Þjóðviljinn - 25.10.1963, Blaðsíða 12
Landhelgis-
brjóturínn
hlaut 260
þús. kr. sekt
1 gærmorgun var kveðinn upp
á Isafirði dómur í máli Olesons
skipstjóra á brezka togaranum
Lifeguard frá Grímsby sem tek-
inn var að ólöglegum veiðum
í íslenzkri landhelgi fyrir fá-
um dögum eftir langan og strang-
an eitingarleik.
Dómurinn féll á þá lund að
skipstjórinn var dæmdur í 260
þús. kr. sekt og til að greiða
sakarkostnað. Ennfremur voru
afli og veiðarfæri gerð upptæk.
Skipstjóri áfrýjaði dómnum þeg-
ar til Hæstaréttar.
Enn ekki búið
að ná togar-
anum út
1 gærkvöld hafði enn ekki
tekizt að ná út brezka togaran-
um Northem Spray sem strand-
aði undir Grænuhlíð í fyrra-
kvöld. Varðskipið Óðinn bjarg-
aði 12 mönnum af áhöfninni en
8 höfðu komizt um borð í ann-
an brezkan togara, James Barr-
ie. Hélt Óðinn sig á strandstaðn-
um í gær til þess að reyna að
ná togaranum út.
Þessi sami togari strandaði
fyrir nokkrum árum í svo-
nefndri Prestabugt rétt við ísa-
fjarðarkaupstað og var áhöfn-
inni þá bjargað í land í björg-
unarstól.
Nýir bílar hrannast upp í Fossvogi.
Eina leiðin út úr ógöngum .■viðreisnarinnor":
Áætlunarbúskapur í stað
stjórnleysisástandsins!
Eitt af hinum nýju stórhýsum bifreiðaumboðanna.
íslandi verður ekki stjórnað,
svo að vel fari og frelsi lands-
búa og velferð sé tryggð, nema
hugsað sé um land vort sem eitt
þ jóðarbú, þannig að þjóðin skipu-
leggi aðalsölu útflutningsafurð-
anna, stjórni innkaupum þjóðar-
búsins í samræmi við nauðsyn
útflutningsins og hagsmuni þjóð-
arheildarinnar, ráði í aðaiatrið-
um stefnu fjárfestingarinnar til
þess að tryggja undirstöðu fram-
Ieiðslunnar og hraða og rétta
þróun hennar. Innan slílcs heild-
arskipulags verður svo að tryggja
og hagnýta I þjóðarþágu jafnt
framtak einstaklings, félags sem
annarra heilda.
Það stjómleysisástand, sem
ríkt hefur undanfarin ár undir
nafninu verzlunarfrelsi, hefur
Dagskrá aímælis -
hátíðahaldanna
Á afmælishátíð Sósíalistaflokksins sem
hefst kl. 9 á Hótel Borg verður þessi dag-
skrá:
1. Kjartan Ólafsson framkvæmdastjóri
flokksins setur hátíðina og stjórnar
henni.
2. Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur flyt-
ur ræðu.
3. Guðmundur Guðjónsson óperusöngvari
syngur einsöng.
4. Eining er afl samfelld dagskrá úr 25 ára
sögu Sósíalistaflokksins, lesarar: Briet
Héðinsdóttir, Einar Laxness, Óskar Hall-
dórsson og Ragnheiður Ásta Pétursdóttir.
5. Dans.
Aðgöngumiðar verða til sölu í skrifstofu
flokksins í Tjarnargötu 20 á morgun, laug-
ardag.
Undirbúningsnefndin.
einkennzt af því að beygja
allan þjóðarbúskapinn, allt efna-
hags'lífið undir sérhagsmuni
verzlunarauðvaldsins. Innflutn-
ingiur bílaþúsundanna 1963 og
bygging bílaumboðshallanna við
Suðurlandsbraut í Reykjavík, á-
samt sölu nýjustu togaranna úr
landi, mun verða minnisvarði
efnahagsstefnu verzlunarauð-
valdsins og forsjár þess fyrir
þjóðinni. Það hefur verið ógæfa
Islands, hve sterkt einmitt þetta
auðvald hefur verið hér og
hvemig það hvað eftir annað
hefur komið efnahagslífi ísi. í
öngþveiti með yfirdrottnun sinni.
Þetta eru shittir kaflar úr
greinargerð sem Einar Oigeirs-
son lætur fylgja frumvarpi sinu
um áætlunarráð rikisins. Verður
þessa merka máls getið hér í
blaðinu nónar einhvem næstu
daga, ásamt fleiri nýjum þingmál-
um, m.a. frumvarpi Einars til laga
um breytingar á áburðarverk-
smiðjuiögunum og þingsályiktun-
artillögu Gils Guðmundssonar og
Bjöms Jónssonar um skipun
rannsóknamefndar til rannsókn-
ar á verðbréfa- og víxlakaupum
banka og annarra lánastofnana,
sem verðbréf kaupa.
Föstudagur 25. október 1963 — 28. árgangur — 231. tölublað.
Afmælissöfnunin
Framlengd til
mánaðamótanna
Það var ágætur sprettur í gær
I afmælissöfnuninni. 1. deild fór
yfir 100% og 6 deildir eru um
og yfir 50%. Vegna eindreginna
áskorana frá deildarstjórnum og
til þess að snarbretnsa ekki
höfurn við ákveðið að fram-
lengja söfnunina um viku eða
til mánaðamóta. Gefst því enn
tælkifæri til að leggja fram af-
mælisgjafir til Sósíalistaflokks-
ins í tilefni 25 ára afmælisins.
Við höldum áfram deildasam-
keppninni og þökkum fjölmarg-
ar gjafir og árnaðaróskir. Röð
deildanna er nú þannig:
Iðnþing íslendinga
var sett í gær
25. Iönþing lslendinga var
sett á Hótel Sögu kl. 2 í gær.
Forseti Eandssambands iðnaðar-
manna Guðmundur Halldórsson,
húsasmíðameistari setti þingið
með ræðu. Hann ræddi m.a. um
hina öru framþróun iðnaðarins
og þýðingu hans vegna aukins
fólksfjölda í landinu. Þá gat
hann um nauðsyn þess, að f jöl-
breyttni útflutningsafurða lands-
manna ykist. enda óhagkvæmt
að byggja alla gjaldeyrisöflun
þjóðarinnar á einum atvinnu-
vegi. 1 því skyni væri nauðsyn-
legt að auka iðn- og tækni-
menntun þjóðarinnar og stæði
nú yfir endurskoðun iðnlöggjaf-
arinnar, sem miðaði að því, að
meira tillit væri tekið til
breyttra aðstæðna.
Þá ávarpaði Bjami Benedikts-
son, iðnaðarmálaráðherra, bing-
ið. Hann ræddi m.a. lánamál
iðnaðarins og ýmis fleiri mál-
efni varðandi iðnaðinn.
Eftir þingsetninguna var fundi
haldið áfram í Iðnaðarbanka-
húsinu við Lækjargötu.
Forseti þingsins var kosinn
Grímur Bjamason, pípulagn-
ingarmeistari, Reykjavík, en 1.
varaforseti Adolf Bjömssonj
Sauðárkróki og 2. varaforseti
Kristinn Vigfússon, Selfossi.
Þingritarar voru kosnir þeir
Vilberg Guðmundsson, Reykja-
vík, og Eggert Ölafsson, Vest-
mannaeyjum.
Þá var kosið í fastanefndir
þingsins, fjármálanefnd, skipu-
lagsnefnd, fræðslunefnd, löggjaf-
amefnd allsherjamefnd og kjör-
nefnd.
Að loknum kosningum flutti
Framhald á 2. síðu.
16. 9 — 25%
17. 11 — 16%
18. 13 — 7%
19. 12 — 4%
í dag höfurn við opið frá kl.
10—12 og 1—6 á Þórsgötu 1 Qg
Tjamargötu 20.
Frumvarp um
hækkun bóta
til 2. umræðu
1. 1 deild 106%
2. 8b __ 93% Frumvarp þriggja þingmanna
3. 14 75% Alþýðubandalagsins um 40 %
4. 15 — 75% hækkun almannatryggingabóta
5. 3 — 67% og vísitölutryggingu þeirra var
6. lOb — 50% til 1. umr. í efri deild Alþingis
7. 8a — 49% í gær. Fyr.sti flutningsmaður, Al-
8. 2 — 47% freð Gíslason, hafði framsögu-
9. 5 — 43% ræðu sem rakin verður nán-
10. 4a — 37% ar hér í blaðinu siðar, en aðrir
11. lOa — 33% flutningsmenn eru Björn Jónsson
12. 6 — 31% og Gils Guðmundsson. Frum-
13. 7 — 27% vaipinu var vísað til 2. umr.
14. 16 — 27% og heilbrigðis- og félagsmála-
15. 4b 25% nefndar.
Júní strandaði en
skemmdist lítið
Laust eftir miðnætti í fyrri-
nótt strandaði togarinn Júní frá
Ilafnarfiirði á svonefndri Lamb-
húsflögu sem er um 10 mínútna
siglingu frá Hafnarfirði. Var
togarinn að leggja af stað til
Englands með um það bil 115
tonn af fiski. Togarinn komst á
flot aftur af eigin ramleik um
kl. 6 í gærmorgun og reyndist
hann litið skemmdur. Haföi
skrúfublað bognað lítilsháttar og
kjölurinn dældaðist smávegis.
Þegar togarinn strandaði var
leiðinda veður. Voru menn að
vinnu á dekki og sigldi togarinn
aðeins á hálfri ferð af þeim sök-
um. Togarinn sigldi þegar hing-
að til Reykjavíkur er hann hafði
losnað og var hann tekinn upp
í slipp í gær til athugunar. Júní
er eign Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar og er 13 ára gamall.
Venlunarmenn samþykkja
heimild til vinnustöðvunar
Á trúnaðarráðsfundi Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur í fyrrakvöld
var samþykkt heimild til félagsstjórn-
arinnar að boða vinnustöðvun, en ekki
miðað við neinn vissan tíma.
Ekkert samkomulag varð á fundi
sem samninganefnd Verzlunarmanna-
félagsins átti með samninganefnd at-
vinnurekenda og sáttasemjara á mánu-
dagskvöld, en fundurinn stóð til kl.
4 um nóttina. Voru þá settar undir-
nefndir til að ræða um sérstök atriði
samninganna, einkum flokkaskipunina,
og hafa þær starfað síðan. Gert er ráð
fyrir sameiginlegum samningafundi í
kvöld.