Þjóðviljinn - 22.11.1963, Blaðsíða 1
Föstudagur 22. nóvember 1963 — 28. árgangur — 248. tölublað.
Slíta Sovétríkin og Kongó
senn stjórnmálasambandi?
Sjá síðu 0
Skiladogur í HÞ '63 í dag
★ 1 dag er almennur skiladagur í Happdrætti Þjóðviljans 1963
og mjög æskilegt að allir sem fengið hafa senda miða og búnir eru
að selja eitthvað af þeim geri upp fyrir söluna í dag. I tilefni af
skiladeginum verður skrifstofa happdrættisins að Týsgötu 3 opin
lengur í dag en venjulega eða kl. 9—12 og 13—20. Sími skrifstof-
unnar er 17514.
★ Eins og áður hefur verið sagt eru auk hins glæsilega aðalvinn-
ings, fjögurra herbergja fokheldrar íbúðar, 10 verðmætir auka-
vinningar Þar af eru fjögur ferðalög og eitt þeirra er flugferð
með Loftleiðum til London og heim aftur en verðmæti þessa vinn-
ings er kr. 7.000.00.
★ Myndin sem hér fylgir er einmitt frá London en þar er sem
kunnugt er margt frægra og fagurra bygginga sem gaman er að
skoða auk alls annars sem stórborgin hefur upp á að bjóða fyrir
ferðamenn.
Pólifisk valdbeifing af hálfu Islands gegn iþróffafólki
AUSTURÞÝZKU SUNDFÓLKI
MEINAÐ AÐ KOMA HINGAÐ
□ íslenzk yfirvöld ráða því ekki lengur hvaða útlendingar fá að heim-
sækja ísland. Boð og bann Atlanzhafsbandalagsins og ótti við vesturþýzku
stjórnina hefur valdið því að íslenzka utanríkisráðuneytið neitar nú að
leyfa hingaðkomu austurþýzks sundfólks, sem boðið var hingað til þátt-
töku í sundmóti Ármanns.
Sunddeild Glímufélagsins Ár-^
manns hefur um langt árabil
haft íþrótta-samskipti við sund-
félagið .,Empor” í Rostoik, sem
hefur margt af ágaetu sund-
fólki innan sinna vébanda. Sund-
fólk úr Ármanni og úr ýms-
um öðrum ísilenzkum íþróttafé-
lögum hefur verið boðið til
keppni á sundmótum í Austur-
Þýzkalandi, og íþróttaunnendur
hér heima muna eftir mörgum
ánægjulegum sundmótum hér
með þátttöku austurþýzks sund-
fóliks. Að þessu sinni var von
á 4 Austurþjóðyerjum. og var
þegar búið að velja hópinn.
Framhald á 2. síðu.
.Ur dagbók lífsins"
Ný íslenzk kvikmynd gerð
um glapstigu unglinganna
Gosii virðist nú
færast í aukana
Þjóðviljinn átti í gær stutt viðtal við Þorleif
Einarsson jarðfræðing sem var staddur um borð
í varðskipinu Óðni í námunda við gosstöðvamar
við Vestmannaeyjar. Innti blaðið hann frétta af
gosinu og sagði Þorleifur að um hádegi í gær hefði
orðið vart talsverðrar breytingar á því og virtist
sér það hafa vaxið til muna.
A morgun. laugardag, verður
frumsýnd í Tjarnarbæ íslenzk
kvikmynd, er nefnist tJr dag-
bók lífsins. Er það Magnús Sig-
urðsson, skólastjóri, sem mynd-
ina lætur gera, en til þess hef-
ur hann notið aðstoðar fjöl-
margra aðila. Myndinni er í
stuttu mált sagt ætlað að benda
á nokkrar orsakir til þess, að
böm lenda á glapstigum.
Myndinni er skipt í tvo höf-
uðkafla. Fyrri hlutinn, svart-
hvítur er tekinn hér í Reykjavík
Er þar lýst nokkrum orsökum
þess, að böm lenda á hálum is.
og liggja raunverulegir atburð-
ir til grundvaillar hverju atriði.
Ekki er sú lýsing fögur, enda
mun það mála sannast, að allur
þorri fólks — svo ekkii sé nú
minnst á stjómarvöld — geri
sér enga grein fyrir því, hve
mikið vandamál er hér á ferð-
inni.
Síðari helmingi myndarinnar er
ætlað að sýna hvernig nágranna-
þjóðir okkar, Svíar og Danir,
búa að vandræðaunglingum. svo-
nefndum, og að síðustiu er mynd
frá vistheimilinu að Breiðuvík.
Óskar Halldórsson hefur talað
inn á fyrrihluta myndarinnar, en
Sigurbjörn Einarsson biskup og
Pétur Pétursson inn á þann síð-
ari.
Hér er um að ræða merka
mynd, sem fflestir ættu að sjá.
Einkum ætti fyrrihlutinn að geta
vakið fólk ti'l einhverrar umhugs-
unar. Þar er drepið á fjölmörg
atriði, sem leitt geta unglinga
á glapstigu. og hvergi bregður
fyrir þeirri vaamni, sem a,lla
jafna einkennir borgaralega góð-
gerðastarfsemi og því miður hef-
ur slæðst inn í síðari hluta mynd-
arinnar. Að lokum má geta þess,
að ekki hefði það sakað þóttsvo
sem einn braggi, svo ekki sé
nu minnst á Selbúðir og Suður-
pól, hefði sést á myndinni, en
það mun fullvíst að Iangstærst-
ur - hluti afbrotaunglinga komi úr
slíkum hverfum.
Þorleifi sagðist svo frá að í
fyrrakvöid hefðu sézt a'limdklar
eldingar í gosmekkinum og
fylgdu þeim þrumur. Sáust eld-
ingamar vel fráj Vestmanna-
eyjum. f gærmorgun fór Þor-
leifur um borð í Óðinn og fylgd-
ist þaðan með gosinu í gær.
Sagði hann að í gærmorgun
hefði verið fremur rólegt á gos-
stöðvunum. Þó hefðu verið mikl-
ar sprengingar í suðvestur hluta
gossprungunnar og þeyttust
sprengjubólstrarnir um 800
metra í loft upp. Smærri en
tíðari sprengingar voru þá að
norðaustan verðu.
Munið húsnæðismálaráðstefnu
/Eskulýðsfylkingarinnar á morg-
un, laugardag kl. 4 e.h. í Tjarn-
argötu 20.
ÆFR.
tJm hádegi varð greinileg
breyting á gosinu. Hættu
sprengingar þá með öllu í suð-
vestur hluta gossprungunnar en
aska, vikur og gjall tóku að
streyma viðstöðulaust upp úr
gígnum og þeyttust í bylgjum
uppeftir gosbólstrunum. Um
líkt leyti heyrðust miklar
sprengingar í norðausturgígun-
um. Taldi Þorleifur að gosmagn-
ið hefði aukizt við þessa breyt-
ingu.
Þorleifur sagði að eyjan hefði
bæði hækkað og stækkað tals-
vert síðan á laugardag er jarð-
fræðingarnir yfirgáfu gosstöðv-
arnar. Er eyjan nú orðin 70
metra há þar sem hún rís hæst
að sunnanverðu og lengd henn-
ar orðin 700 til 800 metrar. Hins
vegar hefur ekki reynzt unnt
að mæla breiddina með nokk-
urri vissu vegna þess hvernig
gosmökkurinn liggur. f gær-
morgun kl. 10.30 var hæðin á
gosmökknum 9 kílómetrar.
Að lokum sagði Þorleifur að
enn streymdi sjór inn i gígana
og ekki heyrðust neinar gos-
drunur frekar en áður. Einnig
sagði hann að það væri ekkert
að ráði sem flyti á sjónum
af vikri. ^Norðanátt var við Eyj-
ar í gær og vont í sjóinn.
Stefán Jónsson
Skemmtí- og
spi/afundur
Sósíalistafélag Reykjavík-
ur heldur spila- og skemmti-
fund í kvöld kl. 8,30 í
Tjamargötu 20.
Stefán Jónsson rithöfund-
ur les upp úr verkum sán-
um. Kvennfél.konur standa
fyrir veitingum.
Fjölmennið og takið með
ykkur gesth —
Stórtjón af
eldsvoóa í
Aðaldal
Sl. sunnudag kom upp el(f-
ur í verkfærageymslu að bæn-
um Miðhvamml í Aðaldal em
bóndi þar er Arinbjöm Kjart-
ansson. Var Arinbjöm að vinna
í geymslunni og var með log-
andi prímus. Gekk hann frá
stundarkom en er hann kom
aftur til baka stóð geymslan í
björtu báli.
Brann geymslan og allt sem í
henni var, þar á meðal Volks-
wagenbíll, dráttarvél, snúnings-
vél og fleiri tæki. Var allt ó-
vátryggt nema dráttarvélin og
hafur bóndinn því orðið fyrir
stórkostlegu tjóni. Helzt er hald-
ið að prímusinn hafi sprungið
og síðan kviknað í út frá spreng-
ingunni.
Þessi hryllilega mynd sínir unga, skemmtanafíkna móður gefa ungbami sínu svofnlyf, áður en hún
fer sjálf út að skemmta sér. Móðirin er leikin af Hrafnhild* Guðmundsdóttur,
□ Samningafundir eru nú haldnir daglega í
kaupdeilunum. Á miðvikudagskvöld var fundur
fulltrúa landsnefndar verkamannafélaganna og
verkakvennafélaganna með fulltrúum atvinnu-
rekenda. Næsfi fundur þeirra aðila hefur verið
boðaður kl. 4 síðdegis á morgun, laugardag.
O í gær voru fulltrúar málmiðnaðarmanna og
skipasmiða og bókagerðarmanna á samningafund-
um í þeim greínum, og hófusf fundirnir kl. 5
síðdegis.