Þjóðviljinn - 19.11.1963, Page 1
Þriðjudagur 19. nóvember 1963 — 28. árgangur — 245. tölublað.
Málflutningi frestað / gær
■ Að flutningi olíumálsins svonefnda er nú komið í Hæstarétti.
Stóð til að máflutningurinn hæfist í gærmorgun, en vegna veikinda
varð að fresta honum. Má gera ráð fyrir að málflutningurinn geti
hafizt í dag með því að saksóknari ríkisins, Valdimar Stefánsson,
hefji flutning sóknarræðu sinnar. Þetta er mjög umfangsmikið
mál og má því eins búast við að málflutningur taki marga daga.
••
MOKKURINN
RÍS HÆST
★ Eldgosið við Vestmannaeyjar heldur áfram af auknum krafti og
befur mökkurinn aldrei verið ferlegri en i gærdag.
★ Var hann baeði stærri að ummáli og hefur aldrei risið eins hátt
eða níu til tíu kílómetra. Það var upp fyrir veðrahvörf í gærdag.
Sumir álíta, að þetta stafi af hagstæðara veðri; en á þessum slóð-
un var hæg norðaustan átt í gær og nær heiðskírt.
★ Þá eru sprengingar taldar tíðari og hefur sprengjuhljóð borizt
til Eyja í mestu sprengingunum og það þótt á móti vindi sé.
★ Asl I Bæ hélt til gosstöðvanna i gærmorgun við þriðja mann
á litlum báti og virtist honum eyjan vera orðin sex hundruð metr-
ar á lengd og hálfhringlaga í laginu og vall sjórinn inn í gíginn
um tvð skörð.sem virtust smám saman vera að fyllast upp
★ Hæð eyjarinnar hefur lítið breyzt og virðist vera milli fjörutíu
og fimmtíu metrar, þar sem hún rís hæzt norðaustan til á eyj-
unni. Minni hóll er hinummegin á eyjunni. Eru hólamir svartir að
lit og svo mun eyjan vera öl.
Yngsta eyjan við ísland
SAMSTADA NAÐIST UM
SAMNINCAMÁUN
AS forða
þjófnaði
1 gær var frumvarpi
Einars Olgeirssonar um
breytingu á lögum um
áburðarverksmiðju rikis-
ins vísað til annarrar um-
ræðu í neðri deild og
nefndar. en Iengra hefur-
þetta mikilvæga mál aldr-
komizt.
Frumvarpið miðar að
þeirri breytingu einni, að
úr því verði endanlega
skorið, að þessi verksmiðja
sé almenningseign en á því
hafa orðið nokkrar vöflur.
Miðstjóm Alþýðusambands íslands samþykkti
fyrir viku, á fundi sínum á mánudagrskvöld, að
boða til fundar með fulltrúum þeirra ýmsu starfs-
greina sem nú em að hefja samningaumræður til
þess að efla samstöðu verkalýðsfélaganna í samn-
ingnnum.
Fundir fulltrúanna stóðu á
föstudag og sunnudag og barst
Þjóðviljanum í gær þessi frétta-
tilkynning frá Alþýðusambandi
íslands um árangurinn:
„Eins og áður hefur verið frá
skýrt hefur að undanförnu ver-
ið unnið að því, að verkalýðs-
samtökin gætu komið fram sem
samstæð heild við samnings-
gjörð þá um kjaramálin, sem
nú fer í hönd og stefnt er að
að Ijúki fyrir 10. desember n.k.
— Er nú fullráðið, að þau fé-
lög sem nánasta samleið eiga
standi sameiginlega að samn-
ingaviðræðum.
Eina heildina mynda félög ó-
faglærðs verkafólks, aðra verzl-
unarfólks. þá félög málmiðnað-
armanna og skipasmiða, félög
byggingariðnaðarins, bókagerðar-
menn, svo og Iandsfélag
rafvirkja og mjólkurfræðingar.
Ekki er enn fullráðið hvernig
málum nokkurra stéttarfélaga
verði skipað.
Til nánara samstarfs og sam-
ræmingar í samningagerðinni
hefur verið ákveðið, að fulltrúar
frá þessum hópum myndi sam-
eiginlega nefnd, er fjalli um
sameiginleg vandamál, sem
upp kunni að koma, og stuðli
að samræmingu í samningagerð-
inni“.
Framhald á 2. síðu.
FORSETI ÍSLANDS OG FÖRUNEYTI HÍLT í OPINBERA
HEIMSÓKN TIL BRETLANDS í GÆRMORGUN
Forsætisráðherra Bretlamds, Sir Alec Bouglas-Home, tók ásamt fleiri brezkum tignarmönnum á móti forseta íslands, hr. Ásgeiri
Asgeirssyni, er hann kom til Lundúna síðdegis í gær. Frá för forseta er nánar skýrt á 2. síðu, en myndin var tekin á Reykjavíkur-
flugvelli í gærmorgun, er handhafar forsetavalds, forseti Hæstaréttar, forseti sameinaðs Alþingis og forsætísráðherra kvöddu for-
•eta og óskuðu bomuu fararheáMa. Frá ivinstri: Þórður Eyjólfsson, Birgir Finnsson, forsetinn og Bjarni Benediktsson.
ÞESSA MYND tók Þorieifur Einarsson jarðfræðingur siðdegis á'
Iaugardag á gosstöðvunum við Vestmannaeyjar og sést cýjan
sem myndazt hefur við gosið vel á myndinnL Er það norðvestur
gígbarmurinn sem myndin er af og stígur reykur upp af gjallinu.
ÞJÓÐVIJINN átti í gær stutt spjall við Þorleif um gosið og fékk
einnig hjá bonum fleiri myndir af þvi tii birtingar.
Sjá 12, síðu,
GERIÐSKIL
í HÞ 1963
■ Áskrifendum Þjóðvíljans í Reykjavík og Kópa-
vogi hafa nú verið sendir miðar til sölu í Happ-
drætti Þjóðviljans 1963 og verið er að senda miða
út á land. Væntir blaðið þess að menn bregðisl
vel við og hefjist þegar handa þar eð tíminn ei
stutíur. Er æskilegt að menn geri skil fyrir seld-
um miðum sem allra fyrst. Þannig geta menn t.d
gert skil í tvennu lagi fyrir þeim miðum sem þeii
hafa fengið senda. Skrifstofa happdrættisins ei
að Týsgötu 3, sími 17514, og er hún opin kl. 9—12
og 13—18 daglega.
■ Aðalvinningurinn er sem kunnugt er fokheld
4ra herbergja íbúð en auk þess 10 ágætir auka-
vinningar, þar á meðal vegghúsgögn frá Axel Eyj-
ólfssyni fyrir kr. 5000,00 og sjást þau hér á mvnd-
inni. Hinir aukavinningarnir verða kynntir j
næstu blöðum.