Þjóðviljinn - 08.12.1963, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 08.12.1963, Qupperneq 1
57 félög mei um 20 þús. félagsmenn boða verkföll Fréttabréf frá Dafvík Á opnn blaðsins i dag birtum við Iangt fréttabréf frá frétta- ritara Þjóðviljans á Dalvik bar sem sagt er frá atvinnulífi og belztu framkvæmdum þar um slóðir. Fylgir því margt ágætra mynda sem fréttaritarinn befur einnig tekið. Meðfylgjandi mynd er af mönnum að vinna við nýja hafnargarðinn á Dalvik og heitir sá Hallgrimur Antonsson sem nær er á myndinni. Þvi miður vitum við ekki nafn bins mannsins. (Lm. Hreinn Kristinsson). AÐRA NOn? □ Á miðnætti aðra nótt, aðfaranótt þriðjudags, skellur á alls- herjarverkfall um land allt hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðviljinn aflaði sér í gær munu þá a.m.k. 57 verkalýðsfélö g með um 20 þúsund félagsmenn innan sinna vébanda hafa boðað verkföll í vikunni og flest þeirra, þ.á.m. öll stærstu félögin, frá og með 10. þ.m. en hin næstu daga þar á eftir. □ Sáttafundur var boðaður með samninganefnd verklýðsfélag- anna og fulltrúum atvinnurekenda kl. 2 e.h. í gær. Stóð fundurinn enn yfir er blaðið fór í prentun og var ekki vitað hvort nokkur árangur myndi nást á honum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Þjóðviljinn aflaði sér í gær höfðu þá 13 verkalýðsfé- lög í Reykjavk boðað verkfall og er þá Verzlunarmannafélag Reykjavikur ekki meðtalið. Munu þessi 13 félög telja nær 10 þúsund félagsmenn. Félögin eru þessi: Verkamannafélagið Dags- brún, Félag jám iðnaðarmann a, Bókbindarafélagið, Prentarafélagið, Mjólkurfræðingafélagið, Iðja, Trésmiðafélagið, Félag húsgagnasmiða, Verkakvennafél. Framsókn, ASB, Félag bifvélavirkja. Félag blikksmiða og Félag ísl. rafvirkja, Þá er Þjóðviljanum kunnugt um 23 verkalýðsfélög úti um land með um 6500 félagsmönn- um sem boðað hafa verkföll. Eru það þessi félög: Hlíf, Hafnarfirði, Eining, Akureyri, Iðja, Akureyri, Verkalýðsfél. Vestmannaeyja, Verkakvennafélagið Snót, V estmannaey jum, Iðja, Hafnarfirði, Verkamannafél. Þór, Selfossi, Verkalýðs- og sjómannafél. Bjarmi, Stokkseyri, Verkamannafél, Báran, Eyr- arbakka, Verlcalýðsfélag Hveragerðis, Verkakvennafélagið Brynja, Siglufirði, Þróttur, Siglufirði, Verkalýðsfél. Norðfirðinga, Verkamannafélagið Árvakur, Eskifirði, Verkalýðs- og sjómannafél. Stöðvarf jarðar, Verkalýðsfélag Vopnafjarðar, Verkalýðs- og sjómannafél. Miðneshrepps, Sandgerði, Verkamannafélag Húsavíkur, Verkakvennafélagið Framtíð- in, Eskifirði, Verkamannafél. Reyðarfj., Verkalýðs- og sjómannafélag Framhald á 2. síðu. Starfsmenn SÍS fá launahækkun ★ Allir starfsmenn SlS fá þrettánda mánuðinn greiddan sem Iaunauppbót fyrir þetta ár. ★ Þessa yfirlýsingu flutti Markús Stefánsson frá Sambands- stjórn á fundi í deild samvinnustarfsmanna í V. R. i Sambands- húsinu síðastliðið fimmtudagskvöld. Markús Stefánsson er deildar- stjóri í Búsáhaldadeild Kjörbúðar SlS í Austurstræti og er einn af forvígismönnum samvinnustarfsmanna í V. R. í 17 dagar eftir Nú eru aðeins 17 dagar eftir þar til dregið verður í Happdrætti Þjóðviljans 1963. Þessa fáu daga sem eftir era verðum við að nota mjög vel því að mik- ið ríður á að ná sem bezt- um árangri í sölu happ- drættismiðanna. Undir því er framtíð Þjóðviljans komin að happdrættið beri ríkulegan ávöxt. 1 dag verður skrifstofa happdrættisins að Týs- götu 3 opin kl. 2—4 sið- degis, sími 17514. Notið helgina til þess að gera skil fyrir seldum miðum. Lokaspretturmn er að hefjast og hver dagur dýrmætur sem eftir er. Sameinumst öll um að ná þvi marki sem við höfum sett okkur: að selja alla miða upp fyrir Þorláks- messu. Jólablað | Þjóðviljans Jólablaö Þjóðviljans er kom- ið út, 80 blaðsíður og litprent- að. Það verður til söhl £ öllum blaðaútsölustöðum og kostar 15 krónur. Næstu daga verður það borið tfl faatn kaupenda Þjóðviljans. Flokksstjórnarfund- lýkur / kvöld Flokksstjórnarfundi Sam- einingarflokks alþýðu, Sós- falistaflokksins var haldið á- fram í gær, laugardag. Hófst fundur að nýju kl. 2 síðdegis í Tjarnargötu 20 með því að rætt var um flokksstarfsem- ina og skipulagsmálin. For- maður Sósíalistaflokksins, Einar Olgeirsson hafði fram- sögu í málinu, en að fram- söguræðu lokinni hófust um- ræður. Þar sem sunnudagsblað Þjóðviljans er snemma búið til prentunar á laugardögum og flokksstjórnarfundurinn stóð sem hæst er blaðið fór í pressuna í gærdag, er eigi unnt að skýra nánar frá fundarstörfum í þessu blaði. Búizt var við að fundur stæði fram eftir kvöldinu, en ætlunin er að ljúka fiokksstjórnarfundinum í kvöld, sunnudag. Myndin var tekin viff sctn- ingu flokksstjórnarfundarins síðrlegis á laugardag. (L.jós- mynd Þjóðv. A.K.).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.