Þjóðviljinn - 23.11.1963, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 23.11.1963, Blaðsíða 1
Stutt æviágríp hins iátna Bandaríkjaforseta ásamt minningarorðum á 3. síiu KENNEDYMYRTURITEXAS Skotinn til bana þegar opin bifreið hans ók um eina aðalgötuna í Dallas í Texas. riffilkúlan hœfði hann í vinstra gagnauga og hann lézt skömmu síðar á sjúkrahúsi DALLAS, Texas 22/11. — John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, lézt í sjúkrahúsi hér í dag kl. um 1 eftir hádegi að staðartíma (kl. 18 að íslenzk- um tíma). Hálfri klukkustund áður hafði kúla úr byssu tilræðismanns hæft hann í höfuðið. Nánari atvik tilræðisins eru enn óljós. Forsetinn var ásamt konu sinni á leið frá flugvelli inn í borgina og óku þau í opnum bíl með fylkis- stjóranum John Connally og frú hans. í öðrum bíl var Lyndon B. John- son varaforseti. t*egar bílalestin ók um fjölfarna götu í miðbiki borgar- innar, þar sem saman var komið margmenni að hylla forsetann, kváðu allt í einu við þrjú byssuskot, hvert af öðru. Eitt skotið hæfði forsetann í vinstra gagnaugað og hné hann þegar niður í sæti sínu og lagði alblóðugt höfuðið í kjöltu konu sinnar, sem við hlið hans sat. Tvær kúlur hæfð j Connally fylkisstjóra. Bíl þeirra var þegar ekið til sjúkrahúss, en lífi forsetans varð ekki bjargað; hann lézt rúmri hálfri klukkustund síða*’ án þess að hafa fengið meðvitund, en fy’kisstjórinn lá enn þungt haldi m, þegar síðast fréttist. Frásagnir sjónarvotta aí þess- um atburði eru annars mjög á reiki og stangast á hver við aðra. Samkvæmt einni þeirra komu skotin frá þriðju hæð byggingar einnar, en annar sjón- arvottur er borinn fyrir því að um leið og skothvellirnir gullu við, hafi hann séð byssu dregna inn á sjöttu hæð í húsinu. Lítili vafi virðist þó leika á þvf að tilræðismaðurinn eða mennimir hafi búið um sig í þessu húsi. Bílum snúið við Allt komst á ringulreið þegar skotin féllu. Samkvæmt einni frétt. sem þó er óstaðfest, reyndi einn af lögreglumönnunum í föruneyti forsetans að svara skotunum, en var þá sjálfur skotinn til bana. Bílum forsetans og varaforset- ans var snúið við. en aðrir bíi- ar í lestinni héldu áfram. Ekið var með forsetann til Parklands- sjúkrahússins. Hann var enn með lífsmarki þegar þangað kom. en komst aldrei til meðvit- undar. enda hafði kúlan hæft hann beint í höfuðið. Skotin sem hæfðu Connally fylkisstjóra voru ekki jafnhættu- leg og var talin von til þess að lífi hans yrði bjargað, þótt hann væri þungt haldinn. Líkið flutt til Washington Kona Kennedys, Jacqueline, sat við banabeð hans þar til hann gaf upp andann. Áður höfðu ver- ið kvaddir til kaþólskir prestar og veittu þelr honum h'ina síðustu smumingu. þegar ljóst var hvemig fara myndi. Lfk hans var borið úr spítal- anum út í bifreið og fylgdi kona hans því; föt hennar voru al- blóðtig. Ekið var til fiugvallar- ins og likið flutt heim til Wash- ington. Johnson sver embættiseið Johnson varaforsefci fór mcð í flugvélinni og í henni sór hann embættiseið sinn sem 36 forseti Bandaríkjanna. Hann sór eið sinn fyrir héraðsdómara, Sarah T. Hughes að nafni. Morðingja leitað I húsi því sem skotin komu úr fundust á sjöttu hseð matarleif- ar og annað1 sem benti til þess að þar hefðu tilræðismaðurinn eða tilræðismennimir búið um sig í nokkra daga. Ýmsar sögur fóru af því af hvaða gerð morðvopnið hefði verið, var fyrst talað um brezk- an riffil, síðan um bandarísk- an eða japanskan herriffil og loks um þýzkan riffil af Maus- ergerð. Öllu tiltæku lögregluliði Bandaríkjanna var þegar í stað fyrirskipað að hefja leit að morðingjanum. „Nú er öllu lokið“ Fjöldi manna var tekinn höndum og yfirheyrður, en sá fyrsti sem nafngreindur var, er 24 ára gamall Texasbúi, Lee Harvey Oswald að nafni. Haft var eftir lögreglunni að sterk- ur grunur lægi á honum fyr- ir hlutdeild í tilræðinu. Hann var handtekinn í kvik- myndahúsi einu i Dallas, en fyrir utan húsið hafði fundizt lik lögreglumanns. Oswald þessi dvaldist nokkurn tíma i Sov- étríkjunum fyrir fjórum árum og hafði þá við orð að sækja um þegnrétt þar. Hann hvarf þó aftur heim og er sagður hafa verið framámaður í sam- tökpm Kúbuvina. í frétt frá bandarísku upplýsingaþjónust- unni sem barst um miðnættið var hann ekki nafngreindur, en aðeins sagt að „24 ára gamall maður væri undir yfirheyrslu í Dallas til að ganga úr skugga um hvort hann hefði átt nokk- um þátt í morðinu“. Eins og áður segir hafa fleiri menn verið handteknir, þ.á.m. einn i Fort Worth. en þegar síð- ast fréttist var ekkert vitað með vissu um hvort þeir hefðu verið við morðið riðnir. Útför á mánudag Lík Kennedys forseta mun að öllum líkindum verða lagt á við- hafnarbörur í Washington á sunnudag og líklegt þykir að út- förin fari þegar fram á mánu- daginn. þótt það hafi enn ekki verið ákveðið. Bræður hans Edward öldunga- deildarmaður, Robert dómsmála- ráðherra og systir hans Eunice héldu þegar til Dallas þegar þeim bárust sorgartíðindin. Ro- bert var þá í forsæti í öldunga- deildinni i forföllum Johnsons varaforseta. Foreldrar hans fengu fregnina i Hyannisport i Massachusetts, en þau áttu von á syni sínum þangað á fimmtudaginn i næstu viku. Maður sem var að vinnu i garði þeirra heyrði fréttina f útvarpi og bar þeim tíðindin, bióðarsorg Það er ekki ofmælt að þjóðar- sorg hafi orðið i Bandaríkjun- um þegar fregnin af sviplegu láti forsetans barst um þau. og hann er einnig harmaður víða um heim. eins ög getið er annars staðar i blaðinu. Þögn sló á fólk begar fregnin barst og það mátti lesa á svip þess að þvi veittist erfitt að trúa því. að hinn ungi forseti væri látinn. John FitzgeraJd Kennedy Sviplegt fráfall Kennedys harmað mjög um allan heim Allur heimurinn komst í uppnám í gær, þegar frétt- in um lát Kennedys barst út. Útvarpssendingar voru stöðvaðar hvarvetna til þess að flytja fréttina. Útvarpið í Moskvu gerði hlé á dagskránni til þess að lesa fréttina. Var gefið í skyn, að hægrisinnuð öfl muni standa á bak við morðið á forsetanum. Eftir að fréttin hafði verið flutt voru leikin sorgarlög. Var minnzt á það í útvarpinu, að leiðtogar Sovétríkjanna hefðu alltaf gert greinilegan mun á Kennedy og bandarískum stríðs- æsingarmönnum. Greinilegt var á öllum ummælum í útvarpinu, að hinn ungi forseti átti mjög miklum vinsældum að fagna meðal æðstu manna í Sovétríkj- unum. Rikisstjóm Sovétríkjanna mun ekki láta í ljós skoðun á mál- inu fyrr en morðið hefur verið rannsakað fyllilega. Mikill mannfjöldi safnaðist framan við bandaríska sendiráð- ið í Moskvu til þess að votta samúð sína. Er fregnin um morðið barst í Páfagarð, dró páfinn sig sam- stundis í hlé til þess að biðja fyrir hinum látna. Hann sagð- ist vera skelfingu lostinn. De Gaulle forseti Frakklands lét svo um mælt. er hann heyrði fréttina, að Kennedy hefði dáið eins og hermanni sæmi, fallið fyrir kúlu er hann var að gegna skyldum sínum við föðurlandið. Ludwig Erhard forsætisráð- herra Vestur-Þýzkalands, er átti að eiga fund með Kennedy á sunnudaginn. vottaði Bandaríkj- unum samúð sína. Andlátsfregnin olli og mlkilli sorg í London. Útvarpið rauf dagskrána strax og fréttin barst til þess að lesa hana. Elísabet drottning settist niður, strax og henni barst fréttin, til þess að skrifa fjölskyldu Kennedys sam- úðarkveðju. Forseti fslands, herra Ásgeir Ásgeirsson. sem staddur er í Lundúnum að lokinni opinberri heimsókn i Bretlandi sendi f kvöld Lyndon B. Johnson for- seta Bandaríkjanna, samúðar- kveðjur vegna fráfalls Kenne- dys Bandaríkjaforseta og bað Framhald á 3. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.