Þjóðviljinn - 12.11.1963, Blaðsíða 1
DiOÐVIlllNN
Þriðjudagur 12. nóvember 1963 — 28. árgangur — 239. tölublað.
Fréttayfírlit síðustu daga
Á opnu blaðsins í dag eru bir't- prentaraverkfallsins. Jafnfram't
ar yfirlitsgreinar um helztu er- er á 2. síðu blaðsins stutt yfirlit
lenda viðburði er gerðusf á með- yfir helztu innlendar fréttir frá
an blaðið kom ekki út vegna sama tíma.
Jaf nmiklar kjarabætur til
láglaunafólks og annarra
Dagsbrúnar-
fundurinn
Tveir þeirra manna
sem staðið hafa í fremstu
röð í baráttunni gegn
þvingunarlagafrumvarpi
rfkisstjómarinnar, Hannibal Valdimarsson forseti
Alþýðusambands íslands og Lúðvík Jósepsson for-
maður þingflokks Alþýðubandalagsins, lögðu báð-
ir áherzlu á það í viðtölum við Þjóðviljann í
gær, að samningalausnin í kjaramálunum sem
nú er framundan yrði að fela í sér kjarabætur
til láglaunafólks sem ekki væru minni en þær
sem aðrar starfsstéttir hafa hlotið á þessu ári.
Þjóðviljinn átti stutt viðtal við Hannibal Valdimarsson að lokn-
um þingfundi í gær, og spurði hann hvað hann teldi xnarkverðast
Við málalokin um þvingunarlögin.
— Ég held að það sé einna markverðast við þau málalok, að
eftir þessa tilraun að svipta verkalýðshreyfinguna samningsrétti
og verkfallsrétti muni önmur slfk tilraun vart verða gerð í bráð.
Það er eftirminnanlegt hvemig þjóðin reis upp langt út fyrir raðir
verkalýðshreyfin garinn ar gegn því áformi að svipta verkalýðsfé-
lcgin samningsré tindum með lógum. Ég tel útilokað að frumvarpið
verði nokkru sinni gert að lögnm, ég held það sé steindautt.
ViA bðfðtim boðið ríkisstjóminni að reyna samninga, sleitulausa
camninga, f allt að hálfan mánuð, áður en frumvarpið um þving-
unarlðgin var Iagt fram, og á Alþingi hömruðum við alltaf á því
f umræðunum að við teldum allar Ieiðir betri en Iögþvingunarleið-
ina, frelsisskerðingarleiðina. En því boði var hafnað.
Vera má að einhverjir segi: Þið vitið í rauninni ekkert hvort
nokkuð kemur út úr þessu samkomulagi við ríkisstjómina. Því
vildi ég svara, að verkalýðshreyfingin er staðráðin í að fullreyna
hvað samningar gefa nú, og að við treystum því enn að þannig
verði að þeim staðið að úr þeim fáist viðhlítandi lausn.
Einhuga verkalýðshreyfing
— Samstaðan í Verkalýðshreyfingunni virtist koma stjómarlið-
inu á óvart?
— Já, samstaðan innan verkalýðshreyfingarinnar varð alveg
sjálfkrafa og efldist með hverjum degi og þokaði til hliðar flokks-
legum ágreiningi manna í verkalýðsfélögunum.
Réttlætið í garð láglaunamanna
— Hvað telurðu um framhaldið?
— Ég trúi ekki öðru en allir líti svo á eins og nú er komið,
sð samningaleiðin sé vænlegust til árangurs, líka atvinnurekendur
og ríkisstjómin. Hitt er ríkisstjómin búin að reyna, að fara þving-
unarleiðina og hún er búin að sprengja sig á þvf.
En það er gefið að samningalausn verður að fela í sér slika leið-
réttingu á iífskjörum láglaunastcttanna að þær telji sig fá ekki
lakari kjarabót en þær stéttir sem á liðnu sumrl fengu ríflegar
kauphækkanir samkvæmt niðurstöðu Kjaradóms eða sem afleið-
ing af niðurstöðum hans, þannig að þær telji sig njóta sams kon-
rr réttlætis í þjóðfélaginu. Ég sé t.d. ekki hvemig hugsanlegt er
að neita verkafólki sem vinnur nákvæmlega sömu störf og vissír
starfsmenn Reykjavíkurborgar og annarra bæjarfclaga, um sömu
kjarabætur.
Samningar að hefjast
Porysta verkalýðshreyfingarinnar og rikisstjómin eru nú þegar
að hefja viðræður um þessi mál, og mætti það vera vísbending
um að vilji sé fyrir hendi að nota þann töna sem tn stefnu er.
Rætt við Lúðvík
— SjSí 12. síðu
Myndin er tekin á fundi Dags-
brúnar í Iðnó á sunnudaginn er
félagið samþykkti að fresta boð-
uðu verkfalli til 10. desember f
trausti þess að fresturinn yrði
notaður til þess að semja nm
kjarabætur til handa verkafólki
og að aldrei framar yrði reynt
að beita verkalýðinn lögþvingnn.
-4> — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
3ja alda afmæli
Árna Magnús-
sonar
Háskóli Islands og Handrita-
stofnun íslands gangast fyrir at-
höfn í hátíðasal Háskólans á
þriggja alda afmæOi Ama Magn-
ússonar n.ík. miðvikudag 13. nóv.
kl. 5.30. Þar.flytur foretöðumaður
Handritastofnunar, dr. ESnar Ól.
Sveinsson prófessor. fyrirlestur
um Áma Magnússon, ævi hans
og starf.
Flugfélag Islands hefur nú
ákveðið að ganga úr IATA
Flugíélag fslands heí-
ur nú ákveðið að segja
sig úr IATA, alþjóða-
samtökum ílugíélaga.
Mikið tjön í elds-
voða í fyrrinótt
í fyrrinótt kom upp eldur í verkstæði Egils Vilhjálms-
sonar að Laugavegi 118 og olli hann miklum skemmdum,
m.a. skemmdust 25 nýuppteknir bílmótorar auk þess sem
skemmdir urðu á þaki hússins. , -
Slökkviliðinu var tilkynnt um
eldin kL 4.16 af lögreglunni. Er
slökkwiiliðið kom á staðinn var
mikill eldur í þaki verkstæðis-
ins og urðu á því miklar
skemmdir. Tók það hátt á aðra
klufckustund að ráða miðurlög-
um eldsins enda allerfitt a S
komast að honum. Gnímur Ieik-
ur á rnn það að kviknað hafi
í út frá potti sem notaður er
við hreinsun á bílmótorum.
f verkstæðinu sem . eldurinn
kom upp í eru framkvæmdar
aðgerðir og uppbyggingar á bíla-
mótorum og skemmdust mjög
mikið 25 nýuppteknir mótorar.
Kostar vlðgerð á hverjum mót-
or 12—15 þús. kr. og er því hér
um nrikið tjón að rœða þótt
mótoramir væru allir tryggðir.
Er talið að það verði að gera
þá alla upp affcur. Seinkar það
að sjálfsögðu mjög afgreiðslu á
mótorunum.
Heíur þessi ákvörðun
verið tekin fyrir nokkru,
en enn ekki verið til-
kynnt sambandinu, og
því ekki fullvíst, hvenær
hún kemur til fram-
kvæmda. Ástæðan fyrir
þeim drætti er sú, að
samgöngumálaráðh. hef-
ur beðið flugfélagið að
fresta málinu nokkra
daga meðan hann kanni
málavöxtu.
Örn Johnson, framkvæmda-
stjóri Flugfélagsins, lét svo um
mælt í samtali við Þjóðviljann
í gær, að orsök þessarar á-
kvörðunar væri afstaða flug-
málastjómarinnar íslenizku til
fargjaldalækkunar milli íslands
og Evrópu. Flugfélög tanan
IATA væru skuldbundin að
halda þann taxta sem samband-
ið setti. Alla tíð til þessa hefði
íslenzfca flugmálastjómin fylgt
ákvörðunum IATA, en hefði nú
horfið frá þeirri stefnu.
Örn kvað Fluefélag fslands
ekki vilja una þvi að njóta ekki
sama frjálsræðis og hitt is
lenzfca flugfélagið, enda teldi fé-
lagið sér ekki kleyft að géra
hvorttveggja í senn eins og mál-
um væri nú komið — standa við
skuldbindingar sínar gagnvart
IATA og halda samfceppnisað-
stöðu sinni. Ekki kvaðst hann
búast við neinum sérstökum
viðbrögðum IATA þegar úrsögn
Flugfélagsins væri lögð fram, né
heldur vita hver yrðu viðbrögð
nágrannafélaganna við þessari
ákvörðun.
Þá má geta þess, að Loftleið-
ir hafa fengið framlengda vor-
og haustlækkun fargjalda sinna
til Amsterdam og Luxemborg-
ar, en auk þess hefur félagið
sótt um það til flugmálastjórn-
ar að lækka enn fargjöld til
þessara staða þannig, að far-
gjöldin hafi alls lækkað um ná-
lega 4 þús. krónur. Flugmála-
stjóm hefur enn ekki afgreitt
þá umsókn, en væntanlega verð-
ur málið rætt á næsta reglulega
fundi flugmálastjómarinnar.
Fylkingin
Námskeið um verkalýðsmál
verður í kvöld kl. 8.30 í Tjamar-
götu 20. Bjöm Bjarnason talar
um alþjóðleg sambönd verka-
I ý ðfihi^liug iuriu n ar.
i