Þjóðviljinn - 30.11.1963, Síða 1

Þjóðviljinn - 30.11.1963, Síða 1
Vinnupallarnir gliðnuðu og fuku ofan á bílana Aðeins 24 dagar e f t i r TSftir aðeins 24 daga verö- ■r drcgið í Happdrætti Þjóftviljans 1963 um íbúð- ina og aukavinninjfana 10 en allir vinningarnir hafa verið kynntir hér í blað- inu undanfama daga. Geta allir verið sammála um að vel er til vinninganna vandað og þelr lánsamir er þá hreppa. Sérstaklega er aðalvinningurinn óvenju eftirsóknarverður. Nú fara mánaðamót í hðnd og kaupgreiðslur al- mennt og ættu menn þá að minnast happdrættisins og kaupa miða á meðan fjáráðin eru góð. Síðdegis i gær hófst sala úr bif- reið er verður til staðar næstu daga á horni Aðal- strætis og Austurstrætis. Ættu þeir er eiga leið þar um að nota tækifærið og fá sér miða. , Enn f jölgar þeim númer- um sem skrifstofa happ- drættisins hefur verið beð- in að útvega sérstaklega og búið er að senda út til sölumanna happdrættis- ins. Eru þeir vinsamlega beðnir að Iáta vita ef þelr hafa númerin undir hönd- um óseld. Númerin eru þessi: 1075, 4232, 8034, 9995, 23355 og 34345. 1 dag verður skrifstofa happdrættisins að Týsgötu 3 opin kl. 9—12 og 1—5 og á morgun verður hún opin kl. 2—4 síðdegis. Komið á skrifstofuna og gerið skil fyrir seldum miðum eða sendið uppgjör- ið í pósti. Áríðandi er að gera skil ser.i allra fyrst. ðvæntur vöxtur hljóp í Hvítá 1 gær var svo mikill vatna- vöxtur i Hvítá í Borgarfirði. að hún flæddi yfir bakka sína og lika yfir þjóðveginn fyrir neðaii Hvítárskála og tepptist umferð um skeið af þessum sökum. Stöðvuðust þarna óætlunarbif- reiðir og emkabilar og þurftu bílar hélzt að hafa drif á öll- hjólum til þess að komast leið- ar siixnar um eftirmiðdaginn í gær. Viðgerðarflokkar voru þó komnir á vettvang. Víða hefur óvæntur vöxtur hlaupið í ár á Vesturlandi og Suðurlandsund- irlendinu undanfarna rigninga- daga. í veðurofsanum í fyrrinótt slitnaði vélbáturinn Flóaklettur frá bryggju í Hafnarfirði. Slitn- aði báturinn frá að aftan en framtrossurnar héldu. Tók skut- urinn niðri í fjörunni. Á flóði í gær flaut báturinn upp og var siglt suður í Garð. Ekki er talið að hann sé að ráði skemmdur en þó mun ætl- unin að setja hann í slipp til athugunar. um frá 1. apríl næst- komandi, með stórfelld- um fargjaldalækkunum, er svo hörð, að ég tel tvísýnt, að félagið lifi þá baráttu af“. — Þannig komst flugmálastjóri, Agnar Kofoed-Hansen, að orði í viðtali við blaðamenn í gær. Og enn kvað hann: „Rekstrar- grundvöllur þotanna er stórum hagkvæmari, gjöldin lág, og hraðinn svo mikill, að aðalvopn Loftleiða, sem allt hef- ur byggzt á, er að miklu leyti burtu fallið“. Drengur bíður bana á Seyðisfirði Seyðisfirði 29/11 — Hér varð dauðaslys í gærdag rétt eftir klukkan 16.00 á Hafnargötu og fannst tæplega þriggja ára drengur látinn við akbrautina. Enginn sjónarvottur var að slys- inu. Drengurinn hét Guðmundur Víðir Hallbjörnsson sonur Hall- björns Kristinssonar, Hringbraut 109 í Reykjavík. Drengurinn var í fóstri hjá föðursystur sinni. þar sem móð- ir hans hafði lent í bílslysi síð- astliðið vor og legið lömuð síð- an. Drengurinn var undir gæzlu húsagarði með rammbyggilegri girðingu og vísaði hliðið út á akbrautina. Hafði gæzlumaður skroppið inn í húsið fyrir örfáum mín- útum og drengnum þá tekist að opna hliðið og komast út á göt- una. Samkvæmt vitnaleiðslum við réttarrannsókn lagði vörubíll af stað frá húsi þama rétt hjá og ók um þetta leyti eftir götunni og var það án vitundar bfl- stjórans, ef drengurinn hefur lent fyrir þeirri bifreið. Fimmtán vitni hafa verið köll- uð fyrir réttarrannsókn og er henni að mestu lokið. — G. S. Loftleiðir eiga í vænd- Á blaðamannafundi þessum kom flugmálastjóri víða við. Hann kvað Flugmálastjómina hafa orðið fyrir gagnrýni vegna tímabundinna lækkana á far- gjöldum til Lúxemborgar. Loft- leiðir hafa sótt um tvær far- gjaldalækkanir. Sú fyrri var samþykkt í Flugráði, og gerðist það i fyrravetur. Kvað flug- málastjóri það hafa verið gert sökum þess, að Flugráð hefði hreinlega ekki talið sér fært að neita umsókninni, hér hefði ver- ið um að ræða lífsnauðsyn fyrir Loftleiðir, en forseti 1ATA ver- ið nýbúinn að lýsa stríði á hendur þvi flugfélagi. Þá hefði Flugráð talið sættir á komnar með Flugfélagi fslands og Loft- leiðum um þetta mál. Lagði flugmálastjóri fram máli sínu til sönnunar bréf frá Flugfélagi fslands, þar sem það kvaðst ekki mundu beita sér gegn um- sókn Loftleiða. Þá ræddi flugmálastjóri hina síðari umsókn Loftleiða um far- gjaldalækkun. Þá lækkun kvað hann hafa verið svo stórfellda, að Flugfélag íslands hefði ver- ið í fullum rétti að mótmæla. Hann lýsti það rangt, sem meðal annars kom fram i Morgunblaðs- grein Björns Ólafssonar, fyrrv. ráðherra, að Flugráð hefði á- kveðið að samþykkja þá um- sókn. Umsóknin lægi enn fyrir Flugráði, og alls væri óvíst, hvort hún yrði nokkurn tíma samþykkt. Var auðfundið á flug- málastjóra, að ekki bjóst hann við að af því yrði. Ekki vildi hann heldur svara þvi, hvort komin hefði verið meirihluti fyrir því í Flugráði að sam- þykkja 'umsóknina. A3 lokum gaf svo flugmála- stjóri yfirslýsingu þá, er að framan greinir um fyrirsjáan- Iega e-fiðleiki: Loft.Ieiða. Verð- ur fróðlegt að sjá, hvernig þeir Loftleiðamenn taka fréttinni um hugsanlegan dauða félagsins. SUÐLÆGUR 0FSI MED HL ÝINDUM í fyrrakvöld brast á ólátaveður hér sunnan- og vestan- lands með snöggt vaxandi suðlægri átt og miklum regn- hryðjum. Jafnframt hlýnaði mjög í veðri en hitinn varð mestur á Siglunesi, tólf stig. Samkvæmt upplýsingum veð- urstofunnar jókst suðlæga áttin mjög skyndilega í fyrrakvöld og hvessti jafnt og þétt fram á há- degi i gær. Þá komst vindhrað- inn hér í Reykjavík, en þar var hann einna mestur. upp í tíu vindstig. Úrkoma var afar mikil eða tuttugu millimetrar á tima- bilinu frá klukkan 18 á fimmtu- dag til klukkan 8 í gærmorg- un; þó mun hún hafa mælst enn meiri ef aðeins er tekin tíminn frá miðnætti á fimmtu- dag til klukkan átta í gærmorg- un. Jafnframt þessu hlýnaði mik- ið og mældist hiti mestur á Siglunesi eða tólf stig, á Akur- eyri og í Reykjavík 8 stig. Með- alhiti nóvembermánaðar er tvö Btig. Lítið sem ekkert tjón Lítið sem ekkert tjón mun hafa orðið af völdum þessa veð- urs og þegar blaðið hafði sam- band við Slysavamafélagið í gær hafði engin leitað til þess um aðstoð og ekki var lögreglunni kunnugt um nein meiri háttar spjöll vegna veðursins hér í Reykjavík. Þó mun bátur hafa slitnað upp í Hafnarfirði og vinnupallar fokið á að minnsta kosti einum stað hér í Reykjavík. Sjá fréttir á öðrum stað í blaðinu. Brezkur sjó- maður drukknar Vestmannaeyjum 29/11 *— Breskur sjómaður féll milli skips og bryggju skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld og drukkn- aði. Maðurinn hét Gordon Thompson og var háseti á línu- veiðaranum Glenstruan frá Aberdeen. Talið var að hann hefði fengið áverka á höfuð. Goskvikmynd í Laugarássbíó Ákveðið hefur verið að sýna goskvikmynd Geysis í Laugarás- bíói cn ekki í Austurbæjarbíói eins og skýrt hefur verið frá í fréttum. Sýningar á myndinni hefjast þar i daj. Flugmálastjóri telur tví- sýnt um líf Loftleiða * --------------------------- „Sá samkeppni, sem Hvassviðrið náði hápúnkti sín- um um hádegisleytið í gær og hrundu þá allt í einu vinnupall- ar við íbúðarblokk i smíðum að Kaplaskjólsvegi 27 til 31. Voru þeir á norðurhlið blokkarinnar. Þegar pallarnir gliðnuðu í sund- ur og féllu með braki og brest- um niður á jörð voru þar fyrir nokkrir einkabílar og beygluðust þcir og rúður brotnuðu i þeim. Myndirnar sýna hvernig bílam- ir liggja í brakinu eins og jarð- skjálfti sé nýafstaðinn. — Nokkurt tjón hlauzt af óveðrinu. — (Ljósmynd: Þjóðv. A. K.).

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.