Þjóðviljinn - 29.12.1963, Side 8
g SÍÐA
BYFLUGAN
Sækir heim sex milljónir
rauðsmára til að
afla eins kílós af hunangi
Býflugan þykir flestum dýrum skynsamari,
og furðulegt má heita hverju hún kemur í verk.
Hvað skyldu margir vita það, að býflugan get-
ur sjálf ráðið því, hvort lirfurnar verða karl-
kyns eða kvenkyns! Þetta gerir býflugan með
því að fóðra lirfumar á ákveðinn hátt.
Og hvað skeður þegar bý-
flugan fer á stjá? Ef tvær
drottningar lenda saman í einni
býkúpu er einvigi háð upp á
lif og dauða; það er einfald-
lega ekkert rúm fyrir tvær
hátignir. Oftast fer þetta fram
á þann hátt, að drottningín
unga, nýútklakin, ræðst á hina
eldri og gengur af henni dauðri.
>á er hún ein um hituna, nema
en áður en lagt er af stað safna
þær jafnan alimiklum hunangs-
forða. Flugurnar eru þvi þung-
ar í vöfum og halda heldur
ekki langt. Þegnar drottningar
fylgja henni eftir og taka sér
bólfestu að fyrirsögn hennar.
Samfélag
býflugna
htin haldi sina leið. Þegar
drottningin heldur leiðar sinn-
ar fylgir henni fjöldi býflugna,
Það er mikið tap fyrir eig-
endur býflugnabúsins, þegar
slíkur hópur heldur á braut.
Mannkynssaga
Framhald af 7. síðu.
langt hlé á útgáfunni, en árið
1961 kom út nýtt bindi, er
fjallaði um tímabilið frá
frönsku stjórnarbyltingunni
fram til ársins 1848. Jón
Guðnason magister skrifaði
þetta bindi og hlaut það ágæta
dóma. Á miðju þessu ári sem
nú er að liða kom enn eitt
bindi mannkynssögunnar. eftir
Bergstein Jónsson cand. mag.
og segir þar frá sögu heimsins
á árunum 1648—1789. Fyrir at-
fylgi beggja þessara -ungu og
efnilegu sagnfræðinga er kom-
inn góður skriður á Mann-
kynssögu Máls og Menningar
og eru nú allar likur á að ekki
dragi úr hraðanum framvegis.
Á næsta ári mun koma eitt
bindi í viðbót, sem tekur þar
við er Ásgeir Hjartarson
sleppti og fjallar um formið-
aldir, timabilið frá 300 e.Kr.
fram á miðja 11. öld. Ráðgert
er að öll Mannkynssagan verði
um 15 bindi talsins og er allt
verkið þá verðugur arftaki
hinnar fyrri islenzku veraldar-
sögu Páls Melsteð.
Þetta bindi mannkynssög-
unnar er virkjamikil og efnis-
rik bók, textinn 448 bls. auk
tímatals og mannanafnaskrár.
Tímabilið 1648—1789 er eitt af
hinum flóknu umskiptaskeið-
um sögunnar: hið gamla riðar
til falls, kalviðir fortíðarinnar
eru komnir að niðurlotum. en
nýr gróður sprettur um allan
völlinn, ekki allsstaðar hár í
loftinu, en hans er þó framtíð-
in. Hið borgaralega þjóðfélag
kapítalismans er að sparka af
sér reifum miðaldanna, sums
staðar er það farið að ganga
sin fyrstu spor óstutt, sums
staðar er það kyrkt í vöggu
sinni. enn annars staðar nýtur
það umönnunar konunglegra
einvaldsstjóma. Þrjár borgara-
legar byltingar verða á þessu
tímabili: á Niðurlöndum, á
Englandi og i nýlendum Breta
á austurströnd Ameríku. Þess-
ara ríkja bíður mikil framtíð,
en önnur sem fyrir skömmu
voru stórveldi, koðna niður,
hin heimsku máttarvöld mið-
sÉdanna, aðall og kirkja, drepa
hina fyrstu sprota borgara-
legra lifshátta, og eru ofurliði
borin i styrjöldum við hin
ungu borgaralegu ríki. svo sem
fer fyrir Spáni og Portúgal,
eða hverfa bókstaflega af yfir-
borði jarðarinnar, svo sem
Pólland. Nú hefst hin furðu-
lega stórveldasaga hins rúss-
neska keisaradæmis, uppdátt-
arsýki læsir sig um Osmana-
ríkið, gervistórveldi svo sem
Svíþjóð dregur sig aftur inn i
þá skel. sem sagan og náttúr-
an hafa skapað því, konung-
,egt einveldi að frönskum sið
breiðist út um nærfellt allt
meginland Evrópu, konungs-
ættímar sóa lífi og eignum
þegna sinna í mannskæðum
styrjöldum, sem eiga sér oftast
enga réttlætingu, hin kaldrifj-
aöa diplómatíska tafl er upp-
hafið í ósvikinn svartagaldur,
og til þessa tímabils má rekja
allar útlínur hinnar sögulegu
þróunar á 19. öld, jaínvel allt
fram að fyrri heimsstyrjöld.
Sögulegt efni þessa tímábils er
frámunalega óþjált, erfitt að
saxa það og koma því í reipin,
og ég efast ekki um að höf-
undur þessa bindis mannkyns-
sögunnar hafi átt marga erf-
iða stund er hann var að færa
það í bönd. En honum hefur
tekizt það — og oft með ágæt-
um. Bergsteinn Jónsson hefur
þann hátt á gerð bókar sinnar
að hann skipar þeim köflum,
er fjalla um atvinnulif, þjóð-
félagshætti og andlega menn-
ingu fremst í bókina og er það
raunar frávik frá því, sem
tíðkanlegt er í almennum ver-
aldarsöguritum. Um slika nið-
urröðun má að sjálfsögðu deila
utan enda, en mér finnst hún
heppileg á þessu tímabilL Þess-
ir upphafskaflar gefa heildar-
sýn af tímabilinu og gera
margt skiljanlegra af þvi, sem
síðar getur í hinni pólitísku
sögu. Þá sögu segir höfundur-
inn einnig með stöðugri hlið-
sjón af efnahagslegum og fé-
lagslegum öflum þess mannlífe,
er hann lýsir. og oft tekst hon-
um að greiða furðulega vel úr
hinni margslungnu flækju
sögulegra orsakasambanda, sem
liggja þó sannarlega ekki allt-
af á lausu. I annan stað hefur
honum heppnazt einstaklega
vel að gera hinum hlutlæga
ferli sögunnar og leikpersónum
sviðsins skil að réttum hlut-
föllum, og er það raunar sú
þrautín sem þyngst er í allri
sagnritun. Ég get í þessu sam-
bandi bent á þá kafla bókar-
innar, sem fjalla um ensku
byltinguna og England á 18.
öld. Þetta efni er bæði flókið
og vandmeðfarið, enBergsteinn
hefur með yfirburðum skilað
því lesendum Ijósu og tæru.
Bók Bergsteins Jónssonar er
einkar fjörlega skrifuð. málið
auðugt og stíllinn óhátíðlegur,
frásögnin hröð og lægðalaus.
Ef forvitni íslenzkra lesenda á
veraldarsögu verður ekki vak-
inn með þessari bók, þá gr
þeim ekki matur bjóðandi.
Sverrir Kristjánsson.
ÞIÓÐVILJINN
Sunnudagur 29. desember 1963
Nýtízku snjóhús
Sáttagerð
Framhald af 6. siðu.
Þeim var þjappað saman með-
þvi að troða snjóinn niður
.jafnóðum og sprauta á hann
vatni.
Unnið var að húsinu í u. þ.
b. 8 stiga frosti og þegar
byggingunni var lokið liafði
öll dýrðin kostað ca. 1800 ísl.
krónur.
Það sýndi sig, að bygging-
arefnið var næstum eins
sterkt og steinsteypa og því
meira sem snjóaði þeim mun
stérkari urðu veggirnir.
Moe húsameistari héfur
komizt að þeirri niðurstöðu að
í Noregi eigi snjórinn fullan
rétt á sér sem byggingarefni:
— 1 Noregi tíðkast að
byggja á sumrin og hita svo
bygginguna upp á veturna til
þesg að hún skemmist ekki.
En væri ekki hægd að snúa
þessu við ? Við gætum alveg
eins byggt á veturna og hald-
ið byggingunni kaldri með
frystitæki á sumrin til þess
að liún skemmist ekki í hita»»
um.
Og jafnvel þótt maður kæri
sig ekki um að láta húsið
standa á sumrin er hægt að
geyma netin, sem halda
veggjunum saman yfir sum-
arið og taka þær fram þegar
fer að snjóa. Og til þess að
húsin skemmist ekki í hlý-
viðristköstum á vetuma, vor-
in og haustin verðum við að
hafa frystitæki í þeim.
Hunangi safnað úr marglitu blóminu.
og því er mikils um vert að
finna hópinn áður en hann
kemst of langt. Þegar býflug-
umar hafa verið í burtu nokkra
daga tekur málið að vandast.
Þá hafa þær nefnilega etið upp
al'lt hunangið, og eru nú orðn-
ar svo léttar á sér, að þær geta
með góðu móti flogið allt að
tíu km. Þá geta þær tekið sér
bólfestu hvár sem þeim helzt
lýst, en gjaman velja þær sér
holan trjástofn. Og þangað eru
þær ek-ki auðsóttar. Býflugurn-
ar eru nefnilega teknar að
mynda sitt eigið samfélag, og
þá berjast þær sem bezt þær
mega.
Samfélag býflugnanna er
einkar athyglisvert fyrirbrigði.
Á hverju vori fer fram hin
árlega hreingerning. Allan vet-
urinn hafa býflugumar lifað á
sykri, sem býflugnaeigandinn
lætur inn i kúpuna til þeirra
á haustin. Þegar kemur fram á
vor hafa býflugurnar étið syk-
urinn allan, og þurfa nú að
losa sig við úrgangsefnin. Þær
gera sér þá lítið fyrir, fljúga út
í sólskinið og létta á sér. Frísk-
ar og fjörugar koma þær til
baka, tílbúnar að hefja starfið
að nýju.
Áhrif veðrátt-
unnar
Við heyrum oft sagt frá hve
ill áhrif kait og rosasamt sum-
ar hafi á okkur mennina.
Nokkur huggun mætti það þó
verða, að lélegt sumar lengir
meðalaldur býflugunnar um
nokkra daga. Sé sumarið gott,
safnast meira hunang, og bý-
flugumar ganga sér einfald-
lega til húðar. Ef hann leggst
í rosa halda býflugumar sig
hinsvegar innanhúss, taka lxf-
inu með ró og njóta hvíldar-
innar.
1 góðu veðri eiga býflugumar
óvenju annrikt. Til þess að ná
meðalafla af hunangi þarf bý-
flugan að vinna hvorki meira
né minna en 25.000 klukfcu- ^
stundir! Að öðru jöfnu getur I
ein býfluga safnað einu kílói ■
hunangs, en til þess þarf hún
að sækja heim sex, milljónir
rauðsmára. Og geri aðrir betur!
Aðeins eina
drottningu!
Hunanginu safnar býflugan
yfir sumarmánuðina, þá safn-
ar hún blómhunangi, en lyng-
hunangi safar hún nokkrum
mánuðum seinna, þegar lyngið
stendur í blóma. Blómhunangi
safnar flugan frá rauðsmára og
hvítsmára, og frá öðrum fræ-
blómum yfirleitt. Það er
smefeksatriði hvort við kjósum
heldur lynghunang eða blóm-
hunang.
Eigandi býflugnabúsins verð-
ur að vera sérstaklega á veröi
á vorin, þegar klakið fer fram.
Ef hann gætir ekki þeim mun
betur að, getur svo farið, að
tvær drottningar komi í kúpu,
og þá er fjandinn laus. Eig-
andinn verður að athuga eggin,
og sjái hann drottningaregg
sem eru allmiklu stærri en
venjuleg egg og því auðþekkt,
verður hann að koma þeim fyr-
ir kattarnef, svo aðeins sé ein
drottning i kúpunni í einu.
Þótt undarlegt megi virðast
skynja býflugurnar liti. Þær
þekkja litinn á sinni eigin
kúpu, vita hvar hana er að
finna, og sé hún flutt úr stað
ruglast býflugumar og leita
hana uppi. (Þýtt úr Friheten).
Aldrei hefur farið fram þýð-
ingarmeiri sáttagerð en nú á
sér stað í Austur-Þýzkalandi
að tilhlutan fólksins og aust-
ur-þýzkra stjómarvalda.
Þegar ég skrifa „að tilhlutan
fólksins“ er það að vísu til-
gáta, en staðreyndin er sú, að
austur-þýzk stjómarvöld buðu
fólkinu vestan múrsins að
heimsækja ættingjana austan
megin.
Nú skyldi maður ætla, að
hvarvetna í heimi hér sé ein-
hugur um þetta bænarefni:
að heimsókn þessi megi vel
lánast og ávextir hennar verða
friður og farsæld um gervalla
heimsbyggðina.
Það er heilshugar jólaósk
þeirrar konu. sem þessar lin-
ur ritar.
Skrifað
23712
G. M. P.
þess nota sem
venj'uieg:a,ML
ruggustól
laugavegi 26
sinxi 209 70
Flugeldar — Flugeldar
í ár höfumvið fjölbreyttara úrval en áður af
Skrautflugeldum og
skipaflugeldum
A U K Þ E S S :
Marglit blys (12 teg.) — Sólir (4 teg.) — Gloria 5
lita blys — Bengal blys — Jóker blys — Eldfjöll (16
teg.) — Rómversk blys (3 tcg.) — Stjörnuregn —
Stjörnuljós — Jack Pots — Snjákar o.m.fl.
Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á fjölbreytt-
asta úrval af skrautflugeldum og skipaflugeldum í
öllum stærðum.
Gerið innkaupin meðan úrvalið er mest.
FLUGELDASALAN
H) estutt&stty
Garðastræti 2. — Sími 16770.
flugeldasalan
Raftækjaverzlunin h.f.
Tryggvagötu 23. — Sími 18279.