Þjóðviljinn - 24.05.1964, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.05.1964, Blaðsíða 1
Sunnudagur 24. maí 1964 — 29. árgangur — 114. tölublað. SÓSÍALISTAFÉLAG REYKJAVÍKOR □ Aðalfundur Sósíalistafélags Reykjavíkur verðui; halíönn að Tjarnargötu 20 næstkomandi þriðjudag kL 20.30. □ Dagskrá: V.enjuleg aðalfundarstörf. □ Félagar eru beðnir að 'fjölmenna og sýnsc félagsskírfeini yfð innganginn. Stjómin. Sunnudagur og Óskastundin I SUNNUDAGUR og ÓSKA- STUNDIN fylgja Þjóð- viljanum í dag, og flytja margvíslegt efni. ■ í SUNNUDEGI er m.a. birt önnur greinin frá starfi búnaðardeildar At- vinnudeildar Háskólans: Mold — Að finna hinn gullna meðalveg, það er viðtal við Bjarna Helga- son. Þá er viðtal við Unnar Benediktsson í Hveragerði: Við vötnin ströng — Kvöldstund með Austur-Skaftfellingi. Ey- firzka perlan nefnist frá- sögn eftir Adolf J. E. Petersen og Veiðiferðin smásaga eftir H. E. Bat- es. Of margt — of smátt nefnír Árni Bergmann sunnudagspistil sin; Ijóð er eftir Braga Jónsson frá Hoftúnum, ennfrem- ur Vísur sunnudagsins, greinarkorn með fyrir- sögninni Vísindin vita ekkert svar, teikningar eftir Bidstrup, skrítlur, verðlaunagetraun, frí- merkjaþáttur, bridgeþátt- ur, föndurhorn og kross- gáta. I ÓSKASTUNDIN flytur að vanda hið fjölbreyttasta lesefni við hæfi yngri kynslóðarinnar. Meðal annars myndir og frá- sögn af heimsókn í Mús- íkbarnaskólann, tcikning- ar barna, og sitthvað fleira. Sumarsýning DAGLEGIR SAMNINGAFUNDIR UM KJARAMÁLIN j Félögin norðanlands og austan gefa umboð til vinnustöðvunar Ásgrímur Jónsson. I dag, sunnudagínn 24. mai, verður sumarsýning opnuð í Ásgrímssafni, og er hún 12. sýn- ing safnsins síðan það var opn- að árið 1960. Fyrirkomulag sýningarinnar Framhald á 9. síðu. ■ Samkvæmt upplýs- ing-um sem Þjóðviljinn aflaði sér í gær, miðaði lítið sem ekkert í sam- komulagsátt á fundi sáttasemjara ríkisins með samninganefnd fé- laganna fyrir norðan og austan og atvinnurek- endum í fyrrinótt. Var það þriðji samninga- fundur deiluaðila og stóð hann frá kl. 9 í fyrra- kvöld til kl. 5 um nótt- ina. Boðað var til nýs fundar kl. 5 síðdegis í gær. ■ Öll, stærstu verkalýðs- félögin á Norður- og Austur- landi hafa nú gefið samn- inganefnd sinni umboð til að lýsa yfir vinnustöðvun, hve- nær sem er með tilskildum fyrirvara og stöðugt bætast fleiri félög á þessu svæði í hópinn. ■ Viðræðum Alþýðusam- bandsins, atvinnurekenda og ríkisstjómarinnar er stöðugt haldið áfram. Þrjár undir- nefndir hafa verið að störf- um undanfarið, og hafa þær fjallað um húsnæðismál, kjaramál og styttingu vinnu- tímans. Vinnutímanefndin mun hafa skilað áliti og til- lögum sínum um styttingu vinnutímans, en ekkert er enn vitað um afstöðu at- vinnurekenda til þeirra til- lagna. Síðustu tvo niánuði hefur Júní farið þrjár veiðiferðir, þar af landað tvisvar heima. Verðmæti afians upp úr skipinu úr þessum veiðiferðum mun nema nokkurn vegánn sömu upphæá og íhaldsmenn í Hafnarfirði ætla nú að selja skipið á. Júní er 572 lestir, smíðaður í Aberdeen árið 1951. — Myndin er tekin um borð i Júní á Grænlandsmiðum fyrir nokkrum árum (Ljósm. „^nas Árnason). TOGARINN JÚNÍ SELDUR ÚR LANDI Á SMÁNARVEHÐI ■ Á fundi útgerðarráðs Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar í fyrrakvöld voru undirritað- ir samningar um sölu á togaranum Júní msð þeim fyrirvara, að samþykki fáist frá veðhöfum Bæjarútgerðarinnar, bæjarstjórn Hafnarfjarðar og öðrum opinberum aðil- um er hlut eiga að máli. Kaupandi er gríska útgerðarfyrirtækið Joannis Stafhakis & Sons, söluverð er 3,6 miljónir íslenskra króna. Sölusamningui'inn var sam- þykktur í útgerðarráði með at- kvæðum fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins, Eggerts ísakssonar og Stefáns Jónssonar, og Alþýðu- flokksins, Kristins Gunnarssonar Fylkingin Aðalfundur ÆFR Aðalfundur Æskulýðsfylking- arinnar í Reykjavík verður haldinn næst komandi fimmtu- dag kl. 8.30 í Tjamargötu 20. Dagskrá: venjuleg aðalfundar- störf. Stjórnin. og Guðlaugs Þorsteinssonar. gegn atkvæði Kristjáns Andrés- sonar fulltrúa Alþýðubandalags- ins, sem vísaði til afstöðu sinnar á fyrri fundum, er málið var til umræðu, þar sem hann lýsti yfir, að hann væri andvígur þeirri stefnu, sem nú er upptekin, að selja togara bæjarútgerðarinnar. Kristján benti jafnframt á, að söluverð skipsins væri alltof lÉ^t og leysti á engan hátt þann vanda. er fyrirtækið ætti í með rekstur fiskiskipa sinna og vinnslutæki í landi. Upplýst væri að á skipinu hvíldu um 18 milj. króna skuldir, en ekkert lægi fyrir um, hvernig greiða skyldi eftirstöðvar þeirra skulda. Áður en sölusamningurinn var undirritaður, lagði Kristján And- Mogginn segir það dómsmál hvort sjó- menn eigi að fá samningsbundið kaup! ■ Morgunblaðið hefur nú loks fengið málið urn hina ó- svífnu kröfu stjórnarklíkunnar í LÍÚ að brotnir verði samn- ingar á sjómönnum í sambandi við uppgjör fyrir þorskveiðar í nót á vetrarvertíðinni. Heldur blaðið því fram að þetta sé „dómsmál“ og er fullt vandlæt- ingar vegna þess að Þjóðvilj- inn skuli hafa túlkað málstað sjómanna í þessu máli. Hver veit nema íhaldsþingmaðurinn Pétur Sigurðsson gæti upplýst Morgunblaðið eitthvað um fram- ferði íhaldsþingmannsins Sverr- is Júliussonar og kumpána í LÍÚ? ■ f opinþerri yfirlýsingu frá Sjómannasambandinu, sem stjórn Sjómannafél. Reykjavíkur stóð að eins og önnur sjómannafélög, er svo. komizt að orði að sjó- menn séu „agndofa“ yfir fyrir- skipun LÍÚ varðandi uppgjörið í vor, og krefjist þess að samn- ingar séu haldnir. Um „dóms- málið“ sem Morgunblaðið held- ur að allt velti á, segir í til- kynningu Sjómannasambandsins að sjómenn telji að „Sera beri upp skv. þeim eina hringnóta- samningi sem til cr, eins og gert var í vcrtíðarlok 1963, nema á einum bát frá Hafnarfirði, vegna þess að útgerðarmaðurinn hélt að ef gert væri upp samkvæmt þeim samningi, ætti skipstjóri allan aflann samkvæmt gamalli hefð, en í síldarsamningnum frá nóv. 1962 er tekið skýrt fram, að skipta beri síld og öilum öðr- um afla samkvæmt þeim skipta- reglum sem þar eru greindar“. ■ Málið í Hafnarfirði er mál skipverja sem taldi sig hafa verið svikinn um kaup. Það er ekki mál um skilning á kjara- samningi, enda ekki rekið fyr- ir Félagsdómi. Það er því slúð- ur í Morgunblaðinu að nokkurt tilefni sé til að draga uppgjör vegna þess máls, og munu sjó- rnenn ekki láta LÍÚ-klíkuna komast upp með samningsrof- in, hverra undanbragða sem leitað verður. B Sjómannafélögin á Suð- vesturlandi, Sjómannasamband íslands og Fiskimanna- og far- mannasamband íslands hafa öll krafizt þess að gert verði upp fyrir þorskveiðar 1 nót sam- kvæmt eina hringnótasamningn- um sem til er. Tilraun fégráð- ugra útgerðarmanna að liafa ranglega tugi þúsunda króna af liverjum skipverja af aflabát- unum er alstaðar fordæmd. résson til, að í stað þeirra nei- kvæðu verka, sem unnin væru með sölu togarans, yrði gerð raunhæf tilraun til að leysa mestu fjárhagsörðugleika fyrir- tækisins. Tillaga Kristjáns var á þessa leið: „Vegna mikils rekstrarfjárskorts Bæjarútgerðar- innar og hve brýn þörf er á skjótri úrlausn þá samþykkir út- gerðarráð að fara á lcit við Bæj- arstjóm Hafnarfjarðar, að bæj- arsjóður greiði hlutafjáreign sína í Lýsl & Mjöl h.f. að nafn- verði 500 þús. Itr. fyrir lóð þá, er hann tók af bæjarútgerð Hafnarfjarðar og afhenti Norður- stjörnunni h.f. Jafnframt hcimili Bæjarstjórn, að bæjarútgerð Ilafnarfjarðar megi selja hluta- bréfin ásamt eigin hlutabréfum í Lýsi & Mjöl h.f. til hæstbjóð' anda, ef viðunandi boð fæst“, Með samþykki þessarar tillögu myndi Bæjarútgerð Hafnarfjarð- ar hafa til sölu meirihluta hluta- bréfa í Lýsi & Mjöl hf., en meiri- hluti hlutafjáreignar í slíku fyr- irtæki, sem auk þess á frystihús, er tugmiljón króna vii’ði, og má í því sambandi minna á, að Faxaverksmiðjan, sem er óstarf- hæf og þarf mikilla endurbóta við, var fyrir skömmu seld á 45 miljónir króna. Eins og málum er háttað hefur bærinn og Bæj- arútgerðin hinsvegar engu ráðið um stjóm Lýsis & Mjöls hf., þrátt fyrir meirihlutaeign í fyrirtæk- inu og ekki fengið sem svarar bankavöxtum af vaxtaverði hlutahréfanna. Frekari umræð- um um tillögu Kristjáns og af- greiðslu á henni var frestað til næsta fundar. Hafnfirðingar eru almennt furðu lostnir yfir þessari sölu á Júní, eða öllu heldur gjöf, þar sem skipið ásamt fullkomnasta útbúnaði er selt á ekki meira verði en það hefur aflað fyrir í þrem síðustu veiðiferðum. Menn spyrja: hver er tilgangur- inn með þessari „sölu“? Enginn þarf að vera í vafa um að það er stefna Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði að leggja Bæjarút- Framhald á 9. síðu. HLÍF mófmœlir sölunni á JÚNÍ Fimmtudaginn 14. maí sl. gerði stjórn Vmf. Hlífar í Hafnarfirði einróma eftir- farandi samþykkt: ..Fundur haldinn í stjóm Vmf. Hlífar mótmælir harðlega þeirri sölu, sem fyrirhuguð er á togaran- um Júní. Telur fundurinn slíka ráðstöfun mjög alvar- legan og slæman verknað varðandi atvinnulífið í bænum. Þá bendir fundur- inn á, að togarinn Júní er eitt af betri skipum tog- araflotans. Fyrir því skor- ar fundurinn á Bæjar- stjóx-n Hafnarfjarðar að selja eigi togarann“. Forsetahjónin í siglingu Meðal farþega sem tóku sér far með m.s. Gullfossi héðan frá Reykjavík í gær áleiðis til Leith og Kaupmannahafnar voru forsetahjónin. Verða þau aðeins stuttan tíma í utanför þessari. koma heim með skipinu að tólf dögum liðnum. f í í 1 *

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.