Þjóðviljinn - 06.05.1964, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 6. maí 1964 — 29. árgangur — ílOl’. tölublað.
Eldhúsdagsumræður á Alþingi
Ákveðíð hefur verið að
eldhúsdagsumræður fari fram
á Alþingi n.k. mánudags- og
þrið.judagskvöld og verður
umræðunum útvarpað að
venju.
Fyrra kvöld umræðnanna
verður tvöföld umferð og
verður röð flokkanna þá
þessi: Alþýðubandalag. Fram-
sóknarflokkur, Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðuflokkur.
Síðara kvöldið verður þre-
föld umferð og röðin þessi.
Framsóknarflokkur, Sjálf-
stæðisflokkur, Alþýðuflokk-
ur og Alþýðubandalag. Hver
flokkur hefur 50 mínútur til
umráða hvort kvöld.
Gunnar Böðvarsson
Prófessor i
Bandarikjun-
um i eitt ár
Hinn kunni vísindamaður dr.
Gunnar Böðvarsson er nýfarinn
til Bandaríkjanna þar sem hann
mun dveljast um eins árs skeið.
Mun hann gcgna þar prófessors-
stöðu við háskólann í Portland
í Oregon, flytja fyrirlestra og
leggja stund á vísindarannsókn-
ir í sérgrein sinni.
Dr. Gunnar er mjög kunnur
erlendis fyrir vísindastarfsemi
sína einkum á sviði jarðhita-
rannsókna og hefur hann oft
áður dvalið ytra um lengri eða
skemmri tíma við rannsóknir.
leiðbeiningastörf og fyrirlestra-
hald.
Stofnþing Verkamannasamhands
íslands hefst n.k. laugardag
□ í gær barst Þjóðviljanum eftirfarandi frélta-^
tilkynning frá yerkamannafélaginu Dagsbrún í
Reykjavík, Verkamannafélaginu Hlíf í Hafnar-
firði og Verkalýðsfélaginu Einingu á Akureyri
um stofnþing Verkamannasambands íslands sem
þessi félög hafa haft forgöngu um að boða til og
undirbúa:
■ „Stofnþing Verkamannasambands íslands verður sett
í félagsheimili Dagsbrúnar og Sjómannafélags Reykja-
víkur, að Lindargötu 9, n.k. laugardag 9. maí, kl. 2 síðdegis.
■ Til stofnþingsins er boðað af Verkamannafélaginu
Dagsbrún, Verkamannafélaginu Hlíf og Verkalýðsfélaginu
Einingu, en sameiginleg nefnd þessara félaga hefur ann-
azt undirbúning stofnþingsins og sent þátttökuboð öllum
almennum verkalýðsfélögum innan Alþýðusambands
íslands.
■ Ekki er enn vitað að fullu um hve þátttaka verkalýðs-
félaganna í stofnun hins nýja sambands verður víðtæk,
en þau hafa mörg hver að undanförnu rætt málið á fund-
um sínum og kosið fulltrúa á stofnþingið.
■ Aðalviðfangsefni stofnþingsins verða umræður um
hlutverk og starfsemi sambandsins, samþykkt laga og
fjárhagsáætlunar og að sjálfsögðu umræður og ákvarð-
anir varðandi kjaramál verkafólks eins og þau liggja nú
fyrir.
Fyrirhugað er að stofnþinginu ljúki á sunnudag“.
DregiB í Happdrætti ÞjóBviljans í gær
1 gær var dregið hjá borgarfógeta í 1. flokki H appdrættis Þjóðviljans 1964 um Volkswagenbifreið
og 12 aðra vinninga og verða-vinningsnúmcrin birt hér í blaðinu strax og full skil hafa borizt utan af
landi. Myndin er tckin í gær er unga stúlkan er dró miðana rétti Jónasi Thóroddsen borgarfógeta
miðann sem aðalvinningurinn, Volkswagenbíllinn, kom á. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Verkamanna-
flokkurinn
vinnur á
LONDON 5/5 — Verkamanna-
flokkurinn enski hélt því fram
á þriðjudag, að samkvæmt
bráðabirgðatalningu eftir kosn-
ingar til um hundrað sveita-
stjórna hafi flokkurinn unnið
29 ný sæti Endanleg úrslit
verða ekki kunn fyrr en á
sunnudag.
VID
VERTÍÐAR-
LOK Á
GRANDA
Þessi ungi háseti heitir
Bjarni Þráinsson og er
skipverji á Guðmundi
Þórðarsyni RE og er mynd-
in tekin niður á Granda-
bryggju í gær í sólskini
og hlýrri sjávargolu. Þeir
eru nú hættir á þorsknót-
inni og birtum við myndir
og spjall við hásetana á 12.
Barn bíður bana
í umferbarslysi
■ Laust fyrir kl. 4 f gær varð þriggja ára stúlkubarn
fyrir bifreið á Suðurlandsbraut hjá Múla og beið það sam-
stundis bana.
BanJaríkjastjórn mótmælir sölu Frakka
á tuttugu díseljárnbrautum til Kúbú
PARÍS 5/5 — Franska fyrir’tækið Brissonneau et
Lotz tilkynnti í dag að það hefði undirritað samn-
ing um sölu á 20 díselknúnum járnbrautum til
Kúbu. Jafnframt þessu hefur franska stjórnin
veitt ríkisábyrgð fyrir útflutningskostnaði og
kaupverði. Bandaríska stjórnin hefur mótmælt
þessari sölu.
Fjórar milljónir dala
Umrætt fyrirtæki skýrir enn-
fremur svo frá, að söluverð
járnbrautanna sé um fjórar
milljónir dala, en einnig hafi
fyrirtækið skuldbundið sig til
að selja Kúbustjórn tíu járn-
brautir til viðbótar, sé þess ósk-
að. Járnbrautir þessar munu
verða hin mesta samgöngubót
fyrir Kúbu, en samkvæmt opin-
berum skýrslum er aðeins einn
fjórði hluti þeirra járnbrauta,
sem í gangi voru 1959, enn
starfhæfur.
Bandaríkin mótmæla
Á þriðjudagskvöld mótmælti
Bandaríkjastjórn opinberlega
þessari söl’i. Á fundi með
fréttamönnum lét talsmaður ut-
anríkisráðuneytisins í ljós al-
varlegar áhyggjur stjórnar sinn-
ar vegna þessarar sölu. Kvað
hann umræddar járnbrautir
mundu hafa margfalt meiri þýð-
ingu fyrir efnahagslíf eyjarinn-
ar en strætisvagnarnir ensku,
sem fluttir voru til eyjarinnar
fyrir ekki alls löngu og urðu
Bandaríkjamönnum tilefni
harðra árása á ensk fyrirtæki.
Talsmaðurinn gaf það í skyn,
að stjórn sín hefði gert allt
hvað hún gat til að koma í
veg fyrir þessa sölu.
Slys þetta bar að með þeim
hætti að móðir litlu telpunnar
var að koma út úr strætisvagni
við Múla með þrjú ung börn
sín, 5 ára, 3ja ára og 2ja ára
og gekk hún út á götuna fram-
an við strætisvagninn. 1 sama
bili kom fólksbíll fram með
strætisvagninum og tókst bif-
reiðarstjóranum að snögghemla
og forða þvi að hann lenti á
börnunum, en í sama vetfangi
kom vörubifreið úr gagnstæðri
átt. Sá bifreiðastjóri vörubíls-
ins litlu telpuna koma fram á
götuna framan við fólksbílinn
og hemlaði i skyndi en hemlarn-
ir héldu ekki og rann bíllinn á-
fram og lenti litla telpan undir
hægra afturhjóli bílsins og
beið samstundis bana.
Þar eð ekki hafði náðst til
ættingja telpunnar úti á landi
Fékk í skrúfuna
Ólafsvík 5/5 — í gær þegar
netabáturinn Sveinbjöm Jak-
obsson var að leggja síðustu
netatrossuna á miðunum fór í
skrúfuna hjá honum. Báturinn
komst við illan leik að Svörtu-
loftum. Varðskipið Óðinn kom á
vettvang og aðsUxðaði Svein-
björn. Kafaði froskmaður af Óðni
og skar úr skrúfunni. — I. J.
verður nafn hennar ekki birt
að sinni.
Furðufiskur
Á sunnudag fengu skipverjar
á Sædísi RE sjaldgæfan fisk í
netin, er skipið var að veiðum
um 24 sjómílur norðvestur af
Gróttu.
1 gær var svo furðuskepna
þessi send fiskideild atvinnu-
deildar háskólans til athugun-
ar. Reyndist þetta vera lýr en
hann er af þorskakyni, og svip-
aður ufsa. Lýrinn er hinn
skrautlegasti á litinn, olifu-
grænn og silfurgrár með gulum
rákum.
LAUS
HVERFI
Langahlíð
Fálkagata
Afgreiðsla Þjóð-
viljans, sími 17500.