Þjóðviljinn - 29.10.1963, Blaðsíða 8
g SlÐA
ÞlðÐVILJINN
Þriðjudagur 29. október 1963
ÍÞRÓTTASÍgAN
26 þúsund lesta afli á átta
mánuðum á eitt veiiiskip
Fyrir rúmum tveimur árum
gekkst hlutafélagið Giertson
& Co. í Björgvin fyrir stofnun
útgerðar- og vinnslufyrirtækis
í Ohile í Suður-Ameríku. Eig-
endur þessa hlutafélags eru
Chilebúar og Norðmenn. Fé-
lag þetta hóf starfsemi sína
í hinum hálfyfirgefna hafnar-
bæ Iquique þar sem áður var
mikill áburðarútflutningur, en
er nú liðinn undir lok. Ejyrir
einu og hálfu ári fór svo
fyrsti norski línuveiðarinn yf-
ir til Chile til að hefja þar
veiðar fyrir hið nýja félag.
Síðar fóru svo tveir norskir
línuveiðarar í viðbót til Ohile
og hafa stundað þar veiðar á
vegum þessa félags.
Nú nýlega kom skipstjórinn
af fyrsta s'kipinu, „Senior" frá
Björgvin, í heimsókn til Nor-
egs, og átti þá fréttamaður
frá blaðinu Fiskaren viðtal við
hann. Það sem ég segi hér á
eftir er að mestu byggt á því
viðtali
Skipstjórinn segir mikinn
seinagang á öllum samningum
við yfirvöld í Chile og skrif-
finnskuna ægilega. Hann vill
ekki ráða neinum að hefja
þama veiðar nema að undan-
gengnum tryggum samning-
um. Hinsvegar segir hann, að
afli sé þarna svo mikill við
ströndina að með ólíkindum
sé. Þetta er mest smásíldar-
tegund, svonefnd ansíósa, sem
er sögð skyld sardínunni, og
skipstjórinn segir að sé líkust
Ioðnu. Þessi litli fiskur er
fullvaxinn ekki nema 12—15
cm. á lengd, en mjög þungur
í sér.
Veiðamar eru stundaðar
með hringnót, en fiskidæla
notuð til að dæla up úr nót-
ini. Þá eru einnig kröftugar
fiskidælur notaðar til að losa
með skipin, upp í fiskimjöls-
verksmiðjumar.
Veðurfar er þarna gott og
er því hægt að stunda veið-
arnar dag eftir dag vikurnar
út. Hinsveg^r er það föst
venja, að veiðamar eru ekki
stundaðar nema 5 daga í viku.
Bezti veiðitiminn er í janúar,
febrúar og marz; annars . er
þama góð veiði meginhluta
ársins.
Norðmönnunum var greidd-
ur aflinn í dollurum og var
verðið 7—8 krónur norskar
fyrir hektólítra eða 42—48 kr.
íslenzkar, fyrir hverja 100
lítra. Hinn innlendi gjaldmið-
ill í Chile er „esquedos“ og er
hann í mjög lágu gengi á
peningamarkaði heimsins.
Hansen skipstjóri á „Senior“
telur mikið vafamál að erlend
skip gætu stundað þarna veið-
ar, ef aflinn væri greiddur
með hinum lága innlenda
gjaldmiðli.
Noisku sjómennimir eru
ráðnir upp á hlut úr afla, eða
samskonar kjör og heima í
Noregi. Hinsvegar hafa þeir
lágmarkstryggingu sem nem-
ur 2 þús. norskum krónum á
mánuði eða kr. 12 þús. ís-
lenzkum.
Á síðustu átta mánuðum
segir Hansen skipstjóri að
aflinn á „Senior“ hafi numið
26.000 smálestum, eða nálægt
280.000 hektólítrum. Verð-
mæti þessa afla upp úr sjó
nam rúmlega 12 millj. ísl. kr.
Hentugt skipslag til
síldveiða með kraft-
blökk og fiskidælu
Hansen skipstjóri á „Senior“,
sem er þekktur síldveiðiskip-
stjóri innan norska fiskiflotans
segir, að skipslag það sem
notað sé við veiðamar í
Chile sé mjög hentugt fyrir
hringnótaveiðar, með kraft-
blökk, þar sem notuð er fiski-
dæla til að tæma nótina. Þetta
er einskonar Fanneyjarlag.
Skípin em frambyggð og vél-
in er að framan. Vinnuþilfar-
ið og lestarrúmið er aftan við
yfirbyggingu skipsins. Lengd
þessara skipa er 92 fet, dýpt
12,30 fet og mesta breidd 26
fet. Talið er að burðarmagn
skipanna sé 250 tonn, og sam-
svari það burðaimagni
norskra línuveiðara sem séu
120 feta langir. Hið sameigin-
lega hlutafélag Chilebúa og
Norðmanna er nú að láta
smíða 5 slík veiðiskip í Chile,
en 2 hafa að undanförnu verið
í smíðum í Noregi, hjá Berg-
en Mekaniske Verkstæder, og
áttu þau að afhendast eigend-
um um síðastliðin mánaðamót.
Fiskidælur í skipin, sem smíð-
uð eru í Björgvin voru fluttar
til Noregs frá Ohile. Þetta
eru 12 tommu dælur sem not-
aðar eru, og eru afköst þeirra
sögð vera kringum 3000 hektó-
lítrar af smásíld og loðnu á
klukkustund, en nokkru minna
af stórsíld.
Samskonar dælur, nema tals-
vert stærri, eni notaðar við
losun aflans við fiskimjöls-
verksmiðjumar í Chile og
gengur losun aflans því fljótt
fyrir sig. Skipin verða að losa
aflann eigi sjaldnar en einu
sinni á hverjum sólarhring, og
eru þau bundin með því á-
kvæði í sölusamningi. Þegar
síldinni er dælt úr nótinni, þá
er henni dælt upp í einskonar
rennu sem staðsett er fast
aftan við yfirbygginguna;
þarna losnar síldin við sjóinn
en fellur siðan sjálf í stríðum
straumum í lestina. Uppfinn-
ingamaður þessarar stórvirku
fiskidælu er svissneskur verk-
fræðingur að nafni Stahle og
er hann búsettur í Chile. Sagt
er að hann hafi nú fengið
einkaleyfi á dælunni í flestum
löndum heims.
Norðmenn ætla að
reyna dæluna nú á
þessu hausti
Ein slík fiskidæla hefur ver-
ið flutt til Noregs til að reyn-
ast þar, nú á þessu hausti, og
verður hún sett um borð í
aflaskip í Norður-Noregi, sem
stundar feitsíldarveiðar. Verð
þessarar dælu þegar hún er
komin til Noregs er kringum
70 þús. norskar krónur, eða
rúmlega 420 þús. íslenzkar kr.
Útvarpserindi Finnboga GuB-
mundssonar útgerðarmanns
Utvarpserindi Finnboga
Guðmundssonar útgerðar-
manns 21. þ.m. var mjög fróð-
legt. 1 erindinu ræddi hann af
raunsæi og hispursleysi vanda-
Klapparstíg 26.
mál sjávarútvegsins, sérstak-
lega hvað viðkemur öflun
markaða fyrir sjávarafurðir,
og þá sér í lagi síldina. Sem
dæmi um það hve aðrar þjóð-
ir legðu sig fram um öflun
nýrra markaða, gat hann
þess, að Danir sem eru miklir
skipasmiðir, hyggðust nú láta
smíða fiskiskip í Austur-
Þýzkalandi, til þess að afla
sér markaðs þar fyrir síld
og aðrar sjávarafurðir.
I beinu framhaldi af þessum
upplýsingum Finnboga, langar
mig til að segja frá því, að
í nýgerðum verzlunarsamningi
á milli Norðmanna og Pól-
verja er gert ráð fyrir því, að
Norðmenn flytji inn fiskibáta
frá Póllandi meðal annars, en
selji hinsvegar þangað sáld og
aðrar fiskafurðir. Og af þessu
tilefni er nú pólskur fiskibátur
á sýningarferð með norsku
ströndinni í hverjum einasta
bæ og fiskiþorpi, allt frá Suð-
ur-Noregi til Norður-Noregs.
Þetta er frekar lítill bátur og
er hann sérstaklega smíðaður
til að stunda togveiðar í
Norðursjó.
Mikil aðsókn er sögð að
bátnum þar sem hann hefur
komið, og fer fréttaritari frá
blaðinu Fiskaren viðurkenn-
ingarorðum um smíði bátsins.
Þessi dæmi frá nágranna-
löndunum sýna svart á hvítu,
að meira er þar gert af opin-
berra hálfu til.að afla mark-
aða fyrir sjávarafurðir held-
ur en hér. Megum við íslend-
ingar þó sízt við því, að vera
eftirbátar annarra á þessu
sviði.
CHAMPION
NÝ CHAMPION
KRAFTKVEIKJUKERTI
HAFA ÞESSA KOSTI:
N o T I Ð
AÐEINS ÞAÐ
BEZTA
CHAMPION
KRAFT-
KVEIKJU-
KERTI.
1. 5 grófa ceramic
einangrun.
2. Eru ryðvarin.
KRAFTKVEIKJU“
neistaoddar eru úr
NICKEL-ALLOY málmi,
sem endasf lengur en
venjulegir oddar.
Þeir auká endingu
Oj kertisins um 63
H.f. Egill Vilhjálmsson
Laugaveq 118 - Sími 2-22-40
16250 VÍNNINGAR!
Fjórði hver miði vinriur að meðaltali!
Hæstu vinningar 1/2 rnilljón kronur.
Lægstu 1000 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.
Bækur — Frímerki
Vil kaupa gamlar og nýjar b'ækur og alls-
konar tímarit, gömul og ný.
Kaupi einnig íslenzk írímerki Hæsta verði.
Fólk sem flytur utan af landi eða úr göml-
um húsum hér í horginni, kastið ekki göml-
um bókum.
Baldvin Sigvaldason
Hverfisgötu 16 A — !(Búðinni).
Bifreiðaleigan HJÓL
Hverfisgðtn (2
Biml 16-270
MARÍAMARÍAMARfAMARÍAMARfAMARÍAMARÍAMARfAMAEÍAlVLARÍAMARÍAMARÍAMARÍA
MARÍAMARfAMARÍAMARfAMARÍAMARfAMÁRfAMARfAMARfAMARfAMARÍAMARÍAMARfA
MARÍAMARfAMARÍAMARÍAMARfAMARfAMARfAMARÍAMARÍAMARÍAMARfAMARfAMARfA
MARfAMARfAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARfAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍA
MARÍAMARÍAMARÍA MARÍ AMARÍAMARÍA
MARÍAMARÍAMARf A 81____I II MARÍ AMARÍAMARÍA
MARf AMARf AMARf A III lfl||Cfl|#|#£||* M ARÍ AMARÍ AMARÍ A
MARÍAMARÍAMARÍ A I ™ I 11llllU I MARÍ AMARÍAMARÍA
MARÍAMARÍAMARÍA MARÍAMARÍAMARÍA
MARfAMARfAMARÍAMARÍAMARfAMARÍAMARfAMARfAMARfAMARÍAMARfAMARfAMARfA
MARfAMARÍAMARfAMARÍAMARfAMARfAMARfAMARfAMARfAMARÍAMARfAMARfAMARfA
MARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍA
MARÍAMARfAMARÍAMARfAMARÍAMARÍAMARÍAMARfAMARfAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍA
MARfAMARfAMARÍAMARfAMARÍAMARÍAMARÍAMARfAMARfAMARfAMARfAMARfAMARfA
MARfAMARÍAMARfAMARfAMARfAMARÍAMARfAMARÍAMARfAMARfAMARfAMARÍAMARfA
MARÍAMARÍAMARÍ AMARÍ AMARfAMARÍAMÁRfAMARfAMARÍAMARÍAMARf AMARÍAMARÍA
MARÍAMARÍA MARÍAMARÍA
maríamaría Heildsölubirgðir: maríamaría
MARÍAMARÍA MARÍAMARÍA
MA™“ÍAÍslenzk-erlenda Verzlunarfélagið h.LLTT!,1,1?
maríamaría Tjarnargö'fu 18. — Símar 20-400 og 15-333. maríamaría
MARÍAMARÍA MARÍAMARÍA
MARÍAMARfAMARfAMARfAMARfAMARÍAMARfAMARfAMARfAMARÍAMARfAMARfAMARÍA
MARfAMARfAMARfAMARfAMARfAMARÍAMARfAMARÍAMARfAMARfAMARÍAMARfAMARfA
MARfAMARÍAMARÍAMARÍAMARfAMARfAMÁRfAMARÍAMARfAMARfAMARfAMARÍAMARfA
MARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMÁRÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍAMARÍA