Þjóðviljinn - 28.11.1963, Síða 2

Þjóðviljinn - 28.11.1963, Síða 2
2 SlÐA ---------------------- Eyjan er innan ís- lenzkrar landhelgi Staðsetning nýrrar eyjar, er myndast hefur við eldgos frá sjávarbotni suðvestur af Geir- fuglaskeri við Vstmannaeyjar, hefir reynst þessi, við mæling- ar, sem landhelgisgæzla og sjó- mælingar ríkisins hafa gert: Nyrsti oddi: 63. gr. 18.2 mín. norðurlengd 20. gr. 36.1 mín vesturbr. Syðsti oddi: 63. gr. 17.8 mín. norðurlengd 20. gr. 36.9 min. vesturbr. Eyjan er samkvæmt þessu innan íslenzkrar landhelgi við Geirfuglasker og er minnsta fjarlægð frá Geirfuglaskeri 2.8 sjómílur en mesta fjarlægð 3.2 sjóm. (Frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu). HðDvnnNN Senda formanninn til Reykjavíkur Síglufirði, 26/11 — Á fundi í Verkamannafélaginu Þrótti í fyrakvöld kom fram tiilaga frá einum fundarmanna að fela for- manni félagsins, Óskari Gari- baldasyni að fara suður til R- víkur og fylgjast með viðræð- um um launamál. Allmikil tortryggni rikti ’á fundinum um samningsvilja rik- isstjómarinnar og vildu fundar- menn ekki ganga að neinum smánarbótum. — K. F. ,Kaþólskir viljum við vera' Alheimsþing kaþólskra kenni- manna. sem hófst í Róm i fyrrahaust undir forustu hins viðsýna og framsækna öldungs, Jóhannesar páfa 23., heldur enn sömu róttæku umbóta- stefnu við leiðsögn eftirmanns hans, núverandi páfa. Páls VI. Eitt höfuðmarkmið kirkju- þingsins er að vinna að auknu samstarfi rómversk-kaþólsku kirkjunnar við aðrar kristnar kirkjudeildir og jafnvel játend- ur annarra trúarbragða. Eitt þeirra málefna, sem einna mest átök hafa orðið um á haustþinginu nú, er að ráða fram úr því. hver skuli vera afstaða kaþólsku kirkjunnar ti! hinnar sívaxandi, öfga- kenndu Mariudýrkunar, sem orðin er hinum víðsýnnj ráða- mönnum kaþólsku kirkjunnar mikið áhyggjuefni. Umbótasinnar meðal kenni- manna á kirkjuþinginu vilja leggja á það megináherzlu, að Kristur sé hinn eini meðai- gangari um náð guðs. en siú hefur verið og er afstaða kirkjudeilda mótmælenda. — Einn kunnasti fræðimaður lút- erskur prófessor Barth, lét ný- lega hafa eftir sér þau um- mæli, að ein alvarlegasta hindrun þess, að mótmælend- ur og kaþólskir gætu komið til móts hvorir við aðra, væri hið litla orð: og. Ummæli próf- essors Barths voru þessi: jrÞegar vér mótmælendur segj- um Jesus, segja kaþólskir Jesús og María". Kunnur kaþólskur trúfræð- ingur segir. að svo langt gangi Marfu-dýrkunin meðal vaxandi Sími 17-500 Nokkur útburðarHveríi losna um mánaðar- fjölda trúbræðra sinna, að engu sé líkara en þeir vilji innlima Maríu sem fjórða aðila í heilaga þrenningu! Við atkvæðagréiðslu, sem nýlega fór fram á kirkjuþing- inu í Róm um afstöðuna til þessa máls, báru umbótasinnar sigur úr býtum með 40 atkv. meirihluta, en atkvæðabærir þingfulltrúar eru alls 2193, biskupar, kardínálar og aðrir prelátar. — Þetta er að gerast í Róm. En hér uppi á Islandi hefur á sama tfma einn af klerkum hinnar evangelisku-lútersku þjóðkirkju hátt á loft merki hinnar þröngsýnu, fhalds- og afturhaldssömu fylkingar. and- stæðinga kaþólskra umbóta- sinna, og boðar þjóð sinni, lít- iltrúuðum og lúterskum ls- lendíngum, trú á hinn fjórða aðila heilagrar þrenningar! í víðlesinni blaðasamsteypu, Morgunblaðinu og Isafold og Verði, er birt mikið og langt viðtal við klerkinn í Odda, en þar segir isa á þessa leið, orð- rétt. (1 fcirkjurmi i Odda. segir blaðamaðurinn) ^er einnig fög- ur mynd af Maríu mey og sagði sr. Amgrímur, að sér fyndist hún ætti að vera í hverri kirkju i landinu til að minna á hlutverk hennar i hjálpræðisverki Guðs. „Það er einstætt í sðgunni", bætir hann við með virðulegri alvöiu. „Ég get ekki séð að það sé neinn kaþólskur blær yfir henni“, bætti hann við, „en ef svo er. gerir það ekkert. Kaþólskir viljum við vera“. Olínmálið Saksóknari ríkisins Valdimar Stefánsson hélt áfram málflutn. ingi sínum fyrir Hæstarétti í gær í olíumálinu og f jallaði enn eingöngu um mál Hauks Hvannbergs. Eftir er að ræða þátt stjómarmanna Oliufélags- ins og Vilhjálms Þórs. Mál- flutningurinn heldnr áfram í dag. Oðaverðbólgan Bazarinn er 30. nóvember Kvenfélag Sósíalista minnir á bazar félagsins sem haldinn verður að Tjarnargötu 20 laug- ardaginn 30. nóvember. Munum veitt móttaka í Tjamargötu 20 á föstudag klukkan 15-22. Stjómin. TECTYL er ryðvöm iþróttir Framhald af 5. síðu. Reynir Guðmundsson Á Þór Magnússon ÍBK 37.4 38.4 100 m bringusund telpna Matth. Guðmundsd. Á 1.25,4 T-met. Auður Guðjónsdóttir IBK 1.28,9 Eygló Hauksdóttir Á 1.34,8 4x50 m fjórsund kvenna Sveit Ármanns 2.41,1 met. Sveit SH 2.51,1 Sveit IBK 3.00,6 3x100 m þrísund karla Sveit IR 3.39,4 Sveit Ármanns 3.49,0 Dr-sveit Ármanns 3.57,5 Mótið gekk greiðlega, en alltof fáir áhorfendur á svona skemmtilegu móti. Frímann. Húsbyggjendur! Húsbyggjendur! í Plötusteypunni við Suðurlandsbraut fáið þér ódýrustu og beztu milliveggjaplötumar. GREIÐSLUSKILMÁLAR: Mikill afsláttur gegn staðgreiðslu. Sími 35785 Konan mín —— GUÐRUN PÁLMADÓTTIR sem andaðist 21. þ.m. verður jarðsungin frá Fossvogs- kapeUu föstudaginn 29. þ. m. kl. 10/50 f. h. Athöfninni verður útvarpað. Sveiiin IlalldórssOn Miðvikudagur 27. nóvember 1963 PJONDSTOH LAUGAVEGI 18 SfMI 19113 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir óskast, miklar út- borganir. TIL SÖLU: 2ja herbergja íbúðir á jarðhseð í Kópavogi. full- búnar undir tréverk. 3ja herbergja hæð í timb- urhúsi við Grettisgötu, laus nú þegar. 3ja herbergja kjallaraíbúð við Hverfisgötu. sér inn- gangur, sér hitaveita. laus fljótlega. 4r herbergja kjallaraíbúð í Garðahreppi, sér h!ti. sér inngangur, hagkvæm kjör. Raðhús við Asgarð og Skeiðarvog. Parhús við Digranesveg. stórt og vandað. 5 herbcrgja lúxusíbúð á annari hæð í Hlíðunum. f'jllbúin undir tréverk. Hús við Langholtsveg. hús- ið sem er ein hæð er hentugt fyrir Utla verzl- un, fiskbúð eðaléttan iðn- að, hagkvæm kjör. 4 herbergja ný og góð íbúð 100 ferm. á fyrstu hæð við Njörvasund. Sér hiti, sér inngangur, tvöfalt gler. teppi á stofu og holi. Steypur stór bíl- skúr og sér geymsla Ræktuð og fullfrágengin lóð. Laus eftir samkomu- lagi. Lúxusíbúð 5 herbergi á góðum stað til sölu, all- ur útbúnaður eftir hæstu nútímakröfum, laus í maí. mótin. — Afgreiðsla Þjóðviljans. Víti til varnaðar Pyrír nokkrum kvöldum flutti einn af fulltrúum Is- lands á þingi Sameinuðu þjóðanna, Þór Vilhjálmsson borgardómari, fréttapistil í ríkisútvarpið um útför Kene- dys forseta. Hann lét svo ummælt í upphafi að sjón- varpið hefði flutt þá áhrifa- miklu atburði sem gerzt hefðu dagana á undan inn á hvert heimili, og hefðu þeir sem efuðust um gagnsemi slíkrar tækni nú getað látið sannfærast um ágæti hennar. Þó taldi hann að gagnsemi sjónvarpsins hefði náð há- marki þegar gjörvöll banda- ríska þjóðin átti kost á því að sjá með eigin augum hvemig Lee Oswald var myrtur i höndum lögreglunn- ar í Dallas. Það atriði sem þessi full- trúi íslands hrífst svo mjög af mun vekja öðrum engu minni óhug. Það er ömurleg- asta einkenni sjónvarpstækn- innar, ekki sízt í Bandaríkj- unum, hvernig öllu er breytt í „show'. Sú sjálfsagða blygðunarsemi andspænis raunum annarra, sem Islend- ingum er töm, þekkist ekki í Bandarík junum; þarlendir sjónvamsmenn telja sig hafa unnið hin mests afrek ef þeim tekst að troða sér sem næst bástöddu fólki og sýna tilfinningar þess, sársauka eða niðurlægingu — og öll er þessi iðja aðeins auglýs- ing fyrir vörur sem kynntar eru hlakkandi á xmdan og eftir hverju morði sem tekst að sýna í sjónvarpinu. Eftir að Kennedy forseti hafði verið myrtur var eiginkona hans elt á röndum af sjón- varpsmönnum sem biðu eftir því að færa sér í nyt hverja geðshræringu sem birtist á andliti hennar. Bandarískar fréttir skýra svo frá að sjón- varpsmenn hafi í rauninni stjórnað meðferðinni á Lee Oswald, flutningur hans milli fangelsa var settur á svið eins og leiksýning. Með því greiddu þeir glæpamanni leið að fómardýri sínu og tókst að vinna það mikla afrek, sem hreif fulltrúa Is- lands á þingi Sameinuðu þjóðanna, að sýna milljónum manna hveraig morð er framið. Nú líður að því að ákveðið verði að hefja íslenzkt sjón- varp og verður eflaust ekki undan því komizt. En þá skiptir öllu máli að menn- ingarleg og mannleg sjónar- mið ráði ríkjum í þeirri stofnun, en þau bandarísku afrek sem ná hámarki í morði verði víti til vamaðar. AustrL Framhald af 1. síðu. eða 11,4% eins og áður er sagt. 1 þeirri tölu er þó ekki reiknuð með sú stórfellda hækkun á húsnæði sem framkvæmd hefur verið á þessu sumri. Ný skriða fram- undan Og enginn skyldi ætla að óðaverðbólgu ríkisstjóraarinnar sé eitthvað að slota. Vitað er að þegar eru komnar inn í verðlagið hækkanir sem jafn- gilda um þremur stigum í við- bót. Og ráðgerðar eru stórfelld- ar nýjar hækkanir á mörgum sviðum: •jW Hitaveitukostnaður á að hækka. -árl Rafmagnsverð á að hækka. ★I Strætisvagnagjöld eiga að hækka. ★i Sjúkrasamlagsgjöld eiga að hækka. Vti Dagpeningar á sjúkrahúsum eiga að hækka. -ái Farmgjöld hafa verið gefin frjáls og hækka nm 40— 50% að meðaltali. Það mun smátt og smátt koma fram á öllum innfluttum varij- ingL -fci Kaupsýslumenn knýja nú harðar á en nokkru sinni fyrr að fá frjálsa álagningu sem enn myndi stórhækka allt vörnverð. Og þannig mætti lengi telja. Ræða Johnsons Framhald af 3. síðu. horið þessa byrði einn. Eg þarfnast hjálpar allra Banda- ríkjamanna. Tími er kominn til þes, að Bandaríkjamenn af öll- um kynþáttum, öllum trúar- skoðunum og öllum stjómmála- skoðunum sýni hver öðrum skilning og virðingu. Hættum að tala um hatur. mannvonzku og yfirgang. Snúum bakinu við öllum ofstækismönnum, bæði til Vægri og vinstri. BifreiðaleiqanHJÓL‘iT:r.“.n Utsala vor og vörngeymslnr í Nýborg verða Iokaðar í dag til kíL 1 e.h. vegna jarðarfarar ÓLAFS H. SVEINSSONAR útsölnstjóra Áfengis- og tóbaksverzlun rikisins. Nauðungaruppboð Nauðungaruppboð það sem auglýst var í 99.. 103, og 105. tölublaði 56. árg. LögbirtingablaAslns, á fasteigninni Vatnsendablettur 77, þinglýstri eign Jóns Magnússonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 29. nóv. 1963, kL 14. BÆJARFÓGETINN 1 KÓPAVOGI. Þjóðviljann vant- ar fólk íil að bera blaðið út í eftirtalin hverfi: Hjarðarhaga Fálkagötu Framnesveg Tjamargötu Voga Vinsamlegast hring- ið í síma 17500. Húsnæðismáiastjórn hefur samþykkt varðandi lánshæfni umsókna um íbúðalán: 1. Frá 1. janúar 1964 verða allar umsóknir um íbúðalán að hafa hfotið sam- þykki húsnæðismálastofnunarinnar, áður en framkvæmdir við byggingu hússins eru hafnar og afrit af teikningu (í tvíriti) þess, samþykkt af viðkomandi bygg- ingaryfirvöldum, að hafa áður viðurkennt með stimpli og uppáskrift stofnunar- innar. 2. Þeir umsækjendur um lán, er hafa í hyggju að kaupa íbúðir í húsum, sem eru í smíðum, verða á sama hátt að tryggja sér samþykki húsnæðismála- stofnunarinnar áður en gengið er frá kaupunum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.