Þjóðviljinn - 07.05.1964, Blaðsíða 12
Beinn halli Bæjarútgerðarinnar nam
2.8 miljónum króna árið 1964
Misjafn aðbúnaður á vinnustöðum
Það hefur lengi viljað við brenna að aðbúnaður að verkamönnum sem stunda byggingarvinnu hér í
borg sé slæmur, vinnuskúrar litlir og lélegir og aðstaða til kaffidrykkju innanhúss á vinnustað víð-
ast mjög slæm. Myndin sem hér fylgir er tekin fyrir skömmu inni í vinnuskúr við Armúla 10 og
mun þetta vera einn af betri vinnuskúrum hér hvað stærð og gerð snertir. Þó sést það vel á mynd-
inni að ekki er mikið borðrými til kaffidrykkju þarna inni en þó mun aðbúnaðurinn þarna vera
eins og áður segir hátíð hjá því sem er víða annars staðar. (Ljósm. Þjóðv. A.K.)
Sinfóníutónleikar
/ Háskóiabíói í dag
Sinfóníuhljómsveit íslands efnir til tónleika í Háskóla-
bíói fimmtudaginn 7. maí kl. 21. Stjórnandi er Igor Buketof
en einleikari pólski fiðluleikarinn Wanda Wilkomirska.
Á efnisskrá tónleikanna er Forleikur að Beatrice et Bene-
dict eftir Berlioz. Fið'lukonsert Brahms, í D-dúr, Spurn-
ingu ósvarað eftir Charles Ives og Sinfónía nr. 3 eftir
Robert Ward. Þetta eru næstsíðustu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar á þessu starfsári.
Aðeins eitt af skipum útgerð-
arinnar skilar reikningslegum
hagnaði. Er það b.v. Ingólfur
Amarson, og nemur hagnaður
á rekstri hans 1,4 milj. kr. Þá
er hagnaður af m.b. Leifi Eiríks-
syni 204 þús. kr., af skre'ðar-
verkun 334 þús. og af síldar-
verkun 226 þús. kr.
Tap á rekstri hinna skipanna
er sem hér segir og hafa þá
farið fram lögmætar afskriftir:
Skúli Magnússon 1,8 milj., Hali-
veig Fróðadóttir 3,1 milj., Jón
þorláksson 239 þús., Þorsteinn
Ingólfsson 3 milj. og 77 þús.,
Pétur Halldórsson 1 millj. 867
þús„ Þorkell Máni 3 milj og
295 þús., Þormóður Goði 3
milj. og 465 þús.
Halli saltfiskverkunarstöðvar-
innar nemur 342 þús. og Fisk-
iðjuversins 67 þúsund kr.
Gert er ráð fyrir að heildar-
reikningar Bæjarútgerðarinriar
verði lagðir fyrir næsta fund
útgerðarráðsins.
Tveim fjölbýlis-
lóðum við Eliiða-
vog úthiutað
Borgarráð samþykkti á fundi
sínum s.l. þriðjudag samkv.
till. lóðanefndar úthlutun á 2
lóðum undir 8 hæða fjölbýlis-
hús við Elliðavog.
Samkv. þessu fá þeir Páll
Friðriksson byggingameistari og
Bjöm Emilsson tæknifræðingur
Elliðavog 22—24, en Súð h. f.
Austurstræti 14 (Kjartan Ól-
afsson, byggingameistari og
Ejöm Pétursson fasteignasali)
fá lóðina Elliðavog 36—38.
Á hvorri þessari lóð er gert
ráð fyrir að reist verði 32—43
íbúðir eftir því hve stórar íbúð-
imar eru.
Pólski fiðluleikarinn Wanda
Wilkomirska er fædd í Varsjá,
og er af mjög þekktu tónlistar-
fólki komin Hún hóf nám í
fiðluleik, þegar hún var 5 ára
að aldri og fyrsti kennari henn-
ar var faðir hennar, sem er
þekktur fiðluleikari. Hún var 7
ára, þegar hún lék í fyrsta sinn
opinberlega á tónleikum og 15
ára að aldri lék hún sem ein-
leikari með hljómsveit.
Wilkomirska hefur unnið til
verðlauna í fjöldamörgum sam-
keppnum í fiðluleik víðsvegar
um heim, t.d. í Genf, Búdapest,
Leipzig og víðar. Hin frægu
Wieniawsky-verðlaun hlaut hún
árið 1952.
Wilkomirska hefur ferðast
mjög víða og haldið sjálfstæða
tónleika og leikið sem einleik-
ari með hljómsveitum. Hún
hefur leikið í Bandaríkjunum.
Kanada, Israel, Japan, Rúss-
landi og í nær öllum Evrópu-
löndum. ísland er 26. landið
sem hún heimsækir. Wilkom-
irska hefur leikið einleik með
hljómsveitum undir stjórn 121
hljómsveitarstjóra og meðal
þeirra mætti nefna Kletzki,
Klemperer, Hindemith, Sawall-
isch og Guilini.
Fjórða málverka-
uppboð Kristjáns
Málverkauppboð verður hald-
ið í Breiðfirðingabúð á laugar-
daginn kemur og er það fjórða
listaverkauppboð Kristjáns
Guðmundssonar. Þar verða
seldar rúmlega 50 myndir, flest
olíumálverk, eftir um 20 þekkta
listamenn, þ.á.m. Kjarval og
Jón Engilberts.
Málverkin verða sýnd í sýn-
ingarsal Málverkasölunnar að
Týsgötu 1 í dag og á föstudag-
inn kl. 2—6 e.h. Uppboðið
hefst kl. 4.
Myndlistar-
sýning skól-
anna vel sótt
Sýníngu þeirri, sem haldin
var £ Listamannaskálanum á
myndlist bama og unglinga,
lauk á sunnudagskvöldið 26.
apríl.
Að þessari sýningu stóðu
fræðsluráð Reykjavíkur og Fé-
lag íslenzkra myndlistarkennara.
Á sýningunni voru 650 mynd-
ir frá átján barna- og unglinga-
skólum, þar af frá fimm skól-
um utan af landi.
Sýningin var mjög fjölsótt og
komu þar alls 9350 gestir. Marg-
ir kennarar í skólum borgarinn-
ar fóru með nemendur sína til
þess að skoða þessa fjölbreyttu
sýningu.
Föstudagskvöldið 24. apríl
flutti Kurt Zier, skólastjóri
Handíða- og myndlistaskólans
erindi í Listamannaskálanum,
nefndi hann það ,.Foreldrar sem
myndlistakennarar” Ræddi hann
um þróun bamateikninga frá
fyrsta kroti bamsins til 7 ára
aldurs. Einnig drap hann laus-
lega á vandamál myndlistar-
kennslu í barna og unglinga-
skólum. Var erindið hið fróð-
legasta.
Daglega gæzlu á sýningunni
önnuðust myndlistakennarar og
nemendur þeirra.
(Frá Fræðsluskrifstofu Rvík-
ur).
Sóley sprakk út
Grímsey 6/5 — Tíunda apríl
sprakk út sóley í Básalandi. Það
er fyrir norðan heimskautsbaug.
Slíkt muna menn ekki í annan
tíma. Heldur þykir þó þurrt £
jarðveginum og háir það gróðr-
inum. Snjór var vel þeginn
fyrstu maídagana og verða eyja-
skeggjar síður uppiskroppa með
neyzluvatn í sumar,
Sjávarafli liefur verið fremur
tregur síðustu daga.
Húseign auglýst til
greiðslu á 9. OOOkr.
■ Borgarfógetaembættið í Reykjavík auglýsti í Morgun-
blaðinu í fyrradag nauðungaruppboð á húseigninni nr.
103 við Suðurlandsbraut, eign Guðmundar Eyjólfssonar
verkamanns, samkvæmt kröfu Búnaðarbanka Islands.
■ Krafa Búnaðarbankans snýst um greiðslu á 9.000
krónum, sem eru eftirstöðvar af víxli sem Jóhannes Lárus-
son lögfræðingur keypti á sínum tíma af Guðmundi Eyj-
ólfssyni en seldi síðan Búnaðarbankanum. Kærði Guð-
mundur síðar út af þeim viðskiptum og taldi sig hafa
sætt okurkjörum af hálfu lögfræðingsins, en réttarrann-
sókn lauk með því að engin sönnunargögn voru talin
iyrir hendi.
■ Uppboð það sem Búnaðarbankinn hefur krafizt til
fullnaðargreiðslu á þessari skuld er auglýst kl. 3 á
morgun.
Tapið nam þó 15,1
ón kr. þegar 12,3 milj.
kr. afskriftir höfðu verið
færðar til útgjalda.
• Aðalrekstrarreikningur
Bæjarútgerðar Reykjavíkur
var lagður fram á fundi út-
gerðarráðs s.l. mánudag.
Samkvæmt reikningunum
nemur tap á rekstri Bæjar-
útgeröarinnar á s.l. ári 2,8
milj. kr. sé ekki reiknað
með afskriftum.
• Sé reiknað með 12,3
milj. kr. afskriftum af
eignum útgerðarinnar og
þær færðar til útgjalda
nemur tap á höfuðstóls-
reikningi 15,1 milj kr.
Hljómar þetta nafn í aflafréttum?
Patreksfirði 6/5 — Héðinn
Jónsson, skipstjóri á Dofra hef-
ur nú verið ráðinn skipstjóri á
aflaskipið Guðmund Þórðarson
RE og verður með hann í sumar
á síldarvertíðinni fyrir Norður-
landi. Héðinn er hörkuduglegur
aflamaður og er um þrítugt og
fæddur hér á Patreksfirði.
Haraldur Ágústsson, skipstjóri
á Guðmundi Þórðarsyni RE er
nú að kaupa nýtt skip ásamt
Baldri Guðmundssyni, útgerðar-
manni og er verið að smíða það
núna í Framnesi í Noregi.
Þetta nýja skip verður þrjú
hundruð lestir að stærð og búið
öllum nýtízku tækjum og er
væntanlegt hingað til landsins
í öndverðum ágústmánuði og fer
þá þegar á síldveiðar fyrir Norð-
urlandi. Það er búið að ákveða
nafnið á skipinu og á það að
heita Reykjaborgin. Togari með
þessu nafni var skotinn niður í
stríöinu. Þeir félagar eru þó
ekkert hjátrúarfullir yfir þessari
nafngift og áreiðanlega á þetta
nafn eftir að hljóma £ aflafrétt-
um með glæsibrag. Gamla skips-
höfnin á Guðmundi Þórðarsyni
RE fylgir skipstjóra sinum eft-
ir á þessa nýju fleytu.
Týndar og tröllum gefnar?
Vopnafirði 6/5 — Fimm bátar
hófu hákarlaveiðar í öndverðum
marzmánuði og hafa þeir lagt
fimmtán línur norður af Bjarn-
arey og liggja þær stöðugt þar
úti. Gæftaleysi hefur verið und-
anfama níu daga vegna norð-
austan áttar og eru menn hrædd-
ir um að línumar séu týndar og
tröllum gefnar. Hefur ekki ver-
ið hægt að vitja þeirra.
Veiði hefur verið misjöfn
framan af og er Sigurfari afla-
hæstur með átta fullorðna há-
karla að verðmæti um sextíu
þúsund krónur fullverkaðir. For-
maður á Sigurfara heitir Albert
Ólafsson.
Næstur er trillan Dóri með
fimm hákarla og eru hinir bát-
amir með þetta einn og tvo eft-
ir tímann. — D. V.
Þar skeikar ekki degi
Hálsahrcppi 6/5 — Við áttum
stxitt spjall i dag við Jón H.
Guðmundsson, bónda að Kolslæk
i Hálsahreppi i Borgarfirði, og
spurðum almæltra tiðinda af
þessum slóðum. Jón flýði svall
borgarinnar fyrir tæpu ári og
hefur búið aleinn ásamt hundr-
að kindum á þessum afskekkta
bæ efst í Borgarfirði nær óbyggð-
um.
— Það vantar bæði kven-
mann og kúna á bæinn, sagði
Jón.
— Ætlarðu að fá þér eina hol-
lenzka?
— Er það kvenmaður með
Ieyfi? spurði Jón á móti. — Ja,
stendur það til boða, kall minn?
— Var ekki heldur cinmana-
Iegt £ vetur?
— Læt ég það vera, sagði Jón.
Maður hefur íitvarpið og póg af
góðum bókum til lestrar.
— Er sauðburður byrjaður?
— Þann fimmtánda, sagði Jón
ákveðinn.
— Ég hef þetta allt skráð í
almanakinu og þar skeikar ekki
degi. Bið að heilsa í bæinn.
Gamlir og nýir Möðruvellir?
Akureyri 6/5 — Nú er í at.hug-
un að stofna héraðsskóla í Eyja-
firði og hefur mönnum dottið í
hug að endurvekja gamla frægð
að Möðruvöllum í Hörgárdal. Þar
er jarðhitasvæði skammt frá og
staðurinn á gamla frægð sem
skólasetur.
Skólar gagnfræðastigsins á Ak-
ureyri gera nú ekki betur en
fullnægja þörfum kaupstaðarins
og er sveitaæskan í Eyjafirði
eiginlega á hrakhólum í þessum
efnum.
Þannig verður væntanlega
hægt að tala um gamla og nýja
Möðruvellinga í náinni framtíð.
Hætt er við, að ólíkur svipur
verði á þessum tveimur kynsljóð-
um. Annarsvegar hin fomfræga
aldamótakjmslóð og hinsvegar
hin nýja alúmíníumkynslóð.
' M
Onnur vatnsmesta holan
ólafsfirði 6/5 — Hitavcitan í
Ólafsfirði hefur reynzt með á-
gætum og er nú komið á dag-
inn, að þetta er önnur vatns-
mesta holan á landinu, sem
Norðurlandsborinn boraði á sín-
um tíma. Fyrst runnu um fjöru-
tíu sekúndulítrar úr holunni, en
núna renna um þrjátíu sekúndu-
lítrar stöðugt inn í hitaveitu-
kerfið. Vatnið er um fimmtíu
stiga heitt, þegar það rennur í
húsin, en útrennslið er um þrjá-
tíu og fimm stiga heitt. Þá er
aðstaða til gróðurhúsaræktunar
á jörð frammi í sveitinni og er
ætlunin að hugsa til fram-
kvæmda í þeim efnum í náinni
framtíð.
Góð uppeldisstöð fyrir presta
Vatnsleysu 6/5 — Prestssetrið
að Hálsi hér í sveit hefur staðið
í eyði í vetur. Sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson flutti þaðan
í haust til að sálbæta Reykvík-
inga. í seinni tíð hefur Fnjóska-
dalur verið einskonar uppeldis-
stöð fyrir presta. Það er allar
götur síðan Sr. Ásmundur heit-
inn Gíslason hætti hér prest-
skap.
Hér hafa dvalið síðan sr. Helgi
Sveinsson, nú sunnanlands, sr.
Sigurður á Isafirði. sr. Árelíus
og sr. Sigurður Haukur, nú báð-
ir við sama söfnuðinn í Reykja-
vík. Ættu ekki að dyljast þar á-
hrifin frá hinu fnjóskdælska
uppeldi. Þá þjónuðu hér í nokk-
ur ár sr. Björn O. Bjömsson, þá
orðinn vel fullorðinn og fastmót-
aður. Varð þó hér innblásinn
friðarsinni og hóf baráttu gegn
helsprengjunni.
1 tíð sr. Bjöms á Hálsi urðu
miklar umbætur á staðnum. Þar
á meðal byggt íbúðarhús, fjós og
hlaða. í tíð sr. Sigurðar Hauks
héldu umbætur áfram og byggði
hann fjárhús og hlöðu og mikið
ræktað.
Jörðin er í miðri sveit og virð-
ist ekki óálitlegt að búa þama.
Sr. Jón Bjarman í Laufási
hefur þjónað þessu prestakalli
í vetur og hefur vonandi haft
gott af. Um Fnjóskdælinga er
það að segja að þeir em þetta
alltaf eins. — O. L.
»
l