Þjóðviljinn - 15.10.1963, Side 1

Þjóðviljinn - 15.10.1963, Side 1
Þriðjudagur 15. október 1963 — 28. árgangur — 222. ’tölublað. Ráðstefna ASI beinir tii sambandsfélagaimc \ að fylkja sér um þessarkröfur: THELMA „MISS SKANDINA VIA " ■ Thelma Ingvarsdóttir, fegurðardrottning íslands 1963, var um helgina kjörin „Miss Skandinavia“ 1963. Fór keppnin um titilinn fram í Helsinki. Að launum hlýtur hún ferð til Beirut í Libanon á keppnina um titilinn „Ungfrú Evrópa“ og mánaðardvöl þar, veg- legan silfurbikar með áletruninni „Miss Skandinavia“ svo og margar góðar gjafir. Thelma sem er aðeins 18 ára að aldri sigraði með glæsibrag í keppninni en önnnr í röðinni varð dönsk stúlka. Var keppninni sjón- varpað og vakti mikla at- hygli. Nú að Iokinni keppninni heldur Thelma til Kaup- mannahafnar þar sem hún fer að starfa sem sýningar- stúlka hjá A. C. Bang og heldur hún strax í sýningar- ferðalag um ýmis Iönd Evr- ópu. Þjóðviljinn óskar Thelmu til hamingju með sigurinn. Almennt kaup 40 kr. á klst. Vinnu- tími styttur, verðtrygging kaupsins Ólöglegar tundurdufla- veiðar! 1 GÆRMORGUN kom varðskip- ið Óðiim til Reykjavíkur og hafði með sér togarann Geir, sakaðan um ólöglegar tund- urduflaveiðar. Togarinn var að veiðum út af Garðskaga í skjóli næturinnar. Stóðst það á endum, að um sama leyti og varðskipið renndi upp að Geir fengu skipverj- ar stóreflis tundurdufl í vörpuna. Getur skipstjóri nú sagt með skáldinu: Sjaldan er ein báran stök. VIÐ MÆLINGU reyndist togar- inn um það bil hálfa aðra sjómílu innan fiskveiðitak- markanna. Réttarhöld hófust í rnálinu í gær. Forseti A.S.l. Hannibal Valdimarsson, talar á ráð stefnunni. A myndinni sjást auk hans m.a. ögmundsson, Jón Snorri Þorleifsson, Guðmundur J. Guðmundsson, Eðvarð Sigurðsson, Bjöm son, Hermann Guðmundsson og Snorri Jónsson. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.). Hærra kaup — verndun kaup- máttar — styttur vinnutími ^ Á mjög fjölmennum fundi Dag-sbrúnar í Iðnó í gærkvöld um verka- mannasamband og kjaramálin var eftirfarandi samþykkt í kjaramálum gerð einróma: ■ Fundur í Verkamannafélaginu Dagsbrún, haldinn 14. okt. 1963, samþykkir eftirfarandi að- alkröfur við í höndfarandi samningagerð við atvinnurekendur: 1. Almenni taxtinn hækki í kr. 40.00 á klukkustund og hliðstæð hækkun verði á öðru kaupi. 2. Ráðstafanir verði gerðar til að vernda kaupmáttinn með verðtryggingu þess kaups sem um semst. 3. Að vinnutíminn verði styttur án skerðingar á kaupi. ■ Fundurinn felur stjóminni að ganga frá kröfum félagsins í smærri atriðum í samráði við einstaka starfáhópa, eftir því sem við verður komið. ■ Fundurinn telur æskilegt, að sem viðtækast samstarf takist með verklýðsfélögunum í þeim örlagaríku samningum, sem nú fara í hönd — og samþykkir að félagið taki þátt í myndun landsnefndar almennu verkalýðsfélaganna, sem fari með samninga og hafi for- ustu um nauðsynlegar aðgerðir af þeirra hálfn. Fyrstu verð- launa hrútar Þessi myndarlegi hrútur heit- ir Barði og fékk 1. verðlaun á sýningu er haldinn var á Skeiðvellinum hér í Reykja- vík á sunnudag. — Sjá nán- ar á 12. síðu. — (Ljósmynd Þjóðviljans A.K.). Guðmundur J. Guðmunds- rakið hér í blaðinu á morg- son varaformaður Dagsbrúnar un. hafði framsögu um kjaramál- Eðvarð Sigurðsson formað- in og verður efni ræðu hans ur Dagshrúnar hafði fram- sögu um stofnun verka- mannasambands og ræddi þar m.a. undirbúning að skipu- Framhald á 3. síðu Mesta verðbólgustökk í sögu fslands! - Sjó frétt ó tólftu síðu Ráðstefna Alþýðusambands íslands um kaupgjalds- og kjaramál var haldin um helgina með þátttöku fjórðungs- sambandanna þriggja, Alþýðusambands Vestfjarða, Al- þýðusambands Norðurlands og Alþýðusambands Austur- lands og verkalýðsfélaga í Reykjavík, Ámessýslu, Vest- mannaeyjum, Suðurnesjum, Hlíf og Iðju í Hafnarfirði, fé- lögum á Akranesi og Snæfellsnesi auk miðstjórnar Alþýðu- sambandsins, en þar eiga sæti ýmsir helztu forystumenn verkalýðs- og iðnaðarmannafélaga Reykjavíkur. Kröfur verkamanna 1 Iok ráðstefnunnar var samþykkt einróma ályktun um kaup- gjaldsmálin, sem birt er í heild á 2. síðu. Þar er sýnt fram á hvemig kaupið hefur orðið Iangt á eftir verðlaginu, minnt á kanp- hækkanir annarra starfsstétta undanfarið og að lokum beinir ráð- stefnan því til sambandsfélaga Alþýðusambandsins að þau fyiki sér um eftirfarandi meginkröfur: 1. Að almennt kaup verði 40.00 kr. á klukku- stund. 2. Lögrð verði áherzla á fullnæg-jandi ráðstaf- anir til verðtryggingar og varðveizlu kaup- máttar þess kaups sem um semst. 3. Að vinnutími verði styttur og samið verði um hámark vinnutíma verkafólks og sér- staklega bama og unglinga. Landsnefnd Þá taldi ráðstefnan að mynda bæri Iandsnefnd almennra verka- lýðsfélaga og félaga iðnverkafólks sem fari með samninga og hafi forystu um nauðsynlegar aðgerðir af þeirra hálfu. Flýðu, viðreisnina' — til Ungverjaiands! Nýlega héldu níu Ungverjar héðan heim til Ungverja- lands og eru þá liðlega tuttugu Ungverjar búsettir hér á landi af 52 sem komu hér í desember 1956. Þjódviljinn hafði tal af dr. Gunnlaugi Þórðarsyni í gær og staðfesti hann fregnir, sem blað- inu höfðu borizt um að þrír af hverjum fimm Ungverjum er hingað flýðu 1956 væru ,,flúnir“ frá Islandi. Er þetta einhver þyngsti áfellisdómur sem við- reisnarstjórnin gat hlotið því að frá nágramnalöndum okkar hef- ur enn ekki nema fimmtungur ungverskra flóttamanna snúið aftur heim eða flutzt til annarra landa, samkvæmt upplýsingum dr. GumnlaiugSi. Fjórtán Ungverjar hafa snúið aftur heim til Ungverjalands og tekið með sér böm, sem hér eru fædd. Þannig fór níu manna hópur áleiðis til Búdapest með síðustu ferð Gullfoss, sagði dr. Gunnlaugur, en af því voru þrjú börn fædd á íslandi. Þá hafa fjórir Ungverjar flutzt héðan til Ástralíu, tveir til Þýzkalands, einn til Sviss en tveir hafa látizt hér. Átján Ung- verjar hafa fengið íslenzkan rík- isborgararétt. t »

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.