Þjóðviljinn - 28.11.1963, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 28.11.1963, Blaðsíða 12
Fjarri sanni er að staiið hafi á verkalýðsfélögunum til samnmga -<•> Þossí mynd er tekin á Hótel Sðgu i gær. Talið frá vinstri: Stefán Oddur Magnússon, framkvæmda- Btjóri Hreyfils og Olav St. Christensen með talstöðina. Verða sendlar framtíðar- innar með vasatalstöðvar? Hér á landí er staddur um þessar mundir Olav St. Christ- ensen, en hann er leiðbeinandi frá danska talstöðvafyrirtækinu Storno, en það er dótturfyrir- tæki Det Store Nordiske Tele- graf Selskap og hefur aðsetur í Kaupmannahöfn. Bifreiðastöðin Hreyfill er um- boðsmaður Stomo hér á landi og kynnti Stefán Oddur Magn- ússon, framkvæmdastjóri, þenn- an danska leiðbeinanda fyrir blaðamönnum í gær á Hótel Sögu. Fyrir framan sig höfðu þeir sýnishom af nýju talstöðvar- tæki sem er einfalt að öllu sniði og svo lítið um sig, að það kemst fyrir í brjóstvasan- um. Áttu fréttamenn kost á því í gær að tala við höfuðstöðv- amar á Hreyfli frá grillsaln- um á Hótel Sögu. Þessi nýja talstöð er gefin upp fyrir fimm kílómetra radíus og virðist hentug fyrir hvers- konar þjónustufyrirtæki í borg- inni. Þannig eru eldri gerðir af talstöðvum frá Stomo hjá Hreyfli, Bæjarleiðum, Borgar- bílastöðinni, B.S.R. og Aðal- stöðinni í Keflavik. Hart í bak sýnt í 150. sinn í kvöld I kvöld verður 150. sýning lelkritsins Hart í bak eftir Jök- ul Jakobsson. Hart í bak er annað leikrit Jökuls. sem Leik- félag Reykjavíkur tekur til sýn- inga. Fyrra leikritið Pókók var frumsýnt 12. janúar 1961 og hlaut það ágætar undirtektir. Næsta verkefni Leikfélags Reykjavíkur verður leikritið Fangarnir i Altona eftir Jean- Poul Sartré, en það verður frumsýnt á 3. f jólum. Gert er ráð fyrir að frumsýna annað leikrit í janúar og er það gam- anleikurinn Sunnudagur f New York eftir Norman Krassna og einnig mun I ráði að frski leik- stjórinn Thomas Mac Anna stjómi í janúar sýningum Leik- fclagsins á Shakspearleiknuin Romeó og Júlía. Hart í bak hefur slegið met í sýningarijölda og eins gífur- leg aðsókn og hefur verið að þessu leikriti er óvenjulegur við- burður 1 ísienzku leikhúslífi. Er ánægjulegt að ungur fsl. höf. njóti slíkra hylli leikhús- gesta. Leikstjórinn. Gísli Hall- dórsson. sagði að æfingar leiks- ins hefðu einnig verið óvenju- margar og kæmi það af því að þama var um nýtt leikrit að ræða. sem aldrei hefði verið sett á svið áður. Hart í bak var frumsýnt í Iðnó 11. nóv. 1962 og enn virðist ekkert lát varða á aðsókninni , ...., Einnig hafa hafnarskrifstof- urnar samband við bátana á höfninni i gegnum Stornotæki og svo mætti lengi telja. Oliufélögin og steypustöðv- amar eru að athuga möguleika fyrir talstöðvakerfi fyrir bíla sína til betri nýtingar á dýrum og kostnaðarsömum tækjum. Þá mættu dagblöðin atlhuga þennan möguleika fyrir blaða- menn út um hvippinn og hvapp- inn í borginni. Þróunin virðist stefna að ó- dýrum og einföldum talstöðvar- tækjum Qg verða kannski sendlar fyrirtækja með slik tæki upp á vasann í framtíð- inni. Þetta nýja talstöðvartæki kemur á markaðinn um áramót og kostar sennilega kr. 3.900,00 danskar eða 40.000,00 íslenzkar krðnur. Eitt hundrað þúsund verk- fræðitímar liggja að baki þess- ari nýju gerð tækja og er það byggt á transistorkerfinu. Landssíminn úthlutar bylgju- lengdum og annast viðgerðir á talstöðvunum. Fylkéngin fullveldisfagnaður verður hald- inn n.k. laugardag. Skenunti- atriði auglýst síðar. Yfirlýsing þesi frá sam- starfsnefnd verkalýðsfélag- anna barst Þjóðviljanum í gær. Að gefnu tilefni vegna skrifa í dagblaðinu Vísi í gærdag, þar sem þvi er meðal annars haldið fram, að „dregizt hafi í hálfan mánuð að unnt væri að hefja samninga“, vill samstarfsnefnd verkalýðsfélaganna taka fram eftiríarandi: 1. Nefndarskipan sú sem mun átt við í nefndum skrifum er viðræðunefnd við ríkisstjómina, en ekki Samninganefnd við at- vinnurekendur. 2. Þessi nefnd var skipuð vegna þess, að samningaviðræð- ur við atvinnurekendur undan- famar vikur höfðu leitt í ljós, að atvinnurekendur töldu sig ekkert geta komið til móts við kröfur verkalýðsfélaganna nema að til kæmi aðstoð þess opin- bera á einn eða annan hátt. — Af framangrcindum ástæðum á- kvað samstarfsnefndin að til- nefna viðræðunefndina. 3. Af því, sem að framan er sagt er það Ijóst, að það hefur síður en svo staðið á verkalýðs- samtökunum til samningavið- ræðna. Þvert á móti hafa ein- stök félög og samstarfshópar fé- laga staðið í og Ieitað eftir við- ræðum við atvinnurekendur liðnar vikur. Skrif þau sem hér hafa verið gerð að umtalsefni að gefnu til- efni em ekki til þess fallin að greiða fyrir nauðsyn þess að „sanngirni og góður vilji ráði í samningaviðræðum“. Reykjavík, 27. nóv. 1963. Fulltruaráðið Fulltrúaráðsfundur Sósíalista- félagi Reykjavíkur í kvöld fimmtudag klukkan 8.30 í Tjarnargötu 20. Stjórnin. Aðalfundur KIM i kvöld kl. 9 Kínversk-íslenzka menningar- félagið heldur aðalfund sinn í kvöld, fimmtudag 28. nóvember, í MÍR-salnum, Þingholtsstræti 27, og hefst fundurinn kl. 9. Þar fara fram venjuleg aðal- fundarstörf og sýnd verður ný kínversk kvikmynd. Á fundinum gefst félags- mönnum kostur á að afla sér kínverskra blaða og bóka, eins og venja hefur verið á fundum félagsins. Fimmtudagur 28. nóvember 1963 — 28. árgangur — 253. tölublað. A a © IJOIN itomi "> |“ mi r JX U *. U.O £ 3jft ° 26 DAGAR EFTIR - GERIÐ SKIL AÐALVINNINGUR í Happdrætti Þjóðviljans 1963 er glæsileg fjðg- urra herbergja íbúð í parhúsi að Holtsgötu 41 og verður hún afhent fokheld. Er vinningurinn metinn á hálfa millj- ón króna en raunverulegt verðmæti íbúðarinnar mun þó vera talsvert meira, enda má segja að íbúðir fari nú daghækkandi i verði. Hefur aldrei verið boðið upp á glæsi- legri vinning í Þjóðviljahappdrættinu en nú. EFTIR ERU NtJ AÐEINS 26 dagar þar til dregið verður um þennan glæsilega aðalvinning ásamt 10 verðmætum aukavinning- um Þess vegna er brýnt aö nota hvern dag vél, þvi að takmarkið er að selja alla miða upp. Gerið peninga. skil fyrir seldum miðum á skrifstofu happdrættisins að Týsgötu 3. simi 17514, eða sendið skilin i pósti. Skrifstofaa er opin alla virka daga kl. 9—12 og 1—6. ENN VANTAR skrifstofuna fjögur númer sem sérstaklega hefur verið beðið um eru það nr. 1077, 4232, 8034 og 34345. Hafið samband við skrifstofuna ef þið hafið þessi númer undir höndum óseld. Bezta afrekið á sundmótmu Hrafnhildur Guðmundsdóttir fékb sérstakan bikar fyrir bezta afrekið sem unnið var á Ármannsmótinu, en hún hlaut 921 stig fyrir afrek sitt í 200 m. bringusundi. Það er Hka bezta afrekið sem íslenzb kona hefur náð í sundi, sam- kvæmt finnsku stigatöflunni. — Aðrar fréttir af mótinu eru á íþróttasíðu. KETILL ENN Á SJÚKRAHÚSI ■ Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðviljinn hefur aflað sér frá Tulsa virðist ýmislegt vera vansagt og missagt í frásögnum blaða hér um skotárásina á ís- lenzku flugvirkjanemana tvo. Blaðið hafði einnig tal af Oddi Ólafssyni lækni, föður annars drengjanna, og spurðist fyrir um líðan þeirra. Oddur sagði, að Halldór hefði farið af spítalanum síðastllðinn laugardag, en Ketill lægi enn, og væri mátt- farinn; líðan hans þó eðlileg eftlr ástæðum. Læfcnar hafa tilkynnt honum að hann yrði útskrifaður nú í vifculok en mætti ekfcl reyna neitt á sig naastu vifcur. Mun hann því tefjast frá náini jafnvel enn lengur en gert hafði verið ráð fyrir í fyrstu. Fréttir frá Tulsa Þjóðviljinn hefur haft sam- band viö íslending í Tulsa og segir hann að þetta sé í þriðja sinn sem árásarmaður- inn Scagg er ákærður fyrir samskonar afbrot og segir furðulegt að þetta skuli ekki hafa komið fram í fréttum hér heima. Sögusagnir um að piltarnir hafi verið undir á- hrifum áfengis segir hann al- gjörlega tilhæfulausar eins og reyndar lögregluskýnslur beri með sér. Þá kemur það einnig fram í upplýsingum hans að ís- lenzku námsmennimir í Tulsa hafi fyrst komist i kynni við hjólhýsiskonuna kvöldið áð- ur en Scagg skaut á þá Hall- dór og Ketil. Borðhnífur Þá þykir ástæða til að leið- rétta það. vegna viUandi frá- sagnar í fréttaskeyti til Morg- unblaðsins. að frásögn um að piltamir hafd ráðist að Scagg þegar þeir töldu sér það 0- hætt, er röng, og að hnífur, sem annar þeirra er sagður hafa dregið upp var borð- hnífur úr hjólhýsinu, sem hann þreif með sér í ofboði er hann sá að um lífið var að tefla.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.