Þjóðviljinn - 30.11.1963, Blaðsíða 1
Vinnupallarnir gliðnuðu og
fuku ofan á bílana
Aðeins
24 dagar
e f t i r
TSftir aðeins 24 daga verö-
■r drcgið í Happdrætti
Þjóftviljans 1963 um íbúð-
ina og aukavinninjfana 10
en allir vinningarnir hafa
verið kynntir hér í blað-
inu undanfama daga. Geta
allir verið sammála um að
vel er til vinninganna
vandað og þelr lánsamir er
þá hreppa. Sérstaklega er
aðalvinningurinn óvenju
eftirsóknarverður.
Nú fara mánaðamót í
hðnd og kaupgreiðslur al-
mennt og ættu menn þá
að minnast happdrættisins
og kaupa miða á meðan
fjáráðin eru góð. Síðdegis
i gær hófst sala úr bif-
reið er verður til staðar
næstu daga á horni Aðal-
strætis og Austurstrætis.
Ættu þeir er eiga leið þar
um að nota tækifærið og
fá sér miða. ,
Enn f jölgar þeim númer-
um sem skrifstofa happ-
drættisins hefur verið beð-
in að útvega sérstaklega
og búið er að senda út
til sölumanna happdrættis-
ins. Eru þeir vinsamlega
beðnir að Iáta vita ef þelr
hafa númerin undir hönd-
um óseld. Númerin eru
þessi: 1075, 4232, 8034,
9995, 23355 og 34345.
1 dag verður skrifstofa
happdrættisins að Týsgötu
3 opin kl. 9—12 og 1—5
og á morgun verður hún
opin kl. 2—4 síðdegis.
Komið á skrifstofuna og
gerið skil fyrir seldum
miðum eða sendið uppgjör-
ið í pósti. Áríðandi er að
gera skil ser.i allra fyrst.
ðvæntur vöxtur
hljóp í Hvítá
1 gær var svo mikill vatna-
vöxtur i Hvítá í Borgarfirði. að
hún flæddi yfir bakka sína og
lika yfir þjóðveginn fyrir neðaii
Hvítárskála og tepptist umferð
um skeið af þessum sökum.
Stöðvuðust þarna óætlunarbif-
reiðir og emkabilar og þurftu
bílar hélzt að hafa drif á öll-
hjólum til þess að komast leið-
ar siixnar um eftirmiðdaginn í
gær. Viðgerðarflokkar voru þó
komnir á vettvang. Víða hefur
óvæntur vöxtur hlaupið í ár
á Vesturlandi og Suðurlandsund-
irlendinu undanfarna rigninga-
daga.
í veðurofsanum í fyrrinótt
slitnaði vélbáturinn Flóaklettur
frá bryggju í Hafnarfirði. Slitn-
aði báturinn frá að aftan en
framtrossurnar héldu. Tók skut-
urinn niðri í fjörunni.
Á flóði í gær flaut báturinn
upp og var siglt suður í Garð.
Ekki er talið að hann sé að
ráði skemmdur en þó mun ætl-
unin að setja hann í slipp til
athugunar.
um frá 1. apríl næst-
komandi, með stórfelld-
um fargjaldalækkunum,
er svo hörð, að ég tel
tvísýnt, að félagið lifi þá
baráttu af“. — Þannig
komst flugmálastjóri,
Agnar Kofoed-Hansen,
að orði í viðtali við
blaðamenn í gær. Og enn
kvað hann: „Rekstrar-
grundvöllur þotanna er
stórum hagkvæmari,
gjöldin lág, og hraðinn
svo mikill, að aðalvopn
Loftleiða, sem allt hef-
ur byggzt á, er að miklu
leyti burtu fallið“.
Drengur bíður bana
á Seyðisfirði
Seyðisfirði 29/11 — Hér varð
dauðaslys í gærdag rétt eftir
klukkan 16.00 á Hafnargötu og
fannst tæplega þriggja ára
drengur látinn við akbrautina.
Enginn sjónarvottur var að slys-
inu.
Drengurinn hét Guðmundur
Víðir Hallbjörnsson sonur Hall-
björns Kristinssonar, Hringbraut
109 í Reykjavík.
Drengurinn var í fóstri hjá
föðursystur sinni. þar sem móð-
ir hans hafði lent í bílslysi síð-
astliðið vor og legið lömuð síð-
an.
Drengurinn var undir gæzlu
húsagarði með rammbyggilegri
girðingu og vísaði hliðið út á
akbrautina.
Hafði gæzlumaður skroppið
inn í húsið fyrir örfáum mín-
útum og drengnum þá tekist að
opna hliðið og komast út á göt-
una.
Samkvæmt vitnaleiðslum við
réttarrannsókn lagði vörubíll af
stað frá húsi þama rétt hjá og
ók um þetta leyti eftir götunni
og var það án vitundar bfl-
stjórans, ef drengurinn hefur
lent fyrir þeirri bifreið.
Fimmtán vitni hafa verið köll-
uð fyrir réttarrannsókn og er
henni að mestu lokið. — G. S.
Loftleiðir eiga í vænd-
Á blaðamannafundi þessum
kom flugmálastjóri víða við.
Hann kvað Flugmálastjómina
hafa orðið fyrir gagnrýni vegna
tímabundinna lækkana á far-
gjöldum til Lúxemborgar. Loft-
leiðir hafa sótt um tvær far-
gjaldalækkanir. Sú fyrri var
samþykkt í Flugráði, og gerðist
það i fyrravetur. Kvað flug-
málastjóri það hafa verið gert
sökum þess, að Flugráð hefði
hreinlega ekki talið sér fært að
neita umsókninni, hér hefði ver-
ið um að ræða lífsnauðsyn fyrir
Loftleiðir, en forseti 1ATA ver-
ið nýbúinn að lýsa stríði á
hendur þvi flugfélagi. Þá hefði
Flugráð talið sættir á komnar
með Flugfélagi fslands og Loft-
leiðum um þetta mál. Lagði
flugmálastjóri fram máli sínu
til sönnunar bréf frá Flugfélagi
fslands, þar sem það kvaðst
ekki mundu beita sér gegn um-
sókn Loftleiða.
Þá ræddi flugmálastjóri hina
síðari umsókn Loftleiða um far-
gjaldalækkun. Þá lækkun kvað
hann hafa verið svo stórfellda,
að Flugfélag íslands hefði ver-
ið í fullum rétti að mótmæla.
Hann lýsti það rangt, sem meðal
annars kom fram i Morgunblaðs-
grein Björns Ólafssonar, fyrrv.
ráðherra, að Flugráð hefði á-
kveðið að samþykkja þá um-
sókn. Umsóknin lægi enn fyrir
Flugráði, og alls væri óvíst,
hvort hún yrði nokkurn tíma
samþykkt. Var auðfundið á flug-
málastjóra, að ekki bjóst hann
við að af því yrði. Ekki vildi
hann heldur svara þvi, hvort
komin hefði verið meirihluti
fyrir því í Flugráði að sam-
þykkja 'umsóknina.
A3 lokum gaf svo flugmála-
stjóri yfirslýsingu þá, er að
framan greinir um fyrirsjáan-
Iega e-fiðleiki: Loft.Ieiða. Verð-
ur fróðlegt að sjá, hvernig þeir
Loftleiðamenn taka fréttinni um
hugsanlegan dauða félagsins.
SUÐLÆGUR 0FSI
MED HL ÝINDUM
í fyrrakvöld brast á ólátaveður hér sunnan- og vestan-
lands með snöggt vaxandi suðlægri átt og miklum regn-
hryðjum. Jafnframt hlýnaði mjög í veðri en hitinn varð
mestur á Siglunesi, tólf stig.
Samkvæmt upplýsingum veð-
urstofunnar jókst suðlæga áttin
mjög skyndilega í fyrrakvöld og
hvessti jafnt og þétt fram á há-
degi i gær. Þá komst vindhrað-
inn hér í Reykjavík, en þar var
hann einna mestur. upp í tíu
vindstig. Úrkoma var afar mikil
eða tuttugu millimetrar á tima-
bilinu frá klukkan 18 á fimmtu-
dag til klukkan 8 í gærmorg-
un; þó mun hún hafa mælst
enn meiri ef aðeins er tekin
tíminn frá miðnætti á fimmtu-
dag til klukkan átta í gærmorg-
un.
Jafnframt þessu hlýnaði mik-
ið og mældist hiti mestur á
Siglunesi eða tólf stig, á Akur-
eyri og í Reykjavík 8 stig. Með-
alhiti nóvembermánaðar er tvö
Btig.
Lítið sem ekkert tjón
Lítið sem ekkert tjón mun
hafa orðið af völdum þessa veð-
urs og þegar blaðið hafði sam-
band við Slysavamafélagið í gær
hafði engin leitað til þess um
aðstoð og ekki var lögreglunni
kunnugt um nein meiri háttar
spjöll vegna veðursins hér í
Reykjavík.
Þó mun bátur hafa slitnað
upp í Hafnarfirði og vinnupallar
fokið á að minnsta kosti einum
stað hér í Reykjavík. Sjá fréttir
á öðrum stað í blaðinu.
Brezkur sjó-
maður
drukknar
Vestmannaeyjum 29/11 *—
Breskur sjómaður féll milli
skips og bryggju skömmu fyrir
miðnætti í gærkvöld og drukkn-
aði. Maðurinn hét Gordon
Thompson og var háseti á línu-
veiðaranum Glenstruan frá
Aberdeen. Talið var að hann
hefði fengið áverka á höfuð.
Goskvikmynd í
Laugarássbíó
Ákveðið hefur verið að sýna
goskvikmynd Geysis í Laugarás-
bíói cn ekki í Austurbæjarbíói
eins og skýrt hefur verið frá
í fréttum. Sýningar á myndinni
hefjast þar i daj.
Flugmálastjóri telur tví-
sýnt um líf Loftleiða
* ---------------------------
„Sá samkeppni, sem
Hvassviðrið náði hápúnkti sín-
um um hádegisleytið í gær og
hrundu þá allt í einu vinnupall-
ar við íbúðarblokk i smíðum að
Kaplaskjólsvegi 27 til 31. Voru
þeir á norðurhlið blokkarinnar.
Þegar pallarnir gliðnuðu í sund-
ur og féllu með braki og brest-
um niður á jörð voru þar fyrir
nokkrir einkabílar og beygluðust
þcir og rúður brotnuðu i þeim.
Myndirnar sýna hvernig bílam-
ir liggja í brakinu eins og jarð-
skjálfti sé nýafstaðinn. —
Nokkurt tjón hlauzt af óveðrinu.
— (Ljósmynd: Þjóðv. A. K.).