Þjóðviljinn - 30.10.1963, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.10.1963, Blaðsíða 1
 SillllÉllBllÍÍIÍlll&É^ w .. --v. kiííPmmSiHi illliiil :;:::: ' ■ vX; v : 5 .•: MR mmm — ; ■ ■ . ■ ■;•:;. ....................... ' llilii . ■ • ;• . :<• • •• I ;■ ■ ; ;■' 5-: :l Í::i' I : :: ."T'iÉ' *« ' m f ! MmgsWM wmmSSímSíSSSmi Miðvikudagur 30. október 1963 — 28. árgangur — 235. tölublað. Lögðu sér hróa rjúpu til munns Borgarnesi, 29/10. — Enn- þá einu sinni hafa rjúpna- skyttur lent í villum í ó- byggðum og íer nú þetta að horfa til vandræða, þar sem fjölmennir leitarflokk- ar eru kallaðir á vettvang upp á fjöll og eru þetta orðnir daglegir viðburðir. Rétt eftir hádegi í gær lögðu upp 2 starfsmenn í Samvinnuskólanum í Bif- röst og héldu á rjúpnaveið- ar á Bröttubrekkum. Þeir ætluðu að vera komnir aítur um fimm Ieytið. Um kvöldmatarleytið var farið að óttast um þá, og brugðu Hörð átök innan stjórnar- f lokkanna um ný þvingunarlög við bændur í Norðurárdal og hófu lcit að rjúpna- skyttunum. Skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi var leitað til lögreglunnar í Borgarnesi og einnig kom fram beiðni til Flugbjörg- unarsvcitarinnar. Margir menn fóru á stjá og voru að til kl. 3 eða 4 um nótt- ina. Hinsvegar var Reynir Ásberg, rafvirki, á leið frá Bifröst til Borgarness á bíl sínum og varð var við citt- hvað kvikt hjá Gljúfurár- brú, og voru þar komnar rjúpnaskytturnar og áttu skammt eftsr i;pp á þjóð- veginn. Þeir T-efðu farið af stað matarlausir og tók hungur að þjá þessa heið- ursmenn. Þeir höfðu skotið nokkrar rjúpur og lögðu sér til munns tvær nýveiddar rjúpur með fiðri og öllu saman. — P.G. Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær hafa sérfræðingar ríkis- stjórnarinnar unnið að því að undanförnu að ganga frá ráðstöfunum vegna hruns viðreisnarinnar. Eftir því sem næst verður kom- izt munu þessar ráðstafanir þó ekki beinast gegn óðaverðbólgunni og afleiðingum hennar á lífskjörin, heldur mun ætlunin einvörðungu sú að setja þvingunarlög sem komi í veg fyrir að verklýðssamtök- in geti gert nýja og óhjákvæmilega kjarasamninga næstu mánuð- ina. Hins vegar mun það haft að yfirskyni að síðan eigi að nota tím- ann til að finna ráð til að tryggja þeim lægstlaunuðu kjarabætur! Eins og ráðgert var átti Ólaf- ur Thors forsætisráðherra fund í gær með Hannibal Valdi- marssyni, forseta Alþýðusam- bandsins, Eðvarð Sigurðssyni, formanni Dagsbrúnar, og Bimi Jónssyni, formanni Einingar. Höfðu ýmsir spáð því að þar myndi forsætisráðherra skýra frá ákvörðun ríkisstjómarinnar um þessi efni. en ekki mun hafa verið um neitt slíkt að ræða. Fyrirætlanir ríkisstjómarinnar hafa hins vegar verið ræddar í ýmsum öðrum stofnunum. Til að mynda var fjallað um þær á Hvalfjarðarmál á þingfundi í dag Á fundi sameinaðs Alþingis í dag verður m.a. tekin fyrir þingsályiktunartillaga nokkurra Alþýðubandalagsþingm. varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir Atl- anzhafsbandalagsins í Hvalfirði. fundi í miðstjóm Alþýðuflokks- ins í fyrrakvöld, og kom þar fram nokkur andstaða gegn þeim ætlunum að binda karjp hinna lægstlaunuðu, eftir að ýmsir hátekjumenn þjóðfélagsins hefðu fengið allt að 100% kauphækkanir. Jón Axel Pétursson banka- stjóri tók dæmi af sjálfum sér, kvaðst einmitt í gær hafa feng- ið ákveðna mjög verulega kaup- hækkun ofan á laun sem verið hefðu sómasamleg fyrir. Hann gæti ekki sem Alþýðuflokksmað- ur af gamla skólanum staðið að því að banna með lögum kaup- hækkanir til almennra verka- manna sem aðeins hefðu brot af bankast j órakaupi. Guðmundur R. Oddsson, for- stjóri Alþýðubrauðgerðarinnar, tók mjög í sama streng og Jón, og þótti afstaða þeirra nokkmm tíðindum sæta, því þeir hafa áratugum saman verið í hægra armi flokksins. En hægrimenn sem halda skoðunum sínum ó- breyttum komast fljótlega til vinstri í Alþýðuflokknum. Óskar Hallgrímsson andmælti einnig fyrirætlunum um að binda kaup með lögum. Benti hann á að ríkisstjómin hefði í vor beðið verkalýðssamtökin að fresta meiriháttar kjarasamning- um til hausts til þess að tóm gæfist til efnahagslegra athug- ana og spurði hvort ríkisstjóm- in hefði ekkert gert síðustu sex mánuði. fyrst hún vildi nú fá frest til að vinna þau verk sem hún lofaði að vinna í vor. Jón Sigurðsson tók í sama streng og Óskar og gangrýndi sérstaklega Gylfa Þ. Gíslason, sem ekki var mættur á fundin- um. Kvað Jón fjarveru hans vonandi fyrirboða þess að hann ætti eftir að vera fjarverandi víðar; til dæmis væri nóg fyrir Alþýðuflokkinn að hafa í ríkis- stjóminni þá tvo ráðherra sem væru „eldri og reynddari“! Málið var ekki útkljáð á mið- stjómarfundi Alþýðuflokksins og mun nýr fundur vera fyrirhug- aður í dag. Hins vegar mun fomsta Sjálfstæðisflokksins hafa talið sig fá nauðsynlegar heim- ildir á floklisráðsfundinum s. L laugardag. þótt flokksráðsmenn fengju sáralítið að vita um fyr- irætlanir leiðtoga sinna. Síldarflotinn í höfninni LJÓSMYNDARI Þjóðviljans tók þessa skemmtilegu mynd í gær af síldveiðiflotanum liggjandi í Reykjavíkurhöfn. Vetrarsíldveiðin er nú sem óðast að hefjast, sum skipin hafa þegar hafið veiðar og önnur að búa sig á veiðar. Á 12. SÍÐU blaðsins í dag. eru fleiri myndir af síldveiðiskip- um svo og frétt um aflabrögð- in í gær og fyrradag. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.). Stundakennararfá laun skv. menntun Eins og kunnugt er, hefur nokkur vafi leikið á því undan- farið, hver yrðu Iaun stunda- kennara við skóla landsins. Nú mun hinsvegar hafa verið ákveð- ið, hvcr þau verði. Helzta breyt- ingin er í stuttu máli sú, að Verður brenni- vínið tekið af ráðherrunum? I umræðum í neðri deild Alþingis í gær um áfengis- lög tóku tveir framsóknar- menn (Þórarinn Þórarinsson og Sigurvin Einarsson) tii máls. Lögðu þeir báðir til að afnuminn skuli afsláttur á útsöluverði áfengis til ráð- herra og annarra cmbættis- manna er þessara fríðinda hafa notið. Sigurvin sagðist ekki vilja núverandi ráð- herrum neitt illt með þessu enda væri ekki víst eins og nú horfði í þjóðmálum að þetta ákvæði bitnaði á þeim þó að Iögum yrðl. gamli skalinn er lagður til grundvallar, en menn fá hlut- fallslega hækkun samkvæmt þeim launaflokki, sem þeir ættu að vera í samkvæmt menntun, væru þeir fastráðnir kennarar. Laun stundakennara munu vera ákveöin 80% af meðallau- um kennara, í 25 ár miðað við launin í dag. Þessi ákvörðun gildir um óákveðinn tíma. Blaðið getur ekki að svo stöddu sagt til um það, hver verði laun stundakennara, enda sjá þeir það væntanlega sjálfir fljótlega eftir mánaðamót. Þó munu laun stundakennara í gagnfræðaskólum verða kr. 91.95 samkvæmt 16. launaflokki, miðað við 45 mínútna kennslustund. Þó eru þetta aðeins laestu laun stundakennara við gagnfræða- skólana. Hæstu laun stundakennara, þau er greidd eru við Mennta- skólann og Kennaraskólann. munu vera samkvæmt 20. launa- flokki 123.05 fyrir 45 mín. kennslustund. Þá er þcss að geta, að stundakennarar fá greidda yfirvinnu eftir kl. 5 á daginn. Eftirvinnukaup stundakennara er bið sama og hjá föstum konnurum. ÍSLAND Þ0LIR EKKI .FRJÁLSA VERZLUN' -Jr Þjóðhagsáætlunin frá í fyrxa hefur reynst Ijót Gylfaginning. Verzlunarjöfnuðurinn -er orðinn óhagstæður um 700 milljónir. 30. september nam útlánaaukn- ing bankanna 1001 millj. kr. en innlánaaukningin nam þá 570 milljónum króna. Á sama tíma 1962 var útlánaaukningin 640 milljónir króna og inn- lánaaukningin 730 milljónir. •^p Ber þetta sem annað að sama brunni:- ísland þolir ckki ,,frjálsa verzlun“. Það verður að aflétta einokun inhflútnings- verzlunarinnar á tekjum út- flutnlingsverzlumarinnnar. ' At- vinnuvegir okkar þola ekki öllu fleiri „sérfra!ðinga“-tilraunir og tfmi tU kominn að Sjálfstæðis- og Alþýðuflokksmcnn horfist í augu við þá staðreynd að áætl- unarbúskapur er það eina sem getur bjargað okkur út úr þeim ógöngum sem stjórn þcssara flokka hofur leitt okkur f. ★i Þetta var megintak hinnar hvössu ræðu Einars Olgeirsson- ar f nd Alþingis i gær þar sem hann fylgdi enn einu sinni frumvarpi sínu um áæthinar- ráð ríkisins úr hlaði. Ósiðlegt athæfi við stúlkubarn I fyrrakvöld gcrðist 27 ára gamall maður f Hafnarfirði sek- ur um ósiðlcgt atferU við sex ára gamalt stúlkubarn. Tók maðurinn telpuna upp f bíl og fckk hana til að afklæðast og mun einnig hafa Iosað sjálfur eitthvað um föt sín. Ekki virð- fst þó hafa verið nm bcina til- raun til kynmaka að ræða og er telpan algerlega ómeidd. Var farið með hana til læknisrann- sóknar. Telpan sagði frá atburði þess- um þegar hún kom heim til sín og var athæfi mannsins þegar kæirt til lögreglunnar og var Framhald á 2. síðu. Lífeyrir og eftir- laun opinberra starfsmanna hækki Á fundi stjómar B.S.R.B. fyrra mánudag var gerð svo- felld tillaga um hækkun lifeyr- is og eftirlauna: ,.Stjórn Bandalags starfs- manna ríkis og bæja skorar á ríkisstjórnina og bæjarstjómir Iandsins að hlutast tU um að fyrrverandj starfsmenn ríkisins og bæjanna fái frá 1. júií sl. að telja. greiddar hliðstæðar hækkanir á Ufeyri og efttríaun og opinbcrir starfsmenn fengu á laun sin frá þeim tíma“. M-FUNDUR klukkan 21.00 í kvöld að Laugateig 11 (kjallara). — Stundvísi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.