Þjóðviljinn - 21.12.1963, Side 1
Samningafundur framundir morgun
Frásagnirnar um lok verkfallsins hér á síðunni eru miðaðar við horfurnar eins og
þær voru þegar blaðið fór í prentun. Verklýðsfélögin samþykktu samningana
með því skilyrði að samið yrði við alla. Hins vegar voru enn nokkur óleyst
vandamál þegar Þjóðviljinn fór 1 prentun; m.a. höfðu rafvirkjameistarar enn
ekki samþykkt samningana og ósamið var við Iðju í Hafnarfirði. Því stóð samn-
ingafundur enn kl. 4 í nótt, en sennilegt var talið að atvinnurekendur létu af
þvermóðsku sinni fyrir morguninn.
Víðtækustu verkföllum í sögu verkulýðshreyfingurínnur lokið
15% kauphækkun eftir 11
daga allsherjarverkfall
■ í nótt lauk víðtækasta verkfalli sem háð hef-
ur verið á íslandi, raunverulegu allsherjarverk-
falli gegn óðaverðbólgu og æ ranglátari skiptingu
þjóðarteknanna. Verkfallið stóð í 11 sólarhringa
og málalokin urðu mjög alvarlegur ósigur fyrir
ríkisstjóm og atvinnurekendur, þótt því færi
fjarri að verklýðsfélögin fengju nauðsynlega leið-
réttingu mála sinna — ekki sízt vegna þess að
nokkrir sendimenn Sjálfstæðisflokksins innan
verklýðshreyfingarinnar bmgðust á örlagastundu.
■ Meginárangurinn sem um samdist í gær og
í nótt var 15% almenn kauphækkun á alla launa-
taxta verklýðsfélaganna. Flest 'félögin sömdu til
20. júní n.k., bókagerðarmenn þó til 1. október,
en áður höfðu Iðjufélögin samið til áramóta, og
verzlunarmenn til tveggja ára með gerðardómi,
eins og rakið er á öðrum stað í blaðinu.
■ Almennu verklýðsfélögin fyrir norðan og
austan höfðu yfirleit'f þann hátt á að þau gerðu
ekki samninga, heldur auglýstu kauptaxta með
sömu ákvæðum og samið var um hér syðra, og
gildir hann til 15. maí.
■ Auk hinna almennu ákvæða urðu nokkrar
Verkfallsverðir Dagsbrúnar þurftu í mörg hom að líta á dögunum. Myndin var tekin í fyrrinótt á þjóðveginum nálægt Korpq
í Mosfcllssveit, en þar höfðu verkíallsveröir stöðvað bifreiðir og gætt að farmi þeirra. — (Ljósm, Þjóðv. Ari Kárason).
breytingar á sérsamningum almennu verklýðsfé-
laganna. Þannig fékk Dagsbrún óskoruð yfirráð
yfir sjúkrasjóði sínum, og var það mjög mikil-
vægur árangur. Kauptaxti hafnarverkamanna
hækkar og jafngildir það 3% kauphækkun í við-
bót. Einnig flyzt vinna í síldarverksmiðjum um
flokk, kaup vaktmanna hækkar og ýmsar breyt-
ingar voru gerðar á samningunum.
Guðjón klýfur
Eins og skýrt var frá í sið-
asta blaði Þjóðviljans, stóðu mál
þannig þegar verkföll hófust að
atvinnurekendur höfðu boðið
10% kauphækkun í dagvinnu
einni saman, og jafngilti það
6 — 7% almennri kauphækkun
með þeim vinnutíma sem nú
tíðkast. og fyflgdi ekkert annað
því boði. Samstarfsnefnd verka-
lýðsfélaganna, sem skipuð var
fulltrúum um 60 launþegafélaga,
hafnaði því boði algerlega ein-
róma.
Þegar svo var komið hurfu
Fram'hald á 3. síðu.
Fjölmennur fundur Dagsbrúnar í gœrkvöld:
15 PRÓSENT KAUPHÆKKUN -
YFIRRÁÐ STYRKTARSJÓDSINS
Fjölmennur Dags-
brúnarfundur í Gamla-
bíói í gærkvöld sam-
þykkti með atkvæðum
nær allra fundarmanna
gegn 5, eftirfarandi:
„Fundurinn samþykk-
ir að veita stjórn félags-
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
HEFUR í HÓTUNUM
Á sama tíma og verið var
að ganga frá samningum í
gærkvöld — samkvæmt til-
boði sem upphaflega var
komið frá Bjarna Benediks-
syni forsætisráðherra — var
Gunnar Thoroddsen fjár-
málaráðherra að flytja ræðu
á Alþingi um efndir ríkis-
stjórnarinnar á samningun-
um.
Hann skýrði þar frá því
að ríkisstjórnin væri ráðin í
því að fella niður úr fjárlög-
um niðurgreiðslur á vöru-
verði sem nema 92 milljón-
um króna, en afleiðing þess
verður mjög veruleg verð-
hækkun á mjólk, fiski og
ýmsum öðrum nauðsynjum.
Heyktist ríkisstjórnin sem
kunnugt er á þessari ráð-
stöfun í haust og lofaði að
liætta við hana — en nú er
aftur reitt til höggs.
1 annan stað boðaði Gunn-
ar Thoroddsen „nýjar ráð-
stafanir í efnahagsmálum"
eftir áramótin, en sérfræð-
ingar hennar hafa verið með
tillögur um stórfellda hækk-
un á söluskatti, 300—400
milljónir króna á ári.
Nánar verður rætt um
þesar hótanir.
ins heimild til að undir-
rita samninga á þeim
grundvelli, sem lagt hef-
ur verið fyrir fundinn
og að aflýsa verkfallinu
þegar þau félög sem nú
hafa samstöðu eru reiðu-
búin til þess“.
Meginatriði samnings-
ins eru 15% hækkun á
allt kaup Dagsbrúnar-
manna, hafnarverka-
menn hækka um einn
taxta, og — Dagsbrún
fær fulla stjórn á Styrkt-
arsjóði Da^sbrúnar-
manna.
Dagsbrúnarfundurinn í
kvöld var boðaður með tæprar
klst. fyrirvara, en á tilsettmn.
tíma fylltu Dagsbrúnarmenn
Gamla bíó. Guðmundur J. Guð-
mundsson varaformaður stjóm.
aði fundinum en formaður
Dagsbrúnar. Eðvarð Sigurðsson
Framhald á 9. síðtL
Járnsmiðir sam-
þykkja einróma
Félag jámiðnaðarmanna hélt
almennan félagsfund í húsakynn-
um Landssmidjunnar í gærkvöld
og var fullt út úr dyrum. Snorri
Jónsson, formaður félagsina,
flutti skýrslu um samningana, og
Guðjón Jónsson, starfsmaður fé»
lagsins ræddi framkvæmd verk-
fallsins. Síðan voru nýju samrv.
ingarnir samþykktir mót.
atkvæðalaust.