Þjóðviljinn - 29.12.1963, Síða 2

Þjóðviljinn - 29.12.1963, Síða 2
2 S»A' HÖÐTOIIHK Sunnudágur 29. desember 1963 Risastór sjónauki — eða hvað? Við fyrstu sýn gæti manni dottið í hug að myndin væri af risastórum sjónauka, þótt erfitt væri að gera sér greín fyrir til hvers ætti að nota hann. Svo er þó ekki. iVerkfræðingi einum scm nú stjórnar áveitugerð í Kasakstan í Sovétríkjunum en var & striðsánmum skriðdrekastjóri datt í hug að nota gamla skriðdreka til flutnings á hinum mikln rörbútum sem notaðir eru í vatns- letðsimuu Er hér ekki tilvalii kvikmyndahandrít? Þjóðviljanum hefur borizt " bréf frá kaupanda blaðsins, þar sem rætt er um nýjustu skáldsögu Óskars Aðalsteins, *• sem kom út á forlagi Iðunnar fyrir skömmu. Þar segir m.a.: „Það skal strax sagt, að hér er um bráðskemmtilega skáldsögu að ræða. Það er ekki alltof algengt um ís- Framhald af 12. sídu. veitingahúsaeigenda annarra, sem að þessari hækkun stóðu. Þáð skiptir ekki máli í þessu sambándi hvort við rök hefur að styðjast sá barlómur Helgu Marteinsdóttur að öll veitinga- hús „rúlli á hausnum". og vart Ienzkar skáldsögur, því mið- ur. Cskar Aðalsteinn kann þá list, að sigla fram hjá öllum aukaatriðum í frásögn sinni. Stííl hans er meitlaður og hnittinn og yljaður hlýrri innri glóð. Þetta er gaman- saga af beztu tegund. Sagan, eem sögð er í þessari bók, er einstæð í bókmenntum okkar, munu Reykvíkingar trúa því að óreyndu að hún reki Röðul með tapi. Hér hafa nokkrir veitinga- húsaeigendur í bænum vísvit- andi brotið Iög, og verður að taka málinu samkvæmt því. Yfirstandandi viðræður við toll- stjóra breyta engu um þá stað- reynd. og af henní má draga ýmsa lærdóma. Maður hefur ekki lesið lengi, þegar þeir Nói Marteinsson, Gunnar Steinsen og Áxsæll Jónsson, hinir von- glöðu veiðimenn, verða bráð- lifandi fyrir sjónum manns, líkt og gamlir góðir kunningj- ar. En höfuðstyrknr Óskars Aðalsteins, eru persómilýsing- amar. Þar á hann sér fáa of- jarla í hópi þeirra, sem skrifa skáldsögur á Islandi. Þetta á annars ekki að vera neinn ritdómur. Eg tók mér aðeins penna í hönjl til að þakka góða hók, og til að vekja athygli á hugmynd, sem mér kom í hug við lestur þessarar skáldsögu. Er hér ekki filvalið kvik- myndahandrit ? Eddafilm hefur auglýst eft- ir kvikmyndahandriti. Fáar sögur munu betur fallnar fyr- ir kvikmynd en Vonglaðir veiðimenn. Ráðamenn félags- ins ættu ekki að láta hjá líða, að athuga þetta gaumgæfi- lega. Eg væri illa svikinn, ef það væri ekki ómaksins vert. Áhugamaður um ísl. kvikmyndir.“ <$> Okur veitingahúsa Viðreisn- arbókmenntir Það má teljast til hinna sjaldgæfustu tíðinda að hægt sé að vitna með velþóknun í forustugreinar Vísis, en þau undur gerðust í fyrradag. 1 leiðara sem nefnist „Víxla- bókmenntir" var komizt svo að orði: „Allt of mikið ber á þvi að á útgáfu bóka sé litið sem sældara'kur fjárplógs- mannsins. Bækur eru gefnar út af ýmsum með því eina markmiði að græða fljóttek- ið fé og þá oft minna hugs- að um hvernig bókin er úr gárði gerð og hvert innihald hennar og efni er. Þessar gervibókmenntir hafa flætt yfir landið að undanfömu, mærðar langt yfir verðleika. Svo langt gengur þessi at- vinnumennska, að höfundar lýsa því jafnvel yfir í afsök- unarskyni í dagblöðunum, að þá hafi vantað fé til hús- bygginga og því sett sam- an bók í flýti til þess að greiða víxlana! Slétt-venju- legir bændur, sem rita minn- ingar sínar, eru nefndir af útgefendum afreksmenn til þess að glepja lesendur og fleiri slík ódæmi mætti telja. Hér er illa farið. Við Islend- ingar höfum lengi stært okkur af því að vera bóka- þjóð, þykja vænt um bækur og vilja vandaðar bækur. Því eru gervibókmenntirnar og auglýsingaskrumið vansi á bókagerð okkar, blettur sem ætti að hverfa." Þessi dómur Vísis er þeim mun athyglisverðari sem blaðið er sérstakt málgagn fjárplógsmanna. Það hefur stutt af alefli þá viðreisnar- stefnu að gera þjóðfélagið allt að „sældarakri fjár- plógsmannsins". Vísir hefur jafnan haldið því fram að aflvaki þjóðfélagsins sé sú iðja að freista þess „að græða fljóttekið fé“ til þess „að greiða víxla“ og safna auði, og þeirri afstöðu hefur blaðið fylgt eftir með „aug- ]ýsingaskrumi“ og mært hana „langt yfir verðleika". En nú kemur allt í einu í ljós að samvizkan hefur ekki verið allt of hrein, sannfæringin hol að innan. Þegar kemur að bókmennt- unum er gróðinn ekki lengur hið einhiíta mark- mið, heldur reynist við- reisnarstefna á því sviði „vansi á bókagerð okkar, blettur sem ætti að hverfa“. Myndi sú niðurstaða ekki einnig eiga við um fleiri þættj þjóðlifsins?, — Austri. Níu fangaverðir gæta sex fanga MMrið hefur verið rœti og rit- að mn ófremdarástand í fang- elsismálum landsins. Margir hafa bent á þá óhæfu, að dæmdir afbrotamenn gengju tímunum saman lausir meðan þeir biðu eftir plássi á Litla- Hrauni, og Morgunblaðið hefur skýrt frá því að yfirvöldin væru að svipast um eftir hent- ugri lóð undir nýtt ríkisfang- elsi í grennd við Keykjavik. En fáir hafa áttað sig á þeirri staðreynd. að á Litla- Hrauni Ihafa ékki verið nema 6 fangar síðan í sumar, en við- tæk náðun afbrotamanna fór fram í tiiefni þess að kirkja var tekin í notkun í SkálholtL Ekki ætti að vera hætta á að þessir sex fangar slyppu undan vendi réttvísinnar, því þeirra er gætt af 9 — niu — fílefld- um fangavörðum. Auk þess eru nokkrir æðri embættismenn við fangefeið, svo sem forstjóri, fjósameistari, ráðsmaður og bókari, Þegar litið er á þetta ástand þykir vist engnm tiltökumál, þótt lögreglan á Selfossi hafi stöku sinnum fengið að stinga inn á Litla-Hraun mönnum, sem taka þurfti úr umferð vegna ölvunar. því á Selfossi er engin fangageymsla. En nú hefur heyrzt að dómsmálaráðu- neytið hafi lagt bann við því Hugrún Framihald af 16. síðu. Fjrrst eftir að lagt var af stað með Goðafossi áleiðis til Vest- mannaeyjeL, var gott veður, en eftir fjögurra klst. siglingu skall á suðvestan stormur og var þá tekin ákvörðun um að halda til Austfjarða undan veðri. Vindur snerist þó meira til suðurs og var þá undanhald hjá skipunum. Storminn lægði þó er á leið, en stöðugt var slæmt sjólag. Hugrún hafði þannig samflot með Goðafossi að mynni Reyð- arfjarðar og skildi þar við hann og hélt inn til Neskaup- staðar. Þangað kom hún klukk- an hálf tíu í gærmorgun. Var hún þegar tekin í slipp. Niu manna áhöfn er á Hugrúnu og eru þar meðal annara þrír gamlir Norðfirðingar. Hrósaði áhöfnin happi að komast með skipið í höfn. Þeir seldu 29 tonn af þorski og ýsu í Cuxhaven fyrir 25 þúsund mörk. Erfitt var að finna Hugrúnu, og skeikaði nokkuð uppgefinni staðarákvörðun. Gaf skipstjóri upp stöðuna 10 sjómílur suð- austur af Eyjum. Eftir að flug- vélin SIF hafði leitað linnu- laust í sex klukkustundir fann hún skipið 100 mílur frá upp- gefinni staðarákvörðun. Er þetta lengsta leitarflug SIF. Haustmótið i sundknattleik Framhald af 5. síðu. bringusundi karla og sýndi Guðmundur Gíslason enn hve f jölhæfur sundmaður hann er. Hann sigraði á hezta tíma sem náðst hefur á árinu hér. Tími hans var 1.14,1. Annar varð Erlingur Jóhannsson KR, sem er efnilegur bringu- sundsmaður og synti á bezta tíma sem hann hefur náð til þessa 1.15,0. Guðmundur Harðarson varð þriðji á 1.20,1. I f jórða sæti kom Guð- mundur Grímsson á drengja- meti: 1.21,1, að starfsliði Litla-Hrauns sé bakað óhóflegt erfiði vegna næturgeymslu á ofurölva mönnum. Það er því ekki furða þótt ýmsum sé nú farið að finnast ófremdarástand í fangelsismál- um stafa af fleiru en þrengsl- um í fangaklefum á Litla- Hrauni, þar sem níu fangaverð- ir gæta sex fanga. Danskennarar stofna stéttar- félag Föstudaginn 20. desember s.l komu danskennarar saman ao Rauðagerði 10, og stofnuðu með sér stéttarfélag. Félagið heitir Danskennarasamband fslands, skammstafað D.S.Í.. og er lög- heimili þess og vamarþing i Rcykjavík. Félagið starfar í eftirtöldum deildum: Ballett, samkvæmis- og bamadönsum. stepp og akro- batik. Þeir einir geta orðið meðlimir félagsins, sem lokið hafa viðurkenndu innlendu eða erlendu kennaraprófi i einhverj- um framantöldum greinum. TRÉSMIÐAFÉLAG REYKJAVIKUR heldur Jólatrésskemmtun fyrir böm jélagsmanna laugardaginn 4. janúar 1964 í Sigtúni. Aðgöngumiðar afhentir á skrifstofu félagsins þriðjudaginn 31. desember kl. 13—• 15 og fimmtu- daginn 2. janúar kl. 20 — 22. Skemmíinefndin. Húsnæðismáinstjórn ítrekar eftirfarandi auglýsingu sína varðandi láns- hæfni umsókna um íbúðalán: 1. Frá 1. Janúar 1964 verða allar umsóknir um íbúðalán að hafa hlotið samþykki húsnæðismálá- stofnunarinnar, áður en framkvæmdir við bygg- ingu hússins eru hafnar og afrit af teikningu '(í tvíriti) þess, samþykkt af viðkomandi byggingar- yfirvöldum, að hafa áður verið viðurkennt með stimpli og uppáskrift stofnunarinnar. 2. Þeir umsækjendur um lán, er hafa í hyggju að kaupa íbúðir í húsum, sem eru í smíðum, verða á sama hátt að tryggja sér samþykki húsnæðis- málastofnunarinnar áður en gengið er frá kaup- unum. RAÐSÓFIhúsBagnaaridtektSVEINN KJARVAL litiö & húsb&naðinn hj& húsbánaði • , , EKKERT HEIMILI ÁN HÚSBÚNAÐAR SAMBAND HÚSGAGNAFRAMLEIÐENÐA Bifreiðaleigan HJÓL Hverfiseötn ** Simi lö-SfU

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.