvaldur Knud-
sen sýnir í Gamla
bíói
Litkvikmyndir Ósvalds Knud-
sen, sem sýndar voru við góða
aðsókn í Reykjavík í vor og
víða á Vestur-, Norður- og Aust-
urlandi í sumar, verða nú sýnd-
ar í Gamlabíói laugardag og
sunnudag kl. 7 vegna fjölmargra
fyrirspuma. Kvikmyndirnar eru
fjórar; Halldór Kiljan Laxness,
Eldar í Öskju, Barnið er horf-
ið og Fjallaslóðir. Með kvik-
myndum þessum tala þeir dr.
Kristján Eldjárn þjóðminja-
vörður og dr. Sigurður Þórar-
insson jarðíræðingur. Músík
hefur Magnús Blöndal Jóhanns-
son ýmist valið eða samið sjálf-
ur. Ein myndanna — Eldar í
Öskju — var sýnd i Banda-
rikjunum í vor og hlaut lof
bandarískra jarðfræðinga.
Eiríkssonar veitingamanns, var
enn ekki viðmælandi í gær.
ílefur hann ekkert viljað segja
blaðamönnum um málsrann-
sóknina til þcssa, enda hefur
hún farið fram fyrir luktum
dyrum.
Eftir öðmm leiðum hefur
frétzt að annar gjaldkeranna í
Landsbankanum, sem vikið var
úr starfi eftir að mál Sigur-
bjarnar var komið til dómstól-
anna, hafi verið úrskurðaður í
gæzluvarðhald. Einnig mun sjó-
maður, sem kom til Reykjavík-
ur aðfaranótt fimmtudagsins,
hafa verið handtekinn er hann
steig á land. Mun hann á ein-
hvem hátt vera viðriðinn mál
Sigurbjamar Eiríkssonar.
KIPAUTGCRÐ RIKISINS
BALDUR
fer til Snæfellsnes og Hvamms-
fjarðarhafna á mánudag. Vöru-
móttaka árdegis í dag og á
mánudag til Rifshafna.r Ólafs-
víkur, Grundarf jarðar, Stykkís-
hólms, Hjallaness og Búðardals.
Adenauer
biðst lausnar
BONN 11/10 — Konrad Aden-
auer afhenti í dag Ltibke for-
seta lausnarbeiðni sína og lýkur
þá 14 ára samfelldrí stjómar-
forystu hans í Vestur-Þýzka-
landi. Hann lætur þó fyrst
formlega af embætti á þriðju-
daginn. þegar lausnarbeiðni
hans verður kunngerð sam-
bandsþinginu.
Frá Náttúrulækningafélagi
Reykjavíkur
Fundur verður haldinn þriðjudaginn 15. okt. n.k. kl. 8.30
s.d. í Ingólfsstræti 22 (Guðspekifélagshúsinu).
Fundarefni:
1. Benedikt Jakobsson iþróttakennari flytur
erindi um þrekmælingar.
2. Kosning fulltrúa á 9. landsþing Náttúru
lækniingafclags Islands.
3. Skúli Halldórsson tónskáld lelkur á slag-
hörpu.
FÉLAGAR FJÖLMENNIÐ
STJÖRNIN.
<