Þjóðviljinn - 26.11.1963, Side 1

Þjóðviljinn - 26.11.1963, Side 1
Þriðjudagur 26. nóvember 1963 — 28. árgangur — 251. tölublað. Oswald var myrtur í höndum lögreglunnar í Dallas GRUNURUM AÐEKKISÉALLT MEÐ FELLDU VIÐ MORÐÁKÆRUNA DALLAS 25/11 — Grunsemdir sem vaknað höfðu um að ekki væri allt með felldu við handtöku Texasbúans Lee Harvey Oswald og ákæruna á hend- ur honum fyrir að hafa myrt Kennedy forseta mögnuðust um allan helm- ing, þegar Oswald var sjálfur myrtur í höndum lögreglunnar í Dallas í gær, svo að nú verður aldrei hægt að sannprófa það fyrir rétti, hvort nokkuð er hæft í fullyrðingum lögreglunnar að hún hafi í höndum næg- ar sannanir fyrir sekt hans. Morðið á sakbomingnum hefur vakið hryll- ing manna og bandarísk blöð tala um smánarblett á bandarísku réttarfari. ÞEGAR MUNNLEGUR flutning- ur olíumálsins svonefnda hófst fyrir Hæstarétti í gær- dag hafði verið komið fyrir stórum stöflum af skjölum og skjalaafritum á öllum borðum dómenda og mál- flutningsmanna, sækjanda og verjenda. MÁLIÐ ER SEM kunnugt er mjög umfangsmikið, enda bú- izt við að málflutningurinn standi yfir alla þessa viku. Endurrit dómsskjala fylla 14 stór hefti, auk héraðsdóms, endurskoðunarskýrslna og cfnisyfirlits. SAKSÓKNARI RÍKISINS hafði með sér frumrit dómsskjala, mikinn skjalabunka sem fyU- ir mörg innstunguhefti, eins og myndin hér fyrir ófan sýnir, en liún var tekin við upphaf málflutningsins í gær. — Sjá síðu 12 Oswald í járnum — nú mun aldrei fást úr því skorið fyrir rétti hvort fótur var fyrir morðkærunni á hann. Kosin viiræiunefnd Þetta nýja morð var framið meðan Oswald var enn í borg- arfangelsinu í Dallas, i kjallara lögreglustöðvarinnar, en flytja átti hann í héraðsfangahúsið á öðrum stað í borginni. í bryn- vörðum bíl. Morðið Morðinginn, fimmtugur nætur- klúbbseigandi, Jack Ruby að nafni, stökk að sögn sjónarvotta yfir girðingu sem skildi milli fangans og fréttamanna, hljóp að Oswald með skammbyssu í hendi, rak byssuna í kvið hans og hleypti af. Oswald var þegar fluttur í Parkland-sjúkrahúsið en þangað hafði einnig verið farið með Kennedy forseta, Kúlan hafði farið inn í kviðar- holið og sat föst í nágrenni hjartans. Læknar fengu ekkert að gert og andaðist Oswald um hálftíma síðar. ' Engin skýring Engin skýring hefur fengizt á því hvernig Ruby komst inn í lögreglustöðina, en þess hefur verið getið til að hann hafi laumazt þangað í fylgd sjón- varpsmanna. Það þykir hins veg- ar furðulegt að lögreglan skyldi ekki hafa betri gætur á því hverjir komust inn í húsið og ekki dregur það úr tortryggni manna að lögreglan þekkti Ruby vel. Bæði var það að nætur- klúbbur hans er aðeins stein- snar frá lögreglustöðinni og svo hitt að hann hafði oft' komizt í kynni við lögregluna sem handtekið hefur hann fyrir of- beldisárásir og líkamsmeiðingar. Úr sögunni Að Oswald látnum er mál hans úr sögunni, sagði Wade, saksóknari í Dallas, við blaða- menn í gær. Þess vegna yrði ekkert birt af þeim gögnum sem lögreglan hafði safnað og hún fullyrðir að sanni sekt hans. — Ég hef sagt lögreglunni að mal Oswalds sé nú útrætt. Nú verð- um við að einbeita okkur að máli Rubys. sagði Wade. Ruby, sem að réttu lagi heitir Rubinstein og er aðfluttur til Dallas frá Chicago, var hand- tekinn strax eftir morðið og mun verða leiddur fyrir kvið- Framhald á 3. síðu. Minningarathöfn í Dómkirkjunni í gær klukkan fimm hófst i Dómkirkjunni minningarathöfn um John F. Kennedy, forseta Bandaríkjanna. Þar voru við- staddir fulltrúar erlendra ríkja á íslandi, alþingismenn allir, æðstu embættismenn og aðrir fulltrúar þjóðarinnar; ennfrem- ur var almenningi heimill að- gangur meðan rúm leyfði. Var kirkjan þéttsetin og allmargt manna safnaðist saman fyrir ut- an kirkjuna. Dr. Páll ísólfsson flutti í upp- hafi orgelforleik, Benedictus eftir Max Reger en dómkirkju- kórinn söng „Vér stöndum á bjargi, sem bifast ei má“. Sig- urbjörn Einarsson biskup flutti minningarorð um hinn látna forseta; lagði hann áherzlu á hina mannlegu eiginleika Johns F. Kennedys sem hefðu áunnið honum traust jafnvel þeirrá sem fjarlægastir hefðu verið verksviði hans, þannig að menn hefðu boj-ið til hans vinarhug en ekki aðeins virðingu. Björn Ólafsson lék þvínæst á fiðlu Litanei eftir Schubert með und- irleik dr. Páls, en dómkirkju- kórinn söng „Bjargið alda, borg- in mín.“ Þá flutti James K. Pen- field, ambassador Bandaríkj- anna á íslandi, ávarp frá ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, en .kaþólski presturinn á Kefla- víkurflugvelli, séra S. E. Alm- asy, flutti bæn. Eftir að biskup fslands hafði flutt blessunar- orðin söng dómkirkjukórirm þjóðsöngva Bandaríkjanna og íslands, en að lokum lék Páll fsólfsson. ★ Viðræðufundur var á laugardaginn milli ráðherranna tveggja, Bjarna Benediktssonar og Emils Jónssonar annars vegar og hins vegar íiannibals Vaidimarssonar, Eðvarðs Sigurðssonar og Björns Jónssonar. sem rætt hafa við ríkisstjómina sem fulltrúar lands- nefndar verkamannafélaganna. Tilkynntu þeir ráðherrunum að hin nýja samstarfsnefnd' mundi nú kjósa viðræðunefnd við ríkis- stjómina af hálfu alira þeirra aðila sem að samstarfsnefndinni standa. ★ Viðræðunefndin við ríkisstjómina var síðan kosin á fundi samstarfsnefndarinnai á sunnudagsmorgun og skipa hana þessir menn: Hannibal Valdimarsson. forseti Alþýðusambands fslands, Eðvarð Sigurðsson, formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, Björn Tónsson, formaður Verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri, Sverrir Hermannsson, forseti Lsndssambands íslenzkra verzlunar- manna og Óskar Haflgrímsson, formaður Félags íslenzkra rafvirkja. ★ Sáttafundur var haldinn á laugardag með fulltrúum Lands- nefndar verkamanna- og verkakvennafélaganna og fulltrúum at- vinnurekenda. Annar fundur þessara aðila hefur verið boðaður í dag, þriðjudag. Þegar gosið tók breytingum Þessar myndir tók Þorleifur Einarsson jarðfræðingur rétt fyrir hádegi síðastliðinn fimmtudag, eða í þann mund sem gosið við Geirfuglasker tók þeirri breytingu að dökkir sprengjumekk<r hættu að þeytast upp en vikri, gjalli og ösku tók að gjósa látlaust. Þorleifur fræddi okkur á þvi, að eina vonin til þess að eyjan ekki hyrfi aftur í sæ væri að henni tækist að loka sér íyrir sjógangi og að hraun tæki að renna og klæddi hana. Hann sagði eyjuna svipaða Grábrók að gorð og það hraun sem menn þættust hafa séö væru aðeins stórar hraunslettur er moluðust jafnskjótt og þær kæmu niður og rynnu sem skriður í kafið.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.