Þjóðviljinn - 13.05.1964, Síða 1

Þjóðviljinn - 13.05.1964, Síða 1
Miðvikudagur 13. maí 1964 — 29. árgangur — 106. tölublað. Stutt viðtal við vinnings- hafa i Happdrætti Þjóðvilj- ans er birt á 12. síðu ÞJÓÐARTEKJURNAR HAFA VAXIÐ UM 107% FRÁ 1959-1963 Yerkalýðshreylingin krefst síns hlutar af aukningu jtjóðarframleiðslunnar Forseti fsiands sjötugur í dag Forseti íslands, herra Ásgeir Ás. geirsson, er sjötíu ára í dag, 13. maí Nokkrar svipmyndir frá starfsferli forsetans og helztu æviatriði eru birt á 2. siðu blaðsins í dag. □ í útvarpsumræðunum í gærkvöld ræddi Hannibal Valdimarsson^ einkum um hlut launastéttanna í þjóðartekjunum og fullyrðingar stjórn- arflokkanna um að kröfur verkalýðssamtakanna séu undirrót verðbólgu- þróunarinnar. Sýndi hann fram á, að þjóðartekjumar hafa vaxið um 107% á sama tíma og kaup hefur hækkað um einungis 55%. Framleiðslu- aukningin hefur vaxið tvöfalt meira en nemur hækkun kaupsins. n Eina leiðin til að stöðva óheillaþróun verðbólgunnar, er að samkomulag takizt á grundvelli þess samningstilboðs, sem Alþýðusambandið hefur gert ríkisstjórninni, og kvaðst Hannibal binda miklar vonir við þær samningaumleitanir, sem nú færu fram milli þessara aðila. í upphafi ræðu sinnar vék Hannibal að nokkrum atriðum í ræðum stuðningsmanna ríkis- stjórnarinar j fyrrakvöld. Kvað hann nú svo komið, að líkast væri því að ráðherrarnir vildu sem mest forðast að ræða póli- tík — og fulltrúar þeirra legðu allt kapp á að forða því að sjónarmið, sem túlkuðu málstað launþega, fengju að heyrast í útvarpinu, eins og bezt sézt á því að Alþýðusambandinu var neitað um aðild að dagskrá út- varpsins 1 maí. Venjur eru brotnar varðandi þetta og andi stjórnarskrárinnar um óheft skoðanafrelsi fótum troðinn. Þetta er líka óhyggilegt. Sjónvarpsmálið Sama hefur komið í ljós á fleirum sviðum. Prófessor Þór- halli Vilmundarsyni var neitað um flutning á snjöllu erindi í útvarpið, þar sem hann túlk- aði málstað þjóðar sinnar gagn- vart þeirri menningarlegu for- smán, sem dátasjónvarpið á Keflavíkurflugvelli er. Dýrtíðaraukningin 15% á ári undir viðreisn Þá vék Hannibal að stefnu ríkisstjórnarinnar og sagði með- al annars: „Ríkisstjórnin og áróðursmenn hennar halda þvi fram, að hin óhugnanlega dýrtíðar- og verð- bólguþróun hér á landi sé alls ekki stjórnarstefnunni, heldur verkalýðshreyfingunni að kenna Ef þetta væri rétt, vseri það raunar viðurkenning þess, að stjórnin hefði alls ekki ráðið við þessi þýðingarmiklu mál, heldur misst þau úr höndun- um. Þannig væri hlutur stjórn- arinnar ekki allt of góður, þótt þessi kenning væri rétt. En þessi kenning er röng með öllu . Stefna stjórnarinnar er gengislækkunar- og dýrtíðar- stefna. Getur nokkur maður Framhald á 3. síðu. Kjarabarátta meginverkefni Verkamannasambands ísiands Vorfundur utanríkisrúðherra NATO Ðjúpstæður ágreiningur um flest meginviðfangsefnin HAAG 12/5 — Ljóst er að djúpstæður ágreining- ur er um flest helztu málin sem liggja fyrir vor- fundi utanríkisráðherra Atlanzhafsbandalagsins, sem hófst i Haag í morgun, og hefur þó það ráð verið tekið að fjalla ekki um sum þau mál sem ósamkomulag er hvað mest um, eins og t.d. stofn- un sameiffinlegs kjarnorkuflota bandalagsins. A þessum fundi NATO. sem utanríkisráðherrar allra aðiidar- ríkjanna nema Islands sitja (Pétur Thorsteinsson sendiherra er fulltrúi Islands á fundinumþ er búizt við að helztu málin sem fjallað verður um verði Kúba og Suður-Vietnam, be. tilmæli Bandaríkjastjómar um að NATO- ríkin veiti sér að málum i af- stöðunni tii þessara landa taki bátt f viðskipt.abanninu á Kúbu og veiti Bandaríkiunum aðstoð f stríði heirra gegn bióðfrelsis- hreyfingu Vietcongs í Suður- Vietnam Þegar er hægt að fuli- vrða að bessi tilmæli Banda- ríkiastjómar muni fá dræmar undirtektir á fundinum. T r-kn 'íínTin<;TTÍórnIii Þaö má sjá af bvi að vestur- býzka stjómin, sciin þó er talin tryggasti bandamaður Bandaríkj- anna. reyndist ófáanleg til að verða við tilmælum McNamara landvarnaráðherra um aðstoð við Bandaríkin f stríði þeirra f Suð- ur-Vietnam, en McNamara var í Bonn um helgina gagngert f bessu skyni. Haft er eftir stjóm- arerindrekum f Bonn að þessi treaða vesturþýzku stjómarinnar aefi til kynna hve Rusk utanrfk- ;sráðherra muni reynast þungur -óa,,rínn á fundinum í Haag. Ajiélc+aðíi Frakka Afstaða Bonnstjómarinnar í iiessu máli er talin markast af beirri vfirlýstu stefnu frönsku stjómarinnar að semja beri frið í Suður-Vietnam og gera alþjóða- samning um hlutleysi landsins og nágrannaríkjanna. Franska stjómin er einnig al- gerlega andvíg viðskiptabanni Bandaríkjanna á Kúbu og hefur sýnt það í verki með þvf að veita ríkisábyrgð á víðtækum viðskiptasamningum við Kúbu. önnur NATO-ríki hafa einnig algerlega hafnað tilmælum Bandaríkjanna um að taka þátt í viðskiptabanninu á Kúbu. og engar líkur á þvf að þau breyti beirri afstöðu sinni. hve ein- dregnum tilmælum sem beint verður til þeirra á NATO-fund- Ræða Rusks Rusk flutti fyrstu ræðuna á fundinum í Haag og fjallaði hún einkum um Kúbu og Suður-Viet- nam. Hann kvaðst vona að önn- ur NATO-ríki endurskoðuðu af- stöðu sína til Kúbu í ljósi þeirr- ar staðreyndar að Kúba ógnaði örvggi alira v«:turlanda og kvað hú ýr aflahlutar í Rvík —12. nauðsynlegt að öll NATO-rfki legðu eitthvað af mörkum til baráttunnar gegn kommúnisman- um í Suður-Vietnam. Forseti Alþýðusambands íslands HANNIBAL VALDIMABS- SON, að flytja ávarp á stofnþingi Verkamannasambands íslands. HERMANN GUÐMUNDSSON, formaður HLÍFAR í Hafnarfirði setti þingið. í ályktun stofnþings Verkamannasambands íslands um kjaramál er meginverkefnum hinna nýju samtaka lýst þannig: ,,Verkamannasamband Islands mun skoða það sem megin- verkefni sitt að einbeita kröftum félaganna sem að því standa og samtakamætti þeirra til þess ...: að sem jafnastar og öruggastar kjarabætur til handa verka- mannastéttinni koini árlega til framkvæmda, vinnutími verði styttur í áföngum og án skerðingar heildartekna, fulikomnu Iaunajafnrétti kvenna og karla verði komið á, á sem allra skemmstum tíma, orlofsréttindin aukin og hlutur verkamanna- stéttarinnar miðað við aðrar Iaunastéttir verði bættur“. Verkamannasambandið lýsir yfir stuðningi við ályktun Al- þýðusambands Islands um stöðvun verðbólgunnar og raun- hæfar kjarabætur, varar eindregið við ofbeldisaðgerðum gegn verkalýðshreyfingunni og leggur áherzlu á, að náist ekki samn- ingar eftir friðsamlegum leiðum hljóti verkalýðshreyfingin að beita öllum mætti samtakanna til að rétta hlut alþýðu. Ályktunin um kjaramál og viðtal við Eðvarð Sigurðsson, for- mann Verkamannasambands Islands, er birt á 4. síðu. ASV styður ályktun ASf - Vestfjarðafélög segja upp Á fulltrúafundi Alþýðusam- bands Vestfjarða sem haldinn var ó fsafirði sl. sunnudag var samþykkt samhljóða að lýsa yf- ir fyllsta stuðningi við ályktnn miðstjórnar Alþýðusafbands ts- Iands uni kaupgjaldsmálin og fagngð jafnframt þeim viðræð- um sem nú eru hafnar á milli fulltrúa verkalýðssamtakanna, atvinnurekenda og ríkisstjórn- arinnar um vandamálin og lýst yfir þeirri von, að viðræður þessar leiði til friðsamlegrar lausnar, sem tryggi verkalýðn- um aukið efnahagslegt öryggi, aukna vinnuvernd og batnandi lífskjör. Ennfremur samþykkti fundur- inn samhljóða að leggja til við sambandsfélögin að þau segi upp öllum samningum sínum varðandi kaup landverkafólks fyrir 20. þ.m., en gildistími um- ræddra samninga er til 21. júní næstkomandi. ■ Náið samstarf og sam- staða Á fundinum urðu miklar um- ræður um skipulagsmál verka- lýðshreyfingarinnar, og um að- ild sambandsfélaga Alþýðusam- bands Vesturlands að hinu ný- stofnaða Verkamannasambandi, en það mál hefur verið til at- hugunar hjá hinum einstöku fé- lögum í Vestfjörðum. Fundurinn samþykkti að ef vestfirzku félögin hefðu ekki gerzt meðlimir Verkamannasam- bandsins áður en samningar hefjast við atvinnurekendur. að leita eftir sem nánustu samstarfi og samstöðu við Verkamanna- sambandið um samningsgerðina, og þá á þeim grundvelli. að um landssamning verði að ræða varðandi öll helztu atriði samn- ingsins. — (Samkvæmt frétta- tilkynningu frá ASV). V t

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.