Þjóðviljinn - 16.01.1964, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 16.01.1964, Qupperneq 5
w rimmtudagur 16. janúar 1964 MÖÐVILJINN --- £!3A Handknattleiksmótið, 1. deild Víkingar léku knálega — sigruðu KR 37:26 Víkingur og KR léku í fyrrakvöld. Það var greinilegt þegar Víkingar hófu leikinn, að þeir ætluðu að selja sig dýru verði og berjast fyrir sigrinum. Þeir stóðu við það. KR-ingar virðast hafa við svipað vandamál að stríða og ÍR-ingar hafa haft um margra ára skeið, en það er markmaðurinn. Guðjón Ólafs- son, sem um margra ára skeið lék í marki KR-inga með mikl- um ágætum, er nú hættur og eðlilega er ekki kominn jafn- oki hans þegar í stað. Til að leysa þann vanda lék Sigurð- ur Óskarsson nú í marki, og af byrjanda ekki s.vo slakur, en þó er vafasamt að það hafi borgað sig fyrir KR að taka hann af „línunni", en þar er hann þeim mikils virði. Víkingar settu fyrsta markið en KR jafnar, en svo komast Víkingar uppí 5:1, en KR-ing- ar taka £óðan sprett og ná 4:5, og aftur er staðan 5:6 en þá skora Víkingar 5 í röð og staðan verður 11:5. Eftir það var ekki um það að ræða að^. KR-ingar ógnuðu, og dró held- ur í sundur með þeim. 1 hléi stóðu leikar 20:14 fyrir Vík- inga, og lokatalan varð 37:26. legur blær yfir leik Víking- anna. Hinsvegar féll KR-liðið ekki vel saman, að þessu sinni og hefur átt betri leiki í vet- ur, enda er liðið í deiglu. Þar eru nokkuð efnilegir ungir menn, og þá sérstaklega Hilm- ar, sem þurfa sinn tíma til að ná eðlilegum þroska og leika móti jafn reyndu liði og Víkingur er. Karl, Reynir og enda Heins eru þeir sem enn halda liðinu uppi, og voru beztu menn liðsins ásamt Hilmari. Eins og Víkingar léku þetta kvöld voru þeir erfiðir við- ureignar. Að vísu var vörn þeirra ekki nógu þétt, og seg- ir markafjöldi nokkuð til um þá veilu. Rósmundur og Jóhann, voru þeir sem ógnuðu KR-ingum mest, og sk-l'uðu 25 af mörk- um Víkinga. Pétur var sá sem stjórnaði liðinu, og átti e!ns og endraarær góðan leik, en eins og fyrr segir var liðið samhent og með mikinn sig- urvilja. Dómari var Sveinn Krist- jánsson, og dæmdi yfirleitt mjög vel. Staðan í 1. deild á Islands- mótinu í handknattleik er nú þessi: Fram 3í3 0 0 IR 4} 2 1 1 Víkingur 39 2 0 1 FH 3:1 1 1 KR 341 0 2 Ármann 4 0 0 4 Vinsæl íþrótt, en óþekkt hés Liðin 1 lið Víkinga vantaði þá Þórarinn og Ólaf Friðriksson. en Víkingur á orðið gott vara- lið. Að þessu sinni lék Jóhann Gíslason með, og var eins og hann lífgaði liðið nokkuð upp, og í heild var heldur hressi- ★ Þjóðverjar senda stærsta þátttökuhópinn til vetrarolym- píuleikjanna í Innsbruek, sem hefjast 29. þ.m. Hér er um að ræða sameiginlegt lið Austur- og Vestur-Þýzkalands og eru í því 130 manns, en það er t.d. 7 mönnum meira en er í liði Bandaríkjanna. Frá Englandi koma 83 þátttakendur og 81 frá Italíu Sviss 78 Noregi 77 Kan- ada 73 og sjálfir munu Austur- ríkismenn senda um 100 manns til keppni. Það er þegar vitað að þátttakendur í Innsbruck verða mun fleiri en á vetrarolympíu- leikjunum í Cortina 1956 og í Sqpaw Valley 1960. ★ Þjálfari sovézka landsliðsins í íshokkí segir að liðið hafi mikla möguleika á sigri á olympíuleikjunum. Meiri hluti liðsins er skipaður leikmönn- um sem voru í liðinu sem sigraði í heims- meistarakeppninni s.l. vetur. Undanfarið hefur olympíuliðið verið á keppnisferða- lagi í Kanada og Bandaríkjunum og haft í fullu tré við atvinnulið þar vestra. Þá hefur liðið einnig keppt í Svíþjóð í vet- ur, og segir sovézki þjálfarinn að sænska unglingalandsliðið sé éfnilegasta liðið sem þeir hafi mætt. Sovézki fyrirliðinn með HM-bikarinn. ★ Á úrtökumóti Austur- og Vesturþjóðverja urðu úrslit þessi í skautahlaupi: 500 m. 1) Helmut Kuhnert (A) 42.7 sek. 2) Gúnter Tilch (A). 5000 m. Gunter Traub (V) 8.02.2 mín. 2) Júrgen Zimm- ermann (V). Austurþýzk stúlka Helga Haase sigraði í 500 m. kvenna á 48.0 og 1500 m. á 2.32.4 mín. -k Sovétmenn og Kanadamenn háðu landsleik í íshokkí í Moskvu i gær. Leiknum lauk með stórsigri Sovétmanna — 8:1, og léku þeir sér að því að sigra andstæðingana. Þetta þykja nokkur tíð- indi, því Kanadamenn hafa ekki verið taldir ólíklegir til að sigra á olympíuleikjunum í næsta mánuði. Orslitin í einstökum leik- köflum urðu: 3:0, 2:1 og 3:0. Innanhúss-knatt- spyrnumót í kvöld Keflavík a — Hafnarfj. b Hafnarfj. a — Keflav. b Þetta er útsláttarkeppni, þannig að það lið er úr leik, sem tapar hverju sinni. Á föstudag, annað kvöld, verða svo háðir úrslitaleikirn- ir í keppninni. Sigurvegaram- ir fá bikar í verðlaun, og emn- ig fá þeir bikar sem verða í öðru sæti. Bogfimi er ein þeirra alþjóðlegn íþróllagreina, sem orðið hafa útundan hjá okkur íslendingum. Þetta er vinsæl íþrótt í mörgum löndum i öllum heimsálfum, og iðkuð jafnt af körlum sem konum. Myndin er af kínversku stúlkunni Li Sjú-lan, sem sigraði í keppn- inni á Ganefo-leikjunum í Djakarta s.l. haust. Það er í kvöld kl. 20.15, sem innanhúss _ knattspymumótið hefst að Hálogalandi. Leiknir verða 9 leikir. Það er Knatt- spymufélagið Fram, sem gengst fyrir mótinu í tilefni 55 ára afmælis félagsins. í kvöld verða þessir leikír háðir: Víkingur b KR a — Þróttur a Þór, Vestm. Víkingur a Valur a — — Fram a Valur b — KR b — Fram b Þróttur b Breiðablik a Týr, Vestm. — Breiðabl. b íþróttablaðið er komið út Iþróttasíðunni hefur borizt desemberhefti Iþróttablaðsins. 1 því er grein eftir Gísla Hall- dórsson, forseta ISl, sem nefnist „Framtíð íþrótta“. Þá eru greinar um Jóhann Vil- bergsson skíðamann og Al- bert Guðmundsson, hinn fræga knattspyrnukappa, hlaup ald- arinnar o.fl. ÁRMANN I FALLHÆTTU EFTIR FJÓRAÓSIGRA f RÖE ÍR VANN NAUMAN SIGUR YFIR ÁRMANNI -19:18 Ármenningar byrjuðu mjög vel í leik sínum gegn ÍR í fyrrakvöld, og maður var farinn að gera ráð fyrir því að „rósin“ ætlaði nú að springa út með góðum sigri yfir ÍR. tJt Norðmenn komast í aðal- keppni Hcimsmeistaramótsins í handknattleik, eftir naum- an sigur yfir HoIIendingum í forkeppninni. Norðmenn unnu fyrri Ieikinn í Osló — 17:11, er> Hollendingar unnu þann seinni í Amsterdam — 18:13 (9:8). Samanlagt hafa Norðmenn betri markatölu — 30:28. ★ Sovczk blöð skýra frá því að um 10 milljónir ungra manna og kvenna hafi byrj- að að æfa frjálsar íþróttir í Sovétríkjunum á síðasta ári. Þessi mikla fjölgun er mest þökkuð skipulagðri áróðurs- herferð, miklum fjölda nýrra þjálfara og víðtækri dreifingu íþróttatækja Þá er það talið hafa mikið að segja að skipulögð er keppni fyrir fjöldann víða um landið, og hafa margir viljað sprcyta sig í slíkri keppni. kc Horfur cru á því að Evr- ópumeistarinn í millivigt, ungverski hnefaleikarinn Las- zlo Papp muni næst verja titil sinn fyrir vesturþýzka meistaranum Heini Mein- hardt. Papp hefur tjáð sig reiðubúinn til keppninnar. Þá eru taldar líkur fyrir þvi, að ftalinn Guilino Rinaldi og V esturþjóðvcr jinn Bubi Scholtz keppi um Evrópu- meistaratitilinn í léttþunga- vigt. Rinaldi, sem nú hefur titilinn, fær um það bil eina milljón króna fyrir keppnina. ★ Sovézka landsliðið í knattspyrnu er farið til Mexíkó og mun taka þar þátt í alþjóðlcgri knatt- spyrnukeppni. Þá vantar þrjá landsliðsmcnn í liðið, nefni- lega Dynamo-mennina Jasín, Krutikov og Konovalenko. utan úr heimi Fimmtán mínútur voru liðn- ar af fyrri hálfleik og leikar standa 5:0 fyrir Ármann, en þá fá iR-ingar vítakast og Gunnlaugur skorar úr því. Eftir það tekur að saxast á innistæðurnar, og í hálfleik stóðu leikar 8:8. Enn heldur Ármann forust- unni í síðari hálfleik til að byrja með, og tekst iR-ingum ekki lengi vel nema jafna. Um skeið, eða um miðjan hálf- leikinn, stóðu leikar 15:12 fyr- ir Ármann. Enn tekst ÍR að jafna 15:15 og þegar eftir voru tæpar 10 mínútur kgmst IR yf- ir 16:15. Á þessu augnabliki hendir það hinn örugga vítakasts- mann Hörð að einbeita sér ekki að kastinu, flýta sér of mikið, svo að hann hittir ekki markið. Á þessu augnabliki einmitt var það þýðingarmik- ið að jafna. Minúturnar sem eftir voru urðu ákaflega spenn- andi, og mátti vart á milli sjá hvor mundi sigra. Þeir skiptast á um að skora, 1R- ingar komast þó 2 mörk yfir, og þegar leik lýkur munar að- eins einu marki: 19:18 fyrir ÍR. Gunnlaugur óvaldaður ÍR-liðið lék ekki af sama krafti og á móti FH um dag- inn, og var til að byrja með heldur tregt, og ef ekki hefði notið Gunnlaugs við bæði í sókn og vöm og við stjóm liðsins, hefðu leikar farið öðru visi. Hitt er svo annað mál, og sýnir hvað Ánnenningar eru slakir í skiplagi sínu, að þeir gera engar ráðstafanir til þess að reyna að slíta Gui\nlaug úr tengslum við liðið, en hann skorar hvorki meira né minna en 12 af þessum 19 mörkum. Hér er um að ræða hjá Ár- manni skort á reynslu eða ekki nóga yfirvegun í leik, og það varð þeim að falli að þessu sinni. Þó er oft skemmtilegur blær yfir leik Ármenninganna, léttur og le'kgndi handknatt- leikur, en þeir verða að fara meira inn á línuna en þeir gera. Hörður er þeirra skæðasti maður, og sterkur í vörn, en ÍR-ingar sáu fyrir því, að hann skoraði ekki svo ýkjamikið, og létu gæta hans. Lúðvík átti nú ágætan leik, og ennfremur Árni, en í raun og veru er það alvarlegt að aðeins þrír menn skora mark í þessum klukkutíma leik. Eins og fyrr segir bar Gunn- laugur höfuð og herðar yfir aðra leikmenn IR, Her- mann slapp þó sæmilega frá leiknum og sömuleiðis Gylfi. Árni í markinu sýndi enn að frammistaða hans í fyrri tveim leikjum var engin tilviljun, og enn mætti segja að hann haíi bjargað ÍR-ingum frá tapi. Dómari var Daníel Benja- mínsson og dæmdi yfirleitt vel. Játa ég þó, að ég fann til með Ármenningum þegar hann dæmdi víti á þá fyrir sann- arlega óviljandi „sendingu" inn í markteig til niarkmanns. Prímann. Tilkynning í tilefni 50 ára afmælis H.f. Eimskipafélags íslands verða skirfstofur þess og vörugeymslur lokaðar á morgun 17. janúar. Stjórn félagsins og forstjóri taka á móti gestum um borð í „Gullfoss" frá kl. 4,30 til kl. 6,30 sama dag. H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.