Þjóðviljinn - 03.05.1964, Side 1

Þjóðviljinn - 03.05.1964, Side 1
Laus blaðburðarhverfí Grunnar — Fálkagata — Langahlíð — Grettisga’ta — Mávahlíð Safamýri — Nýbýlavegur. AFGREIÐSLA ÞJÓÐVILJANS sími 17500. Umboð KÓPAVOGI sími 40319. FYRSTI MAI OFLUG STAÐFESTING Á BARÁTTUEININGU VERKAFÓLKS □ Þúsundir og aftur þúsundir launþega í Reykjavík fylktu liði á baráttudegi verkalýðs- ins 1. maí og lýstu stuðningi við kröfur verklýðsins um bætt kjör: hækkun á raun- verulegu kaupi, kaup- tryggingu, styttingu vinnutímans, lengingu á orlofi, vinnuvemd, umbætur í húsnæðis- málum og önnur félags- leg réttindi. Veðurguð- irnir fögnuðu einingu al- þýðunnar með sumar- degi eins og hann getur fegurstur orðið og hvar- vetna um bæinn blöktu íslenzkir og rauðir fán- ar við hún. ■ Upp úr kl. 1 tóku félag- ar verklýðssamtakanna að safn- ast saman j Vonarstræti með merki sín; 39 verklýðsfélög í Reykjavík stóðu að þessu sinni að hátðahöldunum og allir verklýðsfélagafánar sem til eru í Reykjavik voru bornir í göng- unni. Hófst gangan laust eftir klukkan tvö og var þá þegar orðin mjög fjölmenn, en síðan bættist stöðugt í hana á leið- inni um bæinn. Þar mátti sjá brautryð.iendur, sem tekið hafa þátt í öllum kröfugöngum frá upphafi, við hlið barnabama sinna. Og enn sem fyrr létu borgaraböm á gangstéttunum í Ijós undrun sína á Því hvað „kommúnistarnir“ i Reykjavík vseru margir. Þegar fundurinn hófst á Lækjartorgi var þar saman komið mikið fjölmenni og hlust- aði vel á ræður þeirra Snorra Jónssonar, formanns Félags járn- iðnaðarmanna, og Jóns Sigurðs- sonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur. Ræða Snorra er birt í heild á öðrum stað í blað- inu, en báðir lögðu ræðumenn- irnir og fundarstjórinn, Óskar HaUgrímsson formaður Full- trúaráðsins, áherzlu á algera samstöðu um kröfur alþýðu- samt.akanna, hvöttu menn til að styðja fulltrúa verklýðsfélag- anna sem bezt í samningunum við ríkisstjórnina og vera reiðu- búnir til að beita afli samtak- anna í verkfallsátökum ef óhjá- kvæmilegt reyndist. Hefur ekki um langt skeið verið jafn ein- dreginn samhljómur í ræðum manna fyrsta maí, jafnvel þótt samkomulag hafi tekizt um til- högun dagsins. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur léku fyrir göngunni og á útifundinum. Um kvöldið voru tveir dansleikir á vegum Fulltrúaráðsins, og í út- varpinu var flutt dagskrá sem útvarpið sjálft hafði látið semja. Var þar íorðazt að minnast á tilgang, eðli og baráttukröfur verklýðssamtakanna, enda hafði útvarpsráð að þessu sinni eins og undanfarin ár sýnt vinnandi fólki á íslandi þá blygðunar- lausu óvirðingu að neita sam- tökum þess að annast dag- skrána. Kröfur þær sem bornar voru í göngunni í gær voru þessar: Verðtrygging á kaup. Kauphækkun án verðhækk- ana. Gegn verðbólgu og dýrtíð. 4 vikna orlof. Framhald á 7. síöu. 3000 ungar brunnu inni að Alfsnesi Laust eftir kl. 1 í gærdag kom upp eldur í andabúinu að Álfsnesi og brann húsið, sem var einnar hæðar skúr- bygging, svo til alveg. í húsinu voru um 3000 andar- og hænuungar og brann mestur Það var ungur piltur, Hilmar | að nafni, sem fyrstur varð elds- ins var en hann gætir unganna j og býr þama í húsinu. Pilturinn var að gefa svínum sem einnig eru til húsa þarna í byggingunni og þegar hann kom frá því sa hann að rafmagnstafla sem er hluti þeirra einnig. í austurenda hússins var orðin alelda. Slökkviliðið í Reykjavík var þegar kvatt á vettvang og einnig var hringt á næstu bæi og beð- ið um hjálp. Urðu vistmenn í Víðihvammi fyrstir á vettvang. Framhald á 7. síðu. * 4

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.