Þjóðviljinn - 19.10.1963, Page 1
DAG hefur FJugbjörgunarsveit-
ÁSÖKUNIN UM KLOFNING ER ÞVÆTJINGUR
YE RKAMAN N ASAMBANDIÐ
BRÝNT NAUÐSYNJAMÁL
sinn árlega merkjasöludag til
styrktar starfsemi sinni og
er þess vænzt, að almenning-
ur styrki hana með því að
kaupa merki.
MERKI verða seld á eftirtöldum
stöðum utan Reykjavíkur:
Akranesi, Isafirði, Akureyri,
Hornafirði, V cstmannaey j um,
Vík, Skógum, Hellu, Keflavik,
Ilafnarfirði og Kópavogi.
MYNDIN er tekin á æfingu hjá
sveitinni inni á öræfiun.
íííífífíííSK'
y»(«a8potoa(yH|g«mMaMggg
*'• 4|->.
mmmm
.......... TíTii'i I II imrnn .......................................I
lilllll
' ■
Sipl
Höfðingleg
málverkogjöf
Frú Bjamveig Bjarnadóttir og
tveir synir hennar hafa ákveðið
að gefa Ámessýslu höfðinglega
málverkagjöf, alls 41 málverk
eftir 17 listamenn, þar á meðal
þessa sjálfsmynd Ásgríms Jóns-
sonar. — Sjá frétt á 12. síðu.
Flokkurinn
Deildarfundur á mánudags-
kvöld. Formannafundur í dag
klukkan sex síðdegis.
Sósíalistafélag
Reykjavíkur.
segja formenn Hlífar, Dagsbrunar
og Einingar, Hermann Guðmunds-
son, Eðvarð Sigurðsson og Björn
Jónsson
■ Stofnun landssamtaka hinna almennu verka-
mannafélaga, verkamannasambands, er mál sem
mikið er rætt meðal verkamanna og í blöðum
þessa daga. Þrír trúnaðarmenn verkamanna í
Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri, formenn
verkamannafélaganna Dagsbrúnar, Hlífar og Ein-
ingar, segja hér álit sitt á málinu í fáum orðum.
Sjá 2. síðu
ÞJÓÐARTEKJUR VAXA
KAUPMÁTTUR MINNKAR
1 langri ræðu sem Gylfi Þ.
Gíslason flutti á aðalfundi
Verzlunarráðsins greindi hann
frá því að á síðustu tveimur ár-
um hefðu þjóðartekjurnar vaxið
um 5% á mann hvort árið.
Þannig hefði raunverulegt kaup-
gjald átt að geta hækkað um
10% á þessum árum, án þess
að nokkuð annað gerðist en það
að aukingunni væri skipt hlut-
fallslcga milli manna. Allir vita
að raunin hefur orðið önnur;
dýrtíðin hefur aukizt tvöfalt
hraðar en kaupgjald verka-
manna, þannig að gengið hefur
hverið stórlega á hlut verkafólks
á sama tíma og meira hefur
verið til skiptanna en nokkru
sinni fyrr.
í ræðu sinni var Gylfi svo
ósvífinn að telja kauphækkanir
undirrót verðbólgunnar. Hann
sagði: „Kaupgjald hefur hækkað
miklu meir en svarar til aukn-
ingar þjóðartekna, og enginn
mannlegur máttur hefur þess
vegna getað komið í veg fyrir
að verðlag hækkaði einnig mjög
verulega." Allir vita að þróunin
hefur verið þveröfug. I ársbyrj-
un 1959 var kaupgjaldið Iækkað
með lögum um 13,4%. I ársbyrj-
un 1960 var gengiö lækkað
stðrlega og óðaverðbólgu hrundið
yfir þjóðina. Verkalýðssamtökin
Ný símaskrá eftir helgina
*l Þassa dagana er verið að leggja síðustu hönd á frágang
nýju símaskrárinnar og verður byrjað að afhenda hana til sím-
notenda ettir helgina.
A þriðjudaginn kemur hefst afhending símaskrárinnar til
símnotenda í Reykjavík og Kópavogi og síðan á hverjum degi
framvegis. Er gert ráð fyrir að afgreiða 2000 simnotendur á
degi hverjum.
ir 1 Hafnarfirði hefst afhending símaskrárinnar í símstöðinni
við Strandgötu fimmtudaginn 28. október.
gripu samt ekki til gagnráðstaf-
ana fyrr en sumarið 1961, og
kauphækkunin sem fékkst gerði
naumast að vega upp þær verð-
hækkanir scm þegar voru komn-
ar til framkvæmda. Samt var
kauphækkunin tafarlaust tekin
aftur með nýrri gengislækkun.
Verðhækkanir hafa farið á und-
an öllum kauphækkunum á
þessu tímabili, eins og glöggt
má marka á því að síðan í árs-
byrjun 1960 hefur almennt verð-
Iag hækkað um 63% en almennt
kaup verkamanna um 35%.
Þegar Gylfi Þ. Gíslason
bar saman í þessari ræðu
sinni þjóðartekjurnar annars-
vegar og kaupgjald hinsvegar
hcitti hann enn þeirri gaVal-
kunnu fölsun sinnl, að reikna
þjóðartekjurnar A FÖSTU
VERÐLAGI AÐ FRÁDREG-
INNI VERÐBÖEGU, en
kaupgjaldið reiknar hann
AÐ VERÐBÓLGUNNI MEÐ-
TALINNII! Hefur ráðherran-
um margsinnis verið bent á
að slík fölsun væri í senn frá-
leit og ósæmileg, en málstað-
urinn virðist ekki þola lág-
marksvelsæmi í meðferð
taina.
Sundlaugabyggingin I Laugardalnum. Myndin er ekki alveg ný af nálinnL en gæti þó verið tekin
í &ær, því að framkvæmdir hafa verið Iitlar sem engar þarna inn frá á þessu árfi. — (Ljósm.
Þjóðv. A. K.),
HÖRÐ GAGNRÝNII BORGARSTJÓRN Á
SLEIFARLAG VIÐ
SUNDLAUGARSMÍÐI
■ Sleifarlag og framkvæmdaleysi við sundlaug'
arbyggángaina í Laugardalnum var harðlega gagn-
rýnt af borgarfulltrúum minnihlutans á fundi
borgarstjómar Reykjavíkur í fyrradag.
Tilefni umræðnaima var fyr-
irspurn Kristjáns Benediktsson-
ar (F) um hvað liði framkvæmd-
um við bygginguna og hversu
mikið hefði verið notað af þeim
5,9 millj. kr. sem til ráðstöfun-
ar voru á þessu ári til fram-
kvæmdanna.
Forsætisráðherra ræðir við trúnaðarmenn verka-
iýðshreyfíngarinnar
Þjóðviljinn hefur aflað sér
upplýsinga um viðtöl sem
þrír forystumenn verklýðs-
félaganna sem jafnframt eru
alþingismenn hafa átt við
Ólaf Thors forsætisráðherra,
en stjórnarblaðið Vísir skýrði
frá þessum viðtölum í fyrra-
dag.
Eftir fund sameinaðs þings
sl. miðvikudag óskaði forsæt-
isráðherra eftir viðræðum
við þá Hannibal Valdimars-
son forseta Alþýðusambands
Islands, Eðvarð Sigurðsson
formann Verkamannafélags-
ins Dagsbrúar og Bjöm Jóns-
son, formann Verkalýðsfé-
lagsins Einingar, Akureyri,
til að kynna sér viðhorfin í
launamálunum.
Fóru viðræður þessar fram
og lét forsætisráðherra í ljós
ósk um að möguleikar yrðu
fyrir viðræðum síðan um
þessi mál.
Borgarstjóri svaraði fyrir-
spuminni. Kvað hann miklar
annir á skrifstofu húsameistara
borgarinnar hafa valdið því að
ekld var unnt að ganga frá út-
boðslýsingu fyrr en í lok ágúst
sl. Að loknum skilafresti 28.
sept. sl. sendi einn aðili, Bygg-
ingafélagið Brú, tilboð í verkið.
Það var talið of hátt og því
hafnað, en félaginu jafnframt
gefinn kostur á að gera grein
fyrir einstökum liðum tilboðs-
ins.
Að svörum borgarstjóra lokn-
um bar Kristján fram tillögu
þar sem sleifarlagið við sund-
laugarbygginguna var átalið
harðlega, en síðan mælti Guð-
mundur Vigfússon, borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins, nokkur orð.
Tók hann undir gagnrýni Krist-
jáns og minnti á að í ársbyrj-
un 1958 hafði mátt lesa í Bláu
bókinni loforð íhaldsins um að
þessu mannvirki, sundlauginni i
Laugardal, yrði lokið á kjör-
tímabilinu sem þá fór í hönd
eða næstu árum. Síðan eru hð-
in nær sex ár og verkinu hef-
ur miðað ákaflega lítið áfram,
svo lítið sagði Guðmundur, að
borgarstjómarmeirihlutinn ætti,
með svipuðu áframhaldi, enn að
geta notfært sér sundlaugina í
Laugardalnum sem kosningalof-
orð við einar ef ekki tvennar
borgarstjómarkosningar í við-
bót!
I ræðu sinni vék Guðmundur
Vigfússon einnig að þeim drætti
sem orðið hefði á gerð teikn-
inga að mannvirkinu. Kvað
hann einsýnt að fá yrði aðra
aðila til að vinna slík verk. ef
annir væru svo miklar á skrif-
stofu húsameistara borgarinnar
að hún gæti ekki skilað beim
frá sér fyrr en seint og síðar
meir. Fyndist sér eðlilegt að
efna oftar til opinberrar sam-
keppni um teikningar og gerð
opinberra bygginga en nú tíðk-
ast hér á landi. gagnstætt því
sem er víðast hvar annarstaðar.
Að loknum umræðum var tll-
laga borgarstjóra um frávísun á
tillögu Kristjáns Benediktssonar
sambykkt með níu atkvæðum f-
haldsins gegn 5.