Þjóðviljinn - 29.12.1963, Síða 4

Þjóðviljinn - 29.12.1963, Síða 4
4 SÍÐA ÞJðÐVILIINN Sunnudagur 29. desember 1963 Ðtgetandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson. Magnús Kjartansson táb.i. Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjórar: Jón Bjamason. Siguröur V. Friðþjófsson. Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. orentsmiðja: Skólavörðust 19 Rfmt 17-500 (5 línuri. Askriftarverð kr. 80 á mánuði. Dauiadæmd stefna Jjað var einn mikilvægasti þátturinn í kjarasamn- ingum þeim sem gerðir voru fyrir jól að rík- isstjórnin var neydd til þess að gerast aðili að þeim. Vegna hinnar víðtæku samstöðu verklýðsfé- laganna taldi ríkisstjórnin sér ekki annað fært en að flytja sjálf tillögur um margfalt meiri kauphækkanir en léð hafði verið máls á í upp- hafi, og forsætisráðherra lagði að lokum blessun sína yfir þau 15% sem um var samið. Ríkisstjórn- in gefur því ekki með nokkru móti haldið því fram að verklýðshreyfingin hafi kollvarpað efna- hagskerfi hennar — eins og stundum áður hefur verið sagt af miklu minna tilefni — og að því séu örþrifaráð óhjákvæmileg. Enda hafa stjórnar- blöðin nú lýst yfir því, með nokkrum semingi þó, að kauphækkanir verkafólks séu ekki tilefni til gengislækkunar. jgn því aðeins hafa slíkar yfirlýsingar gildi að þeim sé fylgt eftir í verki. Raunverulegt gengi krónunnar er ekki aðeins ákveðið með formlegri skráningu gagnvart erlendum gjaldeyri, heldur markast það í sífellu af þróun efnahagsmála og verðlagsmála í landinu. Óðaverðbólga sú sem rík- isstjórnin hefur framkvæmt hefur í sífellu rýrt verðgildi krónunnar; þegar fólk þarf að greiða 'fleiri krónur fyrir hverja einingu af mjólk og kjöti og öðrum nauðsynjum er að sjálfsögðu ver- ið að skerða verðgildi og raunverulegt gengi gjald- miðilsins. Því hafa yfirlýsingar um óbreytta skráningu í bönkum sáralítið gildi, ef verðbólgu- þróunin heldur áfram. Og ekki er annað sjáan- legt en að stjórnarvöldin ætli að halda áfram á þeirri braut að smækka krónuna í sífellu. Ein- mitt þessa dagana eru að koma til framkvæmda stórfelldar hækkanir á strætisvagnafargjöldum í Reykjavík, rafmagni og heitu vatni, og ákveðnar hafa verið tilfinnanlegar hækkanir á útsvörum og ýmsum öðrum gjöldum. Vitað er að ríkisstjórn- in og sérfræðingar hennar eru að velfa fyrir sér stórfelldri hækkun á söluskatti fljótlega eftir ára- mótin og framkvæma þannig nýja stökkbreytingu á öllu verðlagi. Þannig er enn að því stefnt að minnka verðgildi krónunnar og raunverulegt gengi hennar, en síðan á hin formlega skráning að koma sem staðfesting á augljósum staðreynd- um. JJaldi ríkisstjórnin áfram á þessari braut gengur I hún í berhögg við vilja yfirgnæfandi meirihluta þióðarinnar, þau mótmæli gegn verðbólgustefn- unni sem voru kjarni verkfallanna miklu í des- ember. Leggi stjórnarvöldin enn sem fyrr áherzlu á það að beita verðbólgunni tii þess að ræna aftur 1 þeim kjarabótum sem verkafólk hefur nú hloúð s‘°fna þau aðeins að nvjum átökum enn stór- f 'lldari erfiðleikum, nýjum hjaðningavígum og háskalegri en nokkru sinnj fvrr Ríkicktíórn sem f imfylgir slíkri stefnu er ekki fær um að =:+iórna landinu í samræmi við brvnustu harfir bjóðar heildarinnar og mun því ekki fá staðizt til lengd- ar. — m. I MENNINGARMÁLASTOFNUN SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA ÞINCSjÁ ÞJÓÐVILIANS Eins og skýrt hefur verið frá, liggur nú fyrir Alþingi iillaga ríkisstjórnarinnar til þingsályktunar um heimild til adildar íslands að Menningar- málastofnun Sameinuðu þjóð- anna (UNESCO). TiIIagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að gerast fyrir Islands hönd aðili að Menn- ingarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (United Nations Edu- cational, Scientific and Cult- ural Organization) og takast á hendur skyldur þær. sem samkvæmt stofnskrá Menn- ingarmálastofnunarinnar eru aðildinni samfara“. Athugasemdir við þingsá- lyktunartillögu þessa eru sem hér segir: UNESCO er ein af sérstofn- unum Sameinuðu þjóðanna og eru ÖU aðildarríki Sameinuðu þjóðanna nema Suður-Afríka, sem hefur sagt sig úr UNESCO, Portúgal og Island, nú aðild- ríki að UNESCO. Portúgal hefur þó áheyrnarfulltrúa hjá stofnuninni. Eðlilegt er, að Island gerist einnig aðildarríki að Menningarmálastofnun Sam- einuðu þjóðanna, og er með tillögu þessari farið fram á heimild handa ríkisstjórninni til þess. Of langt mál yrði að rekja hér hina fjölbreyttu starfsemi UNESCO á sviði fræðslu, vís- inda- og menntamála. en til- gangur stofnunarinnar er að stuðla að friði og öryggi með því að efla samstarf þjóða í milli með fræðslu-, vísinda- og menningarstarfsemi. Stofnskrá UNESCO, ásamt íslenzkri þýðingu, ér þréntuð sem fylgiskjal með þingsálykt- unartillögu þessarí, og vísast hér með til stofnskrórinnar, þar sem er að finna aliar nánari upplýsingar um starfsemi UNESCO. skipulag og mark- mið. , Stofnunin veitir alls konar styrki, sem ísland myndi að einhverju leyti njóta góðs af og er talið líklegh að Island myndi hafa í þessu sambandi talsvert meiri hagnað af þótt- töku í UNESCO en næmi kostn- aðinum af aðildinni, en sá kositnaður. rnundi fyrir árið 1964, að því er ísland varðar, nema kr. 335.400.00, auk byrj- unarframlags að upphæð kr. 57.600.00. Fyrir árin 1965 og 1966 mundi árgjaldið væntan- lega verða um kr. 387.000.00 fyrir hvert ár. Ferðakostnaður í sambandi við aðild Islands að UNESCO ætti ekki að vera mikill, þar sem hægt er að fela sendiráði Islands í París að annast fundarsetu að mestu leyti, en hins vegar yrði fulltrúi að fara héðan á allsheriarbing UNESCO, sem nú er haldið í París annað hvert ár. Sem fylgiskjal með tillög- unni er prentuð stofnskrá Menningarmálastofnunar Sam- einuðu þjóðanna, sem sam- þykkt var í Lundúnum 16. nóvember 1945 og breytt af aðalbingi á annarri. þriðiu, fjórðu, fimmtu, sjöttu, sjö- undu, áttundu. níundu. tíundu og tólftu samkomu þess. Upphaf stofnskrárinnar er svnhljóðandi: St.iórnir beirra ríkja. sem að- ilar eru að þessari stofnskrá af hálfu þjóða sinna, Iýsa vfir því: að úr því að styrjaldir hefj- ast í huga manna, þá er það ' huga manna. sem gera verð- ’ r friðnum varnir; að vanþekking manna á s:ð- um og lifnaðarháttum annarra bjóða hefui' ávallt í sögu mannskynsins verið algeng orsök þeirrar tortryggni og vantrausts milli þjóða heims, er allt of oft hafa valdið því, að úr ágreinfngi þeirra hefur orðið styrjöld; að hin mikla og ægilega styrjöld, sem nú er lokið, var styrjöld, sem varð fyrir af- neitun hinna lýðræðislegu grundvallaratriða, mannhelgi, jafnréttis og gagnkvæmrar virðingar manna og fyrir út- breiðslu í þeirra stað, vegna fáfræði og hleypidóma, á kenn- ingunni um misrétti manna og kynþátta; að almenn útbreiðsla menn- ingar og menntunar mannkyns- ins í þágu réttlætis, friðar og frelsis sé óhjákvæmileg fyrir mannhelgi og heilög skylda, er allar þjóðir verði að rækja í anda gagnkvæmrar aðstoðar og umhyggju; að friður byggður einvörð- ungu á stjórnmálalegri og efna- hagslegri tilhögun ríkisstjóma yrði ekki friður er tryggt gæti einhuga, varanlegan og einlæg- an stuðning þjóða heims, og ý að friðinn verði því að byggja, eigi hann ekki að bregðast, á vitsmunalegri og siðgæðislegri samstöðu mannkynsins. Af þessum ástæðum eru rík- in, sem aðilar eru að stofn- skrá þessari og telja, að öll- j um beri fullkomin og jöfn að- staða til menntunar, að engar hömlur skuli lagðar á leit að óhlutlægum sannleika og að; frjáls skuli skipti á hugmynd-1 um og þekkingu, sammála um og staðráðin í því, að stuðla að auknum samskiptum milli þjóða sinna í því skyni að auka gagnkvæman skilning og sann- ari og fullkomnari þekkingu manna á lifnaðarháttum ann- arra. Fyrir því stofna þau með sér Menningaimálastofnun Sameinuðu þjóðanna í þeim til- gangi að stuðla að því, með fræðslu-, vísinda og menning- arsamskiptum þjóða heims, að náð verði því markmiði al- þjóðlegs friðar og almennrar velferðar mannkynsins, er Sam- ejnuðu þjóðirnar stefna að og lýst er yfir í stofnskrá þeirra. Um markmið og störf UN- ESCO segir svo í stofnskránni: 1. Tilgangur stofnunarinnar er að stuðla að friði og j öryggi með því að efla samstarf þjóða í milli með fræðslu-, vísinda- og menningarstarfsemi til þess að auka almenna virðingu fyrir réttlæti, lög- um og mannréttindum og mannfrelsi, sem staðfest er I í stofnskrá Sameinuðu þjóðanna fyrir þjóðir | heimsins, án ti'Uits til kynþáttar, kynferðis, tungu eða trúarbragða. 2. Þessu markmiði hyggst stofnunin ná með því (a) að taka þátt í því starfi að auka gagnkvæma þekkingu og skilning þjóða með öllum þeim ! samskipta. og út- breiðslutækjum, sem ná til fjöldans, og gera í því skyni til- lögur um þá alþjóð- lega samninga, er nauðsynlegir kunna að verða til þess að auðvelda frjálsa út- breiðslu hugmynda í orði og myndum; í (b) að miðla nýjum áhrif- um í alþýðufræðslu og útbre'ðslu menn- ingar; með samstarfi við félagsríki. að ósk þeirra, um þróun fræðslustarfsemi; i með því að stofna til samstarfs milli þjóð- anna í því skyni að efla hugsjón jafnrétt- I is um tækifæri til menntunar án tillits til kynþáttar, kynferð- is eða nokkurs mis- munar vegna efnahags eða félagslegrar að- stöðu; með því að gera tillögur um fræðslu- aðferðir þær, sem bezt eru fallnar til þess að undirbúa böm hvarvetna í heiminum undir þá ábyrgð, sem frelsi fylgir; (c) að viðhalda, auka og útbreiða þekkingu; með því að tryggja varðveizlu og vernd menningararfileifðar mannkynsins, bóka, listaverka og minja um söguleg afrek og vísindaleg, og gera tillögur til hlutaðeig- andi þjóða um þær al- þjóðlegar samþykktir, sem þörf er þeirra vegna; með þvf að hvetja til samvinnu þjóða í milli á öllum sviðum andlegrar starfsemi, og eru þar með talin skipti milli landa á fólki, sem starfar áð fræðsilu-, vísinda- og öðrum menningar- málum. skipti á ritum og munum, sem hafa listrænt eða vísinda- legt gildi, og öðru, sem til fræðslu má verða; með því að hafa frumkvæði að aðferð- um í alþjóðlegu sam- starfi, sem til þess eru ætlaðar að veita öll- um þjóðum aðgarig áð því prentuðu og birtu efni, sem fram hefur komið hjá hverri einni þeirra. 3. Stofnuninni er bannað að skipta sér af málum, sem falla í aðalatriðum undir eigin lögsögu félagsríkja, með því að æskilegt er fyrír fjölbreytni sakir, að hvert land um sig varð- veiti frjálsa og uppruna- lega menningu og fræðslu- kerfi. Gísli Sigurbjörnsson: Samhjáíp í ellinni Gísli Sigurbjömsson, forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar hefur sent ÞJÖÐVILJ- ANUM eftirfarandi: — Fyrir nokkru var skýrt frá því, að í ráði væri að koma á stofn í Hveragerði heimili fyrir eldra fólk, sem gæti séð um sig sjálft að öllu leyti. Hefur þetta heimili ný- lega hafið starfsemi sína. Er hér um að ræða nýja leið í vapdamálum ellinnar, og er líklegt. að þessi byrjun, sem er lítil í fyrstu. verði upp- haf að öðru meii’u, þegar fram líða stundir. Til starfseminnar hefur verið tekið eitt af húsum stofnunar- innar, fjögur herbergi, stór stofa, eldhús, W.C., bað og geymsla. Verða þarna fjórar konur (þrjár eru þegar komn- ar), sem sjá um sig sjálfar að öllu leyti. Þvotturinn verð- ur þó þveginn fyrir þær. Fá bær frá stofnunni allt til mat- artilbúnings sem og allar nauð- synjar aðrar til heimilishalds- ins, en öll heimilisstörfin ann- ast þær sjálfar, sem fyrr seg- ir. Vistgjaldið er því kr. 50.00 lægra á dag fyrir hverja eða kr. 80.00, í stað kr. 130. Allar fá konurnar sérher- bergi, en stór setustofa er sam- eiginleg. Eldhúsið er með öllum nauðsynlegum áhöldum og ís- skáp. Geymsluherbergið er rúmgott og allur aðbúnaður í húsinu vandaður. Hefir v.erið reyiyí að gera þetta fyrsta heimili samhjálpar eldra fólks- ins sem bezt úr garði. Vona ég, að þessi hugmýnd muni heppnast vel í fram- kvæmd og að ekki muni langt að bíða. að starfsemin verði aukin, fyrst í Hveragerði og síðar tekin upp í Reykjavik. Verður á þann hátt vonanói hægt að veita nokkrum vist- pláss til viðbótar, en á því er full þörf. Gísli Sígurbjörnsson. Úmakleg ummæli Sunnudaginn 8. des. kom í Morgunblaðinu ritdómur um bók Hugrúnar, Dætur Fjallkon- unnar, ritaður af Erlendi Jóns- syni. Þar sem ég hef lesið um- rædda bók, og að auki ná- kunnugur frú Sigríði Sveins- dóttur, þá langar mig að fara hér nokkrum orðum um. Rit- dómurinn er að mínum dómi bæði ósanngjarn og óviðeigandi* Hinsvegar fer það ekki framhjá mér, að Hugrún hefði mátt glæða frásögnina meira lífi með þeim efniviði er henni var lagt í hendur. öll er frá- sögn slétt og skýr, en fremur rislítil. Erlendur segir: ,,Ef Hugrún hyggur á framhaldandi sagnaritun, ætti hún að koma sér í kynni við gamlan skútu- karl eða uppgjafa togarajaxl, mann sem talar enga tæpitungu og nefn r hlutina sínum réttu nöfnum” Ekki veit ég hversu mikill bókmenntafræðingur þessi Erlendur er, en ansi þykir mér hann spjátrungslegur í dómum og ábendingum til frú Hugrúnar. Hvað viðkemur sögu þessarar konu þá er hún ekki nema stutt ágrip úr hennar við- burðarríku ævi og yfirleitt lýst góðu dugmiklu fólki, ér hun hafði saman við að sælda. Hinsvegar má lesa út úr þess- um ritdómi, að höfundi hans þyki vanta rosalýsingar og- of lítið fjallað um vont “tpik. En fnirnar virðast hafa komið sér saman um gamla máltækið, að oft má satt kyrrt liggja, enda engum til gagns að vera að tína til vammir og skamm- ir um náungann. Eitt er víst. að frú Sigríður Sveinsdóttir er stórgáfuð hæfileikakona, fjöl- lesin, fróð og hagmælt vel. Þess vegna hefði ég kosið ævi- sögu hennar ýtarlegri, þótt ég telji feng í þessu ágripi af ævi svo merkrar konu. Reykjavík, 22. desember. Davíð Ó. Grimsson. . . & . KIP4UTGCRÐ RIKISINS SKJALDBREIÐ vestur um land til Akureyrar 4- janúar 1964. Vörumóttaka á fimmtudae t’l áætl’,r,ai-nfna við Húnaflóa ™ «!kð Ólafs- fjarðar og Dalvíkur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.