Þjóðviljinn - 23.12.1963, Side 1

Þjóðviljinn - 23.12.1963, Side 1
DIQDVIIIINN Mánudagur 23. desember 1963 — 28. árgangur — 266. tölublað. MIKILL EINHUGUR Á FUNDI TRÉSMIÐA □ Trésmiðafélag Reykjavíkur hélt fund í Sig- túni í gærdag kl. 4 síðdegis. Var fundurinn mjög fjölsóttur og fundarmenn algerlega einhuga um að halda áfram verkfallsbaráttunni þar til sigur fengizt í deilunni við atvinnurekendur um ákvæð- isvinnukjörín. Eins og frá var skýrt hcr í blaðinu í gær neituðu atvinnu- rekendur að scmja við trésmiði um samsvarandi hækkun á á- kvæðisvinnutöxtum eins og sam- komulag hafði orðið um á tíma- vinnu og halda trésmiðir því á- fram verkfalli sinu. Á fundinum í gær hafði Sturla H. Sæmundsson varafownaður Trésmiðafélagsins framsögu Qg skýrði frá gangi samningatil- raunanna og því hvemig málin stóðu er slitnaði upp úr samn- inguntim. Þá talaði formaður fé- lagsins, Jón Snorri Þorleifsson, og einnig tóku fjórir aðrir fund- armenn til máls. Hvöttu þeir A HAMLET- . .:■■/ ■• ÆFINGU Jólaleikrit Þjóðleikhúss- : . .. . ■., ins í ár verður það fræga / v ■ . ' stykki „Hamlet“ cftir ; . . ■ ■ ' ■ v ' " William Shakespeare. Á næsta ári eru liðin 400 ár frá fæðingu skáldsins og er afmælisdagsins minnzt á þessu leikári uin allan heim mcð sýningum á leikjum Shakespeares. — Myndin var tekin á æf- uHiPÍÍ* r; -;$5 ^ ingu í Þjóðleikhúsinu á ~SS? .ws8SaálSllírai dögunum og eins og sjá má áður en hafnar voru ■ ■ . sviðsæfingar í réttum leik- búningum. Á myndinni sjást þau Rúrik Haralds- son, scm leikur Hóras, og Þórunn Magnúsdóttir, scm leikur Ófeliu. — Ljósm. • ' Þjóðv. A. K. Sjá ennfremur á 12. síðu Mjólkurfræðingar semja Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær felldu mjólkurfræðingar á fundi 1 fyrrakvöld að undirrita samninga og aflýsa verkfalli sínu við vinnslu mjólk- urafurða, og var ástæðan ýmsar sér- kröfur um réttindi félagsins og félags- manna. Að fundinum loknum hóf sáttasemjari fund með mjólkurfræðing- um og fyrirsvarsmönnum M.jólkursam- sölunnar, og náðist samkomulag um sáttakröfurnar kl. 1 um nóttina. Hófst vinnsla mjólkurafurða í gærmorgun, og ætti því ekki að verða rjómaskort- ur um hátíðarnar. allir til áframhaidandi baráttu fyrir réttmætum kröfum félags- ins. Fundinn sóttu á þriðja hundr- að félagsmenn og var mikill einhugur ríkjandi meðal þeirra. Eru trésmiðir staðráðnir í að hvika ekki frá kröfum sínum og bera þær fram til sigurs. Hafa atvinnurekendur þegar samið við húsgagnabólstrara um hlið- stæða hækkun á ákvæðisvinnu þótt þeir vilji synja trésmiðnm og málurum um sama rétt. Mál- arar hafa hins vegar enn ekki boðað verkfall. Nýr samningafundur hefur enn ekki verið boðaður í kjaradeilu tfésmiða og atvinnurekenda. Enn er ekki að fullu séð hvort samkomulag verður um skipan landbúnaðarmála í Efnahags- bandalaginu fyrir áramótin eins og de Gaulle hefur krafizt, en hann hefur látið í það skina að ef ekki yrði gengið að úrslitakostum Frakka, kynnu þeir að hætta samvinnunni við hin sex- veldin. En þótt óvíst sé, hvernig fer í Brussel, má telja víst að hvaða málamiðlunarlausn sem finnst þar muni enn magna fjandskap bænda í aðildarríkjunum í garð bandalagsins, ekki hvað sízt i Vestur-Þýzkalandi. — Myndin er tekin x Hamborg fyrir nokkrum dögum þegar hundruð bænda úr nærsveitum héldu þangað á traktorum sinum til að mótmæla landbúnaðar- stefnu stjórnarinnar. Strandar samkomulag á Unilever? Nú aftur betri horfur á a6 sættir muni takast í EBE BRUSSEL 22/12 — Utanríkis- og landbúnaðarráðherrar sexveldanna í Efnahagsbandalagi Evrópu sátu á fundi alveg fram til kl. hálf sex í morgun, en tókst þó ekki að ná samkomulagi um skipan landbúnaðarmála. Það er hins vegar talið, að líkur á sáttum hafi eitthvað auk- izt og jafnvel svo að vænta megi samkomulags fyrir 'áramót, Það er þó allsendis óvíst enn. Stríðsglæparéttarhöld í Frankfurt A fundinum í nótt tókst að jaína verulega ágreining stjórna Frakklands og Vestur-Þýzka- lands, þótt enn sé ekki hægt að fullyrða að bilið milli þeirra verði brúað. V erðlags jöf nun Einkum hafði reynzt erfitt að ná samkömulagi um verðlags- Réðu milljónum bana í Auschwitz en voru virtir borgarar í V-Þýzkalandi jöfnun á hrísgrjónum, kjöti og mjólkurafurðum. en svo mjög miðaði í átt til samkomulags £ nótt að utanríkisráðherrar Vest- ur-Þýzkalands. Schröder, og Belgíu, Spaak, töldu báðir allar horf'ur á að það tækist á fundi í morgun. Unilever á móti Ekki er þó allur vandinn leystur með því. Eitt atriði í þessu samkomulagi er að lagðar Framhald á 2. síðu. HÆKKUNIN FRÁ TILBODIRÍKIS- STJÓRNARINNAR FRANKFUÉT 22/12 — Réttarhöld í víðtækasta og jafn- framt óhugnanlegasta stríðsglæpamáli sem komið hefur fyrir vesturþýzkan dómstól hófust í Frankfurt fyrir helg- ina. Sakborningar eru 22 talsins, allir nema einn fyrrver- andi foringj'ar í SS-sveitum nazista. Það vekur ekki hvað minnsta athvgli við þessi réttarhöld að allir morðingjarn- ir höfðu komið ár sinni vel fyrir borð í Vestur-Þýzkalandi eftir stríð, voru þar virtir borgarar og máttarstólpar þjóð- félagsins. Taka hálft ár Þeir eru allir sakaðir um morð eða hlutdeild í morðum. Enginn veit tölu þeirra sem þeir rnj'rtu, en talið er að í fanga- buðum nazista í Auscbwitz í Póllandi hafi um þrjór milljón- ir manna láiiö lílið. Búizt er við að réttarhöldin muni standa í hálft ár. Þrír ríkissaksóknarar hafa unnið ár- um saman að undirbúningi málsins og hafa þeir yfirheyrt 1.300 vitni. Ákæruskjalið sjálft er 700 blaðsíður, en fylgiskjölin 17.000 síður. 350 vitni munu verða leidd fyrir réttinn. Eng- inn réttarsalur í Frankfurt var nógu stór fyrir þetta umfangs- mikla mál og er það því háð í borgarþingsalnum. Tilviljun Það er tilviljun ein að hin- ir ákærðu sitja nú á bekk sak- borninga en ekki í virðulegum stöðum í hinu vesturþyzka þjóð- félagi. Hún er sú að einn af þeim Auschwitzföngum, sem sovézki herinn bjargaði, Ernil Vulkan, fann fyrir hendingu nokkurn hluta af skjalasafni ,,SS und . Polizeigericht 1V“ í Breslau 1945. Hann hafði skjölin með sér, en gerði sér ekki grein fyrir hvað þau höfðu að geyma. Það var fyrst þrettán árum síðar að hann fékk þau í hendur blaðamanni einum. Aftökulisti Blaðamaðurinn komst að því að þarna var um að ræða skrá yfir þá sem teknir voru af lífi í Auschwitz. Hann kom skjöl- unum til saksóknarans Fritz Bauer í fylkinu Hessen, en Bau- er hefur orð á sér f.yrir að géra sér meira far um að koma lög- Framhald á 2. síðu. Það hefur lengi verið fastur siður eftir verkföll á Islandi að málgögn atvinnurekenda hafa reiknað út hvað verkafólk hafi tapað miklu á kjarabaráttu sinni og hvað menn hefðu hagn- azt mikið á því að semja um lé- legri kjör. Að þessu sinni hefur þó Iítið farið fyrir útrcikningum af þessu tagi; þó rcyndi Vísir í fyrradag að halda því fram að verkamenn hefðu fengið „meiri kjarabætur“ með því að ganga að hinu upphaflega til- boði ríkisstjórnarinnar og bcitir í því skyni ýmsum fölsunum, reiknar til að mynda með því að engin eftirvinna sé unnin á Islandi! En þetta dæmi cr svo einfalt að ekki ætti að vera hægt að rugla nokkurn mann: ★ Sé miðað við almennan taxta Dagsbrúnarverkamanna var hann 28 kr. á klukkustund fyrir verk- föllin. Ríkisstjórnin lagði til að hann hækkaði um 8n/o eða upp í kr. 30,24. Samið var um að taxtinn yrði 32,20. Hækkun frá tilboði ríkisstjórnarinnar kr. 1,96 á klukkustund. ★ Eftirvinna á þessum taxta var kr. 44,80. Ríkisstjórnin lagði til að hún héldist óbreytt. Sam- ið var um að hún hækkaði upp í kr. 51,52. Hækkun frá tilboði ríkisstjórnarinnar kr. 6,72 á klukkustund. ★ Næturvinna og helgidaga- vinna á þessum taxta var kr. 56,00. Ríkisstjórnin lagði til að það kaup héldist óbreytt. Sam- ið var um að það hækkaði upp £ kr. 64,40. Hækkun frá tilboði rík- isstjórnarinnar kr. 8,40 á klukku- stund. ★ Sé reiknað með 300 vinnu- dögum á ári, og að aukavinna manna jafni sig upp með ein- um eftirvinnutfma og einum næt” urvinnutíma á dag að meðaltali, lagði ríkisstjórnin til að árstekj- Framhald á 2. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.