Þjóðviljinn - 27.10.1963, Síða 1
£SJ
Sunnudagur 27. október 1963 — 28. árgangur — 233. tölublað.
i<$>-
Afmælissöfnunin:
Fimm dagar til
mánaSamóta
Dagurinn í gær var ágætur
þótt stuttur væri. Okkur bár-
ust viðbótargjafir frá Neskaup-
stað, Hafnarfirði, Kópavogi og
Eskifjörður bættist við á blað-
ið. Nokkrar deildir skiluðu góð-
um árangri og vantar nú að-
eins herzlumuninn á að þær
nái 100%. Notum helgina vel,
á mánudaginn höfum við opið
frá kl. 10—12 og 1—6 á Þórs-
götu 1 og Tjarnargötu 20.
Röð deildanna er nú þannig:
1. 1. deild 109%
2. 8b — 100%
3. 14 — 75%
4. 15 — 75%
5. 3 — 64%
6. 8a — 59%
7. 2 — 52%
8. lOb — 52%
9. 5 — 46%
10. 4a — 37%
11. lOa — 36%
12. 6 — 34%
13. 7 — 28%
14. 9 — 27%
15. 16 — 27%
16. 4b — 26%
17. 11 — 18%
18. 13 — 7%
19. 12 — 4%.
HVAÐA DEILD NÆR 100%
NÆST?
Óðinn tekur
brezkan land-
helgisbrjót
Um hádegisbilið í gær tók
varðskipið Óðinn brezkan tog-
ara að ólöglegum veiðum í is-
lenzkri landhelgi út af Isafjarð-
ardjúpi. Hélt Öðinn með togar-
ann til Isafjarðar og var hann
væntanlegur þangað síðdegis í
gær. Togarinn er frá Hull og
heitir Peter Sheyney H 195.
19 VERZLUNARMANNAFEL.
BOÐA VERKFALLIÐ 4. NÓV
Verkfall verzlunarmannafélaganna hefur nú
verið tilkynnt sáttasemjara og atvinnurekendum
og virðist geta orðið eitt víðtækasta verkfall sem
gerí hefur verið á íslandi, ef dæma má eftir til-
kynningu frá Landssambandi íslenzkra verzlun-
armanna og Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur,
sem Þjóðviljanum barst í gær.
Bolungarvíkur, ísafjarðar,
Húnavatnssýslu, Skagafjarð-
ar, Siglufjarðar, Akureyr-
ar, N.-Þingeyjarsýslu, V,-
Skaftafellssýslu, Rangár-
Þar er því yfirlýst að
verkfall verzlunarmanna og
skrifstofumanna muni ná til
Reykjavíkur, Hafnarfjarðar,
Borgamess, Snæfellsness,
vallasýslu, Árnessýslu, Suð-
umesja, en fljótlega muni
Eskifjörður, Reyðarfjörður,
Vestmannaeyjar og Patreks-
fjörður bætast í hópinn.
Fréttatilkynning Landssam-
bands íslenzkra verzlunarmanna
og Verzlunarmannafél. Reykja-
víkur er þannig:
„Landssamband íslenzkra
verzlunarmanna og Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur hafa
tilkynnt sáttasemjara ríkisins og
viðsemjendum sínum, að verzl-
unarfólk muni hefja verkfall frá
og með 4. nóvember n.k., haíi
HalEveigarstaðir risnir af grunni
samningar eigi tekizt fyrir þann
tíma, jafnframt hafa flestöll
verzlunarmannafélög tilkynnt
viðsemjendum sínum þessa á-
kvörðun.
Þau félög sem þegar er vitað
um að hefja muni vinnustöðv-
un eru:
Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur, Hafnarfjarðar, Borgamess,
Snæféllinga, Bolungarvíkur, Isa-
fjarðar, Húnvetninga, Siglfirð-
inga, Skagfirðinga, Norður-Þing-
eyjarsýslu, Vestur-Skaftafells-
sýslu, Rangárvaillasýslu. Félag
verzlunar- og skrifstofufólks á
Akureyri, Skrifstofu- og verzl-
unarmannafélag Suðumesja,
Verzlunarmannafélag Amessýslu.
Fljótlega munu félögin á Eski-
firði, Reyðarfirði, Vestmannaeyj-
um og Patreksfirði bætast í
hópinn“.
Afmælis-
hátíðin er
í kvöld
Afmælishátíð Sósíalista-
flokksins verður í kvöld kl.
9 að Hótél Borg. Dagskrá
verður þessi:
1. Kjartan Ölafsson,
framkvæmdastjóri
flokksins setur hátíð-
Ina og stjórnar hennl.
2. Sverrir Kristjánsson,
sagnfræðingur flytnr
ræðu.
3. Guðmundur Guð-
jónsson, óperusöngvari
syngur einsöng.
4. Einnig verður sam-
felld dagskrá úr 25
ára sögu Sósíalista-
flokksins, Iesarar: Brí-
et Héðinsdóttir, Einar
Laxness, Óskar Ilall-
dórsson og Hugrún
Gunnarsdóttir.
5. Dans.
Aðgöngumiðar verða
seldir kl. 2 til 4 í Tjam-
argötu 20 í dag.
Myndirnar eru frá stofn-
þingi Sósíalistaflokksins.
BSRB vill endur-
bæturí skattamálum
Stórhýsi það sem sést hér á myndinni er Hallveigarstaðir, og hefur það risið af grunni í sumar eftir
alllanga bið. Verður þetta hið veglegasta hús eins og myndin ber með sér. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.)
AFMÆLISKV EÐJUR TIL
SÓSÍALISTA FLOKKSINS
Sósíalistaflokknum hafa borizt afmæliskveðjur
þær sem hér fara á eftir frá Kommúnistaflokki
Sovétríkjanna, Sameiningarflokki sósíalista í
Þýzkalandi, Kommúnistaflokki Tékkóslóvakíu og
tímaritinu „Vandamál friðar og: sósíalisma“:
„Miðstjóm Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna sendir Sósíalista-
flokki Islands bróðurkveðjur og
óskar meðlimum hans til ham-
ingju með hið merka afmæli —
25 ára afmæli flokksins.
Óskum ykkur, kæru félagar,
árangursríks starfs í framtíð-
inni og vonum, að flokkur ykk.
ar megi fylkja sér enn þéttar
undir merki Marx og Leníns,
og megi með enn meiii árangri
berjast fyrir hagsmunum ís-
Ienzikrar verkamannastéttar og
allra vinnandi manna á Islandi,
fyrir sjálfstæði lands síns, fyrir
friði, 'lýðræði og sósdalisma.
Lengi lifi Sameinitigarflokkur
alþýðu, Sósíalistaflokkur ls-
lands!
Lifi vináttan milli Sovétrikj-
anna og Islands!
Lifi allsherjarfriður!
Miðstjórn Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna.“
„Kæru félagar!
Miðstjórn Sameiningarflokks
sósdalista í Þýzkalandi sendir
ykkur bróðurlegar kveðjur og
ámaðaróskir í tilefni af 25
ára afmæli Sósíalistaflokksins.
Flokkur ykkar hefur ævinlega
haft forustu í liagsmunabaráttu
íslenzku þjóðarinnar, hann hef-
ur staðið í fylkingarbrjósti í
sókninni fyrir stjórnmálalegum,
efnajhagslegum og félagslegum
réttindum þjóðarinnar, fyrir
þjóðlegu fullveldi og sjálfstæði
Islands. Við óskum flokki ykk-
ar nýrra úrslitasigra í barátt-
unni fyrir því að sameina öll
lýðræðis og framfaraöfl íslenzku
þjóðarinnar í þágu friðar, lýð-
ræðis og sósíalisma. Með sósíal-
ístískum kveðjum.
Walter Ulbricht, aðalritari
miðstjórnar Sameiningar-
flokks sósíalista í
I‘ýzkalandi“.
„Kæru félagar!
1 tilefni af 25 ára afmæli
Sósíalistaflokksins sendum við
ykkur einlægar ámaðaróskir.
Allt frá stofnun sinni . hefur
flokkur ykkar barizt fyrir rétt-
mœtum hagsmunum íslenzkrar
alþýðu. fyrir einingu allra frið-
arafla og lýðræðisafla í landinu
í þágu flrlBar, lýðræðis og sósí-
alisma. Við óskum yíkkur nýrra
sigra í baráttunni fyrir hags-
munum verklýðsstéttarinnar.
Framhald á 2. síðu.
Á fundi stjórnar B.S.R.B. sl.
mánudag var gerð svofelld til-
laga um skattamál:
„Stjórn B.S.R.B. bendir á, að
löggjöf um skatta og útsvör, og
þá ekki síður framkvæmd þeirr-
ar löggjafar, er og hefur um
langt skeið verið með þeim
hætti, að skatta- og útsvars-
byrðin leggst óeðlilega þungt á
Iaunamenn í þjóðfélaginu.
Skorar stjórn bandalagsins á
ríkisstjórmna, að beita sér fyrir
breytingum á skattakerfi lands-
ins og framkvæmd skatt-
heimtu, er tryggi fullt réttlæti
í þessum málum.
Stjóm B.S.R.B. bendir sér-
staklega á nauðsyn þess
1. að persónufrádráttur verði
hækkaður verulega frá því,
sem nú er,
2. að skatteftirlit verði hert og
þannig komið í veg fyrir að
skattsvikin verði þeim til
refsingax, sem telja rétt
fram.
Stjórn B.S.R.B. skorar á önn-
ur launþegasamtök landsins að
taka upp samstilla baráttu fyr-
ir endurbótum í skattamálum,
er leiði til réttlátari skatt-
heimtu en verið hefur.“
Lýst eftir vitnum
í sambandi við
málsrannsókn
Lögréglan hefur nú handtekið
pilt sem hún grunar um að vera
annan þeirra manna er frömdu
árásina á vaktmanninn á Reykja-
fossi sl. fimmudagskvöld. Piltur-
inn segir svo frá að um eða
rétt yfir klukkan tíu um kvöld-
ið hafi hann gengið upp Granda-
garð og hafi hann þá hitt þar
mann og konu. að hann heldur
hjón úr Keflavík, er voru þama
á ferð í bíl merktum Ö-X. Tóku
þau piltinn upp í bílinn og ófeu
honum suður í Kópavog og aft-
ur til baka til Reykjavíkur þar
sem hann skildi við þau. Er
það vinsamleg tilmæli rann-
sóknarlögreglunnar að fólk þetta
gefi sig fram við hana' til þess
að gefa upplýsingar í sambandi
við ferðir piltsins.
Þingnefnd til rannsóknar á
verðbréfa og víxlakaupum
Tveir þingmenn Alþýðubandalagsins, þeir Gils Guð-
mundsson og Björn Jónsson, hafa lagt fram í efri deild
alþingis tillögu um skipun nefndar til rannsóknar á verð-
bréfa og víxlakaupum banka og annarra lánastofnana
sem verðbréf kaupa. Tillagan er svohljóðandi:
„Efri delld Alþingis ályktar
að skipa fjögurra manna nefnd,
eins frá hverjum þingflokki, in*.
andeildarmanna samkv. 39. as.
stjórnarskrárinnar til þess að
rannsaka:
1. hvort brögð séu að því, að
bankar og aðrar lánastofnan-
ir hafi á undanförnum árum
átt einhver þau skipti við
verðbréfa- og víxlasala, sem
samrýmast ekki eðlilegum
viðskiptareglum;
2. hvort eðlilegum viðskipta-
reglum sé almennt fylgt um
kaup og sölu verðbréfa;
3. hvort á kunni að skorta full-
nægjandi löggjöf um verð-
Framhald á 2. síðu.
i