Þjóðviljinn - 13.11.1963, Síða 1
ViÐRÆÐUR AÐ BYRJA
■ Tveir ráðherranna, Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra og
Emil Jónsson félagsmálaráðherra, hafa nú hafið viðræður við full-
trua atvinnurekenda og launþega af hálfu ríkisstjórnarinnar og
ræddu þeir í gærmorgun við fulltrúa frá verkalýðshreyfingunni.
■ Viðræðurnar snerust einvörðungu um tilhögun þeirra samn-
ingaumræðna sem fyrirhugaðar eru.
■ Samningafundur með fulltrúum frá verkamannafélögunum,
landsnefndarfélögunum, og fulltrúum atvinnurekenda er ákveðinn á
morgun, fimmtudag, kl. 4 eftir hádegi.
ÓLAFUR THORS
BIÐST LAUSNAR
Þjóðviljanum bars't í gær eftirfarandi
fréttatilkynning frá forsætisráðherra:
„Læknar mínir hafa tjáð mér, að mér sé
nauðsynlegt að taka mér algera hvíld frá
störfum í nokkra mánuði. Ég get því ekki
unnið að lausn hinna ýmsu vandamála, sem
framundan bíða.
Haustið 1961 stóð svipað á fyrir mér. Tók
ég mér þá hvíld frá störfum í þrjá mán-
uði. Ég tel ekki rétt að hafa sama hátt á nú
og hef því ákveðið að biðjast lausnar frá
embætti mínu.
Reykjavík, 12. nóv. 1963.
Ólafur Thors.“
Krafízt frá-
vísunar á
Milwoodmáli
7. NÓV. SL. er MUwoodmálið
vap tekið til munnlcgs mál-
flutnnings bar verjandi Johns
Smith skipstjóra, Gísli G. Is-
leifsson hdl., fram þá kröfu
fyrir hönd skjólstæðings síns
að málinu yrði vísað frá
dóminum þar eð ekki væri
hægt samkvæmt íslcnzkum
lögum að dæma fjarverandi
mann.
FKAVlSUNARKRAFAN var
send saksóknara ríkisins.
Valdimari Stefánssyni. til at-
hugunar og fyrirsagnar og
skýrði hann Þjóðviljanum
svo frá í gær að úrskurður
myndi felldur um kröfuna á
næstunni.
Fríhafnarmálið
sent til sak-
sóknara ríkisins
Samkvaemt upplýsingum Harð-
ar Helgasonar deildarstjóra ‘
varnarmáladeild utanríkisráðu-
neytisins verða skýrslur rífcis-
endurskoðunarinnar um Fríhafn-
armálið svonefnda sendar sak-
sóknara ríkisins einhvern næstu
daga til fyrirsagnar. en sem
kunnugt er er mál þetta þannig
vaxið að ríkisendurskoðunin
komst að því fyrir nokkru að
gjaldkeri fríhafnarinnnar á
Keflavíkurflugvellii hafði gerzt
sekur um stórfelldan fjárdrátt í
starfi sánu. _
Nefnd til að
rannsaka um-
ferðarslys
Fréttatilkynning frá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu 11. nóv-
ember 1963:
Dómsmálaráðherra hefur í dag
ákveðið að skipa nefnd til þess.
að rannsaka orsakir hins sívax-
andi fjölda umferðarslysa og að
gera tillögur um ráðstafanir til
úrbóta.
í nefndinni eru: Lögreglustjór-
inn í Reykjavík, sem er formað-
ur nefndarinnar. vegamálastjór-
inn og fors.töðumaður bifreiðaeft-
irlits ríkisins, en jafnframt hafa ■
Slysavamafólag íslands, Félag ís- I
lenzkra bifreiðaeigenda og félög
atvinnubifreiðastjóra verið beðin
að tilnefna fulltrúa í nefndina. 1
95-100 MILLJÓNIR VANTAR TIL
AÐ FULLNÆGJA LÁNAÞÖRFINNI
■ Fyrjr röskum mánuði voru fyrirliggjandi hjá
Húsnæðismálastofnun ríkisins um 1400 umsóknir
um lán til íbúðabygginga í kaupstöðum og kaup-
túnum landsins.
SS Hefur umsóknum fjölgað enn síðan og mun láta
nærri að þær séu nú ekki færri en 1700. Heildarláns-
fjárhæðin sem sótt er um nam í septemberlok um 140
millj. króna, þar af 87,3 millj. til fbúða sem eru fokheldar
eða lengra komnar og því í lánshæfu ástandi. Upphæðir
þessar hafa hækkað verulega síðan þar sem daglega ber-
ast nýjar umsóknir og viðbótarumsóknir og vottorð um
að hús og íbúðir, sem sótt er um lán út á séu komin í
fokhelt ástand.
Þjóðviljinn fékk þessar upp-
lýsingar hjá Guðmundi Vigfús-
syni borgarfulltrúa. en hann á
sem kunnugt er sæti í Húsnæð-
ismálastjóm. Innti blaðið hann
eftir fréttum af ástandi og horf-
um í lánsfjármálum húsbyggj-
enda í tilefni af þeim mikla og
vaxandi skorti á íbúðarhúsnæði
sem almenningur á nú við að
stríða.
— Eftirspumin eftir lánsfé er
mikil og vaxandi, enda hafa
engar lánveitingar farið fram
hjá Húsnæðismálastjóm síðan í
apríl s.l. er lánaðar voru 86
millj. kr. Þegar talning lánsum-
sókna fór fram 30. september
s.l. lágu fyrir 1391 umsókn og
heildarupphæð lánsbeiðna nam
139 millj. 393 þús. kr. Þar af
var sótt um 54,5 millj. út á íbúð-
ir sem ekki höfðu þá vottorð
um að vera komnar í fokhelt
ástand, en það er skilyrði fyrir
að lánveiting sé heimil. Um-
sóknir út á lánshæfar íbúðir
námu því samkv. þjessu 87,3
millj. kr. og tala þeirra íbúða
var 1087.
Þessar tölur hafa allar hækk-
að verulega síðan 30. sept. Dag-
lega berast nýjar umsóknir um
lán eða viðbótarlán og nær dag-
lega berast vottorð um að íbúð-
ir séu orðnar fokheldar og þar-
með lánhæfar. Mér kæmi ekki
á óvart þó raunveruleg lánsfjár-
þörf næmi nú 95 — 100 millj.
króna.
— Er meira byggt í ár en
— Á því leikur varla vafi. Má
draga þá ályktun bæði af vax-
andi fjölda umsókna hjá hús-
■næðismálastj óm og stóraukinni
sölu teikninga frá húsnæðis-
málastofnuninni. Sala teikninga
á vegum stofnunarinnar hefur
verið meiri á þessu ári en
nokkru sinni fyrr. Að vísu er
það ekki öruggur mælikvarði á
fjölda íbúða í byggingu, þar
sem menn virðast nú fyrst vera
að átta sig almennt á þessari
þjónustustarfsemi Húsnæðis-
málastofnunarinnar. En það er
Stálbátur smíðaður
íKópavogi
Fyrsta bátnum sem Stál-
skipasmiðjan h.f. í Kópavogi
smíðar var hleypt af stokk-
unum sl. laugardag.
Daginn áður hafði hann
verið skirður við hátíðlega
athöfn að viðstöddum gest-
um. Eigendur bátsins eru
Sveinn Jónsson, Höfnum. og
Gísli Þorsteinsson, Þorláks-
höfn. Skipstjóri á bátnum
verður Elías Bjamason
það var tíu ára dóttir hans,
Elísabet Bima, sem skírði
bátinn, en hann hlaut nafn-
ið Dímon. Heimili hans er í
Höfnum og einkennisstafir
GK 35.
Dímon er 25 lestir að
stærð og var byrjað að smíða
hann í apríl sl. Þetta er
stálbátur, og annaðist Stál-
skipasmiðjan alla smíði hans,
nema tréverk sem Sverrir
Gunnarsson skipasmiður sá
um, en raflagnir annaðist Ás-
laugur Bjarnason rafvirkja-
meistari.
Framkvæmdastjóri
skipasmiðjunnar h.f.
ur H. Jónsson.
Stál-
Ól*f-
gömul reynsla sem alltaf endur-
tekur sig, að eftir nokkurra ára
samdrátt í íbúðabyggingum taka
þær kipp á nýjan leik. Við Is-
lendingar höfum búið við áber-
andi og hættulegan samdrátt í
íbúðabyggingum allt frá 1960
að „viðreisnin“ hófst. Þess vegna
búum við við húsnæðisskortixih
i dag og það okurverð á íbúð-
um og leigu sem raun ber vitni.
Góðærið sem óvenjuleg afla-
brögð hafa skapað og auknir
tekjumöguleikar með þvi að
leggja á sig takmarkalitla auka-
vinnu hafa í ár brotið skörð í
stífluna og hrundið auknum í-
búðabyggingum af stað. Öfull-
nægð húsnæðisþörf hafði hlaðizt
upp undanfarin þrjú viðreisnar-
ár og fólk er i öðaönn að reyna
að fullnægja henni þrátt fyrir
alla erfiðleika.
—Hverjar eru horfur nú i
lánsfjármálum?
— Þær eru þvi miður ekki
góðar. Samkvæmt yfirlýsingum
ríkisstjómarinnar eiga aðeins
110 millj. kr. að koma til lán-
veitinga á vegum Húsnæðis-
málastjómar á þessu ári. Af
þeim hafa þegar verið veittar
86 millj. og þvi einungis eftir
að lána 24 millj. kr. það sem
eftir er ársins. Þessi upphæð er
þó ekki tryggð enn og allt í ó-
vissu um hvenær lánveiting get-
ur farið fram. En höfuðatriðið
er að fjárhæðin er gjörsamlega
ófullnægjandi miðað við núver-
andi aðstæður. Þreföld þessi
Framhald á 2. síðu.
Bjarni Ben.
arftaki
Ólafs Thors
Við tíðindin nm lausnar-
beiðni Ólafs Thors má því
bæta, að þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins mun hafa
samþykkt að fela Bjarna
Benediktssyni, dómsmála-
ráðherra, að taka við starfi
Ólafs. Skýrði útvarpið frá
* Þessu í gærkvöld, og einn-
ig þvi, að þingflokkur Al-
þýðuflokksins muni hafa
lýst yfir hollustu við rík-
isstjóm undir forsæti
Bjarna Ben. í stað Ólafs
Thors.