Þjóðviljinn - 29.11.1963, Síða 1

Þjóðviljinn - 29.11.1963, Síða 1
F0RSEJ1NN BÝÐUR HOMí OG BUTLER TIL ÍSLANDS Föstudagur 29. nóvember 1963 — 28. árgangur — 254. tölublað. Flokksstjórnarfundur haldinn í næstu viku Fundur flokksstjórnar Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalista- flokksins verður settur í Tjarnargötu 20 föstudaginn 6. desember n.k. kl. 5 síðdegis. STJÖRNIN. Skiiadagur í dag -25 dagar eftir ★ Nú eru aðeins 25 dag- ar eftir þar til dregið verður í Happdrætti Þjóð- viljans 1963 um glæsilega fjögurra herbergja íbúð og 10 aðra ágæta vinninga. Hefur sjaldan e2a aldrei verið boðið upp á glæsi- legri vinninga í Happ- drætti Þjóðviljans en nú, eða hver vill ekki eignast hálfrar milljónar íbúð fyr- ir aðeins 100 krónur? Betri jólagjöf er vart hægt að kjósa sér. Dregið er á Þor- Iáksdag. ★ í dag og næstu daga verða miðar í happdrætt- inu seldir úr bifreið á horni Austurstrætis og Að- alstrætis og ættu þeir sem leggja leið sína þar um ekki að láta hjá líða að fá sér miða. ★ Enn fer þeim númer- um fjölgandi sem skrifstofa happdrættisins hefur sér- staklega verið beðin að út- vega og biður hún alla þá sem fengið hafa miða til sölu og kynnu að hafa eft- irtalin númer undir hönd- um óseld að gefa sig fram. Númerin eru: 1075, 4232, 8034, 9995 og 34345. ★ I dag verður alls- herjar skiladagur og í til- efni þess verður skrifstof- an að Týsgötu 3 opin kl. 9—12 og 1—10. Eru allir sem fengið hafa senda miða til sölu og búnir eru að selja eitthvað af þeim beðnir að hafa samband bið skrifstofuna og gera skil fyrir seldum miðum. Þeir sem búscttir eru úti á landi póstsendi skilin til skrifstofunnar. Simi happ- drættisins er 17514. Munum á bazar- inn veitt mót- taka í dag Kvenfélag sósíalista minnir á að bazar félagsins verður hald- inn að Tjarnargötu 20 laugar- daginn 30. nóvember. Munum er veitt móttaka í Tjarnargölu 20 í dag kl. 15—22. Stjórnin SAMKVÆMT fréttaskeyti frá séra Emil Björnssyni frétta- manni sem fylgzt hcfur með forsetahjónunum á ferð þeirra í Bretlandi hefur for- seti íslands boðið þeim sir Alec Douglas Home, forsæt- isráðherra Bretlands, og frú, svo og Butler utanrikisráð- herra i opinbera heimsókn til íslands. Óvíst er hins vegar hvenær þau hafa ástæður til a3 þiggja boðið. FORSETINN er nú farlnn frá London ásamt fylgdarliði sínu. Hélt hann fyrst til I.eeds en síðan til York og Edinborgar. ÁRANGUR LANGRAR BARÁTTU í BORGARSTJÓ RN: OLÍU-OG BENZÍNKAUP BORGARINNAR BOÐIN Ú1 □ Þau ánægjulegu tíðindi gerðust á stjórn- arfundi Innkaupastofnunar Reykjavíkurborg- ar sl. þriðjudag að samþykkt var með þrem samhljóða atkvæðum mættra stjórnarmanna að leggja til við borgarráð að útboð verði lát- ið fara fram á benzín- og olíukaupum borg- arinnar. Samstarfsnefndin ræðir við atvinnu- rekendur í kvöld □ Sáttasemjari hefur orðið við þeim tilmæl- um verkalýðshreyfingarinnar að kveðja alla sam- starfsnefnd verkalýðsfélaganna á sáttafund með fulltrúum atvinnurekenda, vegna þeirra alvarlegu viðhorfa sem upp eru komin eftir framkomu at- vinnurekendafulltrúanna á síðasta fundi með landsnefndarfulltrúum verkamanna- og verka- kvennafélaganna. Þar neituðu fulltrúar afvinnu- rekenda sem kunnugt er að ræða um nokkra kauphækkun. □ Fundur samstarfsnefndarinnar og fulltrúa allra þeirra atvinnurekenda sem hlut eiga að máli verður í kvöld, föstudag, og hefst kl. 8.30. Samþykkt hafði verið fyrir alllöngu að segja upp samning- um við Skeljung h.f. um olíu- og benzínkaupin og er hann út- runninn um áramót. Það tók hins vegar langan tíma að fá á- kvörðun tekna um útboðið og mun það hafa verið alvarlegt og erfitt heimilisvandamál hjá ráða- mönnum íhaldsmeirihlutans. Hér er um að ræða gifurleg vörukaup, sem íhaldið hefur af- hent Skeljungi h.f. án nokkurr- ar samkeppni annars staðar frá. Verður nú fróðlegt að sjá við- brögð olíufélaganna og þann árangur sem fæst með útboði þessa mikla magns af benzíni og olíum. Borgarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins hafa ár eftir ár flutt tillögur um að leitast yrði við að ná hagkvæmari innkaupum á þessum vörum með almennu út- boði. Samningurinn við Skeljung h.f. hefur hins vegar verið íhaldinu eins og heilagur dóm- ur og meirihluti þess jafnan verið látinn fella eða svæfa slík- ar tillögur. Nú loks hefur Ihaldið látið undan og eru það mikil og góð tíðindi að þessi vörukaup skuli nú verða boðin út en ekki af- hent samkeppnislaust einu af auðfélögum íhaldsgæðinganna. MYNDIRNAR eru teknar í heim- sókn forsetans til Bretlands og sést hann ásamt sir Alec Home forsætisráðherra á stærri myndinni en með Butler utanríkisráðherra á minni myndinni. Smánar- b œ t u r A tólftu síðu er m. a. rak- Ln ræða Hannibals Valdi- marssonar. er hann gerði grein fyrir afstöðu Alþýðu- bandalagsins til „jölaglaðn- ings“ viðreisnarstjórnarinnar til gamla fólksins. Samið um kaup á olíum og benzíni frá Sovétríkjunum I gær barst ÞjóðvUjanum eft- irfarandi fréttatilkynning frá viðskiptamá'aráðuneytinu um samninga um olíukaup frá Sov- étríkjunum á næsta ári: ,,Að tilhlutan viðskiptgmála- ráðuneytisins fóru fram í Moskvu, dagana 28. október til 1. nóvember sl„ viðræður um olíukaup á næsta ári frá Sov- étrikjunum. Af hálfu Islendinga tóku þátt í samningum þeir Hallgrímur Fr. Hallgrímsson, forstjóri, Hreinn Pálsson, forstjóri, Vil- hjálmur Jónsson, fonstjóri, Árni Þorsteinsson, fulltrúi og Harald- ur Kröyer, sendiráðunautur. Ráðstefna um vandamál íslenzkrar menningar, sjálfstæðis og sósíalisma ■ Róttækir stúdentar og ungir sósíalistar gangast fyr- ir ráðstefnu í vetur um vandamál íslenzkrar menningar, sjálfstæðis og sósíalisma. Ráðstefnan hefst 10. desem- ber n.k. og verður fram haldið eftir nýár. Á fyrsta fundi ráðstefnunnar. sem hefst í Aðalstræti 12 k). 8,30 þriðjudagskvöldið 10. des- ember verður dagskráin þessi: Eyvindur Eiríksson. formaður fé- lags róttækra stúdenta setur ráð- stefnuna, Jónas Árnason rit- höfundur flytur ávarp, Ragnar Arnalds alþingismaður ræðir um verkefni og stjórn RR (ráð- stefnunnar) og nánari flokkun umræðuefnis. Síðan verða al- mennar umræður og kjörnir em- bætt'smenn RR og ákveðin skipt- ing umræðuefnis og verksvið beirra. Gert er ráð fyrir að fundir RR á nýja árinu verði 3—5 með viku milbbili Þátttaka er heim') ö'lu ungu fólki á aldr- inum 16—30 ára. en Félags rót- tækra stúdenta mun jafnframt bjóða til þátttöku fáeinum mönn- um, sem komnir eru yfir aldurs- markið. Þátttökugjald verður 100 krónur. FylKlngirt Æskulýðsfylkingin i Reykja- vík heldur fullveldisfagnað í fé- lagsheimili Kópavogs n.k. laug- ardagskvöld kl. 9. Meðal skemmtiatriða verður upplestur, söngur og að Iokum dans. All- ir velkomnir. Samningur var undirritaður f Moskvu 1. nóvember sl., og und- irirtaði af hálfu Islendinga dr. Kristinn Guðmundsson, sendi- herra. Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir að Islendingar kaupi á næsta ári frá Sovét- ríkjunum 100.000 tonn af fuet- olíu, 210.0000 tonn af gasolíu og 48.000 tonn af benzíni". Ræða sakséknara stéð yfir í um níu klukkutíma Stöðugt er haldið áfraxn mÍL flutningi fyrir Hæstarétti í OIiu- málinu svonefnda en það mun vera eitt umfangsmesta mál sem rétturinn hefur fengið *til með- ferðar. 1 gær lauk saksóknari ríkis- ins, Valdimar Stefánsson. frum- sóknarræðu sinni. Hafði mál- flutningur hans þá staðið yfir í fjóra daga eða samtais um 9 kiukkustundir. 1 dag M. 2 e.h. hefst mál- flutningurinn að nýju og tek- ur þá til máls Benedikt Sig- urjónsson hæstaréttarlögmaður, skipaður verjandi Hauks Hvann- bergs aðalsakbomingsins í mál- inu. Er búizt við að flutningur varnarræðu hans muni taka litlu skemmri tíma en flutningur sóknarræðu sækjanda. Að henni lokinni flytja síðan verjendur annarra sakbominga vamarræð- ur sinar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.