Þjóðviljinn - 23.11.1963, Qupperneq 1
Stutt æviágríp hins iátna
Bandaríkjaforseta ásamt
minningarorðum á 3. síiu
KENNEDYMYRTURITEXAS
Skotinn til bana þegar opin bifreið hans
ók um eina aðalgötuna í Dallas í Texas.
riffilkúlan hœfði hann í vinstra gagnauga
og hann lézt skömmu síðar á sjúkrahúsi
DALLAS, Texas 22/11. — John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, lézt
í sjúkrahúsi hér í dag kl. um 1 eftir hádegi að staðartíma (kl. 18 að íslenzk-
um tíma). Hálfri klukkustund áður hafði kúla úr byssu tilræðismanns
hæft hann í höfuðið.
Nánari atvik tilræðisins eru enn óljós. Forsetinn var ásamt konu sinni
á leið frá flugvelli inn í borgina og óku þau í opnum bíl með fylkis-
stjóranum John Connally og frú hans. í öðrum bíl var Lyndon B. John-
son varaforseti. t*egar bílalestin ók um fjölfarna götu í miðbiki borgar-
innar, þar sem saman var komið margmenni að hylla forsetann, kváðu
allt í einu við þrjú byssuskot, hvert af öðru.
Eitt skotið hæfði forsetann í vinstra gagnaugað og hné hann þegar
niður í sæti sínu og lagði alblóðugt höfuðið í kjöltu konu sinnar, sem
við hlið hans sat. Tvær kúlur hæfð j Connally fylkisstjóra. Bíl þeirra
var þegar ekið til sjúkrahúss, en lífi forsetans varð ekki bjargað; hann
lézt rúmri hálfri klukkustund síða*’ án þess að hafa fengið meðvitund,
en fy’kisstjórinn lá enn þungt haldi m, þegar síðast fréttist.
Frásagnir sjónarvotta aí þess-
um atburði eru annars mjög á
reiki og stangast á hver við
aðra. Samkvæmt einni þeirra
komu skotin frá þriðju hæð
byggingar einnar, en annar sjón-
arvottur er borinn fyrir því að
um leið og skothvellirnir gullu
við, hafi hann séð byssu dregna
inn á sjöttu hæð í húsinu. Lítili
vafi virðist þó leika á þvf að
tilræðismaðurinn eða mennimir
hafi búið um sig í þessu húsi.
Bílum snúið við
Allt komst á ringulreið þegar
skotin féllu. Samkvæmt einni
frétt. sem þó er óstaðfest, reyndi
einn af lögreglumönnunum
í föruneyti forsetans að svara
skotunum, en var þá sjálfur
skotinn til bana.
Bílum forsetans og varaforset-
ans var snúið við. en aðrir bíi-
ar í lestinni héldu áfram. Ekið
var með forsetann til Parklands-
sjúkrahússins. Hann var enn
með lífsmarki þegar þangað
kom. en komst aldrei til meðvit-
undar. enda hafði kúlan hæft
hann beint í höfuðið.
Skotin sem hæfðu Connally
fylkisstjóra voru ekki jafnhættu-
leg og var talin von til þess að
lífi hans yrði bjargað, þótt hann
væri þungt haldinn.
Líkið flutt til
Washington
Kona Kennedys, Jacqueline, sat
við banabeð hans þar til hann
gaf upp andann. Áður höfðu ver-
ið kvaddir til kaþólskir prestar
og veittu þelr honum h'ina síðustu
smumingu. þegar ljóst var
hvemig fara myndi.
Lfk hans var borið úr spítal-
anum út í bifreið og fylgdi kona
hans því; föt hennar voru al-
blóðtig. Ekið var til fiugvallar-
ins og likið flutt heim til Wash-
ington.
Johnson sver
embættiseið
Johnson varaforsefci fór mcð í
flugvélinni og í henni sór hann
embættiseið sinn sem 36 forseti
Bandaríkjanna. Hann sór eið
sinn fyrir héraðsdómara, Sarah
T. Hughes að nafni.
Morðingja leitað
I húsi því sem skotin komu úr
fundust á sjöttu hseð matarleif-
ar og annað1 sem benti til þess
að þar hefðu tilræðismaðurinn
eða tilræðismennimir búið um
sig í nokkra daga.
Ýmsar sögur fóru af því af
hvaða gerð morðvopnið hefði
verið, var fyrst talað um brezk-
an riffil, síðan um bandarísk-
an eða japanskan herriffil og
loks um þýzkan riffil af Maus-
ergerð.
Öllu tiltæku lögregluliði
Bandaríkjanna var þegar í stað
fyrirskipað að hefja leit að
morðingjanum.
„Nú er öllu lokið“
Fjöldi manna var tekinn
höndum og yfirheyrður, en sá
fyrsti sem nafngreindur var, er
24 ára gamall Texasbúi, Lee
Harvey Oswald að nafni. Haft
var eftir lögreglunni að sterk-
ur grunur lægi á honum fyr-
ir hlutdeild í tilræðinu.
Hann var handtekinn í kvik-
myndahúsi einu i Dallas, en
fyrir utan húsið hafði fundizt
lik lögreglumanns. Oswald þessi
dvaldist nokkurn tíma i Sov-
étríkjunum fyrir fjórum árum
og hafði þá við orð að sækja
um þegnrétt þar. Hann hvarf
þó aftur heim og er sagður
hafa verið framámaður í sam-
tökpm Kúbuvina. í frétt frá
bandarísku upplýsingaþjónust-
unni sem barst um miðnættið
var hann ekki nafngreindur, en
aðeins sagt að „24 ára gamall
maður væri undir yfirheyrslu
í Dallas til að ganga úr skugga
um hvort hann hefði átt nokk-
um þátt í morðinu“.
Eins og áður segir hafa fleiri
menn verið handteknir, þ.á.m.
einn i Fort Worth. en þegar síð-
ast fréttist var ekkert vitað
með vissu um hvort þeir hefðu
verið við morðið riðnir.
Útför á mánudag
Lík Kennedys forseta mun að
öllum líkindum verða lagt á við-
hafnarbörur í Washington á
sunnudag og líklegt þykir að út-
förin fari þegar fram á mánu-
daginn. þótt það hafi enn ekki
verið ákveðið.
Bræður hans Edward öldunga-
deildarmaður, Robert dómsmála-
ráðherra og systir hans Eunice
héldu þegar til Dallas þegar
þeim bárust sorgartíðindin. Ro-
bert var þá í forsæti í öldunga-
deildinni i forföllum Johnsons
varaforseta.
Foreldrar hans fengu fregnina
i Hyannisport i Massachusetts,
en þau áttu von á syni sínum
þangað á fimmtudaginn i næstu
viku. Maður sem var að vinnu
i garði þeirra heyrði fréttina f
útvarpi og bar þeim tíðindin,
bióðarsorg
Það er ekki ofmælt að þjóðar-
sorg hafi orðið i Bandaríkjun-
um þegar fregnin af sviplegu láti
forsetans barst um þau. og hann
er einnig harmaður víða um
heim. eins ög getið er annars
staðar i blaðinu. Þögn sló á fólk
begar fregnin barst og það mátti
lesa á svip þess að þvi veittist
erfitt að trúa því. að hinn ungi
forseti væri látinn.
John FitzgeraJd Kennedy
Sviplegt fráfall Kennedys
harmað mjög um allan heim
Allur heimurinn komst í
uppnám í gær, þegar frétt-
in um lát Kennedys barst
út. Útvarpssendingar voru
stöðvaðar hvarvetna til þess
að flytja fréttina.
Útvarpið í Moskvu gerði hlé
á dagskránni til þess að lesa
fréttina. Var gefið í skyn, að
hægrisinnuð öfl muni standa á
bak við morðið á forsetanum.
Eftir að fréttin hafði verið flutt
voru leikin sorgarlög.
Var minnzt á það í útvarpinu,
að leiðtogar Sovétríkjanna hefðu
alltaf gert greinilegan mun á
Kennedy og bandarískum stríðs-
æsingarmönnum. Greinilegt var
á öllum ummælum í útvarpinu,
að hinn ungi forseti átti mjög
miklum vinsældum að fagna
meðal æðstu manna í Sovétríkj-
unum.
Rikisstjóm Sovétríkjanna mun
ekki láta í ljós skoðun á mál-
inu fyrr en morðið hefur verið
rannsakað fyllilega.
Mikill mannfjöldi safnaðist
framan við bandaríska sendiráð-
ið í Moskvu til þess að votta
samúð sína.
Er fregnin um morðið barst
í Páfagarð, dró páfinn sig sam-
stundis í hlé til þess að biðja
fyrir hinum látna. Hann sagð-
ist vera skelfingu lostinn.
De Gaulle forseti Frakklands
lét svo um mælt. er hann heyrði
fréttina, að Kennedy hefði dáið
eins og hermanni sæmi, fallið
fyrir kúlu er hann var að gegna
skyldum sínum við föðurlandið.
Ludwig Erhard forsætisráð-
herra Vestur-Þýzkalands, er átti
að eiga fund með Kennedy á
sunnudaginn. vottaði Bandaríkj-
unum samúð sína.
Andlátsfregnin olli og mlkilli
sorg í London. Útvarpið rauf
dagskrána strax og fréttin barst
til þess að lesa hana. Elísabet
drottning settist niður, strax og
henni barst fréttin, til þess að
skrifa fjölskyldu Kennedys sam-
úðarkveðju.
Forseti fslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson. sem staddur er í
Lundúnum að lokinni opinberri
heimsókn i Bretlandi sendi f
kvöld Lyndon B. Johnson for-
seta Bandaríkjanna, samúðar-
kveðjur vegna fráfalls Kenne-
dys Bandaríkjaforseta og bað
Framhald á 3. síðu