Þjóðviljinn - 13.11.1963, Side 1

Þjóðviljinn - 13.11.1963, Side 1
ViÐRÆÐUR AÐ BYRJA ■ Tveir ráðherranna, Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra og Emil Jónsson félagsmálaráðherra, hafa nú hafið viðræður við full- trua atvinnurekenda og launþega af hálfu ríkisstjórnarinnar og ræddu þeir í gærmorgun við fulltrúa frá verkalýðshreyfingunni. ■ Viðræðurnar snerust einvörðungu um tilhögun þeirra samn- ingaumræðna sem fyrirhugaðar eru. ■ Samningafundur með fulltrúum frá verkamannafélögunum, landsnefndarfélögunum, og fulltrúum atvinnurekenda er ákveðinn á morgun, fimmtudag, kl. 4 eftir hádegi. ÓLAFUR THORS BIÐST LAUSNAR Þjóðviljanum bars't í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá forsætisráðherra: „Læknar mínir hafa tjáð mér, að mér sé nauðsynlegt að taka mér algera hvíld frá störfum í nokkra mánuði. Ég get því ekki unnið að lausn hinna ýmsu vandamála, sem framundan bíða. Haustið 1961 stóð svipað á fyrir mér. Tók ég mér þá hvíld frá störfum í þrjá mán- uði. Ég tel ekki rétt að hafa sama hátt á nú og hef því ákveðið að biðjast lausnar frá embætti mínu. Reykjavík, 12. nóv. 1963. Ólafur Thors.“ Krafízt frá- vísunar á Milwoodmáli 7. NÓV. SL. er MUwoodmálið vap tekið til munnlcgs mál- flutnnings bar verjandi Johns Smith skipstjóra, Gísli G. Is- leifsson hdl., fram þá kröfu fyrir hönd skjólstæðings síns að málinu yrði vísað frá dóminum þar eð ekki væri hægt samkvæmt íslcnzkum lögum að dæma fjarverandi mann. FKAVlSUNARKRAFAN var send saksóknara ríkisins. Valdimari Stefánssyni. til at- hugunar og fyrirsagnar og skýrði hann Þjóðviljanum svo frá í gær að úrskurður myndi felldur um kröfuna á næstunni. Fríhafnarmálið sent til sak- sóknara ríkisins Samkvaemt upplýsingum Harð- ar Helgasonar deildarstjóra ‘ varnarmáladeild utanríkisráðu- neytisins verða skýrslur rífcis- endurskoðunarinnar um Fríhafn- armálið svonefnda sendar sak- sóknara ríkisins einhvern næstu daga til fyrirsagnar. en sem kunnugt er er mál þetta þannig vaxið að ríkisendurskoðunin komst að því fyrir nokkru að gjaldkeri fríhafnarinnnar á Keflavíkurflugvellii hafði gerzt sekur um stórfelldan fjárdrátt í starfi sánu. _ Nefnd til að rannsaka um- ferðarslys Fréttatilkynning frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 11. nóv- ember 1963: Dómsmálaráðherra hefur í dag ákveðið að skipa nefnd til þess. að rannsaka orsakir hins sívax- andi fjölda umferðarslysa og að gera tillögur um ráðstafanir til úrbóta. í nefndinni eru: Lögreglustjór- inn í Reykjavík, sem er formað- ur nefndarinnar. vegamálastjór- inn og fors.töðumaður bifreiðaeft- irlits ríkisins, en jafnframt hafa ■ Slysavamafólag íslands, Félag ís- I lenzkra bifreiðaeigenda og félög atvinnubifreiðastjóra verið beðin að tilnefna fulltrúa í nefndina. 1 95-100 MILLJÓNIR VANTAR TIL AÐ FULLNÆGJA LÁNAÞÖRFINNI ■ Fyrjr röskum mánuði voru fyrirliggjandi hjá Húsnæðismálastofnun ríkisins um 1400 umsóknir um lán til íbúðabygginga í kaupstöðum og kaup- túnum landsins. SS Hefur umsóknum fjölgað enn síðan og mun láta nærri að þær séu nú ekki færri en 1700. Heildarláns- fjárhæðin sem sótt er um nam í septemberlok um 140 millj. króna, þar af 87,3 millj. til fbúða sem eru fokheldar eða lengra komnar og því í lánshæfu ástandi. Upphæðir þessar hafa hækkað verulega síðan þar sem daglega ber- ast nýjar umsóknir og viðbótarumsóknir og vottorð um að hús og íbúðir, sem sótt er um lán út á séu komin í fokhelt ástand. Þjóðviljinn fékk þessar upp- lýsingar hjá Guðmundi Vigfús- syni borgarfulltrúa. en hann á sem kunnugt er sæti í Húsnæð- ismálastjóm. Innti blaðið hann eftir fréttum af ástandi og horf- um í lánsfjármálum húsbyggj- enda í tilefni af þeim mikla og vaxandi skorti á íbúðarhúsnæði sem almenningur á nú við að stríða. — Eftirspumin eftir lánsfé er mikil og vaxandi, enda hafa engar lánveitingar farið fram hjá Húsnæðismálastjóm síðan í apríl s.l. er lánaðar voru 86 millj. kr. Þegar talning lánsum- sókna fór fram 30. september s.l. lágu fyrir 1391 umsókn og heildarupphæð lánsbeiðna nam 139 millj. 393 þús. kr. Þar af var sótt um 54,5 millj. út á íbúð- ir sem ekki höfðu þá vottorð um að vera komnar í fokhelt ástand, en það er skilyrði fyrir að lánveiting sé heimil. Um- sóknir út á lánshæfar íbúðir námu því samkv. þjessu 87,3 millj. kr. og tala þeirra íbúða var 1087. Þessar tölur hafa allar hækk- að verulega síðan 30. sept. Dag- lega berast nýjar umsóknir um lán eða viðbótarlán og nær dag- lega berast vottorð um að íbúð- ir séu orðnar fokheldar og þar- með lánhæfar. Mér kæmi ekki á óvart þó raunveruleg lánsfjár- þörf næmi nú 95 — 100 millj. króna. — Er meira byggt í ár en — Á því leikur varla vafi. Má draga þá ályktun bæði af vax- andi fjölda umsókna hjá hús- ■næðismálastj óm og stóraukinni sölu teikninga frá húsnæðis- málastofnuninni. Sala teikninga á vegum stofnunarinnar hefur verið meiri á þessu ári en nokkru sinni fyrr. Að vísu er það ekki öruggur mælikvarði á fjölda íbúða í byggingu, þar sem menn virðast nú fyrst vera að átta sig almennt á þessari þjónustustarfsemi Húsnæðis- málastofnunarinnar. En það er Stálbátur smíðaður íKópavogi Fyrsta bátnum sem Stál- skipasmiðjan h.f. í Kópavogi smíðar var hleypt af stokk- unum sl. laugardag. Daginn áður hafði hann verið skirður við hátíðlega athöfn að viðstöddum gest- um. Eigendur bátsins eru Sveinn Jónsson, Höfnum. og Gísli Þorsteinsson, Þorláks- höfn. Skipstjóri á bátnum verður Elías Bjamason það var tíu ára dóttir hans, Elísabet Bima, sem skírði bátinn, en hann hlaut nafn- ið Dímon. Heimili hans er í Höfnum og einkennisstafir GK 35. Dímon er 25 lestir að stærð og var byrjað að smíða hann í apríl sl. Þetta er stálbátur, og annaðist Stál- skipasmiðjan alla smíði hans, nema tréverk sem Sverrir Gunnarsson skipasmiður sá um, en raflagnir annaðist Ás- laugur Bjarnason rafvirkja- meistari. Framkvæmdastjóri skipasmiðjunnar h.f. ur H. Jónsson. Stál- Ól*f- gömul reynsla sem alltaf endur- tekur sig, að eftir nokkurra ára samdrátt í íbúðabyggingum taka þær kipp á nýjan leik. Við Is- lendingar höfum búið við áber- andi og hættulegan samdrátt í íbúðabyggingum allt frá 1960 að „viðreisnin“ hófst. Þess vegna búum við við húsnæðisskortixih i dag og það okurverð á íbúð- um og leigu sem raun ber vitni. Góðærið sem óvenjuleg afla- brögð hafa skapað og auknir tekjumöguleikar með þvi að leggja á sig takmarkalitla auka- vinnu hafa í ár brotið skörð í stífluna og hrundið auknum í- búðabyggingum af stað. Öfull- nægð húsnæðisþörf hafði hlaðizt upp undanfarin þrjú viðreisnar- ár og fólk er i öðaönn að reyna að fullnægja henni þrátt fyrir alla erfiðleika. —Hverjar eru horfur nú i lánsfjármálum? — Þær eru þvi miður ekki góðar. Samkvæmt yfirlýsingum ríkisstjómarinnar eiga aðeins 110 millj. kr. að koma til lán- veitinga á vegum Húsnæðis- málastjómar á þessu ári. Af þeim hafa þegar verið veittar 86 millj. og þvi einungis eftir að lána 24 millj. kr. það sem eftir er ársins. Þessi upphæð er þó ekki tryggð enn og allt í ó- vissu um hvenær lánveiting get- ur farið fram. En höfuðatriðið er að fjárhæðin er gjörsamlega ófullnægjandi miðað við núver- andi aðstæður. Þreföld þessi Framhald á 2. síðu. Bjarni Ben. arftaki Ólafs Thors Við tíðindin nm lausnar- beiðni Ólafs Thors má því bæta, að þingflokkur Sjálf- stæðisflokksins mun hafa samþykkt að fela Bjarna Benediktssyni, dómsmála- ráðherra, að taka við starfi Ólafs. Skýrði útvarpið frá * Þessu í gærkvöld, og einn- ig þvi, að þingflokkur Al- þýðuflokksins muni hafa lýst yfir hollustu við rík- isstjóm undir forsæti Bjarna Ben. í stað Ólafs Thors.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.