Þjóðviljinn - 28.12.1963, Síða 1

Þjóðviljinn - 28.12.1963, Síða 1
Laugardagux 28. desemher; 1963 — 28. árgangur — 268. 'tölublað. Njósnamálið í Búlgaríu Rannsókn á Lakónía-slysinu Sjá 3ju srðu M.S. HUGRÚN HÆTT KOMIN □ Yélskipið Hugrún írá Hafnarfirði var hætt komið á heimleið frá Þýzkalandi er leki kom að skipinu og hafði skipið þegar samband við Vest- mannaeyjaradíó. Flugvél Landhelgisgæzlunnar og Goðafoss fóru þegar á vettvang. Vélbáturinn Hugrún var á heimleið frá Cuxhaven eftir góða söluferð, þegar leki kom að skipinu og var það þá statt 150 sjómilur frá Vestmannaeyjum. Þetta var á annan jóladags- morgun. Goðafoss var næsta skip og hélt þegar á vettvang og líka SIF, flugvél Landhelgisgæzlunn- ar og fann hún bátinn kl. 18 um daginn. Skömmu síðar kom Goðafoss á vettvang og fylgdi skipinu til Reyðarfjarðar. Dælur skipsins höfðu undan og fór þetta allt betur en á horfðist um skeið. Hugrún er gerð út frá Hafnar- firði og er eigandi skipsins Sig- urður Sigurjónssqn í Hafnar- firði og var hann skipstjóri á skipinu í þessari ferð. Hugrún var áður gerð út frá Bolungar- vík. Háskólinn fær rafheila aó gjöf Framkvæmdabankinn varð tíu ára þann tíunda febrúar síðastliðinn og í tilefni þess ákvað bankaráð að gefa Há- skóla íslands fé til kaupa á rafheila. Má þetta hiklaust telja eina skynsamlegustu samþykkt þessa bankaráðs og mikið happ fyrir Háskóla íslands og reyndar alla vísinda- starfsemi í landinu. Rafheilinn mun væntanlega verða tilbúinn í september eða október á ári komanda og bíða hans þá fjölmörg verkefni auk þess sem tilkoma hans hlýtur að örfa mjög ýmsa vísindastarfsemi þannig að. menn ráðist nú í margs konar útreikninga er setið hafa á hakanum til þessa. Nýja skipið, Friðrik Sigurðsson, yið bryggju í Þorlákshöfn. — (Ljósm. H. B.). Fyrsti nýsmíóaói báturinn í Þessi tiðindi voru kunngerð á blaðamannafundi í Fram- kvæmdabankanum í gær en þar voru saman komnir auk banka- ráðsmanna, þeir Ármann Snæ- var rektor og Trausti Einars- son prófessor. Jóhann Hafstein formaður bankaráðs gat tildraga í stuttri ræðu og afhenti há- Nýr bátur til SandgerSis Á Þorláksmessu kom nýr bát- ur til Sandgerðis og ber hann nafnið Guðbjörg GK 220. Hann er eign Arnar h.f. Guðbjörg er 205 tonn að stærð, og er smíð- uð í Marstrand í Svíþjóð og er hið fallegasta skip, búin öll- um nýtizku tækjum. Þegar er búið að ráða 11 manna áhöfn á skipið og eru flestir mennirnir frá Sandgerði. Óli S. Jónsson verður skip- stjóri og fer skipið út á vetrar- síldveiðar á næstunni. Björn Bjamason frá Keflavik sigldi skipinu heim og reyndist það hið bezta Fylkingin Hringborðsráðstefna ÆFR í Tjarnargötu 20 í dag, laugardag, kl. 3.30. Rætt verður um fé- lagsmál og næstu verkefni hreyfingarinnar. Félagar eru hvattir til að fjölmenna og leggja drög að öflugu starfi á nýja irinu. skólarektor þvinæst gjafabréf uppá kaupverð rafheilans: 2,8 milljónir króna. Raunverulegt kaupverð slíkrar vélar mun vera um sjö milljónir króna en fram- leiðandinn, IBM, hefur fram að þessu veitt hreinvísindastofn- unum 60% afslátt af verði. Um- boðsmaður IBM á íslandi er Otto Michelsen og mun hann; annast uppsetningu en hann | gekkst fyrr á árinu fyrir nám-1 skeiði í meðferð rafheila sem margir vísindamenn sóttu. „Eflir alla dáð“ Ármann Snævar þakkaði þessa frábæru gjöf fyrir hönd há- skólans og sagði að auk þess sem fjölmörg verkefni biðu úr- lausnar sliks tækis væri hitt ekki minna vert hve mjög það yrði vísindamönnum til örvun- ar til að takast á hendur ný eða vanrækt og vandasöm verk- efni. Sagði Snævar að þetta væri stærsta gjöf sem Háskóla íslands hefði nokkru sinni þor- izt. Þorlakshöfn 27/12 — 'Aðfara- lótt jóladags kom nýtt Oiskiskip hingað til Þorláks- hafnar, vb. Friðrik Sigurðs- son ÁS 17, fyrsti nýsmíðaði báturinn sem bætist í flota Þorlákshafnar. Vb. Friðrik Sigurðsson er tæp- lega 80 lestir að stærð. smíðað- ur úr eik í Danmörku. Báturinn er búinn öllum fullkomnustu siglinga- og fiskileitartækjum. Eigandi bátsins er hlutafélagið Hafnames í Þorlákshöfn. Skip- stjóri verður Guðmundur Frið- riksson, einn af eigendunum. Á heimleið frá Danmörku hreppti vb. Friðrik Sigurðsson slæmt veður, en skipshöfninni ber saman um að báturinn hafi reynzt í alla staði hið bezta. Skipstjóri á heimsiglingunni var Jens Sigurðsson í Þorlákshöfn. HB. Engin meiri hóttar slys um hátíðina ENGIN rneiriháttar slys urðu f umferðinni hér í Reykjavík um jólin en nokkur smáslys áttu sér stað. Aðfaranótt annars í jólum varð það slys á mótum Nesvegar og Kaplaskjólsvegar að ölvaður ökumaður missti stjóm á Fólksvagni á hálku á gatnamótunum og valt bifreig- in am.k. eina veltu en stað- næmdist að lokum á hjólunum. ökumaðurinn féll út úr bif- reiðinni og rotaðist en mun að öðru leyti hafa sloppið við veruleg meiðsli. Á AÐFANGADAG varð sjö ára drengur fyrir bifreið á móts við hús nr. 74 við Heiðargerði og hlaut hann minni háttar meiðsli. RÓLEGT var hjá götulögregl- unni um jólin en þó var tals- verð ölvun í bænum að kvöldi annars jóladags. ENGIN alvarlegur bruni varð hér í borginni um jólin en slökkviliðið var kvatt út nokkr- um sinnum vegna smáíkvikn- ana. í GÆRMORGUN laust fyrir kl. 11 var slökkviliðið kvatt að Fálkagötu 27. Var þar talsverð- ur eldur í forstofu og herbergi þar sem geymdar voru bækur. Maður að nafni Ásgeir Magn- ússon brenndist nokkuð í and- liti og skarst á fótum og var hann fluttur í slysavarðstofuna þar sem gert var að sárum hans. Fólksvagninn kom á miða nr. 15095 í gær var dregið hjá borgardóm- ara í happdrætti Krabbameins- félags Reykjavíkur. Vinningur- inn í happdrættinu, Volkswagen 1500, kom á nr. 15095. Getur eig- andi miðans vitjað vinningsins á skrifstofu félagsins i Suður- götu 22. Alhvít jól og snjó- koma um land allt Myndin er tekin við komu skipsins til Þorlákshafnar. (Lm. H.B.). VerkfaH trésmiia heldur áfram □ Trésmiðafélag Reykjavíkur er enn í verkfalli og höfðu engir sátta- fundir verið haldnir eða boðaðir þeg- ar Þjóðviljinn hafði samband við skrifstofu félagsins í gær. □ Formaður Trésmiðafélagsins, Jón Snorri Þorleifsson, kvað ekkert markvert hafa gerz't í verkfallinu þessa daga. Bað hann blaðið að minna félagsmenn á að hafa sam- band við skrifstofu félagsins, Lau’f- ásvegi 8, en hún er nú opin allan daginn. Hér á landi voru alhvít jól. Hófust þau með norðaustanátt og mikilli fannkomu á Vest- fjörðum og Norðurlandi á að- fangadagsmorgun. Þegar leið á daginn hafði þessi rammíslenzka veðurátt heltekið Austfirði, Vesturland og Suðurland. Landsþekktir veðurspámenn spáðu þó rauðum jólum til hins síðasta enda var tíu stiga hiti á Norðausturlandi um sólstöð- ur. Á jóladag geisaði svo stór- hríð víða um land og svo var fannfergi mikið í Ólafsfirði, að snjór náði mönnum í mitti úti á víðavangi. Nokkrar truflanir urðu á mjólkurflutningum á Norður- landi. Annan jóladag datt norðaust- anáttin niður. Víða var þá mik- ið frost og náði hæst 14 gráð- um á Celsíus á Sauðárkróki. 1 gærdag var svo komin rign- ing á Suðurlandi og hvarf snjór- inn og aftur komin auð jörð eða augnaði víða í gaddinn. Hljóðfæraleik- araverkfall á nýjársnótt? í Vísi í gær er frá því skýrt að Félag íslenzkra hljóðfæraleik- ara hafi boðað verkfall frá og með miðnætti á gamlárskvöld hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma við Samband veit- inga- og gistihúsaeigenda.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.