Þjóðviljinn - 28.11.1963, Page 1
MK 26DAGAREFTIR
n K _ CERIÐ SKIL
Öðaverðbólgan magnast í sífellu:
Fresturinn hefur verið notaður til
að auka dýrtíðina um 11,4 prósent
□ Óðaverðbólga ríkisstjórnarinnar heldur áfram að magnazt meðan ^
ríkisstjórn og atvinnurekendur halda áfram þófi sínu við verklýðsfélög-
in og hafa ekki svo kunnugt sé boðið eyrisvirði í kauphækkunum eða
öðrum kjarabótum. í síðasta mánuði hækkaði vísitala framfærslukostn-
aðar um tvö stig og er nú komin upp í 146 stig. Þegar verklýðs’félögin
gáfu ríkisstjórn og atvinnurekendum frest til samninga um kjaramál í
júní í sumar var vísitala framfærslukostnaðar 131 stig. Hún hefur þann-
ig hækkað um 15 stig; dýrtíðin hefur magnazt um 11,4% samkvæmt
mælikvarða ríkisstjómarinnar sjálfrar á sama tíma og ekki hefur fengizt
eins eyris árangur í samningaviðræðunum.
Eyðilagði 60 þús.
króna penieiga-
kassa til að stela
350 krónum
í fyrrinótt gerði vegfarandi
lögregllunni aðvart utn það að
hann hefði séð mann vera að
brjóta upp peningakassa í port-
inu bak við hús Silla og Valda
við Aðalstræti. Logreglan fór
þegar á vettvang og stóðst það
á endum að þjófnum hafði tek-
izt að brjóta upp peningakass-
ann og var að hirða innihaldið.
350 krónur í skiptimynt. Þjóf-
urinn hafði hins vegar gereyði-
lagt peningakassann en verð-
mæti hans mun vera um 60—70
þúsund krónur. Var þetta borð-
kassi með innbygðri samlagn-
ingarvél.
Þá fundust og á þjófnum 4
tébkhefti og þrfr stimplar er
hann hafði stolið á skrifstofu
Silla og Valda. Maður þessi hef-
ur áður komizt undir manna
hendur.
ATVINNUREKENDUR NEITA
ÖLLUM KAUPHÆKKUNUM!
Er þetta
gosmynd
eSa hvað?
Af hverju er þessi
mynd eiginlega?
kann einhver að
spyrja og það að
vonum. Það skal
því strax tekið
fram til þess að
koma í veg fyr-
ir misskilning að
myndin er tekin í
Sundhöllinni í
fyrrakvjild á sund-
móti Ármanns og
það eru fjórar ung
ar og fallegar
stúlkur sem valda
öllum þessum
gusugangi. Þetta
er sem sagt ekki
mynd af neðan-
sjávareldsum-
brotum eða neinu
sliku. Því miður
scst of litið af
ungmeyjunum fyr-
ir skvettum og
löðri til að við get-
um greint þær. —■
Frásögn af úrslit-
um í mótinu síð-
ara kvöldið og
fleiri myndir það-
an eru birtar á í-
þróttasíðu blaðsins
i dag. — (Ljóstn.
A. K.).
★ Vísitalan fyrir „fatnað og
álnavöru" hækkaði um eitt
stig og er nú komin upp í
147 stig.
ic> Vísitalan fyrir „ýmsa vöru
og þjónustu“ hækkaði einn-
ig um eitt stig upp I 164
stig.
★i Meðalvísitalan fyrir „vörur
og þjónustu" — lífsnauðsynj-
ar vísitölufjölskyldunnar —
hækkaði í októbermánuði
um 2 stig upp í 165 stig.
Fresturinn mis-
notaður
Það er ómaksins vert að at-
huga í einstökum atriðum
hvernig vísitalan hefur breytzt
síðan í júní í vor, en hver heið-
arleg ríkisstjóm hefði að sjálf-
sögðu talið það skyldu sína að
halda verðlagi í skef jum meðan
verið var að semja við verk-
lýðssamtökin, þannig að frest-
urinn yrði ekki misnotaður til
þess að skerða raunverulegt
kaup jafnt og þétt. Þær tölur
líta þannig út:
★ Vísitalan fyrir „matvörurf'
hefur hækkað um hvorki
meira né minna en 25 stig.
Hafa matvæli hækkað lang-
samlega mest á þessu tíma-
bili, en slíkar verðhækkanir
era að sjálfsögðu þungbær-
astar fyrir þá sem búa við
erfiðustu kjör í þjóðfélag-
inu.
ic Vísitalan fyrir „hita, raf-
magn o. fl.“ hefur hækkað
um tvö stig.
ic Vísitalan fyrir „fatnað og
álnavöru“ hefur hækkað um
8 stig.
★i Vísitalan fyrir „ýmsa vöra
og þjónustu“ hefur hækkað
um 10 stig.
★ Meðalvísitalan fyrir „vörur
og þjónustu“ hefur hækkað
um 16 stig.
★ Vísitalan fyrir opinber
gjöld vísitölufjölskyldunnar
hefur hækkað um 21 stig.
Víeitala framfærslukostnaðar
hefur hækkað um 15 stig —
Framhald á 2. síðu.
Sérfræðingar s skotfimi koma lög-
reglunni í Dallas í bobba. — 3. sí$a
Sáttafundi landsnefndar verkamanna- og
verkakvennafélaganna og atvinnurekenda í fyrra-
kvöld lauk þannig, að allt er í óvissu um fram-
hald samninganna, og enginn nýr sáttafundur
var ákveðinn.
Áður en fundurinn var haldinn höfðu báðir að-
ilar ræt við ríkisstjórnina og á sáttafundinum
gerðust þau ótrúlegu tíðindi að forsvarsmenn at-
vinnurekenda neituðu öllum kauphækkunarkröf-
um og töldu sig ekki geta rætt þau mál!
Vegna þessara furðulegu viðbragða atvinnurek-
enda og annarra álíka, þar sem þeir virðast ekki
taka með neinni alvöru á samningamálunum, hef-
ur samstarfsnefnd verkalýðsfélaganna ákveðið að
fara þess á leit við sáttasemjara, að boðað verði
til fundar með samstarfsnefndinni allri og öllum
samningsaðilum þeirra verkalýðssamtaka sem að
henni standa, til að ræða það alvarlega ástand sem
skapazt hefur í samningamálunum við þessa
framkomu atvinnurekenda, þegar svo skammur
frestur er eftir.
Á 12. síðu er birt yfirlýsing frá samstarfsne'fnd
verkalýðsfélaganna vegna blaðaskrifa um samn-
ingaumræðurnar.
1 októbermánuði hækkuð-u all-
ir liðir vöru og þjónustu í vísi-
tölunni.
★ Vísitalan fyrir „matvörurf*
hækkaði um 3 stig og er nú
komin upp í 178 stig.
★ Vísitalan fyrir „hita, raf-
magn o. fl.“ hækkaði um 2
stig og er nú komin upp í
139 stig.
V-þýzkur landa-
krofuaroour i
barnaskólunum!
★ Þau furðulegu tíðindi
gerðust um síðustu mán-
aðamót, að fræðslumála-
stjóri sendi ölium landa-
fræðikennurum í barna-
skólum áróðursplagg frá
vesur-þýzka sendiráðinu;
kort yfir Þýzkaland sem
„leiðréttingu" á Ianda-
bréfabók þeirri sem Ríkis-
útgáfa námsbóka gaf út
á sl. ári.
★ Á korti þessu eru
landamæri Þýzkalands-
teiknuð eins og þau voru
í valdatíð Hitlers 1937.
Þar er hluti af Sovétríbj-
unum talinn þýzkt land —
norðurhluti þess liéraðs
sem áður hét Ausutr-
prússland. Mjög veruleg-
ur hluti Póllands er talinn
þýzkt land — Suðurhluti
Austurprússlands og öll
vesturhérað Póllands.
Austur-þýzka ríkið er að-
eins kallað sovézkt her-
námssvæði — en ekki er
minnzt á að Vestur-
Þýzkaland sé neitt her-
námssvæði. Þýzk lieiti eru
að sjálfsögðu látin standa
langt inn í Póllandi og
Sovétríkin.
Sjá nánar
á 8. síðu
i