Þjóðviljinn - 29.12.1963, Page 5
1
Sunnudagur 29. desember 1963
ÞJÓÐVIUINN
SÍÐA g
ÁRMANN VANN HAVST-
MÓTIÐ í SUNDKNA TTLEIK
Sundknattleikskappar Ármanns að Ioknum leik við KR. Fremst: Ragnar Vignir (t.v.) og Sigurjón
Guðjónsson. Aftari röð frá vinstri: Sæmunrtur Sigursteinsson, Þorgeir Ólafsson, Pétur Kristjánsson,
Ólafur Guðmunrtsson og Sólon Sigurðsson.
Úrslitaleikurinn í Haustmóti sundknattleiks-
manna íór fram 16, des. s. 1. og áttust við hinir
ósigrandi Ármenningar og hinir ungu KR-ingar,
sem með markvissri þjálfun undanfarinna tveggja
ára hafa gefið fyrirheit um það að ógna Ármanni
verulega.
I þessum leik munu þeir
hafa komizt lengst, þvi liðin
skildu jöfn eftir fyrstu lotu
leiksins 1:1, og í byrjun næstu
lotu taka þeir forustu með
góðu skoti frá Benedikt Jó-
hannssyni. Hann hafði einnig
jafnað í fyrstu lotu, eftir að
Stefán Ingólfsson hafði skorað
fyrsta mark leiksins.
Pétur Kristjánsson jafnar 2:2
og nokkru fyrir lok annarar
lotu skorar Pétur enn og kom-
ast Ármenningar yfir, og endar
önnur lota þannig. I þriðju lotu
er ekkert mark skorað, og var
það mikill vamarsigur fyrir
KR-inga þvi þeir léku mestan
hluta lotunnar með einum
manni íærra, og segir það ef
til vill nokkuð um getu þeirra.
Hitt var líka að Ármenningar
léku illa og virtust ekki kunna
að nota sér af aðstöðumunin-
um. og var það alvarlegt fyrir
svo reyndan flokk. 1 síðustu
lotu leiksins skoraði Pétur
Kristjánss. eitt mark fyrir Ár-
mann og lauk leiknum þannig
að Ármann vann með 4:2.
Ármenningar náðu ekki þeim
samleik í leik þessum sem svo
oft hefur einkennt leik þeirra,
og skipulagið var ekki nógu
gott, og var þriðja lota tákn-
rænt dæmi um það.
Það hefur vafalaust truflað
Áimenninga meira en þeir hafa
á augnablikinu áttað sig á, að
hinir ungu KR-ingar eru að ná
betra sundi, og meiri og meiri
keppnisreynslu. Hin aukna
sundgeta KR-inga sleit meir i'®'
sundur leík Ármenninga, en að
hún opnaði þeim sjálfum hreyf-
anleik til samleiks, en vafa-
laust verður það næsta stig
sundflokks KR-inga og má þá
Ármann verulega fara að vara
sig. Skot Ármenninga voru
slök, og áttu þeir þau tæk-
ifæri, að þeir hefðu átt að
skora. En þess má líka geta
að þeir komu ekki að tómum
HRAFNHILDUR HEFUR
SETT 9 MET Á ÁRINU
Sama kvöldið, sem
urslitaleikur Haustsmóts
sundknattl. manna íór
fram, var keppt í nokkr-
um sundgreinum, þ. á.
m. 100 m. bringusundi
kvenna, en þar setti
Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir met, og millitími
hennar var einnig met.
Tímarnir voru : 50 m 37,5
og 100 m 1.21,3. Hún átti bæði
metin sem voru 37,9 og 1.21,8.
Með metum þessum hefur
Hrafnhildur sett 9 met á ár-
inu. Er þetta því glæsilegra
þar sem Hrafhildur hefur yf-
irleilt synt vegalengdirnar án
verulegrar keppni. Er erfitt
að spá hve miklu betur hún
gæti gert, ef hún hefði veru-
lega harða keppni.
Önnur í sundinu var hin
efnilega sundkona Matthildur
Guðmundsdóttir Ármanni, á
1.26,5 og þriðja var Auður
Guðjónsdóttir ÍBK á 1.27,7.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir.
Guðinuiulur tapar fyrsta
meti sínu.
Guðmundur Gíslason sem
hefur mörg undanfarin ár
verið einvaldur á öllum vega-
lengdum og methafi á skrið-
stundum,- tapaði fyrsta meti
sínu þetta kvöld, og var það
hinn efnilegi sundmaður frá
Keflavík Davíð Valgarðsson,
sem bætti met Guðmundar á
50 m flugsundi drengja, tími
hans var 28.3, en gamla met-
ið var 28,5, sem lofar mi'klu,
þó það komi ekki svo óvart,
eins og framfarir Davíðs hafa
verið á undanförnum árum.
Annar varð Trausti Júlíus-
son Á. 32,9 og þriðji Gunnar
Kristjánsson S.H 39,1
Kep'U var einnig ' 1,V' m
Framhald á 2. stðu.
„TA HUSGOGN
HJA. FEA
HÚSBÚNAÐI: VAHBJÖRK?
.AKUREYHI
m.a. þetta nýtizkulega sófasett„P 5”
IHD’SBÚNAÐUR HF laugavegi26 simi 20970
_____ISAMBAND HÚSGAGNAFRAMLEIÐENDA
LlTIÐ Á HÚSBÚNADINN HJÁ HUSBUNAÐI
iofunum hjá markmanni KR-
*ga. sem varði oft með prýði
er staðsetti sig, þótt ungur,
væri, mjög vel í markinu.
Þessi frammistaða KR-inga
verður áminning til Ármanns
að vera vel á verði, en ekki
er að efa að gaman verður að
fylgjast með leikjum þessara
liða í fi-amtíðinni. Þjálíavi
Vestur-bæinganna er Magnús
Thorvaldsson, og berst hann
með þeim í keppninni, og
stjórnar með járnaga!
Einar Hjartai-son, sem nú er
loks hættur keppni með Ár-
manni, er þjálfari Ármenninga.
Þetta var i þriðja sinn sem
efnt er til þessa Haustmóts í
sundknattleik og hefur Ár-
mann unnið í öll þrjú skiptin.
Dómari í leiknum var Hall-
dór Backmann, og var all-
strangur, en ekki var hann öf-
undsverður að fylgjast með
þessum ,.syndaselum” sem í
vatninu voru.
Nöfn þessara Haustmeistara
Ái-manns eru:
Sigurjón Guðjónsson fyrir-
íiði, Ragnar Vignir, Ólafur
Guðmundsson, Þorgeir Ólafs-
son, Pétur Kristjánsson, Sæ-
mundur Sigursteinsson, Sólon
Sigurðsson, Siggeir Sig-
geirsson, Stefán Ingólfsson og
Ingvar Sigfússon, sem er að-
eins 15 ára og munu því vera
28 ár á milli yngsta og elsta
leikmanns ármanns en Sigur-
jón mun vera 43 ára, og geri
aðrir betur!
Frímann.
utan úr heimi
•jr1, Ástralski hlauparinn Ron
Clarke setti s.I. miðvikudag
nýtt heimsmet í 10 km. hlaupi
— 28.15,6 mín. Þetta var í
æfingakeppni í Melbourn, og
voru aðeins 23 áhorfendur
þegar metið var sett. Eldra
metið átti Bolotnikoff frá
Sovétríkjunum — 28.18,2.
Clark segist sjálfur vera
hræddur um að hann hafi
ekki nógu sterkar taugar í
keppni á olympíuleikunum,
heldur nái hann beztum ár-
angri í keppni við skeið-
klukkuna. Kvaðst hann vei'a
íeginn því að fleiri stórhlaup-
arar hefðu ekki verið með I
methlaupinu, því ella hefði
hann ekki getað einbeitt sér
sem skyldi.
Frímann Helgason setti fyrsta Islandsmótið í handknattleik fyr-
ir 25 árum, cn Ásbjöm Sigurjónsson, form. HSl setti 25. Islands-
mótið nú fyrir skömmu. Myndin er tekin af þeim félögum við
það tækifæri, — (Ljósm. Bj. Bj.).
FYRSTI LEIKUR
FH ER f KVÖLD
1 dag verða háðir 8 leikir í íslandsmótinu í
handknattleik, þar á meðal tveir leikir í 1. deild
karla.
Klukikan 14 í dag hefjast
leikir í yngri flokkunum og
í 2. deild. 1 3. flokki karla
keppa IR og Haukar frá Iíafn-
arfirði. 1 2. flokki karla keppa
ÍBK — KR., Ármann — FH, og
Fram og Þróttur.
2. dcild.
Á eftir þessum leikjum fer
fram fyrsti leikurinn í 2. deild
karia og keppa þar Akurnes-
ingar og Keflvikingar.
1. dcild.
1 kvöld kl. 20.15 hefjast svo
leikir í 1. deild, og verða þá
háðir tveir leikir. Fyrst mætast
FH og KR og síðan IR og Vik-
ingur. Leikur iR og Vikings
verður að líkindum jafn og
spennandi, og ógemingur er að
spá um úrslitin. Þá mun marga
fýsa að sjá Hafnfirðingana í
keppni, en vitað er að þeir eru
í góðri þjálfun og hafa fullan
hug á að endurheimta Islands-
meistaratitilinn. Þeir sýndu það
líka í keppni sinni við tékkn-
eska liðið Spartak Plzen á
dögunum, að þeir eru nú sermi-
lega skæðari en nokkru sinni
áður.
Beztu hjólbarðakaupin
Hinir ódýru en sterku japönsku
NITTO
HJÓLBARÐAR
Sendum um al!t land
dúmmívinnustofan hf.
Skipholti 35 — Reykjavík —* Sími 18955.